Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 55
JENNIFER LOPEZ JANE FONDA Sýnd kl. 3, 6 og 8 553 2075☎ - BARA LÚXUS Sýnd kl. 10 B.i 14 ára  Bourne Identity „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV  Blaðið  Blaðið  ÞÞ - FBL Frá leikstjóra Bourne Identity  Ó.Ö.H. DV  MBL kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i 14 ára Blaðið  ÞÞ - FBL Miðasala opnar kl. 14.30 Hinn eini rétti hefur aldrei verið eins rangur! Frábær gamanmynd sem fór beint á toppinn í USA. Sýnd kl. kl. 3.45, 6, 8.30 og 10.40 „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV  Missið ekki af svölustu mynd sumarsins með heitasta pari heims! AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 38.000 gestir SJ. blaðið  MORGUNBLAÐIÐ x-fm Sýnd kl. 3, 6 og 9 B.i 10 ÁRA kl. 3.20, 5.40 og 8 B.i 16 ÁRA Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch r fr l i t t kl. 10.10 B.i 16 ÁRA Orlando Bloom, Liam Neeson og Jeremy Irons fara á kostum í epískri stórmynd. Missið ekki af þessari kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 T O M C R U I S E Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20-POWER Síðustu sýningar Síðustu sýningar POWERSÝNINgá stærsta thxtjaldi landsins kl. 10.20 I N N R Á S I N E R H A F I N Ó.Ö.H - DV  Ó.Ö.H - DV  Ó.Ö.H - DV  YFIR 29.0 00 GESTIR MYND EFTIR Steven spielberg TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU YFIR 29.0 00 GESTIR „Innrásin er girnileg sumarskemmtun, poppkornsmynd af bestu gerð!“ -S.V, MBL  „EKTA STÓRSLYSAMYND“ -Ó.Ö.H, DV  -KVIKMYNDIR.IS  -Ó.H.T, RÁS 2          MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 55 Hróarskelda. Morgunblaðið. | Tveir fulltrúar frá Íslandi prýða Hróars- kelduhátíðina í ár. Í dag klukkan 13 leikur Mugison í Paviliontjaldinu en á miðvikudaginn lék Brúðarbandið í sama tjaldi – sem þá hét reyndar Pavilion Junior. Undanfarin ár hef- ur nefnilega verið rekið eitt tjald á meðan fólk er að streyma inn á svæðið, frá sunnudegi til miðviku- dags. Þetta er í fyrsta skipti sem tjald sem tilheyrir hinni formlegu hátíð er notað en áður var sett upp sérstakt svið á tjaldsvæðinu, kallað „camping stage“. Þessi tilfærsla hefur verið til mikilla bóta og gefur þessum forhátíðartónleikum aukið vægi. Brúðarbandið tók yfir sviðið klukkan 15.15 og lék til 16. Bandið átti sviðið allan tímann, tjaldið og alla þá sem í því voru líka. Hljóm- sveitin var hress og kæruleysislega grínaktug; meðlimir töluðu til áhorfenda á ýktri dönsku, hrópuðu skál, sveifluðu Tuborgflöskum og hvöttu fólk áfram á milli laga. Tjaldið var því vel með á nótunum allt til enda og það var gaman að sjá svipinn á fólkinu sem sagði: „Hvað er þetta eiginlega?“ um leið og maður merkti „Ég er að fíla þetta!“ blik í augum. Blátt áfram, pönkleg nálgun Brúðarbandsins við rokkið, að kýla á þetta frekar en að vera að hafa áhyggjur af þessum eða hinum gítarhljómum, var að svínvirka í þessu samhengi. Stuðið varð reyndar það mikið að sveitin var klöppuð upp, eitthvað sem ger- ist sjaldan á „camping stage“ tón- leikum. Fólk vildi „meira“, rétt eins og hljómsveitin sjálf lýsti yfir á fyrstu plötu sinni sem út kom í fyrra. Eftir tónleika hitti blaðamaður á meðlimi baksviðs. Spennufall var merkjanlegt – en um leið ofsagleði. Þetta gekk upp! Á þessum tón- leikum sá Óli úr Skátum (var áður í Graveslime) um trommuslátt og leysti þar með Dísu af (sem sjálf var að leysa Sunnu, trommara Brúðarbandsins, af). Aðrir meðlimir voru þó allir á staðnum, þær Mel- korka (söngur), Sigga (gítar), Eygló (gítar), Kata (harmonikka), Unnur (bassi) og Guðbjörg (hljómborð). Allir segja já Kata rifjar upp að þegar þær höfðu verið starfandi í um þrjár vik- ur hafi þær farið í viðtal á Rás 2. Þar hafi Melkorka sagt að þær ætl- uðu að spila á Airwaves, gefa út plötu og spila svo á Hróarskeldu. Svo hafi þær sprungið úr hlátri. En allt hefur þetta ræst. Það er kannski ekki svo mikið mál að vera rokkari eftir allt saman? „Ekki svo,“ segir Melkorka og brosir. „Maður þarf að kunna lít- illega á hljóðfæri en svo er þetta bara talsverð vinna auk þess sem mannleg samskipti hafa mikið að segja. Stundum held ég að við þyrftum að fá svona sálfræðing til okkar líkt og Metallica!“ Hún klykkir út með því að segja að næst sé það South by South- West-hátíðin í Austin. „Það sem okkur finnst vera svo skemmtilegt er að nú erum við mjög langt frá því að vera heimsins bestu hljóðfæraleikarar,“ segir Sigga. „Þannig að allir geta gert þetta ef þeir vilja. Þú þarft bara að vera í stuði, þá reddast þetta.“ Þetta hefur sannarlega verið mik- ið ævintýri hjá Brúðarbandinu og á stuttum ferli hafa þær framkvæmt hluti sem aðrar sveitir aðeins dreymir um. „Það er eins og margir séu reiðir út í okkur. Nei, það eru margir reiðir út í okkur,“ segir Melkorka. „Og við sem höfum litið á þetta sem hvetjandi. Fólk segir að allt sé þetta undir brúðarkjólum og kyn- ferði komið og það er auðvitað bull. Við erum búnar að vinna eins og skepnur að þessu. Fólk segir að þetta sé bara flipp. Og þess má geta að við erum einmitt mjög flippaðar (hlær).“ Þær segja að þessi tilteknu tón- leikar hafi kannski ekki verið bestu tónleikarnir þeirra út frá spil- unarlegu sjónarmiði. Þeir hafi hins vegar verið mjög skemmtilegir og þær hafi aldrei spilað fyrir svona mikið af fólki. „Þetta var bara svo súrrealískt,“ segir Eygló. „Og það var mjög gaman að spila. Við vorum að fara yfir um rétt fyrir tónleika af stressi. Það var skjálfti, ælutilfinning, allt. Melkorka var sú rólegasta en svo fraus hún í öðru lagi – en kom sem betur fer aftur. Þetta fór hægt af stað en í endann var þetta blússandi stuð.“ Melkorka segir að snúnings- punkturinn hafi verið þegar Eygló hrópaði „scream for me Roskilde!“ að hætti meistara Bruce Dickinson. Það þýðir lítið að spyrja um framtíðaráætlanir hjá Brúðarband- inu, því þær eru engar. „Næst eru það Margaritur í boði 12 tóna og svo Sonic Youth. Meira vitum við ekki.“ Eftir þetta rauk sveitin í næsta viðtal en töluvert af blaðaviðtölum var framundan svo og sjónvarps- viðtal. Svo virðist sem allir séu að segja já við bónorði brúðanna sjö um þessar mundir. Hróarskelduhátíðin | Brúðarbandið hleypti upp miklu stuði Tryllingsleg brúðkaupsveisla Morgunblaðið/Arnar Eggert Brúðarbandið slakar á eftir vel heppnaða Hróarskeldutónleika. arnart@mbl.is Þeir sem hafa í gríni kallað ParisHilton prinsessu eru nú allt í einu ekki svo langt frá hinu rétta því nú vill stúlkan annaðhvort gifta sig í kirkju heilags Páls í London eða í Westminster Abbey þegar hún gengur í það heilaga með unnusta sínum og nafna Paris Latsis seinna á þessu ári. Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi að kirkj- urnar tvær leyfa aðeins giftingar kóngafólks. Báðar kirkjurnar leyfa þó aðeins giftingar innan bresku kóngafjöl- skyldunnar. „Ég verð að skrifa prinsinum bréf og fá undantekningu en ég er nú einu sinni sú sem kemst næst því að vera konungsættar í Bandaríkj- unum. Ég hef augastað á kirkju heil- ags Páls og svo Westminster en ef ég fæ ekki leyfi læt ég mér nægja sýslumannsskrifstofuna í Windsor. Windsor er mjög góður aukakostur. Karl Bretaprins gifti sig nú einu sinni þar.“ Fólk folk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.