Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 11

Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 11 um útlínur annarra húsa sem liggja undir hlíð- inni, en ekki verður byrjað að moka frá öðrum húsum fyrr en Suðurvegur 25 hefur litið dags- ins ljós eftir 32 ár í sinni vikurgröf. Kristín segir að hugsanlega verði þó byrjað að ryðjast inn götuna í sumar, og hugsanlega byrjað á næsta húsi, þótt það velti allt á því fjármagni sem fæst. Í haust verði svo gengið frá öllu eins og best er hægt, og áframhald verksins geymt til vors. Það liggur ekkert á að klára þetta verkefni, og segir Kristín að gangi allt að óskum gæti það staðið yfir næstu 8–10 sumur. Í raun sé bara betra að taka því rólega, því það sé fyrir- hugað að bjóða ferðamönnum að hjálpa til við moksturinn, það gæti verið ein- stök upplifun að prófa eitthvað þessu líkt og um að gera að bjóða öllum sem vilja taka til hendinni að vera með. Jarðvegur bundinn til að hindra fok Mikið verk er að binda jarðveg- inn þannig að vikur fjúki ekki yfir nálæg hús, og voru áhyggjur nágranna af raskinu ástæða þess að byrjað var á þessu til- tekna húsi en ekki einhverju nær byggðinni, segir Frosti Gíslason, fram- kvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmda- sviðs bæjarins. Til þess að binda vikurinn er rutt upp garði í útjaðri framkvæmdasvæðisins og hann þakinn með grasþökum svo ekki fjúki. Vikurinn sem hreinsaður er frá húsunum er svo fluttur með vörubílum í gamla malarnámu þar sem hann bíður þess að vera notaður sem undirlag undir vegi eða hús. Frosti segir að á næstunni verði sérstaklega hugað að öryggi í kringum vinnustaðinn, og komið upp betri merkingum ofan við svo að enginn fari sér að voða með því að hrapa fram af grasbrúninni ofan í gryfjuna. að grafa upp hús Bærinn leit talsvert öðruvísi út í júlí 1967 en hann gerir í dag. Húsin við Suðurveg eru neðst til hægri á myndinni, og húsið númer 25, sem farið er að grilla í, er neðst í hægra horninu.         " %                             !"#$                                      ! brjann@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir VIKURFALLIÐ fyrstu daga gossins bjargaði trúlega húsunum við Suðurveg sem grafa á upp, en þau voru svo til komin í kaf þegar fjallið fór allt af stað og rann yfir húsin. Ef þau hefðu ekki verið grafin í vikur hefðu þau trúlega gjöreyðilagst þegar tugir tonna af vikri og grjóti runnu yfir svæðið. Páll Zóphóníasson var bæjartæknifræð- ingur þegar gosið varð árið 1973, og síðar annar framkvæmdastjóra Viðlagasjóðs Ís- lands, og hann man vel eftir aðdraganda eld- gossins og afleiðingum. Hann segir þó að það sé ekkert tilfinningamál fyrir sig tengt því að grafa upp húsin, hann hafi ekki verið úr þeim bæjarhluta og hafi því ekki þekkt húsin sjálfur. Það tók aðeins um viku fyrir húsin við Suðurveg að hverfa undir ösku og vikur sem rigndi yfir hverfið þegar vindáttin stóð yfir bæinn. Þegar líða tók á gosið fór fjallið að byggjast upp, og varð í raun hærra heldur en undirstaða þess þoldi, og endaði með því að neðsti hluti fjallsins tók að skríða fram, rann í raun undan eigin þunga, og á einni nóttu sléttist verulega úr fjallinu þegar það flæddi yfir bæinn og nágrenni hans. Gömul hugmynd Hugmyndin um að grafa upp húsin var sett inn í aðalskipulag fyrir árin 2002–2014, en Páll var annar tveggja sem vann það skipulag. Hann segir þó að hugmyndin sé mun eldri, og hann ekki upphafsmaður henn- ar. „Það var alltaf talað um að gera þetta, en aldrei vitað hvernig ætti að standa að því. Menn hafa alltaf öðru hvoru talað um hvern- ig ætti að gera þetta, og það kom strax upp andstaða þeirra sem voru fluttir í húsin í ná- grenni við uppgraftarsvæðið, það varð að gera þetta þannig að það væri í sátt og samlyndi við alla,“ segir Páll. Páll Zóphóníasson (t.h.) var bæjartæknifræðingur á meðan gosinu 1973 stóð og sýndi hann m.a. Olof Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar (fyrir miðju), aðstæður í Vest- mannaeyjum ásamt Sigurði Þórarinssyni jarðfræðiprófessor. Vikurfallið bjargaði húsunum þegar fjallið hrundi FJÖLSKYLDAN sem bjó í húsinu við Suðurveg 19 er ósátt við áformin um að grafa upp húsin sem grófust undir í gosinu, og segir uppgröftinn vekja upp erfiðar minningar, auk þess sem hann þjóni engum tilgangi. „Þetta ýfir upp gömul sár, það er nú bara það sem þetta gerir,“ segir Gísli Eyjólfsson. Hann og Hildur Káradóttir kona hans komu sér fyrir í Kópavoginum haustið eftir gosið, enda var ekki neitt fyrir þau að gera í Eyjum, börnin þrjú komin í skóla, Gísli kominn í vinnu og lífið farið að ganga sinn vanagang. Engu að síður er minningin um eldgosið á Heimaey fersk í minni þeirra, og eru þau sam- mála um að áformin um að grafa upp húsin við Suðurveg ýfi upp gömul sár. „Úr því þetta var ekki gert strax finnst mér að þetta ætti bara að fá að vera í friði. Ég get ekki séð að það sé neitt gaman fyrir fólk að labba í gegn- um rústir. Auk þess brann þakið af hús- inu okkar í það minnsta,“ segir Gísli. Misstu húsið, nágrannana og umhverfið Hildur tekur í sama streng: „Það er ólýsanlegt að missa allt svona, ganga bara út frá öllu saman. Það er ekki bara húsið, það eru líka nágrannarnir sem maður var búinn að vera með, og um- hverfið. Þetta er ansi mikið, og þetta kemur aldrei aftur. Það fyrnist auðvitað yfir þetta, en svo rifjast þetta upp núna.“ Hún segir að fjölskyldan öll sé á móti upp- greftrinum, bæði þau hjónin og börnin þeirra þrjú, sem voru 16, 14 og 5 ára gömul þegar þau þurftu að flýja Vestmannaeyjar í gosinu. „Við erum afar ósátt við þetta, öll fjölskyldan. Af hverju má þetta ekki vera í friði úr því þetta fór nú svona? Okkur langaði aldrei að fara úr Eyjum en úr því svona var væri ósk- andi að þetta fengi að vera í friði. Við byggð- um þetta hús upp frá grunni, og unnum í því eins og allt ungt fólk gerir, og það eru ýmsar minningar sem er svolítið verið að róta í.“ Minningar fjölskyldunnar af gosinu eru enda hrikalegar. Húsið var aðeins um einn kílómetra frá sprungunni, og þau horfðu á jörðina rifna í sundur út um gluggann, áður en þau drifu krakkana í föt og flúðu úr hús- inu. Miklu af innbúinu var bjargað síðar þegar Gísli fór aftur til Eyja og var þar í tvær vikur við björgunarstörf, þótt ýmislegt hafi orðið eftir. Meðal þess sem þó var bjargað voru myndir af veggjum og myndaalbúm, og segj- ast þau hjón afar fegin því, enda í þeim fólgin verðmæti sem aldrei verði bætt. Gæti orðið slysagildra Auk þess sem uppgröfturinn hefur ýft upp gömul sár varar Hildur við því að svæðið geti orðið slysagildra. Bæði verði hátt niður af brúninni niður á botn gjótunnar sem verður grafin upp, en auk þess verði alltaf hætt við að skriða fari yfir þá sem eru að skoða rúst- irnar, eða að veggur gefi sig og falli á fólk. „Ég sé bara engan tilgang í því að ferðamenn séu að þvælast þarna inn og út um þessar rústir.“ Gísli Eyjólfsson og Hildur Káradóttir eru síður en svo hrifin af því að grafa eigi upp húsin við Suður- veg, enda segja þau uppgröftinn vekja upp á nýjan leik erfiðar minningar úr gosinu. Uppgröfturinn ýfir upp gömul sár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.