Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 51
MENNING
N†TT
SÖLUKERFI
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
17
0
6
3
Vegna breytinga á hug- og
vélbúna›i ver›ur loka› fyrir sölu á
öllum leikjum Getspár/Getrauna
sunnudaginn 3. júlí og
mánudaginn 4. júlí.
Opna› ver›ur fyrir sölu á n‡jan
leik flri›judaginn 5. júlí.
Tveir fyrir einn til
Barcelona
8. eða 15. júlí
frá kr. 19.990
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að komast til þessarar mest
spennandi borgar Spánar. Nú er fegursti tími ársins og kjörið að skreppa til
Barcelona á frábærum kjörum og njóta þess besta sem Spánn hefur að bjóða.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1
tilboð, út 8. júlí og heim 13. júlí eða út
15. júlí og heim 20. júlí. Netverð á mann.
Síðustu sætin
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Í EVRÓPSKRI málaralist er fimmtánda öld-
in öld uppgangs í portrettmálun, það er einn-
ig öldin þegar notkun olíulita er að ryðja sér
til rúms og hugmyndir miðaldamanna um
einstaklinginn eru að breytast. Endurreisn-
armaðurinn er í fæðingu, tæknilegar og efna-
hagslegar framfarir samfara þróun borg-
arastéttar verður til þess að þessi grein
blómstrar á næstu öldum og heldur síðan
áfram að lifa sínu lífi í margs konar myndum
fram á okkar dag. Margs konar portrett
komu fram á þessum tíma, bæði einstakling-
ar og hópar létu gera af sér myndir. Lista-
menn eða konungsfjölskyldur, næturverðir
eða læknar. Ljóðskáld eða spænska hirðin,
kartöfluætur eða herflokkar Napóleons. Allar
mögulegar starfsstéttir og hópar vildu láta
gera ímynd sína ódauðlega eða voru mál-
urunum innblástur. Orðið portrett er dregið
af latneskum orðum sem merkja að draga
fram kjarnann og mjög fljótt í sögu
portrettsins var það hluti af málverkinu að
málarinn leitaðist við að finna innri kjarna
persónunnar, draga fram hið ósýnilega, við
könnumst öll við dularfullt bros Mónu Lísu
en vitum ekki hvað bjó að baki.
Í dag eru það oftar en ekki ljósmyndarar
dagblaðanna sem hafa tekið við þessu hlut-
verki portrettmálaranna, þeir skrásetja sög-
una og ef vel tekst til skapa þeir ógleyman-
legar myndir af þeim persónum sem eiga
þátt í því að móta samfélag okkar, stjórn-
málamönnum, athafnamönnum, listamönnum.
Það er óhætt að líta á Kristin Ingvarsson
sem arftaka málara fyrri alda en þegar í
námi lagði hann áherslu á portrettmyndir.
Lokaverkefni hans frá ljósmyndaskóla í Bret-
landi fyrir einum 16 árum var svarthvít sería
af fólki í bresku Lávarðadeildinni. Þær
myndir má einnig sjá á viðamikilli portrett-
myndasýningu Kristins sem nú stendur yfir í
ljósmyndasal Þjóðminjasafnins, sýningu sem
enginn sem áhuga hefur á fólki og listum
ætti að láta framhjá sér fara. Sýningunni er
fylgt veglega eftir með vandaðri sýning-
arskrá þar sem rakinn er ferill Kristins,
hann segir sjálfur frá verkum sínum og sam-
ferða- og samstarfsmenn hans segja frá upp-
lifun sinni af myndum hans. Gunnar Her-
sveinn heimspekingur sér um texta og túlkar
nokkrar myndanna eftir eigin höfði. Fjöldi
mynda birtist í bókinni sem er fallega unnin
og gefur góða mynd af verkum Kristins og
hugsun hans.
Sumir portrettmálarar fyrri alda fegruðu
hefðarfólkið sem sat fyrir en aðrir eins og
t.d. Goya sýndu mannlegar hliðar þeirra sem
hann málaði. Kristinn leitast alls ekki við að
fegra viðfangsefni sín, hann skapar mynd þar
sem saman koma margar hliðar þeirra sem
hann myndar, atvinna þeirra og hvernig hún
hefur mótað einstaklinginn, en einnig sýnir
hann stundum að eitthvað er falið, hvernig
fólk á sínar opinberu og sínar prívat hliðar.
Kristinn er eftirsóttur portrettljósmyndari,
meðal annars vegna þess að hann nálgast
viðfangsefni sitt undantekningarlaust af full-
kominni virðingu, ekki með neinum tepru-
skap, en sá sem hann myndar getur treyst
því að ekki birtist á myndinni eitthvað sem
betur væri hulið. Hann gengur þannig aldrei
of nærri viðfangsefni sínu heldur skapar
nauðsynlega fjarlægð með áherslu sinni á
myndbyggingu og samspil ljóss og skugga,
samanber nafn sýningarinnar, Skuggaföll.
Myndir hans eru dramatískar en falla þó
ekki í gryfju melódramans, það er persóna
viðfangsefnisins sem skapar stemninguna.
Hvernig sem á því stendur virðast svart-
hvítar myndir oft segja sannleika sem staf-
Í réttu ljósi
MYNDLIST/LJÓSMYNDIR
Þjóðminjasafnið
Til 18. september. Opið alla daga yfir sumartímann,
frá kl. 10–17.
Skuggaföll
Portrettmyndir Kristins Ingvarssonar
Ragna Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Ein mynda Kristins á sýningunni. Hún er af bandaríska ljósmyndaranum Mary Ellen Mark.
rænar litmyndir skortir, þær búa yfir dýpt
og myrkri sem lætur áhorfandanum eftir að
geta í eyður, og rétt eins og rithöfundur get-
ur dregið upp lifandi mynd af persónu með
fáum orðum segja myndir Kristins meira en
fjöldi litmynda gæti gert. Hér er tilfinning
fyrir fólki með fortíð og framtíð, sumir eiga
margt eftir en aðrir hafa lært margt af lífinu.
Stundum búa svarthvítar myndir yfir vissri
fortíðarþrá en hér er ekkert slíkt að finna,
allir eiginleikar svarthvítra ljósmynda eru
nýttir meðvitað og af miklu öryggi. Það er
þetta stöðuga og markvissa samspil list-
rænna þátta og persónunnar á myndinni sem
skapar myndir Kristins og gerir þær ein-
stakar í sinni röð, hér er kominn hirðmálari
af bestu gerð og vonandi kemur hann til með
að festa sem flesta samtímamenn okkar á
filmu, fyrir daginn í dag og morgundaginn.
ÁÐUR óþekkt teikning eftir
Leonardo da Vinci er fundin,
að því er National Gallery í
Lundúnum hefur upplýst. Að
sögn safnsins fannst verkið
undir öðru verki, Bergmeyj-
unni. Sýnir það konu krjúpa
með aðra hönd útrétta. Sér-
fræðingar álíta að listamað-
urinn hafi verið að leggja drög
að verki byggðu á tilbeiðslu
Jesúbarnsins en horfið frá
þeirri hugmynd.
Leonardo málaði Bergmeyj-
una fyrir kapellu í Mílanó árið
1483 og gerði tvær útgáfur af
verkinu. Önnur, sem nú hangir
á Louvre-safninu í París, hefur
að líkindum verið seld einka-
aðila en hinni, sem getur að líta
í National Gallery, var komið
fyrir í téðri kapellu 1508.
Teikningin fannst undir síð-
arnefnda verkinu.
Áður óþekkt teikning
eftir Leonardo fundin
Bergmeyjan eftir Leonardo da Vinci.