Morgunblaðið - 03.07.2005, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
G
uðmundur gekk í
raðir Vals frá KR
fyrir tímabilið og
óhætt er að segja að
hann hafi reynst
mikill hvalreki fyrir
Hlíðarendaliðið.
Þegar fyrri umferð Landsbanka-
deildarinnar er hálfnuð eru þeir
rauðklæddu búnir að krækja í 21 stig
– eru í öðru sæti deildarinn, sex stig-
um á eftir FH-ingum og Guðmundur
hefur komið að meira en helmingi
marka sinna manna. Sjálfur hefur
hann skorað tvö mörk og lagt upp
mörg mörk fyrir félaga sína með út-
sjónarsemi og afburðartækni. En
hver skyldi vera ástæða þessa góða
gengis Vals í sumar að mati Guð-
mundar.
Valur ekki kominn á neinn stall
,,Ein af ástæðunum fyrir því að ég
fór í Val var að ég fann að metnaður-
inn var mikill til að gera vel. Allir
voru með hugann í sömu átt – það
átti að rífa Val upp í hæstu hæðir. Ég
átti von á að það tæki aðeins lengri
tíma en mótið er nú bara hálfnað og
Valur er ekki kominn á neinn stall þó
svo að það hafi gengið vel hingað til.
Ég tel okkur vera á réttri leið. Ég sé
enga ástæðu til þess að við höldum
þetta ekki út. Þetta góða gengi á
ekki að gera neitt annað en að efla
mannskapinn. Það er mikil samstaða
í liðinu og menn hafa gaman af því
sem þeir eru að gera. Við vorum
fljótir að finna réttu blönduna á með-
an önnur lið eru komin langt inn í
mót án þess að finna rétta liðið,“ seg-
ir Guðmundur. Um möguleika á titli
í ár segir hann; ,,Ég var í KR tíu ár
þar sem kom ekkert annað til greina
en að stefna á titil. Ég þekki því ekki
annan hugsunarhátt, en ef ég lít
raunhæft á málin þá er FH með
langbesta liðið og mannskapinn. Það
sýndi sig berlega í leik þess við
Fylki. Þó svo að það vantaði þrjá lyk-
ilmenn þá rúlluðu FH-ingarnir yfir
Fylkismennina. Við Valsmenn ætl-
um hins vegar að gera allt sem í okk-
ar valdi stendur til að veita þeim
keppni.“
Lék fyrsta leikinn með Þór
í efstu deild 15 ára gamall
Guðmundur sleit barnskónum á
Akureyri og hóf snemma að sparka í
bolta með Þórsunum. Menn tóku
fljótt eftir því að hann þótti með af-
brigðum flinkur með boltann og efni
í afburðaknattspyrnumann. Gummi
lék sinn fyrsta leik með meistara-
flokki Þórs aðeins 15 ára gamall,
gegn Val, og þaðan lá leiðin í at-
vinnumennskuna. Árið 1991 samdi
hann við belgíska liðið Ekeren.
Hann var á mála hjá Ekeren í þrjú
ár en meiðslin tóku sinn toll. Kross-
band í hné gaf sig í fyrsta skipti af
mörgum og þau þrjú ár sem hann
var hjá félaginu lék hann fáa leiki.
Hann sneri heim úr atvinnumennsk-
unni og gekk í raðir Þórs 1994, en ári
seinna samdi hann við KR sem hann
lék með þar til í ár. Hann var á láns-
samningi hjá belgíska liðinu Geel
eftir tímabilið hér heima 1999, en at-
vinnumannaferillinn varð skemmri
en efni stóðu til vegna þeirra miklu
meiðsla sem hann hefur átt
við að glíma.
Guðmundur var Íslands-
meistari í fjórgang með
vesturbæjarliðinu, tvívegis
bikarmeistari en meiðsla-
sagan hélt áfram. Hann
gekkst undir aðgerð vegna
krossbandaslita 2002 og lék
ekkert árið 2003. Hann spil-
aði hins vegar tólf leiki með
liðinu á síðustu leiktíð en var
aðeins fimm sinnum í byrj-
unarliði.
Fimm krossbandaaðgerðir
Meiðslasagan hjá Guð-
mundi er löng. Hann hefur
farið í fjórar krossbanda-
ðgerðir á vinstra hné og
eina á því hægri. ,,Það er
varla eðlilegt að ég skuli
vera að spila fótbolta. Ég
verð samt seint talinn eðli-
legur maður en ég hef lært í
gegnum tíðina að taka
þessu með jafnaðargeði.“
Voru ekki margir búnir að afskrifa
þig sem knattspyrnumann þegar þú
meiddist enn og aftur?
,,Jú, og það skiljanlega. En ég var
staðráðinn í að byrja aftur og það er
langt síðan ég hef náð mér svona vel
á strik eins og í sumar og langt síðan
ég hef getað spila svona marga leiki.
Ég ákvað fyrir síðasta tímabil, um
veturinn, að gera lokatilraun um það
hvort ég gæti spilað. Ég var búinn að
vera í basli vegna meiðslanna í þrjú
ár og ég ákvað að fara nýjar leiðir til
að styrkja mig og koma mér í stand.
Ég leitaði til Gauta Grétarssonar
sjúkraþjálfara og bað hann um að
hjálpa mér. Gauti samþykkti það og
allan veturinn æfðum við saman.
Þetta voru átta æfingar í viku sem
eingöngu voru styrktaræfingar og
hlaup og með hans hjálp þá tókst
mér að komast í gang að nýju. Ég
var kominn í ágætt stand á síðasta
sumri en ég var bara með svo léleg-
an þjálfara sem leyfði mér lítið að
spila,“ segir Guðmundur og hlær, en
Willum Þór Þórsson var þá við
stjórnvölinn hjá KR en er nú hjá Val
og það var einmitt Willum sem sótti
hart að Guðmundi að skipta yfir í Val
þegar ljóst var að þeir væru báðir á
förum frá vesturbæjarliðinu. ,,Ég
ætla ekkert að leyna því að ég var
pirraður í fyrra að fá ekki að spila
meira. Mér fannst ég geta spilað
meira og eiga erindi í það. Ég stend í
mikilli þakkarskuld við Gauta Grét-
arsson. Hann lagði mikið á sig, bæði
kvölds og morgna og æfði með mér.
Ef ég hefði ekki leitað til hans þá
væri ég líklega ekki að spila í dag.
Ég var staðráðinn í því að spila
áfram og eftir tímabilið í
fyrra, spurningin var bara
hvaða lið vildi nýta krafta
mína. Eftir að hafa rætt við
stjórnarmenn Vals og feng-
ið að vita að Willum Þór
tæki við þjálfun liðsins þá
kom ekkert annað til greina
en að fara til Vals.“
Var með samningstilboð
frá tólf erlendum liðum
Guðmundur var 16 ára
gamall þegar meiðslin
bönkuðu á dyr hans. Hann
sleit krossband í hné í leik
með drengjalandsliðinu á
móti í Sviss en á þeim tíma-
punkti var hann orðinn
mjög eftirsóttur ef erlend-
um liðum. ,,Fyrir mótið í
Sviss var ég með samn-
ingstilboð frá tólf liðum. Öll
liðin nema tvö, Ekeren í
Belgíu og þýska liðið Stutt-
gart, drógu tilboðin til baka
þegar þau fréttu af kross-
bandaslitinu Ég tók þá ákvörðun að
fara til Belgíu en eftir fyrsta tímabil-
ið þurfti ég að fara í þrjár aðgerðir.
Mér stóð til boða að vera áfram hjá
Ekeren en ég var búinn að fá nóg og
var búinn að sætta mig við að þetta
gengi ekki. Fótboltanum má líkja við
rússíbana. Maður stjórnar honum
ekki. Maður getur haft áhrif en ekki
ráðið frá a til ö.“
Ert þú búinn að koma sjálfum þér
á óvart í sumar?
,,Nei, í sjálfu sér ekki, en það sem
hefur komið mér á óvart er að ég hef
spilað alla leikina og ég gat æft í all-
an vetur.“
Ekki þörf fyrir mig hjá KR
Þú spilaðir með KR í tíu ár en
ákvaðst að fara frá félaginu eftir
tímabilið. Hvers vegna?
,,Það virtist ekki vera þörf fyrir
mig lengur. Ég heyrði ekkert frá
KR-ingum þannig að ég geri ráð fyr-
ir því að það hafi ekki verið áhugi
fyrir hendi að gera nýjan samning.
Það er kannski ekkert óeðlilegt við
það. Saga mín hefur verið þannig að
ég hef verið mikið meiddur og það er
ekkert óeðlilegt að menn hafi ekki
tekið þá áhættu að stóla á mig. Ég
átti frábæran tíma hjá KR. Ég á
fjóra Íslandsmeistaratitla og tvo bik-
armeistaratitla með liðinu og það er
meira en nánast flestir núlifandi KR-
ingar geta státað af. “
Guðmundur er enn dýrkaður og
dáður af mörgum stuðningsmönnum
KR-inga og það kom berlega í ljós
þegar Valur og KR áttust við á Hlíð-
arenda í síðustu viku. Þegar nafn
Guðmundar var lesið upp fyrir leik-
inn klöppuðu stuðingsmenn KR hon-
um lof í lófa.
Hvernig var tilfinningin að mæta
sínum gömlu félögum, skora á móti
þeim og taka þá hreinlega í bakaríið?
,,Það var mjög skrýtið og þá sér-
staklega fyrir leikinn. Umfjöllunin
fyrir leikinn snerist mikið um mig,
Willum og Sigþór, gömlu KR-ing-
anna. Þegar út í leikinn var komið
spáði ég ekkert í þetta en það yljaði
mér um hjartaræturnar að fá þessar
móttökur hjá KR-ingum. Það er
gaman ef maður hefur skilið eitthvað
eftir sig.“
Fannst þér þú ná að koma fram
„Fótboltanum má líkja
Guðmundur Benediktsson,
eða Gummi Ben eins og
flestir þekkja hann, hefur
yljað knattspyrnuáhuga-
mönnum á vellinum í sum-
ar. Þessi 30 ára framherji,
sem gengið hefur í gegnum
ótrúlega þrautagöngu
meiðsla á ferli sínum, hefur
blómstrað með nýliðum
Vals í sumar og á vafalaust
mestan heiðurinn af fram-
gangi Hlíðarendaliðsins á
leiktíðinni. Guðmundur
Hilmarsson ræðir við
Guðmund, sem margir
vilja meina að hafi öðlast
nýtt fóboltalíf með komu
sinni í Val.
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðmundur Benediktsson sýnir góða takta í leik Vals gegn Þrótti á fimmtudagskvöldið. Leiknum lauk 2:0 með sigri Vals.
Guðmundur Benediktsson byrjaði snemma að fagna
mörkum, enda með afbrigðum efnilegur knattspyrnu-
maður á yngri árum. Hér fagnar hann marki gegn KS á
gamla malarvellinum í miðbæ Siglufjarðar sumarið 1986.
Guðmundur var þarna í 5. aldursflokki.