Morgunblaðið - 03.07.2005, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
ALÞJÓÐLEGA Vináttuhlaupið, „World Harmony
Run“, er nú í fullum gangi víða um heim og kom
til Íslands í gærmorgun. Vináttuhlaupið hófst í
New York 16. apríl sl. en þetta er alþjóðlegt
kyndilboðhlaup og verður kyndillinn borinn á
milli 70 landa í öllum heimsálfum til að efla vin-
áttu, skilning og umburðarlyndi.
Íslandshluti Vináttuhlaupsins hófst í gærmorg-
un við Höfða. Alfreð Þorsteinsson, forseti borg-
arstjórnar, tendraði eld á kyndlinum en frá
Höfða verður hlaupið með logann hringinn í
kringum landið, alls 1.534 km í 15 daga.
Hópur hlaupara frá Sri Chinmoy-maraþonlið-
inu mun fylgja kyndlinum alla leið, en þar á með-
al eru hlauparar frá Hollandi, Skotlandi, Tékk-
landi, Austurríki og Kólumbíu, auk Íslendinga.
Ungmennafélög um land allt munu slást í hópinn
með hinu alþjóðlega hlauparaliði, en allir geta
tekið þátt og stigið skref í þágu alþjóðlegrar vin-
áttu.
Morgunblaðið/ÞÖK
Kyndill Vináttu-
hlaupsins til Íslands
FERÐAMENN sem leggja leið sína til Vest-
mannaeyja í sumar geta tekið þátt í því að
grafa upp hús sem stóðu við Suðurveg en
fóru á kaf í gjósku í gosinu á Heimaey árið
1973. Stefnt er að því að moka frá húsunum
og gera þau að nokkurs konar safni um
gosið og afleiðingar þess. Íbúar í Vest-
mannaeyjum tóku forskot á sæluna í gær,
tóku sér skóflu í hönd og mokuðu frá fyrsta
húsinu sem kemur í ljós undir vikrinum.
Kristín Jóhannsdóttir, menningar- og mark-
aðsfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, segir að
þátttaka hafi verið afar góð og áætlaði hún
að rúmlega hundrað bæjarbúar hefðu mætt
á svæðið með skóflur sínar til að leggja
hönd á plóg við uppgröftinn. Þeir sem taka
þátt í verkefninu fá viðurkenningarskjal
fyrir þátttökuna í „Pompei norðursins“, eins
og uppgröfturinn er kallaður.
Taka þátt í „Pompei norðursins“
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ekkert nýtt fyrir Eyjamenn | 10
ÞRJÚ fíkniefnamál komu upp hjá lögregl-
unni á Snæfellsnesi í gær auk þess sem grun-
ur leikur á um að einni stúlku hafi verið
nauðgað. Mikið var um ölvun í Ólafsvík í nótt
en samkvæmt upplýsingum lögreglu var sér-
staklega mikið um drukkna unglinga.
Talið er að fimm til sex þúsund manns hafi
lagt leið sína á Færeyska daga sem fara fram
í Ólafsvík um helgina en mikill viðbúnaður
var hjá lögreglu og alls komu um tuttugu og
fimm manns að löggæslustörfum í gær og í
nótt auk björgunarsveitarmanna úr nágrenn-
inu. Þannig fékk lögreglan á Snæfellsnesi lið-
veislu frá lögreglunni á Akranesi, lögreglunni
í Borgarnesi og lögreglunni í Búðardal auk
þess sem lögreglumenn úr Reykjavík og frá
ríkislögreglustjóra voru á svæðinu. Fíkni-
efnahundur frá tollgæslunni á Keflavíkur-
flugvelli var einnig til taks auk fíkniefna-
hunds lögreglunnar í Borgarnesi.
Sérstök eftirlitsstöð
Lögreglan kom upp eftirlitsstöð við Lyng-
brekku í gær en þar var lagt hald á nokkurt
magn fíkniefna í þremur bifreiðum. Í einni
bifreiðinni fundust níu grömm af amfetamíni
en í annarri bifreið fundust níu e-töflur. Þá
var lagt hald á átta e-töflur auk fjögurra
gramma af hassi og smáræðis af kannabis-
efnum í þriðju bifreiðinni. Lögreglan lagði
einnig hald á sextán kassa af bjór sem fund-
ust við leit í bílum ungmenna á leið vestur.
Tilkynnt var um að þrjár stúlkur hefðu
drukkið ólyfjan og leikur grunur á um að
einni þeirra hafi verið nauðgað. Þá þurfti að
flytja einn mann á heilsugæslustöð til að-
hlynningar eftir að tveir menn höfðu veist að
honum, hrint honum í jörðina og sparkað í
hann liggjandi. Ekki er búið að hafa uppi á
árásarmönnunum.
Það gerði lögreglunni nokkuð erfiðara fyrir
að mikið óveður brast á í nótt með þeim af-
leiðingum að tugir tjalda fuku um koll og sum
þeirra fuku á haf út. Brugðið var á það ráð að
opna bæði íþróttahúsið og grunnskólann í
Ólafsvík en tjaldgestir voru margir hverjir
kaldir og hraktir.
Hátíðarhöldin ná hámarki í kvöld með
miklum dansleik en einhverjir hátíðargestir
hafa þó fengið nóg og haldið heim á leið.
Þrjú fíkniefnamál og
grunur um nauðgun
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
FUNDIST hafa leifar af fornu
bæjarstæði á Öxnadalsheiði
skammt vestan Grjótár í Skaga-
firði. Rústirnar eru í 480 metra
hæð yfir sjávarmáli og er það
hæsta bæjarstæði sem fundist
hefur í Skagafirði. Ekki eru til rit-
aðar heimildir um að búið hafi
verið á Öxnadalsheiði.
Talið er að bærinn, sem að öll-
um líkindum er frá þjóðveldisöld
(11. öld), hafi farið í eyði á 13. öld.
Að sögn Hjalta Pálssonar frá
Hofi og ritstjóra Byggðasögu
Skagafjarðar mun bærinn að öll-
um líkindum hafa heitið Grund en
þó er hvergi um hann getið í rit-
uðum heimildum. Tóftir bæjarins
og annars bæjar á Öxnadalsheiði
hafa verið þekktar um nokkra
hríð, að sögn Hjalta, en engar
rannsóknir hafa verið gerðar á
bæjarstæðunum eða um þau ritað.
Að sögn Hjalta eru munnlegar
heimildir fyrir þremur bæjar-
stæðum á Öxnadalsheiði en það
þriðja hefur þó aldrei fundist. Bæ-
irnir munu hafa heitið Grjótá,
Blómsturvellir og Grund.
Hjalti fór ásamt fornleifafræð-
ingi frá Byggðasafni Skagafjarðar
og aðstoðarmönnum að bæjar-
stæði Grundar á föstudag í þeim
tilgangi að aldursgreina tóftirnar.
Þótt sú ferð hafi ekki skilað tilætl-
uðum árangri telur Hjalti líklegt að
bærinn sé frá þjóðveldisöld miðað
við aðra bæi sem fundist hafa frá
svipuðum tíma í Vesturdal og Aust-
urdal og Hjalti hefur skráð.
Á Grund sést greinilegur hluti af
vallargarði og tóftir, og þúfnalag
sem ber með sér að tóftir séu í
jörðu. Ekki er ljóst hversu stór
bærinn Grund mun hafa verið.
Fornbýli í 500 metra hæð
Eftir Kristján Geir Pétursson
kristjan@mbl.is
LEIKARINN góðkunni, Mickey Rourke, segist
hafa verið „dauður, farinn og grafinn“ þangað til
hann ákvað loks að taka sig saman í andlitinu og
koma lagi á líf sitt og list: „Að ranka við sér eftir
fjórtán ára skömm, með
allt niðrum sig, er ekk-
ert grín.“ Hann leikur
andhetjuna Marv í kvik-
myndinni Sin City
(Syndabælinu), sem
senn verður frumsýnd
hér á landi, og segir í
viðtali við Skarphéðin
Guðmundsson í Tímariti
Morgunblaðsins í dag að
hann sjái sjálfan sig að
sumu leyti í persónunni:
„Marv á erfitt með að
hemja sig og það er eitt-
hvað sem ég get tengt við.“
Rourke þykir skyggja á margar yngri og skær-
ari stjörnur í myndinni og kveðst þakklátur fyrir
að hafa verið boðið aftur í samkvæmið, eins og
hann kemst að orði um kvikmyndabransann.
Rourke sló í gegn sem hinn djarfi John í myndinni
Níu og hálf vika árið 1986, en segir nú að sú per-
sóna hafi verið hálfgert fífl. Í það minnsta í sam-
anburði við „kyntáknið“ ófríða, Marv. | Tímarit
Mickey Rourke
rankar við sér
♦♦♦
VERKFRÆÐISTOFAN Vista hefur nýverið sett
upp sjálfvirka veðurstöð í hlíð Esjunnar. Stöðin er
í tæplega 500 metra hæð nálægt grænu gönguleið-
inni. Veðurstöðin mælir úrkomu, hitastig, vindátt,
vindhraða, loftþrýsting og sólargeislun. Veðrið má
finna á vefsíðu Vistu undir veðurstöðvar, en þar er
að finna opnar veðurstöðvar á höfuðborgarsvæð-
inu. Slóð heimasíðunnar er www.vista.is.
Veðurstöð í Esjunni