Morgunblaðið - 03.07.2005, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
G
angi allt að óskum
verða jarðarbúar
vitni að einstakri
flugeldasýningu í
geimnum á morg-
un, 4. júlí. Þá
kemst Deep Imp-
act-geimfarið loks í návígi við hala-
stjörnuna Tempel 1 eftir hálfs árs
ferðalag. Með í för er lítið geimfar
sem ætlað er að rekast á hala-
stjörnuna og mynda gíg sem gerir
kleift að skyggnast undir yfirborð
hennar.
Skítugir snjóboltar
Halastjörnur hafa löngum vakið
ótta og aðdáun. Þær birtust oft
óvænt á himninum og storkuðu trú
manna um fullkomleika himinhvelf-
ingarinnar. Smám saman varð til
sú trú að halastjörnur væru boð-
berar válegra tíðinda eða segðu
fyrir um fall konungdæma. Urðu
margir stjörnuspekingar að gjalda
fyrir það með lífi sínu þegar þeim
mistókst að spá fyrir um komu
halastjarna en í þá daga voru
stjörnufræðin og stjörnuspekin ná-
tengdar greinar.
Halastjörnum er oft líkt við
„skítuga snjóbolta“ enda eru þær
úr blöndu íss og ryks. Þær leynast
á tveimur víðáttumiklum svæðum
yst í sólkerfinu en stundum hrekk-
ur ein og ein halastjarna af braut
sinni og fellur inn í átt til sólar.
Þegar þær koma nærri sólu gufar
hluti íssins upp og myndar hala og
getur hann orðið mjög tilkomumik-
ill á himninum.
Bjartar halastjörnur sjást að
jafnaði á nokkurra ára fresti. Fyrir
um það bil tíu árum prýddu hala-
stjörnurnar Hyakutake og Hale-
Bopp næturhimininn yfir Íslandi og
nutu margir sjónarspilsins.
Erfitt er að segja til um hvenær
halastjarna verður næst sýnileg frá
Íslandi en Tempel 1-halastjarnan
sést því miður ekki héðan vegna
þess hve dauf hún er og lágt á lofti.
Lífgjafar og tortímendur
Það er heillandi tilhugsun að
þessi fallegu fyrirbæri á himin-
hvolfinu hafi haft afgerandi áhrif á
myndun og þróun lífsins á jörðinni.
Hugsanlegt er að hluti vatnsins í
líkama okkar og á jörðinni hafi bor-
ist hingað með halastjörnum. Einn-
ig gætu þær hafa sáð fræjum lífs
því að á þeim er að finna fjölda
þeirra efna sem eru nauðsynleg öll-
um lífverum.
Heimsóknir halastjarna hafa þó
ekki alltaf boðað gæfu fyrir lífríkið.
Margir þekkja söguna af því þegar
risaeðlurnar dóu út fyrir um 65
milljónum ára en það er meðal ann-
ars talið hafa tengst risaárekstri
halastjörnu við jörðina þar sem nú
er Mexíkó. Mörg dæmi eru um
svipaða árekstra áður fyrr og nán-
ast öruggt er að jörðin mun verða
fyrir slíkum hamförum í framtíð-
inni.
Deep Impact-leiðangurinn
Deep Impact-leiðangurinn hófst
hinn 12. janúar síðastliðinn þegar
geimfarinu var skotið á loft frá
Canaveral-höfða í Flórída. Undir-
búning leiðangursins má vitaskuld
rekja lengra aftur eða allt til ársins
1996 þegar þrír vísindamenn viðr-
uðu hugmynd um árekstur við hala-
stjörnu. Margir kannast ef til vill
við vinsæla kvikmynd sem ber
sama nafn og leiðangurinn. Sú
mynd var frumsýnd 1998 svo verk-
efnið er ekki nefnt eftir henni.
Geimfarið sjálft skiptist í móð-
urfar og árekstrarfar sem er úr
kopar og áli. Móðurfarið er álíka
stórt og Volkswagen bjalla og veg-
ur um 650 kg. Árekstrarfarið er
einn metri á breidd og vegur 350
kg. Leiðangurinn þykir tiltölulega
ódýr en heildarkostnaður nemur
tæplega 18 milljörðum íslenskra
króna.
Jarðarber á Egilsstöðum
Snemma morguns hinn 3. júlí
losnar árekstrarfarið frá móð-
urfarinu og verður því stefnt beint í
átt að halastjörnunni. Á næstu tutt-
ugu og tveimur klukkustundum
fram að árekstri stýra vísindamenn
hjá NASA farinu að fyrirfram
ákveðnu svæði á halastjörnunni. Á
þessu augnabliki verður hala-
stjarnan í um 134 milljón km fjar-
lægð frá jörðu.
Í svo mikilli fjarlægð taka allar
skipanir frá jörðu um sjö og hálfa
mínútu að berast til geimfarsins.
Til þess að fá örlitla nasasjón af
fjarlægðinni skulum við setja upp
lítið líkan.
Hugsum okkur að halastjarnan
sé á stærð við jarðarber. Jörðin
væri þá um tuttugu metrar í þver-
mál en breidd sólarinnar væri á við
vegalengdina milli Hallgrímskirkju
og Kringlunnar.
Ef við settum sólina niður í
Reykjavík væri jörðin staðsett við
Hofsjökul og halastjarnan jarð-
arber á Egilsstöðum.
Þegar árekstrarfarið losnar frá
móðurfarinu er þörf á mikilli ná-
kvæmni og er þetta tæknilega séð
vandasamasti hluti ferðarinnar.
Geimfarið er þá í næstum milljón
kílómetra fjarlægð frá halastjörn-
unni og þarf að hitta svæði á henni
sem er innan við 6 km á breidd.
Hægt er að líkja þessu við það að
kasta pílu frá Hafnarfirði í melónu í
Kringlunni.
Áreksturinn
Áætlanir gera ráð fyrir því að
áreksturinn eigi sér stað klukkan
05:52 að íslenskum tíma í fyrra-
málið. Árekstrarfarið rekst á yfir-
borðið með 10,2 km hraða á sek-
úndu (meira en tíföldum hraða
byssukúlu). Á þessum hraða væri
hægt að fljúga frá Reykjavík til
Egilsstaða á 40 sekúndum og frá
Reykjavík til New York á innan við
sjö mínútum. Við áreksturinn
myndast gífurleg orka sem bræðir
geimfarið og myndar gíg. Hann
gæti orðið álíka djúpur og sem
nemur hæð Hallgrímskirkjuturns
eða álíka stór um sig og Laugar-
dalsvöllur.
Bandarískir indíánar reiddust
NASA fyrir að hyggja á árekstur
við halastjörnu en halastjörnur eru
heilagar í þeirra augum. Þessar
manngerðu hamfarir hafa þó álíka
mikil áhrif á halastjörnuna og þeg-
ar mýfluga rekst á farþegaþotu.
Þáttur Íslendinga
Eitt af markmiðum Deep
Impact-verkefnisins var að virkja
áhugamenn víða um heim til þess
að fylgjast með halastjörnunni.
Hópur íslenskra framhaldsskóla-
nemenda notaði Faulkes-stjörnu-
sjónaukann á Hawaii-eyjum til þess
að taka myndir af halastjörnunni í
vetur. Hluti nemendanna er nú
staddur á Hawaii til þess að fylgj-
ast með árekstrinum og fá innsýn í
störf vísindamannanna. Vonandi
munu einhverjir úr hópnum feta
braut vísindanna í framtíðinni, en
ferðina styrktu Icelandair, Marel,
EJS, Heimir útgáfufélagið, Ágúst
Valfells, Hönnun, Orkuveitan og
Landsvirkjun.
Stóra stundin nálgast
Í fyrramálið rennur stóra stund-
in upp þegar geimfarið hæfir hala-
stjörnuna og sprengir gíg á yfir-
borðinu.
Þá kemur í ljós hvaða árangur
verður af leiðangrinum. Ef allt
gengur að óskum mun verkefnið
leiða til betri skilnings á myndun
sólkerfisins og hvaða hlutverki
halastjörnur hafa gegnt í þróun
lífsins á jörðinni.
Hvernig sem fer munu jarð-
arbúar án nokkurs vafa eiga
stefnumót við fleiri halastjörnur í
framtíðinni.
Stefnumót við halastjörnu
&''(
)*( +,
-
.'/ ,!
)
" ,!
0 /0,)
1
*#
2
33
%4
#5
6 75788
2
%
2 %
9 %: <=<*>&!
":
2
2 3:#
%:5
3?
#
4
2
@
2
9@
: '#
#6B
"C D
E
788
.
2
&B
)B
9 %:
,B
5
F;
%? 5
#
9 %:
2
26
42
9%
G88
95
C
#
D
3
.'/ ,
HI8
2
CB
9 %:
9
8;7
9
?#;
" ,
,'*('"
9:2
%2$
J9
,B
BB:
9
KLI;
9
4
G;G
/%
B
C
3C
( &''(
)*( +,
*42
#
25
9# 45
3
,B
D
9 %:
9
# ;
*#
@
#
D
:
%:
@
;
/% Reuters
Við áreksturinn sveimar móðurfarið framhjá halastjörnunni í 500 km fjarlægð svo búast má við stórfenglegum myndum.
Á sama tíma beinast augu allra stærstu stjörnusjónauka heims að árekstrinum.
Hópur íslenskra
námsmanna er staddur á
Hawaii-eyjum til þess að
fylgjast með árekstri
geimfarsins Deep Impact
við halastjörnuna Tempel á
morgun undir leiðsögn
stjörnufræðinga. Hér á eftir
segja tveir ferðalanganna,
Sverrir Guðmundsson og
Sævar Helgi Bragason
stjörnufræðiáhugamenn, frá
halastjörnum og Deep
Impact-leiðangrinum.
TENGLAR
..............................................
www.stjornuskodun.is
Höfundar eru áhugamenn um
stjörnufræði og stunda nám við
eðlisfræðiskor HÍ.Þessa mynd af halastjörnunni 9P/Tempel 1 tóku Sævar Helgi Bragason, Sverrir
Guðmundsson og Vilhelm Sigfús Sigmundsson með Faulkes-sjónaukanum á
Hawaii hinn 15. maí 2005. Sjónaukanum var þá fjarstýrt frá Íslandi í gegnum
vefsíðu Faulkes-sjónaukans. Myndin er tekin klukkan 21:37 að staðartíma á
Hawaii eða 07:37 að íslenskum tíma.