Morgunblaðið - 07.07.2005, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 13
ERLENT
Prima Embla
Stangarhyl 1
110 Reykjavík
Sími 511 4080
Fax 511 4081
www.embla.is
M
IX
A
•
fít •
5
0
7
9
1
PEKING (5 nætur)
Á bak við alla ljósadýrð Peking nútímans er borg sem á sér yfir 3000
ára sögu. Mikilfengleiki hinnar „Forboðnu borgar“ lyftir tjaldi
tímans. Jafnframt heimsækjum við Kínamúrinn, Sumarhöllina,
Himnamusterið, elsta borgarhlutann og þorpið Chuandixia.
XIAN (3 nætur)
Hápunktur ferðar til Kína er að kynnast hinum heimsfrægu Terra-
cotta hermönnum sem hafa verið í viðbragðsstöðu í yfir 2000 ár.
GUILIN (2 nætur)
Töfraheimur náttúrunnar bíður þín í Guilin, þar sem landslagið er
eins og klippt út úr kínversku málverki. Sigling eftir ánni Li þar sem
sérkennilega lagaðir fjallstindar rísa við sjóndeildarhringinn er
ógleymanlegt ævintýri.
HEILDARVERÐ FERÐAR AÐEINS 219.000 KR. Á MANN.
Innifalið: Flug og flugvallaskattar, gisting í 10 nætur á sérvöldum 5 stjörnu gisti-
stöðum, morgunverður, 7 hádegisverðir og 3 kvöldverðir, allar skoðunarferðir, allt
innanlandsflug, siglingar, heimsókn og hádegisverður hjá kínverski fjölskyldu og
glæsileg danssýning með gala-kvöldverði. Fararstjóri: Sigmundur Andrésson.
NÝ DÖGUN Í KÍNA
22. september – 2. október
SÍÐUSTU SÆT
IN
fyrir aðeins 219.000 kr
– allt innifalið!
LEIÐTOGAFUNDUR átta helstu iðnríkja
heims (G-8-ríkjanna) hófst í Gleneagles í
Skotlandi í gær og tóku yfir 3.000 manns
þátt í mótmælagöngu í átt að fundarstað
leiðtoganna í gæreftirmiðdag. Fyrr um
daginn hafði lögregla ákveðið að banna
gönguna eftir talsverðan óróa og skemmd-
arverk af hálfu nokkurra mótmælenda, en
eftir viðræður við skipuleggjendur göng-
unnar var ákveðið að leyfa hana. Hópurinn
sem stóð að göngunni vildi með henni
krefjast friðar og berjast fyrir málstað
hinna fátæku í heiminum og til viðbótar
safnaðist þar saman fjöldi hópa með ólík
baráttumál.
Langflestir mótmælendanna fóru fram
með friðsamlegum hætti og fylgdu fyr-
irfram ákveðinni leið göngunnar en hluti
þeirra, að því að talið er um 400 manns,
brutust út úr göngunni þegar hún nálg-
aðist fundarstaðinn og kom til talsverðra
átaka milli þeirra og lögreglu. Meginhluti
göngunnar nam staðar í um 500 metra
fjarlægð frá víggirðingu lögreglu um fund-
arstaðinn en 400 manna hópurinn réðst til
atlögu við lögreglumenn sem börðust gegn
þeim, sumir með aðstoð lögregluhunda.
Um 60 til 80 manna liðsauki var sendur
lögreglunni með þyrlum, en alls sinna 10
þúsund lögreglumenn öryggisgæslu í land-
inu í þá þrjá daga sem fundurinn stendur
yfir. 17 mótmælendur voru handteknir og
átta lögreglumenn slösuðust lítillega í
átökunum í gær.
AP
Mótmæli í Gleneagles
Bagdad. AP. | Meintur leiðtogi al-
Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í
Írak hafnar öllum kröfum um að
hann og menn hans láti af uppreisn
sinni gegn bandaríska hernámslið-
inu og íröskum öryggissveitum í
hljóðupptöku sem sett var á Netið
í gær. Lýsir hann því yfir á band-
inu að íraski herinn sé jafn mikill
óvinur al-Qaeda og Bandaríkja-
menn.
Talið er að sá sem mæli á hljóð-
upptökunni sé Jórdaninn Abu
Musab al-Zarqawi. Yfirlýsing Zar-
qawis virðist ætlað að letja þær
sveitir vopnaðra manna í Írak sem
hafa gert sig líklegar til að efna til
viðræðna við Bandaríkjamenn og
írösk stjórnvöld um vopnahlé eða
frið.
Þá lýsir Zarqawi því yfir að al-
Qaeda muni senn kynna til sög-
unnar nýja sérsveit sem fengi það
verkefni að „útrýma“ Badr-hern-
um, vopnuðum sveitum helsta
stjórnmálaflokks sjíta í Írak. Árás-
ir Zarqawis og manna hans gegn
sjítum í Írak, sem telja um 60%
landsmanna, hafa gert það að
verkum að margir óttast borgara-
stríð í landinu.
Hóta að drepa sendiherrann
Í hljóðupptökunni vill Zarqawi
engan greinarmun gera á Banda-
ríkjaher og liðsmönnum íraska
hersins sem berjist við hlið Banda-
ríkjamanna. „Við tilkynnum að
íraski herinn er skipaður villu-
trúarmönnum og málaliðum sem
hafa gert bandalag við kross-
ferðarmennina sem hingað eru
komnir til að eyðileggja Íslam og
berjast gegn múslímum. Við mun-
um berjast gegn honum,“ segir
Zarqawi á spólunni.
Hann segist jafnframt „sorg-
mæddur“ yfir því að menn skuli
hafa verið að hvetja hann til að
hætta baráttu sinni í Írak. „Sumir
vilja að við hættum heilögu stríði
okkar í Írak,“
segir hann. „Guð
hefur skipað
okkur að berjast
gegn trúleys-
ingjunum ... Við
teljum að þjóðin
sé að fremja
synd með því að
styðja ekki við
bak mújahedín-
anna.“
Al-Qaeda í Írak segjast enn-
fremur hafa sendiherra Egypta-
lands, Ihab al-Sharif, undir hönd-
um en honum var rænt á
laugardag. Voru skilríki mannsins
sýnd á vefsíðu einni í gær og því
lýst yfir að sendiherrann yrði tek-
inn af lífi.
Fordæmir viðræður
við Bandaríkjamenn
Abu Musab
al-Zarqawi
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti þakkaði
dönsku þjóðinni í gær stuðninginn við hernað í
Afganistan og Írak. Á sameiginlegum blaða-
mannafundi þeirra Bush og Anders Fogh
Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sem
haldinn var við lok heimsóknar Bush til Dan-
merkur, sagði Bush m.a: „Við erum þakklát fyr-
ir skilning ykkar, skilning fólksins á því að frelsi
er almenn mannréttindi.“ Fogh Rasmussen
svaraði því til að Danir væru sammála því að
frelsi sé almenn mannréttindi. „Og við deilum
þeirri trú að í átökunum milli lýðræðis og ein-
ræðis sé ótækt að vera hlutlaus,“ sagði hann.
Vill huga að nýjum orkugjöfum
Á blaðamannafundi þeirra Bush og Fogh
Rasmussen voru auk þess til umræðu þau mál
sem efst eru á baugi á leiðtogafundi átta helstu
iðnríkja heims (G-8-ríkjanna), sem hófst í Glen-
eagles í Skotlandi í gær, það er að segja lofts-
lagsbreytingar og málefni Afríku. Varðandi
loftslagsbreytingar sagðist Bush vonast til þess
að hægt yrði að komast yfir deilurnar um
Kyoto-samninginn – en Bandaríkin eru eina
ríkið úr hópi G-8-ríkjanna sem ekki hefur stað-
fest hann – og að þjóðir heims gætu unnið sam-
an að því að huga að nýjum orkugjöfum. Nefndi
hann vetni sem dæmi í því samhengi. Nýting
nýrra orkugjafa yrði til þess fallin að minnka
mengun andrúmsloftsins auk þess sem það
kæmi þjóðum til góða, bæði með tilliti til efna-
hags og öryggis, að vera ekki of háð innflutningi
á olíu.
Hvað fátækt í Afríku varðar lagði Bush
áherslu á að Afríkuþjóðir yrðu að skuldbinda
sig til að afnema spillingu og koma á góðum
stjórnháttum ætti fjárhagsstuðningur við þær
að aukast. Forsetinn sagðist efast um að hægt
yrði að „horfast í augu við skattborgara“ og
segja þeim að það væri „gott mál að gefa pen-
inga til spilltra ríkja“. Hins vegar hefðu banda-
rísk stjórnvöld mikinn áhuga á því að „hjálpa
fólki“ en þau vildu jafnframt ganga úr skugga
um að stjórnvöld í viðkomandi löndum „fjárfesti
í fólkinu sínu, í heilsugæslu því til handa, í
menntun þess, og berjist gegn spillingu“.
Fogh Rasmussen notaði tækifærið og hvatti
leiðtoga G-8-ríkjanna til að jafna hlutfallslega
framlag Dana til aðstoðar við ríki Afríku. „Ef
G-8-ríkin myndu öll jafna það sem við leggjum
til, fengi Afríka 90 milljarða dollara í stað 25
milljarða,“ sagði hann.
Bush var að heimsækja Danmörku í fyrsta
sinn. Þangað kom hann síðdegis á þriðjudag,
ásamt konu sinni Lauru og dóttur þeirra Jennu,
og fór þaðan um hádegisbil í gær, beint á leið-
togafund G-8-ríkjanna. Öryggisgæsla vegna
heimsóknar Bush til Danmerkur var ein sú
viðamesta sem hefur verið viðhöfð þar í landi en
búist var við talsverðum mótmælum vegna
komu hans, enda utanríkisstefna hans og þátt-
taka Danmerkur í hernaði í Írak verulega um-
deild þar í landi. Á þriðjudag söfnuðust um 200
manns saman í miðbæ Kaupmannahafnar, en
þá var grenjandi rigning sem kom þó ekki í veg
fyrir að mótmælendur kveiktu í bæði banda-
rískum og dönskum fánum. Í gær söfnuðust síð-
an þúsundir mótmælenda saman fyrir utan
bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn til að
mótmæla utanríkisstefnu Bush, skömmu eftir
brottför hans, og fóru þau mótmæli friðsamlega
fram.
„Erum þakklát
fyrir skilning ykkar“
Bush þakkar Dönum stuðninginn við lok
heimsóknar sinnar til Danmerkur
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur
bab@mbl.is