Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 18
18 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
F
rumkvöðullinn Sesselja
Sigmundsdóttir stofnaði
barnaheimili að Sólheim-
um í Grímsnesi á tuttug-
asta og áttunda afmæl-
isdegi sínum, 5. júlí árið
1930. 75 ára afmælinu
verður fagnað með ýmsum hætti
næstkomandi þriðjudag, en í dag
verður jafnframt Sólheimakirkja
vígð og umhverfissetur opnað í vist-
vænu húsi sem kennt er við Sess-
elju.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, vígir Sólheimakirkju, en for-
eldrar hans, Sigurbjörn Einarsson
biskup og Magnea Þorkelsdóttir,
tóku fyrstu skóflustungu að kirkj-
unni fyrir fimm árum. Framkvæmd-
ir hófust árið 2002 og leitast var við
að nota vistvæn efni við bygginguna.
Veggirnir eru steinsteyptir, með
torfhleðslu að utan, en þakið er úr
timbri og klætt með pappa og reka-
viði. Kirkjan er fjármögnuð af
styrktarsjóði Sólheima, með fjár-
styrkjum og efnisgjöfum einstak-
linga og fyrirtækja.
Helga Helena Sturlaugsdóttir
hefur verið ráðin prestur á Sólheim-
um. Kirkjan er í eigu Sólheima, en
tilheyrir Mosfellssókn, þar sem
Rúnar Þór Egilsson er sóknarprest-
ur. Helga segir að við byggingu
kirkjunnar hafi sérstaklega verið
hugað að hljómburði, enda sé stefnt
að því að nýta hana fyrir fleiri við-
burði en þá sem snúa beint að
kirkjustarfi. „Ýmsar samkomur, til
dæmis í kringum aðventuna, hafa
hingað til verið haldnar í íþróttahús-
inu, en munu nú færast hingað í
kirkjuna,“ segir Helga. „Það er mik-
il tónlistarhefð hér á Sólheimum og
kirkjan getur nýst fyrir tónlistar-
viðburði, við getum til dæmis tekið á
móti kórum. Kirkjan rúmar samtals
nær 200 manns, 168 í sæti og 28
uppi á lofti, og raddir hafa heyrst
um að það sé heldur mikið, í ljósi
þess að á Sólheimum búi aðeins um
100 manns. En því má ekki gleyma
að margir íbúanna eiga aðstandend-
ur annarsstaðar, sem koma gjarnan
í heimsókn yfir hátíðar. Og við vilj-
um líka geta tekið á móti fólki úr ná-
grenninu, til dæmis sveitinni eða
sumarbústaðabyggðum, vilji það
koma hingað í messu.“
Prestur og félagsmálafulltrúi
Prestur hefur ekki áður verið
starfandi á Sólheimum, en Helga
segir að þar sé rík trúarleg hefð.
„Við syngjum til dæmis alltaf morg-
unsöng saman, sem er sálmur. Það
er mikill kostur fyrir íbúana að
þurfa ekki að fara annað til að sækja
messu. Það hefur lengi ríkt áhugi á
að reisa kirkju á Sólheimum og við
höfum fengið mikinn stuðning.
Kirkjan er byggð fyrir gjafafé og er
skuldlaus.“
Helga tekur fram að hún sinni
auk prestsverkanna starfi félags-
málafulltrúa. „Ég hef því umsjón
með öllu félagsstarfi hérna á staðn-
um, hverslags uppákomum og
íþróttastarfi, held utan um heima-
síðu Sólheima og fleira.“ Hún leggur
að síðustu áherslu á að þó prestur sé
kominn til starfa verði kirkjustarf
ekki byggt upp nema með því að allt
samfélagið taki þátt í því. „Það
koma til dæmis fjölmargir að starfi
kirkjukórsins og eins mæta lang-
flestir íbúarnir þegar við erum með
samkomur. Sólheimar byggjast ein-
mitt upp á því, að allir taki þátt.“
Umhverfissetur í Sesseljuhúsi
Að lokinni vígslu Sólheimakirkju
mun Sigríður Anna Þórðardóttir
umhverfisráðherra opna umhverfis-
setur í Sesseljuhúsi, sem reist var
árið 2002, þegar hundrað ár voru lið-
in frá fæðingu Sesselju Sigmunds-
dóttur. Forstöðumaður umhverfis-
setursins er Guðmundur Ármann
Pétursson, umhverfisfræðingur, og
segir hann að höfuðáhersla verði
lögð á að kynna þar sjálfbæra þró-
un.
„Segja má að í umhverfissetrinu í
Sesseljuhúsi drögum við saman allt
það sem samfélagið hérna er að
vinna í umhverfismálum,“ segir
Guðmundur. „Markmið Sólheima er
að skapa sjálfbært samfélag og lögð
er áhersla á vistvænar byggingar,
eigin orkuöflun, lífræna ræktun og
endurvinnslu. Auk þeirrar fræðslu
um umhverfismál sem boðið verður
upp á í umhverfissetrinu gefst fólki
þannig kostur á að sjá hlutina í
verki, sem part af daglegu lífi í sjálf-
bæru byggðarhverfi.“
Í Sesseljuhúsi er gert ráð fyrir að
haldin verði námskeið, ráðstefnur
og fyrirlestar um umhverfismál, fyr-
ir almenning, félög og faghópa. Þá
verður boðið upp á sýningar og
fræðslu fyrir gesti og gangandi, en
að sögn Guðmundar heimsóttu um
25 þúsund manns Sólheima á síðasta
ári, flestir yfir sumartímann. „Fólk
getur komið hingað í umhverfissetr-
ið og fengið fræðslu um til dæmis
lífræna ræktun, sjálfbæra þróun og
hvað hægt er að gera við gömlu
gallabuxurnar og kertastubbana í
staðinn fyrir að fleygja þeim í ruslið.
Síðan getur það sest niður á kaffi-
húsinu og fengið sér kaffi og ljúf-
fengar kökur úr lífrænt ræktuðum
hráefnum, skoðað höggmyndagarð-
inn, keypt lífrænt ræktað grænmeti
í versluninni okkar eða tré fyrir
sumarbústaðinn í skógræktinni, og
endað heimsóknina á því að sækja
leiksýningu. Hér er margt um að
vera og fólk getur fengið hugmyndir
og séð lausnir í umhverfismálum og
tekið með sér heim.“
Einangrunin úr ull af 2.400 sauðum
Sesseljuhús er timburhús með
torfþaki og bakhliðin er að hluta til
niðurgrafin og felld inn í landið.
Guðmundur segir að byggingin sjálf
sé í raun sýnidæmi um góða um-
hverfislausn. „Við hönnun og bygg-
ingu Sesseljuhúss voru umhverfis-
sjónarmið í hávegum höfð. Enn er
ekki til nein opinber skilgreining á
því hvað teljist vistvæn bygging, en
umhverfisverndarsamtök og arki-
tektar á þessu sviði hafa komið sér
saman um ákveðin viðmið og þeim
var fylgt eins vel og unnt var.“
Guðmundur útskýrir að meðal
annars þurfi að taka mið af aðstæð-
um á hverjum stað, byggingarefni
og orkunotkun. „Þegar grunnurinn
var tekinn var jarðrask lágmarkað
og jarðvegurinn sem losa þurfti var
nýttur við lóðaframkvæmdir í kring-
um húsið. Notaður var umhverfis-
vottaður viður úr nýjum ræktunar-
skógum.
Einangrunin er að uppistöðu til úr
ull, sem einhver reiknaði út að væri
af 2.400 sauðum. Ullin er frábært
einangrunarefni, sem hefur ekki
verið notað að ráði hérlendis en er
algengt í Bretlandi og víðar í Evr-
ópu. Húsið er klætt með rekaviði,
sem er íslenskur að því leyti að hann
er sóttur vestur á Strandir. Sjórinn
og náttúran eru búin að fúaverja
hann, hann er svo mettaður að við
þurfum ekki að bera á hann kemísk
efni. Öll málning og viðarvörn er
vottuð umhverfisvæn og lífræn. Við
reyndum að nota eins mikið af inn-
lendu efni og kostur var og parketið
er til dæmis úr Guttormslundi. Raf-
magnsleiðslurnar liggja meðfram
veggjunum í opnum stokkum, þann-
ig að þær eru aðgengilegar og
lagnaleiðir eins stuttar og mögulegt
er. Lýsingin er hlutlaus og mild.
Fráveitukerfið úr húsinu er einnig
mjög vistvænt, en skólpið er hreins-
að með náttúrulegum aðferðum og
því síðan skilað út í jarðveginn. Síð-
ast en ekki síst má nefna að Sess-
eljuhús er sennilega fyrsta og eina
samtímabyggingin á Íslandi sem er
laus við allt PVC, en það er mjög
óvistvænt efni sem ekki er hægt að
Byggt á því að allir
75 ár eru liðin frá því að
Sesselja Sigmundsdóttir
stofnaði barnaheimili að
Sólheimum í Grímsnesi.
Síðan hefur orðið mikil
uppbygging á svæðinu og
þar búa nú um 100 manns í
sjálfbæru byggðarhverfi.
Aðalheiður Inga Þorsteins-
dóttir heimsótti Sólheima
og ræddi við heimamenn
um ýmsa viðburði í
tengslum við tímamótin.
Guðmundur Ármann Pétursson við umhverfissetrið í Sesseljuhúsi. Byggingin er vistvæn og Guðmundur kveðst vonast til þess að þangað muni fólk á öllum aldri
sækja fræðslu um umhverfismál.
Ungar heimasætur fyrir framan fyrsta húsið sem reist var að Sólheimum í
Grímsnesi fyrir 75 árum. Á Sólheimum er nú meðal annars rekin skógrækt-
arstöð, hótel, kertagerð, verslun, smíðastofa, listasmiðja og kaffihús. Þar er
sundlaug, íþróttaleikhús, höggmyndagarður og sýningarsalur, auk umhverf-
isseturs og kirkju sem tekin verða í notkun í dag.
Helga Helena Sturlaugsdóttir, prestur Sólheimakirkju, segir að auk messuhalds
verði byggingin nýtt fyrir samkomur og tónlistarviðburði.