Morgunblaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 33 DAGBÓK Dísilolía dýrari en bensín! HVERNIG geta olíufélögin haft dísilolíu dýrari en bensín? Þegar þetta er skrifað var dísilolían orðin dýrari en bensín og veltir maður því fyrir sér hvað sé í gangi. Þar sem ég hef ferðast erlendis hef ég aldrei séð hærra verð á dísilolíu og skora ég á olíufélögin að athuga sinn gang og lækka olíuna. Ég hef heyrt að dísilbílar mengi minna en bensínbílar fyrir utan að dísilbílar hafa verið dýrari í inn- kaupum. Ekki verður þetta til að hvetja fólk til að kaupa bíla með dísilvél. Ökumaður. Engan ruslpóst ÉG vil koma á framfæri kvörtun vegna allra þeirra blaða, Frétta- blaðsins, Blaðsins, Birtu o.fl. ókeypis blaða, sem sett eru í póstkassann hjá mér. Samt er ég með miða frá Ís- landspósti um að ruslpóstur sé af- þakkaður. Mest er ég hissa á að Ís- landspóstur, sem ég fékk gulan miða hjá til að afþakka ruslpóst, skuli setja Blaðið í póstkassann hjá mér, þrátt fyrir miðann, sem virðist gagnslaus því enginn fer eftir hon- um. Svo komst ég að því að póstberinn hjá Íslandspósti var útlendingur sem skildi ekki það sem stóð á mið- anum á póstkassanum. Engan ruslpóst, takk fyrir, því það er ekki lengur pláss fyrir póst- inn fyrir þessu blaðarusli. Gyða Jóhannsdóttir. Hvernig er lífið hjá okkur Íslendingum? SKATTAR allt of háir, launin lág, lánin há o.s.frv. Hvernig væri hægt að hafa það betra? Það væri allt í lagi að láta stóru fyrirtækin, sem eiga nóg af aurum, borga hærri skatta svo að við fátæklingarnir gætum haft salt í grautinn. Ef við borguðum minni skatta þá væri þetta kannski allt í lagi. Af hverju þurfum við að borga meira en þeir ríku? Það er hægt að gera Ís- land að góðu landi með mönnum sem kunna að stjórna rétt. L.Ó. Lyklakippa týndist BRÚN lyklakippa með WV lyklum og merkt Heklu týndist, líklega í miðbænum eða í leigubíl 11. júní sl. Þeir sem vita um lyklana eru beðnir að hafa samband við Ragnhildi í síma 561 7757. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Ísumar er boðið upp á skemmtilegar ogfræðandi gönguferðir á vegum menning-arstofnana Reykjavíkurborgar. Fyrstaganga sumarsins var farin í síðustu viku en þá voru útilistarverk í Kvosinni skoðuð. Næsta ganga verður farin í kvöld og þá er ætl- unin að skoða byggingar Guðjóns Samúelssonar í miðbæ Reykjavíkur. Guðjón fæddist árið 1887 en hann var fyrstur Íslendinga til að ljúka námi í byggingarlist árið 1919. Guðjón gegndi emb- ætti húsameistara ríkisins um nokkurt skeið og hafði mikil áhrif á byggingarlist á Íslandi. Að þessu sinni leiðir Pétur H. Ármannsson, deildarstjóri byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur, gönguhópinn og segir frá þekktum og minna þekktum byggingum Guðjóns Sam- úelssonar í Kvosinni og nágrenni. Þá mun Pétur einnig segja frá byggingum sem ætlað var að reisa en urðu ekki að veru- leika. Gangan tekur um klukkustund, lagt verður af stað frá Vesturgötu 2 og lýkur við Iðu í Lækj- argötu. „Þetta er frásögn og hún spinnst út frá því í hvaða röð húsin eru skoðuð. Það er ekki al- veg hægt að skoða þau í tímaröð.“ Í gönguferð- inni mun Pétur að auki segja frá þeim hug- myndum sem að baki húsunum bjuggu en sumar voru ekki útfærðar eins og átti að verða. „Þann- ig að ég fjalla líka um það sem ekki varð,“ segir Pétur um fyrirlesturinn. „Guðjón teiknaði nátt- úrlega mörg helstu stórhýsi Reykjavíkur frá fyrri hluta 20. aldar eins og Háskólabygginguna, Landspítalann, Hallgrímskirkju og Kristskirkju í Landakoti.“ Þessar byggingar ættu flestir að þekkja en þær eru ekki inni á því svæði sem skoðað verður í kvöld. „Áherslan er að fjalla um ákveðið svæði og leita uppi það sem þar er,“ seg- ir Pétur. Dagskráin sem boðið verður upp á í sumar er fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Að sögn Péturs eru allir velkomnir og markmiðið er að fræða fólk um miðbæinn. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í sumar en í boði verða til dæmis bókmenntagöngur, göngur þar sem byggð og saga ákveðinna bæjarhluta verður skoðuð nánar. Gangan í kvöld ber yfirskriftina Byggingar- listarganga og lagt verður af stað frá gamla Geysishúsinu í Aðalstræti Vesturgötumegin kl. 20 í kvöld. Arkitektúr | Byggingar Guðjóns Samúelssonar í Kvosinni skoðaðar Kvöldganga í Kvosinni  Pétur H. Ármanns- son lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1980, B.Arch. Hons-prófi í arkitektúr frá Háskól- anum í Toronto, Kan- ada, 1986, og meist- araprófi frá Cornell háskólanum í New York, 1991. Hann hefur gegnt starfi deildarstjóra byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur frá árinu 1993, en starfaði áður við ýmsar teiknistofur í Reykjavík. Pétur hefur verið af- kastamikill á sviði rannsókna í arkitektúr og skipulagi og skrifað fjölda greina um þau mál í bækur og virt tímarit. F A S T E I G N A S A L A ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST Höfum ákveðinn kaupanda (leiga möguleg) að 5-700 fm atvinnu- húsnæði á svæði 101, 103-105 og 108 fyrir léttan iðnað. Húsnæð- ið má vera eitthvað niðurgrafið, en verður að hafa innkeyrsludyr. Afhendingartími samkomulag. Allar nánari upplýsingar veitir Steinar S. Jónsson. í síma 588 9496 og 898 5254. Síðumúla 33 - Sími 588 9490 - www.lyngvik.is - lyngvik@lyngvik.is 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 c5 7. Bb5+ Bd7 8. Bxd7+ Dxd7 9. Rf3 Bg7 10. 0-0 0-0 11. Be3 e6 12. Dd2 Rc6 13. Had1 Hfd8 14. Hfe1 Hac8 15. Bh6 Bh8 16. Bg5 He8 17. Df4 cxd4 18. cxd4 Rxd4 19. Rxd4 e5 20. Rf5 Dxf5 21. Dxf5 gxf5 22. exf5 e4 23. Hd7 Hc2 24. g4 Hxa2 Staðan kom upp á Evrópumeistara- móti einstaklinga sem lauk fyrir skömmu í Varsjá. Alexander Graf (2.632) hafði hvítt gegn Stefáni Krist- jánssyni (2.461). 25. Hxe4! Hf8 svartur hefði orðið mát eftir 25. – Hxe4 26. Hd8+ Kg7 27. f6+ Kg6 28. Hg8+. Textaleikurinn breytir því ekki að hvít- ur hefur unnið tafl. 26. Hxb7 h5 27. Be3 Ha5 28. Bxa7 Ha8 29. Be3 Ha4 30. Hxa4 Hxa4 31. g5 Be5 32. h3 Bf4 33. He7 Kf8 34. f6 h4 35. Hb7 Kg8 36. g6 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Fimmtudagur 7. júlí Kl. 13 Safnaðarheimili Siglu- fjarðarkirkju: Ítölsk tónlist frá tímum Boccaccio. Fyrirlesari: Michael Posch, Austurríki. Fyrirlesturinn fer fram á ensku Kl. 20 Siglufjarðarkirkja 18 hugleiðingar um íslensk þjóðlög. Ríkarður Örn Pálsson útsetti, Renata Iván, píanó. Frumflutningur á verkinu í heild sinni. Kl. 21.00 Borgarleikhúsið, Reykjavík. Ensemble Unicorn frá Austurríki. Kl. 21.30 Bátahúsið Söngvar og slættir frá Ögðum í Noregi. Astri Skarpengland, söngur. Elizabeth Gaver, harð- angursfiðla, Hans-Hinrich The- dens, harðangursfiðla og gítar, Hans Olav Gorset, flauta, Gunnhild Opdal, sagnakona. Norskum þjóðlögum og þjóð- sögnum fléttað saman. Kl. 23 Bræðsluverksmiðjan Grána. Tónlist úr Tyrkjaveldi. Hadji Tekbilek og Steintryggur (Steingrímur Guðmundsson og Sigtryggur Baldursson). Leikið á upprunaleg tyrknesk hljóð- færi. Nánar á siglo.is/festival. Þjóðlaga- hátíð á Siglufirði TÓNLISTARHÓPURINN Gestalæti sem starfar á vegum Hins hússins í sumar verður með tónleika í Iðnó í kvöld kl. 20. Hópurinn samanstendur af fimm ungum stúlkum, tveimur söngkonum, fiðluleikara og tveimur píanóleikurum sem all- ar stunda klassískt tónlistar- nám í Reykjavík. Tónleikarnir, sem eru um ein klukkustund, eru í frjálslegri kantinum og efnisskráin er blönduð. Á síð- ustu fimmtudagskvöldtónleik- um Gestaláta var fullt hús og létt og notaleg stemmning að sögn Guðbjargar Sandholt mezzósópransöngkonu í hópn- um. Nánari upplýsingar um starfsemi hópsins er að finna á www.hitthusid.is. Gestalæti í Iðnó í kvöld ÁSLAUG Thorlacius opnar mynd- listarsýningu í Slunkaríki á Ísa- firði á morgun kl. 17. Á sýningunni sýnir Áslaug teikningar, vatns- litamyndir og ljósmynd sem hún hefur unnið upp úr ferð sem hún fór um Vestfirði sumarið 2004. Í fréttatilkynningu segir: „Í verkum sínum hefur Áslaug verið upptekin af vangaveltum um hefð- ina, hlutverk listamannsins og samhengi listar og hversdagslífs. Að þessu sinni birtist listakonan í hlutverki lands- lags- og blóma- málarans en það er draumur sem hún hefur lengi alið í brjósti.“ Sýning Ás- laugar stendur til sunnudagsins 31. júlí. Slunka- ríki er opið fimmtudaga til sunnudags milli kl. 16.00 og 18.00. Áslaug sýnir í Slunkaríki Áslaug Thorlacius

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.