Morgunblaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 15
18.–29. júlí
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lokuð
vegna sumarleyfis dagana 18.–29. júlí nk.
Opnum aftur þriðjudaginn 2. ágúst.
Fram að sumarleyfi og að því loknu er tekið við
tímapöntunum alla virka daga kl. 9–16
í síma 581 3855. Nánari upplýsingar er að
finna á vefnum www.hti.is.
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs sumars.
Starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.
Akureyri | Útilífssmiðstöðin á
Hömrum iðaði af lífi í gær en
þar voru samankomin um 500
ungmenni úr unglingavinnunni
á Akureyri, ásamt flokks-
stjórum sínum. Breytt var út af
vananum og í stað þess að vinna
við fegrun bæjarins, eins og
krakkarnir hafa verið að gera
undanfarnar vikur, léku þeir sér
í ýmsum leikjum víðs vegar um
svæðið og var ekki annað að sjá
en allir skemmtu sér vel.
Krakkarnir léku m.a. bandí á
segldúk sem hafði verið bleyttur
með sápuvatni og áttu nokkuð
erfitt með að fóta sig á vellinum.
Í gærkvöldi var svo dansleikur í
Sjallanum og þá bættust vinnu-
skólakrakkar m.a. frá Dalvík og
Ólafsfirði í hópinn.
Morgunblaðið/Kristján
Líf og fjör á Hömrum
Unglingar
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Endurskoða reglur um hunda | Bæjar-
ráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að
skipa starfshóp til að endurskoða í heild
sinni núgildandi sam-
þykkt um hundahald í
Ísafjarðarbæ. Í starfs-
hópnum munu eiga
sæti fulltrúi hundaeig-
enda, fulltrúi sýslu-
manns og fulltrúi Ísa-
fjarðarbæjar.
Fram kemur í frétt á
vef Bæjarins besta á Ísafirði að bæjarráð
ákvað þetta í kjölfar umræðu um tillögur
sem Þorleifur Pálsson bæjarritari og Svan-
laug Guðnadóttir bæjarfulltrúi lögðu fram
fyrir skömmu og fólu meðal annars í sér að
bannað yrði með öllu að fara með hunda um
miðbæ Ísafjarðar. Tillögurnar hafa mætt
töluverðri andstöðu, meðal annars á þeirri
forsendu að vandséð væri með hvaða hætti
ætti að framfylgja banninu.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Viðhald í stoppinu | FISK-Seafood á
Sauðárkróki stöðvar útgerð ísfisktogara
og vinnslu í nokkrar vikur yfir hásumarið,
eins og undanfarin ár. Tækifærið er notað
til viðhalds og endurbóta á skipum, hús-
um, tækjum og öðrum búnaði.
Fram kemur á heimasíðu Kaupfélags
Skagfirðinga, www.ks.is, að meðal þess
sem unnið er að nú er uppsetning á nýjum
lausfrysti í vinnslunni á Sauðárkróki en
hann stóreykur afköst vinnslunnar. Segir
að eftir að bolfiskvinnsla á vegum félags-
ins hófst á Skagaströnd hafi eldri laus-
frystir varla annað framleiðslunni.
Engin sérstök stórverkefni eru um borð
í togurunum utan þess að ljósavél um
borði í Klakki SH er gerð upp. Haft er
eftir Gísla Svan Einarssyni útgerðarstjóra
að reynt sé að vinna viðhaldið sem mest á
heimaslóð.
Tveir nýir bátar | Tveir nýir bátar komu
til Drangsness síðastliðinn laugardag og
leið aðeins klukkustund á milli þeirra. Ann-
ar báturinn kom frá Stykkishólmi og hinn
frá Norðfirði. Báðir verða gerðir út frá
Drangsnesi.
Kemur þetta fram á fréttavefnum
strandir.is. Jafnframt segir frá því að af
þessu tilefni hafi Halldór Ármannsson, eig-
andi annars bátsins, boðið fréttaritara
strandir.is í siglingu til að skoða borgar-
ísjakann sem dvalið hefur á Steingrímsfirði
síðustu vikur. Jakinn er sagður tilkomu-
mikill.
Freyja sér til sunds og
hlaut blóm fyrir að laun-
um.
Síðan var boðið upp á
tónlist þar sem hljóm-
sveit ungra drengja spil-
Haldið var upp á60 ára afmælisundlaugarinnar
í Ólafsfirði í síðustu
viku. Af því tilefni bauð
bærinn til veislu í
Íþróttamiðstöðinni.
Hófst dagskráin með
því að forstöðumað-
urinn, Haukur Sigurðs-
son, rifjaði upp bygg-
ingu laugarinnar, sem
var ein allra fyrsta laug-
in með heitu vatni á
landinu. Það kostaði
mikið átak að byggja
þessa laug á erfiðum
tímum. Laugin var vígð
1. júlí 1945 og þá vígði
hana 10 ára stúlka,
Freyja Bernharðsdóttir.
Á 60 ára afmælinu stakk
aði, gestir gæddu sér á
kaffi og tertu inni í
íþróttamiðstöð og allir
sem vildu máttu spreyta
sig á vatnsrennibraut á
gamla stökkpallinum.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Afmæli Freyja Bernharðsdóttir í sundlauginni en
gamlir sundfélagar hennar fylgjast með á bakkanum.
Sundlaug-
in orðin
sextug Þingeyskar konurhafa um aldir ortmikið og helst til
heimabrúks, þótt talsvert
hafi komið út eftir þær. Á
hagyrðingakvöldum er
loftið í Þingeyingum vin-
sælt yrkisefni. Ósk Þor-
kelsdóttir orti um hrafn-
inn:
Glettinn fugl með góðlegt háð
gáfaður og slyngur.
Með ögn af monti og ótal ráð
eflaust Þingeyingur.
Ólína Arnkelsdóttir,
Hraunkoti orti um vorið:
Verpa fuglar fagnandi,
ferð á skýjum leikandi,
ærnar kara kumrandi,
kátur sérhver búandi.
Bergljót Benedikts-
dóttir, Garði, Aðaldal orti
um konuna á útnesinu:
Þú hefur horft á hafrótið,
hlustað á brim og vinda.
Samt hefur blessað sólskinið
svip þinn náð að mynda.
Með hagmælsk-
una í blóðinu
pebl@mbl.is
Suðurnes | Starfsmannafélag Suðurnesja
mun á næstu dögum undirbúa trúnaðar-
mannafund og afla verkfallsheimilda, en fé-
lagið hefur vísað kjaradeilu sinni við Launa-
nefnd sveitarfélaga til ríkissáttasemjara.
Fram kemur á vef Starfsmannafélagsins
að þrátt fyrir ítrekaðar bréfaskriftir hefur
Launanefnd sveitarfélaga ekki svarað félag-
inu um að setjast niður til að ræða gerð á
nýjum kjarasamningi. Kjarasamningur fé-
lagsins við LN rann út 31. mars síðastliðinn
og hefur enginn fundur verið haldinn.
Samráðsnefnd STFS og LN hefur haldið
tvo fundi til að ræða starfsmatið og á seinni
fundinum sem haldinn var 13. júní sl. var
LN tilkynnt að STFS myndi ekki taka upp
hið nýja starfsmatskerfi. Krefst félagið þess
að fá 4% til að laga flokka.
Nýlega átti Ragnar Örn Pétursson, for-
maður félagsins, fund með Árna Sigfússyni,
bæjarstjóra Reykjanesbæjar, sem er
stærsta bæjarfélagið, ásamt starfsþróunar-
stjóra bæjarins þar sem þeim var gerð grein
fyrir stöðu mála. Fram kemur á vefnum að
óskað var eftir því að bæjarstjóri myndi
beita sér fyrir því að fá LN að samninga-
borðinu.
Undirbúa öfl-
un verkfalls-
heimildar
Akranes | Systkinin Donna og Joe
McCaul, sem tóku þátt í Evrópusöngva-
keppninni í maí síðastliðnum fyrir hönd
Írlands, munu koma fram á Írskum dög-
um sem haldnir verða á Akranesi um
helgina. Þau eru vinsæl í heimalandi
sínu eftir að hafa unnið söngvarakeppni,
að því er segir á vef Akraneskaupstaðar.
Systkinin koma fram á Lopapeysunni í
sementsskemmunni og taka lag sitt úr
Eurovision, Love?
Írskir dagar hefjast í dag og standa
fram á sunnudag. Er þetta í sjötta skipti
sem fjölskylduhátið með þessu heiti er
haldin á Akranesi.
Fjölbreytt dagskrá er á Írskum dög-
um. Nefna má Skagamótið, sem þúsund
ungir og efnilegir knattspyrnumenn
mæta á. Á morgun verður götugrill og
síðan kvöldvaka og varðeldur við þyrlu-
pallinn. Maggi Eiríks og KK stjórna þar
brekkusöng. Fjölskyldudagskrá verður á
laugardag og þar fer fram keppnin um
rauðhærðasta Íslendinginn. Útihátíðin
Lopapeysan verður á hafnarsvæðinu á
laugardagskvöld og þar koma m.a. fram
Paparnir, Sálin og Raggi Bjarna. Fjöldi
annarra atriða er á dagskránni, sem
finna má á heimasíðu Akraneskaupstað-
ar, akranes.is.
Írskar stjörnur koma
fram á Írskum dögum
♦♦♦