Morgunblaðið - 03.07.2005, Page 23

Morgunblaðið - 03.07.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 23 Það hvílir stóísk ró yfir Fossa-túni, veiðihúsinu við Grímsáí Borgarfirði. Uppdekkuðborð bíða komu nýs hóps veiðimanna, eða réttar sagt veiði- kvenna. En ekki lengi. Glæsijeppar renna í hlað og út stíga glaðlegar konur sem faðmast og kyssast á bíla- stæðinu. Háværar samræður og hlátrasköll bergmála fljótlega um ganga veiðihússins. Í hópnum er Guðrún Kristmundsdóttir og hún er þeirra reynslumest í Grímsá. „Ég er búin að láta allar stelpurnar fá síma- númerið mitt og segja þeim að hringja ef ég get hjálpað þeim með eitthvað,“ segir Guðrún glaðlega. „Mér finnst oft miklu skemmti- legra að leiðbeina fólki og hjálpa því við veiðar. Ég er búin að veiða svo mikið af fiski að ég þarf ekkert að sanna mig í þeim málum.“ Skömmu síðar eru þær allar komnar í öndunarvöðlur, búið að skipta upp svæðum en Guðrún og veiðifélagi hennar, Katrín Péturs- dóttir, oft kennd við Lýsi, byrja á því efsta. „Báðir afar mínir veiddu mikið hér. Föðurafi minn deyr áður en ég fæðist en ég man eftir móðurafa mínum við veiðar. Eitt síðasta sum- arið sem hann lifði var hann búinn að fá heilablóðfall og var lamaður öðru megin. Pabbi hélt á honum út í á og gat leyft gamla manninum að veiða. Þrátt fyrir veikindin var veiði- áhuginn enn þetta sterkur.“ Vildi veiða stanslaust En er Guðrún með ólæknandi veiðisýki? „Ekki lengur. Ég hef veitt alla tíð, veit ekki einu sinni hvað ég var göm- ul þegar ég fékk minn fyrsta lax. Mér fannst ofsagaman að vera hér þegar ég var krakki. Þegar ég var unglingur dofnaði áhuginn, þó ég mætti yfirleitt með foreldrum mín- um hingað á sumrin. Þegar ég var tvítug bað ég föður minn að kenna mér almennilega að veiða. Síðan hef ég verið forfallin. Ég var alltaf ein á stöng og vildi veiða stanslaust. Ég er rólegri í dag. Eina stóra málið nú er fyrsti lax sumarsins,“ segir Guðrún og ég sé að henni er alvara. Guðrún er búin að setja saman flugustöngina og hnýtir tauminn á línuendann með sprautunál. „Ég er svo gamaldags að ég nota enn nagl- hnút sem pabbi kenndi mér. Allir í kringum mig nota lykkju, en það fyndna er að ég kann ekki að setja lykkju á línuna,“ segir hún hlæjandi og hnýtir undir Blue Charm númer 14. „Ég vil hafa flugur eins og í gamla daga, þær eru svo flottar. Ég reyni klassískar fjaðraflugur í hverri ferð í Grímsá, mér finnst það svo gaman. Yfirleitt fæ ég einn lax á sumri á þannig flugu.“ Flugan sem um ræðir er klassísk Wilkinson. Katrín er búin að fara eina umferð yfir Oddastaðafljót og nú er komið að Guðrúnu. „Þetta er fallegur stað- ur,“ segir hún. „Ég veiddi hérna í byrjun ágúst fyrir tuttugu árum. Eignaðist son 4. júní það sama ár þannig að ég var með hann hér á bakkanum í burðarrúmi tæplega tveggja mánaða gamlan. Veðrið var yndislegt og þegar hann vaknaði þá gaf ég honum að drekka og hélt síð- an áfram að veiða með hann í burð- arpoka framan á mér. Það er ekkert mál að vera með lítil börn í veiði.“ Afslappaðra í kvennahollum Guðrún fer vel yfir hylinn. Hún veit hvar tökustaðirnir eru og vand- ar köstin.. „Varstu búinn að taka eft- ir að við Kata erum báðar örvhent- ar?“ segir hún brosandi þegar þær skipta aftur. Ekki hafði ég tekið eftir því. Ég spyr Guðrúnu hver sé meg- inmunurinn á kvennaholli og blönd- uðu holli í veiði. „Andrúmsloftið er afslappaðra í kvennahollinu. Miklu meiri sam- heldni, samhygð og ekki þessi keppni sem oft er á milli veiðimanna. Við Kata erum til dæmis búnar að veiða saman í tíu ár, og það er aldrei verið að pæla hvor er með fleiri fiska eða hvort við erum saman með fleiri fiska en stelpurnar á hinni stönginni. Svo er líka miklu meira hlegið,“ seg- ir Guðrún og Katrín tekur undir. En eru einhverjir staðir í Grímsá í uppáhaldi? „Já, ég á nokkra uppá- haldsstaði. Strengirnir eru einna bestu fluguveiðistaðir landsins. Þar geturðu fengið brjálaða bardaga, sérstaklega á vorin. Ég hef fengið marga ógleymanlega fiskar þar. Svo Lækjarfoss, staður sem lætur ekki mikið yfir sér, en er minn uppá- haldsstaður. Ég get ekki gert á milli staða í uppánni, mér finnst hún öll skemmtileg. Grímsáin hefur allt sem veiðiá þarf að hafa upp á að bjóða, fallega hylji, fossa, strengi og kletta. Hún hefur eitthvað sem hittir mig beint í hjartastað. Ég reyni að veiða hér nokkrum sinnum hvert sumar.“ Nú er komið að því að skipta um flugu og Guðrún reynir „hits“-túpu. Finnst lax alls ekki góður „Ég er mjög ánægð með að Grímsáin var gerð að fluguveiðiá. Og ekki síður með að það skuli vera átta stangir allt tímabilið en ekki fjölgað í tíu á sumrin eins og áður. Þessi nýi hugsunarháttur sem hefur verið að ryðja sér til rúms, að vera ekki að veiða eins og vitleysingur, standandi við í tólf tíma á dag. Þetta snýst ekki bara um að veiða lax. Þetta er nátt- úran og upplifunin. Að vera við ána. Heima hjá mér var lax aldrei sparimatur. Hann var borðaður hversdags og ég verð að viðurkenna að mér finnst lax alls ekki góður, enda búin að borða nóg af honum í gegnum tíðina,“ segir Guðrún og brosir. „Það veiddist svo mikið af laxi þegar pabbi var með hluta ár- innar á leigu. Ég held meira að segja að hann hafi oft getað náð fyrir leig- unni á ánni, með því að selja lax, enda var laxinn fokdýr í þá daga. Ég sleppi hins vegar stundum laxi og finnst það gaman. Að vísu sleppi ég sjaldnast vorlaxi sem er enn í göngubúningi. Mér finnst líka sorg- legt þegar ég horfi á fólk veiða og drepa hrygnur sem eru komnar að því að hrygna. Þannig fiskum vil ég sleppa. Annars er meðalhófið best í þessu eins og í svo mörgu öðru.“ Lónbúinn lætur bíða eftir sér og ég bið Guðrúnu að segja mér frá ein- hverjum ógleymanlegum laxi. „Hér í Þinganesstreng barðist ég við stærsta lax sem ég hef nokkru sinni séð. Hann tók maðkinn rúmlega níu um kvöld og orrustan stóð til að verða ellefu. Hann dró mig senni- lega fimmtíu sinnum upp og niður strenginn. Hann var það stór að það var ekki möguleiki að stranda hon- um, svo var enginn með háf. Við vor- um með „tailer“ og höfðum reynt að sporðtaka hann þrisvar eða fjórum sinnum. Ég var búin að ná honum nokkrum sinnum upp að bakkanum og sjá hann vel. Að lokum sargaði hann sextán punda línuna í sundur á steini,“ segir Guðrún og hlær ekki í þetta sinn. „Þessi lax kenndi mér miklu meira en hundrað aðrir laxar. Ég verð að hugsa þannig því annars væri ég enn í fýlu yfir því að hafa misst hann. Ég held að þetta hafi verið einn af þessum fáu, stóru úr gamla Grímsárstofninum sem leyn- ast hérna. 26 pund ýkjulaust, 28 pund með smá ýkjum.“ Hún er hætt að kasta og við rölt- um að bílnum. „Ég var svo gjör- samlega búin eftir þennan svakalega bardaga. Þegar ég kom upp í hús var maturinn löngu búinn en kokkurinn hafði haldið einhverju heitu fyrir mig. Móðir mín sá aumur á mér og gaf mér rauðvínsglas en ég var svo úrvinda að ég gat ekki haldið á glas- inu og missti það. Ég hef aldrei á ævinni verið jafnþreytt.“ Við kveðjumst við sögulok. Það verður mikið hlegið næstu daga í Grímsá. Í dag er veitt með Guðrúnu Kristmundsdóttur í Grímsá í Borgarfirði. Guðrún hefur veitt í Grímsá frá unga aldri og var nú við veiðar í holli sem eingöngu var skipað kon- um. „Ég er nán- ast uppalin hér við ána. Pabbi var með hluta af henni á leigu í fjölda ára, Garðafljótin, Húsafljót og Skarðshyl, og stundum hluta af Strengjunum, Veiðifossi og Viðbjóði. Hann var með veiðikofa við Skarðshyl sem gegnir nú því virðulega hlutverki að vera hænsnakofi að Skarði. Það lýsir kannski aðstöðumuni þá og nú.“ Nánast uppalin við Grímsá Morgunblaðið/Golli „Eina stóra málið nú er fyrsti lax sumarsins.“ Guðrún Kristmundsdóttir kastar flugunni í Efstahyl. Hef aldrei verið jafnþreytt Eftir Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is STANGVEIÐI | VEITT MEÐ GUÐRÚNU KRISTMUNDSDÓTTUR Í GRÍMSÁ Tækniþróunarsjóður Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is Næsti umsóknarfrestur fyrir verkefnisstyrki Tækniþróunarsjóðs er 15. september næstkomandi. Tækniþróunarsjóður er sérstakur sjóður sem heyrir undir iðnað- arráðherra. Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rann- sóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. Umsóknareyðublöð verða tilbúin á heimasíðu Rannís um miðjan júlí. Hámarksframlag til framúrskarandi rannsóknaverkefna getur numið allt að 30 milljónum króna samanlagt á þremur árum, 20 milljónum króna á tveimur árum eða 10 milljónum króna á einu ári, sem getur dreifst misjafnlega á stuðningsárin allt eftir fram- gangi verkefnisins og fjárþörf. Sé sótt um hærri stuðning en 30 milljónir á þremur árum er umsókn hafnað. Unnt er að sækja um stuðning til allt að þriggja ára en stjórn sjóðsins staðfestir framlög til eins árs í senn. Frekari stuðningur er háður fram- vindu og að skilað sé umsömdum árangri. Minnt skal á að forverkefnisstyrkir hafa opinn umsóknarfrest, en þeir geta numið allt að einni milljón króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.