Morgunblaðið - 03.07.2005, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Belgískar vöf
Nýlega bættist við enn einn ljúffengur réttur í kaffiteríu Perlunnar.
Bragðið á gómsætum nýbökuðum belgískum vöff lum í kaffiteríunni
á 4. hæð. Næg ókeypis bílastæði!
BELGÍSKAR VÖFFLUR
Veitingahúsið Perlan - S: 562 0200 - perlan@perlan.is - www.perlan.is
Hr
in
gb
ro
t
ACTAVIS hefur sett nýtt samheitalyf á markað í
Þýskalandi í gegnum dótturfélag sitt, Medis. Er
það blóðþrýstingslyfið Benazepril Hydrochlor-
othiazide sem framleitt er í töfluformi. Í fyrstu
atrennu voru framleiddar 10 milljónir taflna. Í
fréttatilkynningu frá Actavis kemur fram að bú-
ist er við því að lyfið verði mikilvæg viðbót við
lyfjasafn Actavis þó að ekki sé reiknað með að
það verði meðal tíu mest seldu lyfja félagsins.
„Benazepril HCT er aðallega notað við með-
ferð á háum blóðþrýstingi. Lyfið kom fyrst á
markað í Evrópu árið 1992. Einkaleyfið í Þýska-
landi rann út 29. júní síðastliðinn en Þýskaland
er mikilvægasti markaður fyrir lyfið. Þróun lyfs-
ins, sem hófst fyrir fimm árum, fór fram hjá
Actavis á Íslandi og frásogsrannsóknir fóru fram
í Kanada. Lyfið er framleitt í verksmiðju Actavis
á Íslandi en dótturfélag Actavis, Medis, mun sjá
um sölu þess til þriðja aðila sem munu markaðs-
setja lyfið undir eigin vörumerkjum,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, framkvæmda-
stjóri alþjóðlegrar sölu til þriðja aðila hjá
Actavis, segir undirbúninginn að markaðssetn-
ingu lyfsins hafa tekið langan tíma. „Við erum nú
að setja enn eitt blóðþrýstingslyfið á markað en
það tilheyrir flokki ACE-hemla, flokki lyfja sem
Actavis hefur lagt mikla áherslu á og telur lyf
eins og Ramipril, Lisinopril og Enalapril. Ekki er
um að ræða jafn umfangsmikla markaðssetningu
og á fyrrnefndum lyfjum en lyfið er okkur mjög
mikilvægt þar sem það á ekki í eins harðri sam-
keppni og von er um stærri markaðshlutdeild.“
Actavis fyrst fyrirtækja á markað með blóðþrýstingslyf í Þýskalandi
Lyfið verður mikilvæg viðbót við
lyfjasafnið en þó ekki metsölulyf
ÁTTA manns sitja í stjórn Baugs
Group hf., samkvæmt upplýs-
ingum á vefsíðu fyrirtækisins, og
er Hreinn Loftsson formaður
stjórnar.
Aðrir í stjórn eru Þórður Boga-
son, ritari stjórnar, Hans Kristian
Hustad, Ingibjörg S. Pálmadóttir,
Jóhannes Jónsson, Kristín Jó-
hannesdóttir og varastjórnar-
menn eru Guðrún Pétursdóttir og
Einar Þór Sverrisson.
Í fréttatilkynningu frá Baugi
Group hf. sem send var fjöl-
miðlum í gær vegna lög-
reglurannsóknar á meintum brot-
um Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
forstjóra, Tryggva Jónssonar,
fyrrverandi forstjóra, og fleiri
gegn Baugi Group hf. segir að
Baugur Group hf. standi einhuga
að baki Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni forstjóra og sakborningum
málsins sem allir hafi haldið stað-
fastlega fram sakleysi sínu gagn-
vart öllum sakargiftum.
Einhuga að baki
sakborningum
málsins
SAMBAND til og frá útlöndum um
Farice-sæstrenginn lá enn niðri í
gær en það rofnaði á fimmtudags-
morgun og hefur bilunin einkum
áhrif á netsamband hér á landi.
Rekja má sambandsleysið til bilunar
í ljósleiðari hjá fjarskiptafyrirtæk-
inu THUS í Skotlandi, sem tengir
Farice-strenginn frá landtengingu í
Norður-Skotlandi til Edinborgar, en
öll fjarskiptaumferð um Farice-
strenginn milli Íslands, Færeyja og
Skotlands rofnaði af þeim sökum.
Hefur því öll fjarskiptaumferð bæði
Íslands og Færeyja farið um gamla
Cantat-3 sæstrenginn.
Búast má við
töfum á netinu
VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur
skipað Gísla Tryggvason í emb-
ætti talsmanns neytenda frá 1.
júlí nk. til
fimm ára
sbr. lög um
Neyt-
endastofu og
talsmann
neytenda nr.
62/2005.
Gísli er
fæddur 24.
ágúst árið
1969. Hann
lauk embætt-
isprófi í lögum frá Háskóla Ís-
lands 1997 og hefur einnig lokið
meistaraprófi í viðskiptafræðum
og stjórnun frá Háskólanum í
Reykjavík með MBA-gráðu árið
2004. Frá árinu 1998 hefur Gísli
verið framkvæmdastjóri Banda-
lags háskólamanna og sjóða á
vegum samtakanna auk þess að
vera lögmaður þeirra frá sama
tíma.
Gísli Tryggvason
talsmaður
neytenda
Gísli Tryggvason
„HÉR ríkir svo sannarlega mikil hamingja,
enda góð stemning, frábært verður og mikið af
fólki í bænum,“ segir Kristín Sigurrós Ein-
arsdóttir, fréttaritari Morgunblaðsins á Hólma-
vík, en þar standa nú yfir svonefndir Ham-
ingjudagar. Eitt af því sem bar fyrir augu gesta
Hamingjudaga var brot úr borgarísjaka sem
sótt var úr firðinum og fært í höfnina. „Það var
búið að grínast með það í nokkurn tíma að gam-
an væri að ná í ísjaka og láta hann bráðna hér
rétt eins og ísjakann fræga sem fluttur var til
Parísar á haustdögum. Áhöfnin á Sæbjörginni
tók sig svo til og náði bara í einn jakann og kom
með hann síðdegis á föstudag. Jakinn er nú
smám saman að bráðna í höfninni,“ segir Krist-
ín og tekur fram að uppátækið hafi vakið mikla
athygli bæjarbúa og gesta sem lögðu margir
leið sína niður að bryggju til að fylgjast með
jakanum bráðna. Aðspurð segir hún ísjakann
sennilega ekki munu endast lengi í höfninni, því
hann hafi látið mjög á sjá eftir veru sína þar í
nótt sem stafar væntanlega af því að sjórinn er
mun hlýrri í höfninni en úti á reginhafi.
Hamingjudagar hófust á fimmtudaginn var og
lýkur með dagskrá í dag, en nefna má að úti-
tónleikar verða að Kirkjuhvammi milli kl. 14 og
20 þar sem fjöldi listamanna mun troða upp,
auk þess sem blysför verður í kvöld og dans-
leikur. Að sögn Kristínar er þetta í fyrsta sinn
sem Hamingjudagar eru haldnir á Hólmavík, en
miðað við hversu vel hafi til tekist séu allar lík-
ur á að þetta verði hér eftir að árlegum við-
burði.
Brot úr borgarísjaka á Hamingjudögum
Morgunblaðið/Kristín
Áhöfnin á Sæbjörginni gerði sér lítið fyrir og flutti hluta úr borgarísjaka að bryggjunni í Hólmavík þar sem ísjakinn bráðnar nú smám saman. Var þetta
óvænt uppákoma til að gleðja bæjarbúa á Hamingjudögum sem staðið hafa yfir síðustu daga og lýkur með dagskrá í kvöld.
FULLTRÚAR sjálfstæðismanna
sem sitja í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) ítreka þá skoðun
sína að OR eigi ekki að taka að sér
verkefni sem þeir hafi ekki sér-
þekkingu á, samanber ljósleiðara-
væðingu á Seltjarnarnesi og Akra-
nesi. Nýverið hafnaði OR öllum
tilboðum í 1. áfanga gagnaveitna á
svæðin, en öll tilboð voru langt yfir
kostnaðaráætlun.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, sem
situr í stjórn OR fyrir hönd sjálf-
stæðismanna, segir að það sé ljóst
að þetta setji strik í alla áætlana-
gerð og að framkvæmdum komi til
með að seinka. „Ekki nema þeir
gangi beint til samninga við lægst-
bjóðanda en þá verða þeir að sætta
sig við þetta verð,“ segir Þorbjörg
og bætir því við að hún telji að OR
komi ekki til með að fá mikið lægra
tilboð í verkið.
„Það er engin þekking á fjar-
skiptum hjá OR, ekki frekar en
þekking á að reka sumarbústaði
eða vera með risarækjur,“ segir
Þorbjörg. Hún segir sjálfstæðis-
menn ekki hafa fengið skýr svör
varðandi áætlanir OR í þessum efn-
um.
Hún bendir á að þegar OR taki
verkefni að sér sem sé ekki á þeirra
aðalsviði þá gangi það einfaldlega
ekki nógu vel. Hún segir að þetta
setji gjaldtöku heimilanna í uppnám
því ef ljóst sé að kostnaðurinn við
að leggja gagnaveituna hækki fær-
ist hann annað hvort á hendur
neytenda, sem kaupi ljósleiðarann,
eða beint á hendur Reykvíkinga
sem eigi OR.
Gagnrýna ljósleiðaravæðingu OR
„Það er engin þekking
á fjarskiptum hjá OR“
JÓNATAN Þórmundsson prófessor
segist ekki vilja tjá sig um lög-
fræðilega álitsgerð sem hann vann í
tilefni lögreglurannsóknar gegn
stjórnendum Baugs Group hf. og
greint var frá í Morgunblaðinu í
gær.
„Það er venjan þegar maður gef-
ur svona lögfræðilegar álitsgerðir
að þá er maður ekkert að skýra
þær frekar. Það er annarra að taka
afstöðu til þeirra og ég er enginn
talsmaður fyrir Baug þannig að ég
ætla ekki að tjá mig um þetta að
sinni,“ sagði Jónatan en honum var
það ljóst að álitsgerðin yrði birt í
fjölmiðlum. „Mér var ljóst að álits-
gerðin yrði birt í fjölmiðlum og lög-
fræðistofan hefur ekkert gert sem
mér hefur mislíkað.“
Tjáir sig ekki
um álitsgerð