Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 53
Hvert sem litið er á vett-vangi dægurmenningar-fregna þessa dagana er
um fátt annað rætt og ritað en
Tom Cruise. Fyrirsagnir á borð við
„Hvað kom fyrir Tom Cruise?“,
„Tom Cruise orðinn galinn!“ og
fyrirsögnin hér að ofan lýsa allar
með hvaða tón umfjöllunin er.
Tom Cruise hefur langa lengiverið einn af þekktustu leik-
urum Hollywoodborgar og svo sem
ekkert nýtt að umfjöllun um hann
rati á síður slúðurblaðanna. Cruise
hefur hins vegar fram að þessu
verið heldur spar á yfirlýsingar
um sín persónulegu málefni og
reynt að halda fjölskyldu sinni og
trú utan sviðsljóssins. Nú er heldur
betur annað upp á teningnum. Síð-
an hann tók saman við leikkonuna
Katie Holmes fyrir um þremur
mánuðum er hvergi flóafriður fyr-
ir Cruise og yfirlýsingum hans um
ástina og trúna. Cruise þykir einn-
ig vera farinn að haga sér helst til
undarlega eins og áhorfendur
sjónvarpsþátta Opruh Winfrey og
Jay Leno geta vottað. Í heimsókn í
sjónvarpssal til þeirrar fyrrnefndu
lét Cruise eins og bjáni. Hann
hoppaði í sófanum, hristi Opruh
eins og hann ætti lífið að leysa og
tók svo kærustuna Katie fang-
brögðum þegar átti að sýna hana
fyrir móðursjúkum áhorfendum í
sal. Aumingjahrollurinn var í
sögulegu hámarki við áhorf þessa
þáttar, bæði vegna væmni Cruise,
sjálfhverfu Opruh og geðshrær-
ingar áhorfenda, en það er nú önn-
ur saga.
Ég vona að við öll höfum upp-
lifað það að vera ástfangin, það er
einhver unaðslegasta tilfinning
sem til er. Ég óska hins vegar eng-
um að láta eins og Tom Cruise í
þessu ástandi og enn síður óska ég
nokkrum að sitja uppi með maka
sem hagar sér svona. Þegar heit-
konan var dregin fram fyrir hina
æstu aðdáendur var það Cruise
sjálfur sem skeiðaði baksviðs og
sótti hana, hélt höndum hennar
fyrir aftan bak og svo stóð aum-
ingja stúlkan þarna eins og ein-
hver gripur til sýningar. Nýja kon-
an í lífi Tom Cruise!
Katie lýsti því reyndar yfir í við-
tali við unglingatímaritið Seven-
teen hér fyrr á árum að hún ætti
sér þann draum æðstan að giftast
Tom Cruise. Það stendur nú til,
hann bað hennar í Eiffelturninum í
París á dögunum.
Þær raddir hafa þó heyrst aðsamband þeirra skötuhjúa sé
einungis ein stór auglýsingabrella
gerð til að vekja athygli á mynd-
unum Batman Begins og War of
the Worlds þar sem þau leika sitt
hvort aðalhlutverkið. Cruise gaf
þó lítið út á þessar sögur í nýlegu
viðtali við Jess Cagle hjá tímarit-
inu People.
Þegar Tom Cruise er ekki aðgjamma um ágæti heitkonu
sinnar er hann óspar á yfirlýsingar
sem samræmast boðskap Vísinda-
kirkjunnar. Í spjallþætti hjá Matt
Lauer á dögunum gagnrýndi hann
harðlega alla notkun geðlyfja og
sagði þau vita gagnslaus. Þá baun-
aði hann á starfssystur sína
Brooke Shields fyrir að hafa tekið
inn þunglyndislyf við fæðing-
arþunglyndi sem hún barðist við.
Samtök geðlækna í Bandaríkj-
unum, APA, sendu frá sér harð-
orða yfirlýsingu í kjölfar þáttarins
þar sem þeir sögðust meðal annars
óttast að orð leikarans kynnu að
hindra að fólk með geðraskanir
sækti sér þá hjálp sem það þyrfti.
Já, mikið er fjallað um Tom kall-inn þessa dagana. Svo mikið að
maður veltir ósjálfrátt fyrir sér,
hvað kemur mér þetta við? Af
hverju nennir fólk að rjúka upp til
handa og fóta og hneykslast á
hverju orði sem einhver leikari í
Bandaríkjunum lætur út úr sér eða
hverju hoppi sem hann tekur á
húsgögnum í sjónvarpi?
Ég hef komist að þeirri nið-
urstöðu að mér er alveg sama
hvað Tom Cruise tekur sér fyrir
hendur og ég óska honum og heit-
konu hans velfarnaðar í lífi og
starfi.
Hvað er að Tom Cruise? ’Ég hef komist að þeirriniðurstöðu að mér er al-
veg sama hvað Tom
Cruise tekur sér fyrir
hendur og óska honum
velfarnaðar í lífi og
starfi.‘
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
Reuters
Tom Cruise lætur öllum illum lát-
um í sófanum hjá Jay Leno. birta@mbl.is
YFIRMAÐUR nefndar um jafn-
rétti kynþátta (CRE), Sir Trevor
Philips, segir marga raunveru-
leikaþætti eiga þátt í því að eyða
kynþáttafordómum. Philips sagði í
samtali við BBC fréttastofuna að
þættir á borð við Big Brother
gerðu það að verkum að staðlaðar
hugmyndir fólks um kynþætti
minnkuðu.
„Þættirnir kynna til sögunnar
fólk sem stór hluti bresku þjóð-
arinnar myndi aldrei annars kynn-
ast,“ sagði Philips í umræddu við-
tali og vitnaði til þeirrar stað-
reyndar að einungis fimmtungur
Breta á góðan vin sem er af öðr-
um kynþætti en hann sjálfur.
„Í flestum fjölmiðlum er fólk af
asískum og afrískum uppruna látið
uppfylla einhverja staðlaða ímynd
sem fólk hefur af kynþáttunum.
Með þessum raunveruleikasjón-
varpsþáttum er það sýnt svart á
hvítu að það er að sjálfsögðu ekki
einungis til ein gerð af fólki af
sama kynþætti,“ sagði Philips.
„Áður hefur tilhneigingin verið
að hafa fólk af öðrum kynþætti en
hvítum með þegar þau eiga að
skera sig út að einhverju leyti,
vera sá gáfaðasti, sá vitlausasti
eða mesti glæpamaðurinn,“ sagði
hann jafnframt og sagðist vongóð-
ur um að áðurnefndir þættir ættu
eftir að eiga sinn þátt í að breyta
þessu þar sem þar sé samankomið
fólk af öllum kynþáttum sem
keppi að sama markmiði á jafn-
réttisgrundvelli og sé ekki fyr-
irfram steypt í einhver mót heldur
komi fram sem þau sjálf og á eigin
forsendum.
Dregur Big
Brother úr
kynþátta-
fordómum?
Reuters
Þátttakendur í Big Brother eru jafn
misjafnir og þeir eru margir.