Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 46
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
HVERT ÆTLI VIÐ FÖRUM
ÞEGAR VIÐ DEYJUM?
TIL NOREGS?
HVORT ER ÞAÐ EF ÉG
ER GÓÐUR EÐA VONDUR?
Risaeðlugrín
LENGRA TIL VINSTRI ...
© DARGAUD
MEIRA, MEIRA AÐEINS
MEIRA ... STOPP!!
AÐEINS HÆRRA NÚNA ... MEIRA, MEIRA,
MEIRA .... JÁ NÚNA
STOPP!!
EITT STIG Í VIÐBÓT FYRIR ÞIG!
EIGUM VIÐ AÐ HALDA
ÁFRAM OG ÞÁ MEÐ
SKJALDBÖKUR?
JÁ, HVÍ
EKKI ÞAÐ!
Dagbók
Í dag er sunnudagur 3. júlí, 184. dagur ársins 2005
Víkverji hefur ákaf-lega gaman af
sjónvarpi og öllu sem
því fylgir. Það er fátt
sem honum finnst
notalegra en að koma
sér haganlega fyrir í
mjúkum stól, með flís-
teppi dregið upp undir
höku og horfa á sjón-
varpið.
Hugsanlega mætti
kalla Víkverja „sjón-
varpssjúkling“ enda
eru þeir fáir sjón-
varpsþættirnir sem
Víkverji hefur ekki
dottið inn í. Hann hef-
ur fylgst með óteljandi pip-
arsveinum velja sér brúðir, séð útliti
bandarískra húsmæðra gjörbreytt
og Víkverji má vart missa af þætti í
unglingadramaþáttum á borð við
One Tree Hill.
Þar sem Skjár einn, eins ágætur
og hann er, gat ekki annað sjón-
varpsþorsta Víkverja ákvað hann að
kaupa sér myndlykil og aðgang að
stafrænu Íslandi. Ekki skyldi duga
að kaupa eingöngu Stöð 2, nei, nú
skyldi duga eða drepast og allur
pakkinn keyptur, hátt í sjötíu sjón-
varpsstöðvar. Víkverji flutti á
dögunum og nýja íbúðin skyldi verða
notuð til sjónvarpsgláps. Tilhlökk-
unin var mikil.
Víkverji mátti því
vart mæla af sorg er
hann setti sjónvarpið í
samband og engin
mynd fékkst á skjáinn.
Hann reyndi allt.
Keypti loftnetsmagn-
ara, ýmiss konar snúr-
ur, risa kanínueyru-
loftnet, allt sem
honum datt í hug. Allt
án árangurs.
Hvernig mátti þetta
vera? Hvernig átti
Víkverji að komast af
án þess að hafa imb-
ann sinn að horfa á?
Skyldi hann neyðast til að eyða tíma
með fjölskyldunni? Skyldu þau þurfa
að tala saman? Kannski spila?
Nei, þetta ætlaði Víkverji ekki að
láta bjóða sér. Hingað og ekki
lengra! Hvað sem það kostaði, Vík-
verji skyldi koma sjónvarpinu í
gang. Loftnetskarlinn var því kall-
aður á staðinn og vinsamlegast beð-
inn að redda málum.
Nú, þegar Víkverji getur loks
horft á stöðvarnar sjötíu, áttar hann
sig á því að þar er ekkert í boði. Sit-
ur hann nú í hægindastólnum með
fjarstýringuna og skiptir stöðugt
milli stöðva. Tæplega fimm sek-
úndna stopp á hverri.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hljómskálagarðurinn | Það var líf og fjör í Hljómskálagarðinum í fyrrakvöld
þegar tónleikarnir Átta líf fóru fram undir berum himni. Þó flestir hafi vænt-
anlega komið til að hlýða á ljúfa tóna margra af fremstu tónlistarmönnum
þjóðarinnar lét yngsta kynslóðin tónlistina ekki trufla einbeitingu sína í leik-
tækjunum. Einkum voru það kaðlarnir sem heilluðu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Einbeitt í kaðlaklifri
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til
dýrðar. (Róm. 15, 7.)