Morgunblaðið - 07.07.2005, Page 22

Morgunblaðið - 07.07.2005, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Á rni Mathiesen sjáv- arútvegsráðherra undirritaði fyrir rúmri viku reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2005/2006. Í frétt um málið á vef sjávarútvegsráðu- neytisins segir: „Leyfileg veiði verður í öllum aðalatriðum í sam- ræmi við ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar. Þannig verður heildarafli í þorski 198 þús. tonn, í ýsu 105 þús. tonn …“ Þegar rýnt er í síðustu ástands- skýrslu Hafrannsóknastofnunar, sem kom út núna í júní og sjávar- útvegsráðherra miðar aflamarkið við, sést að leyfilegur heildarafli í þorski er ekki í samræmi við ráð- gjöf Hafrannsóknastofnunar. Ráðgjöf og aflaregla Aflamark í þorski er ákveðið skv. svokallaðri aflareglu sem tekin var upp árið 1994. Skv. aflareglunni er aflamark ákveðið þannig að reikn- aður er ákveðinn viðmiðunarstofn og leyfileg veiði er svo 25% af þeim stofni með 30 þús. tonna sveiflujöfnun milli ára. Hafrann- sóknastofnun skilar því ekki bein- um tillögum um aflamark í þorski heldur leggur fram útreikninga á viðmiðunarstofni sem aflareglan miðar við. Í ástandsskýrslu Hafrann- sóknastofnunar er ráðlagt að 25% veiðihlutfall aflareglunnar verði lækkað. Ráðgjöfin vísar til skýrslu sem nefnd, skipuð af sjávarútvegs- ráðherra 2001, um langtímanýt- ingu fiskstofna skilaði af sér í júní 2004. Í skýrslunni er lagt til að tekið verði upp 22% veiðihlutfall. 25% fram úr ráðgjöf Í ástandsskýrslunni segir að ráð- legt sé að lækka prósentuna meira en nefndin lagði til í fyrra. Þá seg- ir ennfremur í skýrslunni: „… samkvæmt núgildandi afla- reglu eru verulegar líkur á að stofninn minnki á tímabilinu, en með veiðihlutfalli 20% og lægra eru yfirgnæfandi líkur á að hrygn- ingarstofninn stækki.“ Björn Æv- arr Steinarsson, sviðstjóri yfir ráð- gjafarsviði Hafrannsóknastofnunar, segir áhættuna sem sjávar- útvegsráðherra taki með núver- andi aflareglu óásættanlega. „Ef núverandi aflareglu er fylgt eru 40% líkur á því að hrygningar- stofninn verði minni árið 2009. Til að tryggja með 90% líkum að stofninn muni stækka verður a.m.k. að lækka aflaregluprósent- una niður í 20%,“ segir Björn. Töluverður munur er á afla- markinu sem fæst með því að beita aflareglunni sem Hafrann- sóknastofnun leggur til og núver- andi aflamarki sem sjávarútvegs- ráðherra hefur ákveðið. Núverandi aflamark verður 198 þús. tonn. Aflamarkið sem fæst með að því að beita 20% aflareglunni er 158 þús. tonn. Leyfilegur hámarksafli sem sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið fer því 25% fram úr ráð- gjöf Hafrannsóknastofnunar. Þess ber að geta að hér er 30 þús. tonna sveiflujöfnunarákvæði aflareglunnar ekki tekið með í út- reikninginn. Ákvæði reglunnar kveður á um að hvorki megi lækka né hækka aflamarkið á milli ára um meira en 30 þús. Friðrik Már Baldursson stærðfræðingur var formaður nefndar um langtíma- nýtingu fiskstofna, sem skipuð var af sjávarútvegráðherra. Hann seg- ir að hagfræðilegar forsendur liggi sveiflujöfnunarákvæðinu til grund- vallar en ekki fiskifræði. Vakið máls á gamalli umræðu Bág staða þorskstofnsins hefur verið lengi í umræðunni hér á landi. Aðspurður svarar Björn Ævarr því að ástæðan fyrir slöku ástandi þorsksins í dag sé of mikil sókn á undanförnum árum. „Frá því að aflareglan var tekin upp hefur veiðihlutfallið verið að jafn- aði 30%, ekki 25% eins og reglan kveður á um. Þrír starfsmenn Hafrann- sóknastofnunar skrifuðu grein í Morgunblaðið sl. þriðjudag þar sem þeir ítreka mikilvægi þess að dregið sé úr sókn í þorsk. Greinar- höfundunum, þeim Ólafi Karvel Pálssyni og Einari Hjörleifssyni fiskifræðingum og Höskuldi Björnssyni verkfræðingi kemur framúrkeyrsla sjávarútvegs- ráðherra þó ekki á óvart. Í greininni segir: „Þessi munur á tillögum vísindamanna og endan- legum afla markaði þá stefnu sem síðan [1975] hefur verið eins konar leiðarljós í stjórn þorskveiðanna. Í reynd hafa stjórnvöld aldr sér til að fylgja til fulls till Hafrannsóknastofnunarinn þorskaflamark, þrátt fyrir mikil fræðileg rök til stuðn lögum á hverjum tíma.“ Titill greinarinnar er „H ingarstofn og nýliðun þors og aftur“ og vísar hann, að Einars Hjörleifssonar, til um fiskifræði þorskstofnsi staðið hefur yfir frá því að rannsóknastofnun hóf að v leggingar sínar á áttunda um. Eitt helsta bitbein þei umræðu hefur verið samb hrygningarstofns og nýlið Umræðan í mótun Tumi Tómasson, fiskifræð forstöðumaður Sjávarútve Háskóla Sameinuðu þjóða samdi skýrslu að beiðni sj útvegsráðherra 2001, sem antekt og greining á fagle gagnrýni á stofnmat og ve gjöf Hafrannsóknastofnun skýrslunni vekur Tumi ath að leiðirnar sem Hafrann- sóknastofnun hefur lagt ti verði farnar við uppbyggin þorskstofnsins séu í „öllum atriðum“ þær sömu og lag í „svörtu skýrslunni“ svok sem kom út árið 1975. Í „svörtu skýrslunni“ va áhersla á mikilvægi þess a ingarstofni þorsks væri ha tölulega stórum“ og leiðin marki fælist í eftirfarandi – „Að minnka núverand Hafrannsóknastofnun leggur til að veiðihlutfall aflare Aflamark í þors 25% fram úr rá Hafrannsóknas Hafrannsóknastofnun segir ástæðu bágs ástands þorskstofnsins Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar vöktu máls á sögu fiskveiða Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. júní síðastliðinn. Ýmis mál eru t þorskstofnsins í kjölfar of mikillar sóknar og samband hrygninga Kristján Torfi Einarsson las greinina, kynnti sér söguna og athu AÐSTÆÐUR GEÐSJÚKRA Geðfatlaðir eru einfaldlegahópur, sem hefur orðið út-undan í okkar samfélagi,“ segir Erna Indriðadóttir, sem berst fyrir auknum réttindum geð- fatlaðra ásamt öðrum aðstandend- um og hitti nýlega félagsmálaráð- herra að máli til að hvetja til úrbóta, í viðtali við Morgunblaðið í gær. Þetta eru orð að sönnu. Geð- sjúkir eru ekki öflugur þrýstihópur í þjóðfélaginu og oft hafa þeir gold- ið þess. Eins og Erna bendir á mæta geðsjúkir iðulega fordómum þegar þeir veikjast, missa jafnvel vinnuna og missa sambandið við umheiminn. Aftur á móti er reynt að hagræða fyrir þá sem veikjast líkamlega á vinnustöðum og afstaða þjóðfélagsins til þeirra af allt öðr- um toga. „Til viðbótar því að vera fárveik/ ur af geðsjúkdómi ertu líka rekinn úr vinnunni. Ég held að umburð- arlyndi gagnvart líkamlegum sjúk- dómum sé meira,“ segir hún í sam- talinu og bætir við að hún telji að fordómar haldi geðfötluðum niðri: „Það hlýtur að vera mjög erfitt að fá þau viðbrögð að maður geti ekki verið með. Ég held að margir finni fyrir því ef einhver veikist og lendir á geðdeild, að þá hringir allt í einu enginn til að spyrja um líðanina eða sendir blóm.“ Þótt mörgu sé áfátt í málum geð- sjúkra hafa miklar framfarir orðið á undanförnum árum og einnig hef- ur dregið úr fordómum. Krafan um að geðsjúkir fái að njóta sömu rétt- inda og aðrir er ekki gagnrýni á það sem vel er gert heldur ákall um að lagt verði meira af mörkum, til dæmis í búsetumálum þeirra. „Við teljum mannréttindamál að geðsjúkir eigi heimili, það er bein- línis í mannréttindasáttmálum að fólk skuli eiga heimili og ekkert öðruvísi með geðfatlaða,“ segir Erna. „Auðvitað eru til sambýli og fjöldi fólks vinnur óeigingjarnt starf í þágu geðsjúkra. Það eru einnig til vernduð heimili, en þetta er bara hvergi nærri nóg og brýnt að bæta þar úr. Okkur sýnist af því sem við höfum kynnt okkur, að hér á landi séum við 20–25 árum á eftir því sem best gerist í nágrannalönd- unum.“ Ein ástæðan fyrir þessu gæti verið sú staðreynd hvað mál geð- sjúkra eru á mörgum höndum. Eins og Erna segir virðast málefni geð- sjúkra hér heyra undir heilbrigð- isráðuneytið, félagsmálaráðu- neytið, félagsþjónustu sveitar- félaga og fleiri. Þegar málum er þannig háttað er hætt við að ábyrgðin sé bæði alls staðar og hvergi. Aðstandendur geðsjúkra hyggj- ast nú stofna þrýstihóp til að berj- ast fyrir réttindum þeirra. Eins og Erna segir þekkja flestir geðsjúk- dóma úr sínu nánasta umhverfi og það er kominn tími til að mál geð- sjúkra verði rædd á opinn og for- dómalausan hátt, aðbúnaður þeirra verði bættur og réttindi þeirra tryggð, hvort sem það er í þjóð- félaginu almennt eða heilbrigðis- og félagskerfinu. ORKUVERÐ TIL STÓRIÐJU Í Morgunblaðinu í gær birtistfrétt, sem upphaflega mátti finna í svonefndum hálffimm-frétt- um Kaupþings banka og byggðist á fréttaþjónustu Bloombergs, þar sem því var haldið fram, að orku- verð til álvera hér væri 30% lægra en í Evrópu. Talsmenn Landsvirkj- unar, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja staðfestu að orkuverðið væri lægra, þótt þeir staðfestu ekki tölu Bloombergs. Frá því að samið var um álverið í Straumsvík fyrir fjórum áratugum hefur alltaf verið farið með orku- verð til stóriðju sem trúnaðarmál. Fyrir því hafa verið skiljanleg og skynsamleg rök. Með því að gefa upp umsamið orkuverð til annarra erum við að skaða okkar eigin hagsmuni í samningum við hugs- anlega nýja aðila. Þess vegna hefur orkuverð til stóriðju alltaf verið sennilega bezt varðveitta leyndar- mál á Íslandi. Nú heldur virtur erlendur frétta- miðill á fjármálasviði því fram, að orkuverðið hér hjá okkur sé 30% lægra en í Evrópu. Að vísu má velta því fyrir sér, hvort Evrópu- lönd séu eðlileg viðmiðun. Ósenni- legt er að ný álver verði reist í vesturhluta Evrópu og hvaða til- gangi þjónar þá svona samanburð- ur? Álver í Evrópu eru mörg hver gömul og úr sér gengin og rekin með dýrum orkugjöfum, sem til- heyra liðnum tíma. Er eitthvert vit í svona samanburði? Hingað til hefur verið talið að við ættum í samkeppni við lönd í öðrum heims- hlutum um stóriðjufyrirtæki. Engu að síður vekja fréttir af þessu tagi upp þá spurningu, hvort of langt hafi verið gengið í að bjóða orkuverð á sem lægsta verði. Er eitthvert vit í því að fara mjög langt niður til þess að ná samn- ingum? Þriðja álverið er nú í byggingu fyrir austan, stækkun stendur yfir á Grundartanga, stækkun er til umræðu í Straumsvík og rætt er um álver í námunda við Húsavík. Er þetta ekki að verða nóg? Orkuverin eru umdeild og hafa valdið miklum ágreiningi meðal þjóðarinnar, ekki sízt Kárahnjúka- virkjun. Það getur varla verið til- gangur í því að fara of langt niður með orkuverð við þær aðstæður, sem við nú búum við. Og alla vega hljótum við að treysta því í ljósi vaxandi samkeppni í orkugeiran- um, að álfyrirtækjunum sé ekki að takast að ná fram lægra orkuverði vegna einhvers konar samkeppni á milli orkufyrirtækja okkar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.