Morgunblaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 29
Afi Nilli var aldrei bara afi Heið- veigar, hann var afi Nilli. Þegar ég var að vinna í bakaríinu þá kíkti ég oft eftir vinnu í heimsókn til hans og töluðum við um allt og ekkert. Vikuna eftir að Nilli litli fæddist vorum við uppi í sumarbústað með afa Nilla og ömmu Lillu og áttum við þar skemmtilegar stundir. Afi Nilli var mjög hjálpfús og var alltaf tilbúinn til að hjálpa mér með hvað sem var. Ég vil þakka fyrir allar góðu stundirnar sem ég átti með honum. Ágúst Örn. Elsku afi. Orðin hljóma enn í höfði mínu sem ég fékk að heyra þegar ég steig inn á Líknardeildina í Kópavogi. ,,Þetta er búið hjá afa.“ Ég eins og hver annar maður, brast í grát og bæði þá og enn þann dag í dag á ég erfitt með að trúa þessum orðum. En ég hugga mig við þá tilhugs- un að nú sértu kominn á betri stað og þar munum við öll hittast ein- hvern daginn. En þar sem ég er ennþá hér er gaman að minnast allra góðu stundanna sem við og fjölskyldan áttum saman. Það má t.d. nefna allar stundirnar uppi í Sumó í Borgarfirðinum þar sem margt ógleymanlegt hefur átt sér stað í gegnum árin. Við öll eigum eflaust einhverjar minningar þaðan frá okkar bernskuárum og er mjög skemmtilegt að rifja þær upp. Og ertu hissa á því? Í lokin vil ég segja að ég er stolt fyrir að vera í þessari fjölskyldu og fyrir að vera afkomandi þinn. Þó að ég eigi eftir að kveðja líkama þinn mun ég ekki kveðja sál þína því ég veit að þú vakir yfir okkur og átt eftir að hjálpa okkur að velja réttu leiðina í lífinu, elsku afi minn. Þitt barnabarn, Ragnheiður Smáradóttir. Elsku afi Nilli. Elsku afi, þú ert besti afi sem hægt er að hugsa sér. Ég veit þér líður vel núna. Ég man alltaf hvað þú sagðir við okkur barnabörnin þegar við ætl- uðum út í skóg uppi í Sumó. Þú sagðir: ,,Passið ykkur bara á úlf- inum!“ Því gleymi ég aldrei. Takk fyrir öll árin sem við gát- um verið saman. Ég sakna þín. Barnabarn þitt, Eygló Smáradóttir. Elsku afi. Það er skrýtið að koma heim til ömmu núna þegar þú ert ekki þar. Ég hef bara ekk- ert hugsað út í hvernig það væri að hafa þig ekki þar. Þó þú hafir alltaf verið afi minn þá voru það samt meiri tengsl sem náðu að myndast á meðan ég bjó hjá þér síðustu tvö árin. Það var al- veg sama hvað bjátaði á, það var alltaf hægt að leita til þín. Meira að segja til að skutla mér í skólann svo ég þyrfti ekki að taka strætó. Það var ekkert vit í að læra á strætókerfið þegar maður var að koma í skóla í bænum alla leið frá Akranesi. Afi minn, takk kærlega fyrir öll árin sem við áttum saman. Þeim fylgja margar góðar minningar sem aldrei gleymast. Þitt barnabarn, Kristbjörg Smáradóttir. Elsku Nilli. Það er með trega sem ég kveð þig í hinsta sinn. Þú barðist hetjulegri baráttu við þinn sjúkdóm en hann sigraði að lokum. Þú gerðir okkur lífið léttbærara á þessum tíma með því að stríða og gantast, eins og þín var von og vísa, alveg fram á síðustu stundu. Ég man það eins og það hafi gerst í gær er ég hitti þig í fyrsta sinn. Glettnin og stríðnin sem þér var svo töm kom fram í fyrstu setningunni sem þú sagðir við mig. Mér er efst í huga söknuður og þakklæti fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og allar góðu stund- irnar sem við höfum átt saman. Þú varst mér svo miklu meira en bara tengdapabbi. Þú tókst mér opnum örmum inn í fjölskylduna, ég fékk jú bæði peysu og trefil, og þú treystir mér fyrir henni Trippalínu þinni og því trausti mun ég ekki bregðast. Ég passa hana áfram fyrir þig. Það var gott að leita til þín. Þú varst ráðagóður og hafðir þínar skoðanir á öllu og lást ekkert á þeim. Þú kenndir mér margt og þá sérstaklega í smíðunum. Þær eru ófáar stundirnar sem við höfum átt saman með ýmist sög eða hamar í hendi uppi í Sumó, í Dvergholtinu og á Presthúsabrautinni. Þú varst mikill matmaður og fátt var skemmtilegra en að færa þér eitthvað í soðið. Þegar ég var á sjó var eitt af tilhlökkunarefnunum að koma í land og rétta þér alls kyns sjávarfang í poka. Þú ljómaðir eins og ég væri að gefa þér gull. Í hvert skipti sem við fjölskyldan fórum í silungsveiði voru alltaf bestu fisk- arnir valdir handa afa Nilla. Elsku Nilli, ég trúi því að þú sért kominn á góðan stað og að þér líði vel. Guð geymi þig. Þinn tengdasonur, Smári. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 29 MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Söluturninn Rebbi, Hamraborg 20 Afgreiðslustarf Starfskraft vantar aðra hverja helgi. Reyklaus. Ekki yngri en 18 ára. Umsóknareyðublöð á staðnum. Tilvalið með skóla. Sparisjóðsstjóri Sparisjóður Skagafjarðar auglýsir starf sparisjóðsstjóra laust til umsóknar Sparisjóður Skagafjarðar er fjármálafyrirtæki að stærstum hluta í eigu Skagfirðinga. Sjóðurinn sinnir allri almennri fjármálaþjónustu bæði við fyrirtæki og einstaklinga ásamt því að sinna stærri þjónustu- verkefnum t.d. á sviði innheimtuþjónustu. Áætlanir eru uppi um að efla og stækka sjóðinn m.a. með nýju stofnfé. Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi menntunar- og hæfniskröfur:  Menntun á sviði viðskipta eða sambærileg menntun  Frumkvæði og sjálfstæði í starfi  Skipulags- og leiðtogahæfileikar  Hæfni í mannlegum samskiptum Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar um starfið veitir Vilhjálmur Baldurs- son, sparisjóðsstjóri, í síma 455 5555. Umsóknum skal skila í afgreiðslu sparisjóðsins að Faxatorgi 1, 550 Sauðárkróki, fyrir föstu- daginn 15. júlí nk.  á Grenivík. Verður að hafa bíl til umráða Upplýsingar gefur Ólöf Engilberts- dóttir í síma 569 1376.  í afleysingar í Flatir í Garðabæ Upplýsingar í síma 569 1122 Raðauglýsingar 569 1100 Húsnæði óskast Íbúðir óskast Reykjavikurborg hefur samið við félagsmála- ráðuneytið um að taka á móti flóttamönnum frá Kólumbíu og fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. Vegna komu flóttamannana til Reykjavíkur óskar Velferðarsvið Reykjavíkurborgar eftir að taka á leigu 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir á svæði 101, 105 og 108. Leigutími er til a.m.k. 1 árs frá 1sta ágúst næstkomandi. Áhugasamir sendi tilboð, merkt: „leiguíbúðir”, til Velferðarsviðs Reykjavíkur, Tryggvagötu 17 (Hafnarhúsið, 3ja hæð), fyrir 15. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir Drífa Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri, í síma 411 9000, netfang: drifa.kristjansdottir@rvk.is . 3ja-4ra herb. íbúð óskast. Óskum eftir 3ja-4ra herb. íbúð á Reykjavíkur- svæðinu fyrir fjölskyldu sem er að koma erlendis frá. Traustur leigutaki. Uppl. veitir Bárður Tryggvason í síma 896 5221. Kennsla Eru nógu margir klukkutímar í þínum sólarhring? ...næsta námskeið hefst 12. júlí Skráning á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans er hafin á www.h.is og í síma 586 9400. Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif- stofu embættisins að Hafnarstræti 1, Ísafirði, sem hér segir: Selma ÍS-200, sk.skr.nr. 2355, þingl. eig. Haraldur Árni Haraldsson, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands Höfuðstöðvar og Þrymur hf., vélsmiðja, mánudaginn 11. júlí 2005 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 6. júlí 2005. Una Þóra Magnúsdóttir, fulltrúi. Félagslíf Fimmtudagur 7. júlí 2005 Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Predikun G. Theodor Birgisson. Mikill söngur og vitnisburðir. Allir velkomnir. www.samhjalp.is. Fréttir á SMSFréttir á SMS Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Elsku Hjörtur minn, frændi og æsku- vinur. Ég kveð þig að sinni. Minningarnar koma upp í hugann. Allar skemmtilegu stundirnar þegar við áttum heima á Hverfisgötunni. Þú varst alltaf svo duglegur, ég reyndi að fylgja þér eftir, klifra upp í staura, selja dagblöðin, hjóla og margt annað. Hjóluðum stundum í Kópavoginn að heimsækja Sigga frænda sem dó langt fyrir aldur fram, og það stóð ekki á að gera við hjólið mitt þegar það bilaði. Aldrei máttir þú neitt aumt sjá, varst svo blíður og góður við alla og man ég að við tókum upp á að fylgja gömlu fólki yfir götuna og bera heim vörurnar fyrir það. Ég kenndi þér meira að segja að prjóna svo þú gætir verið hjá mér þegar ég var að gera handa- HJÖRTUR BENEDIKTSSON ✝ Hjörtur Bene-diktsson fæddist í Reykjavík 14. des- ember 1944. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 29. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Bústaða- kirkju 6. júlí. vinnu fyrir skólann og skipti engu máli þó það væru nokkur lykkjuföll hér og þar. Þú lagðir á þig að leika við mig með dúkkulís- ur sem þér fannst ann- ars frekar leiðinlegt. Ég man þegar við fengum að fara vestur í Dali til Kalla frænda, fengum að fara með rútu alein. Það var ótrúlegt ævintýri og tilhlökkunin var mikil. Þá var nú ekki svo stutt að fara og leiðin ekki svo greið eins og nú. Kæru bræður, Brynjólfur, Bene- dikt og fjölskyldur, megi góður Guð styrkja ykkur og leiða um ókomin ár. Guð blessi minningu Hjartar Bene- diktssonar. Megi algóður guð taka hann í sinn kærleiksríka faðm. Þú ljós sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn. Í gegnum bárur, brim og voðasker, nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr, og engla þá sem barn ég þekkti fyr. (Þýð. M. Joch.) Sigurlín Ellý.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.