Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Óskar Emilssonvar fæddur á Djúpavogi 10. októ- ber 1920. Hann lést í Reykjavík 13. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Antonía Steingríms- dóttir, f. 23. febrúar 1890, d. 12. ágúst 1975, og Emil Eyj- ólfsson, f. 10. ágúst 1893, d. 24. janúar 1965. Bræður Ósk- ars, þeir Eysteinn, Guðjón, Sigurður, Gestur, Karl og Ing- ólfur, eru látnir, en yngsti bróð- irinn, Bragi. f. 1935, er búsettur á Hornafirði. Óskar hóf búskap 1945 með eig- inkonu sinn Svövu Árnadóttur en hún fæddist í Reykjavík 10. apríl 1926 og lést 10. apríl 1999. For- eldrar hennar voru Laufey Guð- mundsdóttir og Árni Jóhannsson. Börn Svövu og Óskars eru: 1) Helga Antonía, f. 22. september 1953, d. 3. janúar 1975. 2) Hafdís, f. 14. mars 1963, maki Hlynur Guðmundsson. Börn þeirra eru Helga Ósk, Henrik og Heið- dís. 3) Fóstursonur Óskars og sonur Svövu er Birgir L. Blöndal, f. 15. nóv- ember 1944, maki Áslaug Steingríms- dóttir. Börn þeirra eru: Emil, Anna Sig- ríður og Þröstur og eru barnabörnin fjögur. Óskar ólst upp á Djúpavogi, en fluttist til Reykjavíkur 1945 og vann fyrstu árin við akstur og sjó- mennsku. Eftir það hóf hann störf hjá Eimskipafélagi Íslands og starfaði þar yfir 30 ár eða þar til hann lét af stöfum árið 1990. Útför Óskars fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elsku pabbi minn, þakka þér sam- fylgdina í gegnum árin. Mér finnst ég hafa verið svo mikið heppin í líf- inu að hafa átt þig að, alltaf jafn hug- ljúfan, jafnlyndan og jákvæðan. Á uppvaxtarárum mínum voru boð og bönn ekki til í þinni orðabók, en ef svo bar undir að það þurfti að taka á málunum, gerðir þú það með því að spjalla við skellibjölluna og örverpið mig. Þú varst mikið náttúrubarn í þér, rólyndur og sjálfum þér nægur alla tíð. Þitt athvarf frá erli dagsins var sjórinn, bátarnir, fuglalífið og ströndin. Allir bíltúrar sem og lengri ferðalög með þér og mömmu enduðu oftast niðri við strönd og bryggju á hverjum stað og keimur af sjávar- lykt blandast minningum um göngu- túra við sjávarsíðuna. Þú varst líka frá sjávarplássi og sagðir mér mikið frá ljúfri æsku þinni á Djúpavogi. Frá leikjum í hrauninu, eggjatínsl- unni í „blánum“ og hvernig hlutum var háttað í gamla daga hjá ömmu, afa og bræðrunum í Hlíðarhúsi. Frá- sagnir um liðna tíð, daglegt amstur, glettni og hversdagsleika voru alltaf umvafðar óútskýrðum töfraljóma. Enginn staður á jörðu var fegurri en Djúpivogur! Í hugann kemur upp frásögn sem þú sagðir mér ekki alls fyrir löngu. Þið strákarnir fóruð lengst í burtu upp á fjall í ævintýraleit. Þú varst bara smápolli, eins og þú tókst til orða. Á leiðinni upp hrundi úr fjallinu stærðarinnar steinn, sem kom á fleygiferð beint í áttina til þín. Hann var svo stór og þú svo lítill, allur máttur var úr þér dreginn. Þú gast þig hvergi hreyft, beiðst bara örlag- anna. En af einhverjum óskiljanleg- um ástæðum breyttist stefna hans snöggt og hann rúllaði framhjá þér á ógnarhraða. Það var á þér að heyra að þar hefði verndarhendi verið haldið yfir þér. Dauðinn hefði verið svo nálægur, en þér var ætlað að lifa miklu lengur. Um það bil áttatíu árum síðar eft- ir að ferðalagið upp á fjall var farið er lífsleiðin þín á enda. Þú náðir upp á fjallstoppinn, ennþá stálminnugur og sjálfbjarga, þrátt fyrir háan ald- ur. Nú ert þú öllum fjöllum ofar, elsku pabbi minn. Guð þig ætíð geymi. Þín Hafdís. Mínar fyrstu minningar eru frá Hlíðarhúsi á Djúpavogi, á heimili foreldra fósturföður míns, þeirra Antoníu Steingrímsdóttur og Emils Eyjólfssonar. Á Djúpavogi ólst ég upp fyrstu æviárin umvafinn ein- stakri hlýju og gleði, í ævintýra- heimi fjalla, kletta og þjóðsagna og þar sem sjórinn og atvinna honum tengd var lífæð staðarins, en jafn- framt vettvangur ungviðisins. Sjö ára gamall fór ég sjóleiðina til Reykjavíkur til mömmu og Óskars til að hefja skólagöngu. Þetta ferða- lag byrjaði ekki vel þar sem ég var sjóveikur alla leiðina, en þegar siglt var inn Faxaflóann var heilsan farin að batna og ég fór upp á dekk. Þetta var á fallegum haustdegi í septem- ber og hreifst ég mjög af fegurðinni sem við mér blasti er siglt var inn Faxaflóann. Á bryggjunni var mér tekið opn- um örmum og skildi Óskar vel hve sjóferðin hafði verið erfið fyrir ung- an dreng, enda vanur sjómennsku. Við Óskar urðum fljótt mjög góðir vinir, en hann þekkti allt og alla á Djúpavogi og hughreysti mig þegar heimþráin tók völdin. Þegar horft er til baka eftir svona langa samveru, bæði á gleðistundum og eins þegar fjölskyldan varð fyrir mótlæti, er ég ákaflega þakklátur fyrir að leiðir okkar lágu saman. Óskar var einstaklega dagfarsprúð- ur, skýr í hugsun og fljótur að greina kjarnann frá hisminu. Jafn- framt var hann mjög ljúfur og gam- ansamur og oftar en ekki tók hann málstað minn þegar mamma var ekki alveg sátt við kenjar og duttl- unga sonarins. Alla tíð áttum við notalegar samverustundir og rædd- um um heima og geima, en samtölin enduðu oftast á málefnum Djúpa- vogs. Fyrr á árum naut ég hans miklu hæfileika í matargerð, en hann var listakokkur, og síðari árin var matreiðsla snar þáttur í um- ræðum okkar. Óskar var einstak- lega barngóður og naut ég þess ríkulega í æsku og síðar börnin okk- ar og barnabörn. Á kveðjustund er okkur Áslaugu efst í huga þakklæti fyrir allar sam- verustundir á liðnum árum og kveðj- um Óskar með miklum söknuði. Birgir L. Blöndal. Nú er besti afi í heimi farinn. Það eru ekkert nema góðar minningar til í huga mínum þegar ég hugsa um þig, elsku afi. Ég er svo stolt af því að hafa átt þig sem afa og ég er svo ánægð með að hafa þekkt þig svona vel, við náðum svo vel saman. Mér er svo minnisstætt þegar ég, þú og amma fórum austur á Djúpavog á æskuslóðir þínar, sem þér þótti svo vænt um. Sætasta minningin mín er þegar þú sast í sófanum í sjónvarpsher- berginu í Bólstaðarhlíð 42. Ég stóð alltaf fyrir aftan þig í sætinu með fulla skál af spennum frá ömmu, greiddi þér og setti síðan hverja eina einustu spennu í hárprúðan afa minn. Ég hafði lagt bleika kaffistell- ið á borð áður en hárgreiðslan hófst og á meðan sötraðir þú ósýnilegt kaffi úr bleikum plastbolla og borð- aðir ósýnilega köku. Það gladdi mig svo að þú valdir mig sem húshjálp eftir að amma dó. Það var alltaf svo þægilegt að koma til afa fjarri ös og stressi. Þá var sko grínað, þú hlóst alltaf svo mikið þeg- ar ég kallaði þig „drengur minn“. Fátt gladdi mig meira en heyra þig hlæja. Við vorum svo góðir vinir. Síðustu vikuna sem þú lifðir varstu á spítala. Þá kynnti ég þig fyrir Guð- mundi, kærastanum mínum. Þú tókst þéttingsfast um hendurnar okkar og óskaðir okkur alls hins besta. Við urðum svo snortin þegar þú kvaddir okkur því það var eins og þú vissir hvað þín beið. Ég renndi fingrunum í gegnum fallegt hárið þitt sem var ennþá svo þykkt miðað við háan aldur. Síðustu orðin til þín voru: „Jæja, vertu þá bless, drengur minn,“ og ég gaf þér stóran fing- urkoss þar sem ég stóð í dyragætt- inni. Þú lást í spítalarúminu og gafst mér fingurkoss til baka með bros á vör. Nú ertu komin til ömmu Svövu og Helgu Antoníu. Elsku afi minn, ég sparaði aldrei stóru og hlýju orðin við þig og ég mun ekki gera það nú. Þú ert ein fallegasta manneskja sem ég hef kynnst, gáfaðasta, skemmti- legasta og jákvæðasta. Þú ert mín eina sanna fyrirmynd. Ég sakna þín svo sárt, en endalausar minningarn- ar geymi ég á góðum stað þar sem þeirra verður sífellt minnst. Þín Helga Ósk Hlynsdóttir. Óskar afi var gæddur mörgum góðum kostum. Hann var duglegur, skemmtilegur, rólegur og með góða nærveru. Það var alltaf gaman að heimsækja afa og ekki vantaði gest- risnina. Þá var afi flottur á því, lag- aði kaffi og bauð til dæmis upp á flatkökur með hangikjöti og stund- um eitthvert sætabrauð líka. Svo sátum við og spjölluðum eða horfð- um á útsýnið yfir sjóinn. Stundum lagði afi kapal eða bjó til pappírs- báta handa börnunum. Hann var líka sniðugur að teikna eins og amma orðaði það og teiknaði margar skemmtilegar bátamyndir. Þegar við systkinin vorum yngri fengum við stundum að gista hjá ömmu og afa í Bólstaðarhlíðinni. Það fannst okkur ofsalega skemmtilegt. Afi og amma fóru með okkur í fjöruferðir og göngutúra. Þá tíndum við systk- inin steina og skeljar. Eftir göngu- túrinn vorum við endurnærð, enda hafði afi alltaf mikla trú á sjávarloft- inu og sagði að það væri hollt fyrir mann. Það er örugglega rétt hjá honum. Þegar heim var komið eld- uðu amma og afi kannski soðinn fisk og buðu upp á rabarbaragraut í eft- irrétt. Þetta var toppurinn á tilver- unni, fannst okkur. Stundum feng- um við að fara með þeim í vinnuna og það var alltaf mjög spennandi fannst manni. Einnig er ógleymanleg kistan sem við krakkarnir máttum ekki opna og var geymd úti á svölum og innihélt fullt af góðgæti – lagtertur og fleira. Við munum alltaf sakna afa. Við eigum góðar minningar um hann og ömmu og við erum mjög þakklát fyr- ir allar góðu stundirnar með þeim. Nú er afi kominn á góðan stað til Svövu ömmu og Helgu dóttur sinn- ar. Blessuð sé minning þeirra. Emil, Anna Sigríður og Þröstur. Elsku afi. Nú ertu farinn til ömmu Svövu og Helgu frænku. Við vitum að þér líður vel og þá líður okkur líka vel. En við söknum þín samt svo voðalega mikið því þú varst besti afi í heiminum. Það var svo gaman að koma í heimsókn til þín að spila og teikna. Þú eldaðir líka alltaf svo góð- an mat og þó að þú værir að verða áttatíu og fimm ára varstu ennþá að keyra bíl og þurftir ekki einu sinni gleraugu til þess. Þú mundir líka allt svo vel og fylgdist alltaf vel með fréttunum og last mikið. Þegar við vorum yngri fórum við svo oft með þér og ömmu að gefa öndunum og út á nes að skoða fuglana og athuga varpið. Við munum aldrei gleyma göngu- túrunum í fjörunni með þér, þegar við tíndum skeljar og kuðunga og svo fengum við ís á eftir eða fórum í bakaríið. Takk fyrir að hafa alltaf verið svona góður við okkur, elsku afi. Þú verður alltaf í huga okkar og þar geymum við allar fallegu minn- ingarnar um þig og ömmu. Guð veri með þér. Þín Henrik og Heiðdís Hlynsbörn. ÓSKAR EMILSSONMóðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Sóltúni, áður til heimilis á Framnesvegi 23, Reykjavík, lést á Sóltúni að kvöldi mánudagsins 27. júní. Margrét verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 4. júlí kl. 13.00. Vilhelmína Haraldsdóttir, Sigurjón Helgason, Björn Haraldsson, Lóa Guðrún Davíðsdóttir, Oddur Sigurjónsson, Haraldur Davíð Björnsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÞÓRA GUÐLAUG ÞORSTEINSDÓTTIR, Lokastíg 18, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 30. júní. Útförin verður auglýst síðar. Gunnar Rósmundsson, Lilja Magnúsdóttir, Páll Bergsson, Páll Magnússon, Jóhanna Rögnvaldsdóttir, Gylfi Gunnarsson, Kolbrún Hauksdóttir, Valgerður Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn og bróðir, sr. ÁGÚST KOLBEINN EYJÓLFSSON sóknarprestur í Berge, Þýskalandi, sem lést fimmtudaginn 9. júní, verður jarðsunginn frá Kristskirkju, Landakoti, þriðju- daginn 5. júlí kl. 13.00. Jarðsett verður í Landakoti. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Kristskirkju. Hulda Sigrún Snæbjörnsdóttir, Ragnheiður Jóhanna Eyjólfsdóttir. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÓLÍNA GUNNARSDÓTTIR, Dvergabakka 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum Hringbraut föstudaginn 24. júní. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju mánu- daginn 4. júlí kl. 13.00. Sigfús Jóhannsson, Lára Sigfúsdóttir, Guðmundur Jónsson, Jóhann Sigfússon, Gunnhildur F. Theódórsdóttir, Unnur Sigfúsdóttir, Ragnar Gunnarsson, Þórir Ólason, ömmubörn og langömmubarn. Innilegt þakklæti til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall elskulegs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, HELGA GEIRMUNDSSONAR, Miðtúni 21, Ísafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungs- sjúkrahúss Ísafjarðar og deildar 13D á Land- spítalanum við Hringbraut. Erna Magnúsdóttir, Magnús Geir Helgason, Guðrún Dagný Einarsdóttir, Grétar Helgason, Edda Bangon Khiansanthia, Helgi Helgason, Brynja Helgadóttir, Viðar Örn Sveinbjörnsson, Ómar Helgason, Karen Óladóttir, Jóhann Birkir Helgason, Gabríela Aðalbjörnsdóttir, barnabörn, barnabarnabarn og systkini.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.