Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TRAUSTI Baldursson, sem situr í skipulags- og byggingaráði Hafnar- fjarðar fyrir Samfylkinguna, telur að í ljósi byggðaþróunar komi ekki annað til greina en að vothreinsibúnaður verði notaður við álverið í Straumsvík ef það verður stækkað upp í 460.000 tonn. Í núverandi áætlunum sé ekki gert ráð fyrir slíkum búnaði. Hann bendir ennfremur á að Hafnar- fjarðarbær sé ekki bundinn af því um- hverfismati sem hefur verið sam- þykkt vegna stækkunarinnar og geti sett frekari skilyrði vegna hennar. Skipulags- og byggingaráð hefur veitt Alcan leyfi til að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir hugsanlega stækkun álversins. Trausti tekur hins vegar skýrt fram að í því felist ekki að ráðið hafi fallist á tillöguna eða sé henni sammála og enn hafi engin leyfi verið veitt vegna stækkunarinnar. Þá sé það alveg ljóst að bæjar- yfirvöld geti ekki fallast á að þynningarsvæði vegna álversins verði stækkað þannig að það nái yfir núver- andi svæði takmarkaðrar ábyrgðar, líkt og Alcan hafi lagt til. Trausti segir að í tillögu að mat- skýrslu vegna álversins sé gert ráð fyrir að losun á brennisteini verði 15– 18 kíló á hvert tonn, þ.e. um 20 tonn á dag og um 7.000–8.000 tonn á ári auk annarrar mengunar. Svo mikil meng- un sé algjörlega óviðunandi fyrir íbúa í Hafnarfirði og á Álftanesi, sérstak- lega fyrir þá sem búi næst álverinu, sem og fyrir aðra atvinnustarfsemi í grennd við álverið. Ef Alcan ákveði að stækka álverið upp í 460.000 tonna ár- framleiðslu komi ekki annað til greina en að það notist við bestu mögulegu mengunarvarnir. Því sé nauðsynlegt að notast við bæði vot- og þurr- hreinsibúnað. Augljóst sé að með vothreinsun mætti draga verulega úr brenni- steinsmengun í lofti frá álveri Alcan í Straumsvík. Með vothreinsun myndi brennisteinsmengun raunar lenda úti í sjó að hluta til en þar sé brenni- steinninn nánast skaðlaus þar sem hann bindist við sjóinn og verði að súlfati. Önnur mengun í lofti myndi ennfremur minnka. Trausti segir að það skipti miklu máli að mengun verði sem allra minnst. Byggð hafi á síðustu árum færst sífellt nær álverinu og því sjálf- sagt að gera ströngustu kröfur til mengunarvarna. Spurður um hvort ekki dreifist hraðar úr mengun við Straumsvík en í Reyðarfirði segir Trausti að vissulega séu vindáttir og landfræðilegar aðstæður almennt hagstæðari við Straumsvík. Á hinn bóginn séu vindáttir óhagstæðar í nokkra tugi daga á ári og þá feykist mengunin, þ. á m. 20 tonn af brenni- steini á dag, yfir íbúðarbyggð bæði í Hafnarfirði og á Álftanesi. Trausti segir óskiljanlegt með öllu að talsmenn álversins vísi sífellt til þess að mat á umhverfisáhrifum hafi þegar farið fram og þar með hafi fengist niðurstaða í málið. Úrskurður í mati á umhverfisáhrifum sé enginn endanlegur dómur í þessum efnum og það sé Hafnarfjarðarbær sem fari með skipulagsvald og veiti fram- kvæmda- og byggingarleyfi og hafi þannig á valdi sínu hvort leyfi verði veitt fyrir álverinu. Þynningarsvæði stækki ekki Varðandi hugsanlega stækkun þynningarsvæðis vegna álversins segir Trausti að það sé alveg ljóst að hvorki skipulags- og byggingaráð né bæjarstjórn muni samþykkja að þynningarsvæðið verði stækkað. Þeg- ar sé komin íbúðarbyggð innan svæð- is takmarkaðrar ábyrgðar og búið að gera ráð fyrir frekari byggð en sam- kvæmt núgildandi reglugerðum sé bannað að reisa íbúðarbyggð innan þynningarsvæðis. Helst vill Trausti að þynningarsvæðið verði ekkert stækkað frá því sem nú er. Það sé því rétt hjá umhverfisnefnd Hafnarfjarðar að benda á að svona stórt álver inni í „miðjum“ bæ með öllum þeim afleiðingum sem það veld- ur geti haft verulega neikvæð áhrif. Telur ekki þurfa að miða við umhverfismat vegna stækkunar álvers í Straumsvík Nauðsynlegt að álverið notist við vothreinsibúnað              !!         "  # $    !                              HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur hefur dæmt Bretann Paul Gill í 2 mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir að sletta grænlituðu skyri á ráðstefnugesti á Nord- ica-hóteli við Suðurlandsbraut í Reykjavík hinn 14. júní sl. 2,8 milljóna kr. skaðabóta- kröfu hótelsins var vísað frá dómi. Dómari ákvað að synja um meðferð bótakrafna þar sem það mundi valda töf og óhagræði á málinu samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála. Tveir Íslendingar voru einnig ákærðir vegna málsins með því að hafa ruðst heimildarlaust inn í ráðstefnusal og valda þar spjöllum. Íslendingarnir mættu ekki við þingfestingu málsins. Bretinn játaði brot sín en mótmælti skaðabótakröfum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brotin voru framin af eindregnum ásetningi og báru gögn málsins að að- gerðin var fyrirfram skipulögð. Hins vegar var litið til játningar ákærða og þess að hann hefur ekki áður gerst sekur um refsi- verða háttsemi. Málið dæmdi Arnfríður Ein- arsdóttir héraðsdómari. Verj- andi var Jóhannes Albert Sæv- arsson hrl. og sækjandi Eyjólfur Eyjólfsson, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík. 2 mánaða fangelsi fyr- ir að sletta grænu skyri „ÍSLENSKAR konur þóttu bera af fyrir undirbúning og skipulag,“ segir Jónína Bjartmarz um þátttöku þeirra á alþjóðlegri ráðstefnu kvenna, Global Summit of Women, sem fram fór í Mexíkó 22. – 25. júní sl. Jónína, sem er þingmaður og fyrsti formaður FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri, hefur setið í stjórn ráðstefnunnar undanfarin ár og var á meðal þátttak- enda í 12 manna sendinefnd á ráð- stefnunni, undir forystu Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra. Að sögn Jónínu var ráðstefnan fyrst haldin fyrir fimmtán árum. „Meginmarkmiðið er að stuðla að auknum efnahagslegum völdum kvenna.“ Til leiks mæta jafnt konur úr viðskiptalífinu, stjórnmálum og stjórnsýslunni. „Mér hefur alltaf fall- ið vel við það sjónarhorn ráðstefn- unnar að leita lausna frekar en hindr- ana og það er mikil áhersla lögð á viðskiptasambönd, tengslanet og að konur sem náð hafa áhrifum og völd- um á mismunandi sviðum styðji aðrar konur,“ segir Jónína. Í ár komu saman um þúsund kon- ur. Ráðstefnan er haldin til skiptis í öllum heimsálfum. Síðast var hún í Seoul í S-Kóreu en áður í Barcelona. Sjálf kom Jónína fyrst að starfinu árið 2001 eftir að hún hitti ráðstefnustjór- ann, hina filippseysk-bandarísku Irene Nativitad, á OECD-ráðstefnu í París. Í kjölfarið kynnti hún FKA hugmynd- ina um þátttöku félagskvenna í ráð- stefnunni. „Konur eru yfirleitt fáar í viðskipta- sendinefndum en það hefur sýnt sig að þegar sérstök áhersla er lögð á þátt- töku kvenna skortir ekki áhugann.“ Daginn fyrir ráðstefnuna og önnur tækifæri nota konurnar til að hitta að- ila með viðskiptasambönd fyrir augum en þær nutu að- stoðar Útflutn- ingsráðs við und- irbúninginn. Jónína telur að fundirnir hafi al- mennt gengið vel en framhaldið og árangurinn séu undir hverri og einni komin. Íslensku kon- urnar og sendinefndin sem heild veki alltaf athygli. Íslensku konurnar þyki öðrum fremur sjálfstæðar og sjálfs- öruggar og vinna mjög markvisst og faglega. „Við vorum með kynning- arbás, dreifðum kynningarbæklingi sem vakti mikla athygli auk þess sem okkur var gert sérstaklega hátt undir höfði í myndbandi við setninguna sem unnið var í tilefni 15 ára afmælis ráð- stefnunnar.“ Næsta ráðstefna verður haldin í Kaíró 2006 og þar næst er gert ráð fyrir Berlín. Íslendingarnir víðsýnni í við- skiptum en norrænir kollegar Þátttaka norrænna og evrópskra kvenna í ráðstefnunum hefur verið mun minni en annarra, segir Jónína, en hún vonast til að bót verði á. Ís- lenskar konur í viðskiptum horfi yf- irleitt mun lengra í allar áttir en koll- egar á Norðurlöndum. Á ráðstefnunni fjallaði Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra um leiðir til að efla atvinnurekstur kvenna en Jónína fjallaði um marg- víslegar afleiðingar tvöfalds vinnu- álags á konur og lagði áherslu á mögulegar leiðir til að létta því álagi, meðal annars íslensku leiðina, jafnt fæðingarorlof karla og kvenna. „Meg- inforsenda er að meðal kvenna sé óvirkjaður auður og kraftur sem við eigum ríka hagsmuni af því að virkja,“ segir Jónína. „Konur eru óvirkjaður auður í efnahagslífinu“ Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is Jónína Bjartmarz Reyðarfjörður | Stríðsminjasafnið á Reyðarfirði hefur verið í endurnýj- un á undanförnum misserum. Nú kúra gömlu braggarnir, sem kallast einu nafni Spítalakampur, nýrauð- málaðir ofan við þéttbýlið í grósku- miklu grængresinu. Á svæðinu er skilti þar sem segir frá því að braggarnir á þessu svæði hafi verið byggðir af bandaríska hernum árið 1943 og voru þá tugir bragga tengdir saman með göngum. Marg- ir áttu erfitt með að skilja hvaða hlutverki mannvirkið átti að gegna, en þá var talið útséð með að Þjóð- verjar myndu ráðast á landið. Síðar kom upp úr kafinu að þar átti að hjúkra þeim sem myndu særast í fyrirhugaðri innrás í Noreg. Gömlu braggarnir fá nýtt líf FJÓRIR lögreglumenn hófu í gær störf í sérsveit ríkislögreglustjór- ans með starfsaðstöðu hjá lög- reglunni á Akureyri. Samkvæmt tilkynningu á lögregluvefnum munu þeir starfa sem stoðdeild við lögregluliðin á Norður- og Austurlandi. Sérsveitarmennirnir munu hafa það hlutverk að styrkja lögregluliðin í umdæm- unum og jafnframt veita þeim að- stoð við almenn löggæslustörf eftir því sem þörf er á hverju sinni. Segir á lögregluvefnum að með þessari ráðstöfun skapist einnig aukin tækifæri til þess að sinna margvíslegum átaksverk- efnum í samvinnu við lög- regluliðin og að sérsveitin geti brugðist skjótar við þegar þörf krefur. Styðja lög- regluna fyrir norðan og austan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.