Morgunblaðið - 07.07.2005, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 35
DAGBÓK
Er löggiltur fasteignasali
a› selja eignina flína?
sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17
Hjá Heimili fasteignasölu starfa
fjórir löggiltir fasteignasalar sem
hafa áralanga reynslu af fasteigna-
vi›skiptum. fia› er flví löggiltur
fasteignasali sem heldur utan um
allt ferli›, allt frá flví eignin er
sko›u› og flar til afsal er undirrita›.
Metna›ur okkar á Heimili er a›
vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu-
brög› sem tryggja flér besta ver›i›
og ábyrga fljónustu í samræmi vi›
flau lög og reglur sem gilda um
fasteignavi›skipti.
Finbogi Hilmarsson
lögg. Fasteignasali
Einar Gu›mundsson
lögg. Fasteignasali
Anney Bæringsdóttir
lögg. Fasteignasali
Bogi Pétursson
lögg. Fasteignasali
Hafdís Björnsdóttir
Ritari
Acidophilus
FRÁ
Fyrir meltingu og maga
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
TRÍÓIÐ Drýas mun halda tónleika í
Árbæjarsafni kl. 15 í dag.
Á efnisskránni eru eingöngu ís-
lensk verk, m.a. þjóðlög í útsetn-
ingum Hafliða Hallgrímssonar og
Jónasar Tómassonar, sönglög eftir
Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H.
Ragnarsson og Jórunni Viðar og
verk eftir Hreiðar Inga Þorsteins-
son.
Í Drýas eru þær Herdís Anna
Jónasdóttir, sópran, Þorbjörg
Daphne Hall, selló, og Laufey Sig-
rún Haraldsdóttir, píanó, og stunda
þær allar tónlistarnám við Listahá-
skóla Íslands. Í sumar starfa þær
sem skapandi sumarhópur hjá Hinu
húsinu.
Næstu vikur mun Drýas einnig
halda tónleika á Kjarvalsstöðum,
Þjóðmenningarhúsinu, Sigurjóns-
safni og í Iðnó. Einnig eru þær alla
virka daga með stutta efnisskrá í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi
fyrir gesti og gangandi kl. 13.
Tríóið Drýas í
Árbæjarsafni
Á LAUGARDAGINN opnar lista-
konan Rósa Matthíasdóttir sýningu
á Vínbarnum, Kirkjutorgi 4 í
Reykjavík.
Rósa byrjaði að hanna og smíða
mósaíkspegla fyrir fimm árum og
er þessi sýning hennar sú níunda í
röðinni. Rósa er stúdent af mynd-
og handíðabraut Verkmenntaskól-
ans á Akureyri. Hún stundaði nám
við hönnun og tækniteiknun við
Iðnskólann í Hafnarfirði.
Í fréttatilkynningu segir: „Verk-
in bera öll sterk einkenni og eru
engin þeirra eins. Rósa notar ólík
form, liti og þykktir til að ná fram
séreinkennum og „karakter“ hvers
verks.“
Mósaík-
speglar
á Vín-
barnum
TÓNLISTARFLOKKURINN South River Band
(Drengirnir frá Syðri-Á) hefur starfað frá árinu 2000,
en flestir eru meðlimir sveitarinnar ættaðir frá Kleif-
um í Ólafsfirði. SRB hefur nú gefið út sinn þriðja
disk, Bacalao, sem tileinkaður er Kleifafólkinu sem
verkaði saltfisk í fjörunni vel fram yfir miðja síðustu
öld.
Tónlistin er að þessu sinni eingöngu hljóðfæra-
tónlist, nokkurs konar „heimshornatónlist“ eins og
segir í fréttatilkynningu.
Þetta eru lög sem safnast hafa upp hjá sveitinni á
undanförnum árum, einkum þjóðlög m.a. frá Úkraínu,
Bandaríkjunum, Írlandi, Svíþjóð o.fl. löndum.
Hljómsveitin tekur þátt í Írskum dögum á Akranesi
í dag og leikur þar með Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur
og írsk-kanadísku söngkonunni Melanie Adams. Á
laugardaginn geta gestir Þjóðlagahátíðarinnar á
Siglufirði hlustað á sveitina. South River Band skipa
Matthías Stefánsson á fiðlu, Helgi Þór Ingason á
harmoniku, Ólafur Sigurðsson á mandólín, Kormákur
Bragason og Ólafur Þórðarson á hryngígjur og Einar
Sigurðsson á kontrabassa.
Geisladiskur tileinkaður Kleifafólkinu
Í HÁDEGINU í dag leikur
Kári Þormar á orgeltón-
leikum í Hallgrímskirkju.
Tónleikarnir eru á vegum
Sumarkvölds við orgelið og
hefjast kl. 12 á hádegi.
Þeir eru styrktir af Fé-
lagi íslenskra organleikara
en ágóðinn rennur til við-
halds orgelsins.
Á efnisskrá Kára eru
þrjú verk. Í fréttatilkynn-
ingu segir um verkin:
„Fyrst heyrist Tokkata eft-
ir Jón Nordal sem hann
samdi árið 1985 í tilefni af
vígslu nýja dómkirkju-
orgelsins og í minningu
Páls Ísólfssonar. Þá heyrist
Prelúdía og fúga í D-dúr
eftir Johann Sebastian
Bach. Lokaverk efnis-
skrárinnar er síðan Pange
lingua eftir franska tónskáldið Naji
Hakim. Hann var fæddur 1950 og
var organisti við Sacré-Coeur 1985–
1993 en varð þá eftirmaður Messia-
en við La Trinité-kirkjuna í París.
Pange lingua var frumflutt árið
1996, er í sex köflum og
fjallar um altarissakra-
mentissálm Thomas Aqu-
inas sem í íslenskri þýðingu
heitir Tunga mín af hjarta
hljóði. Hver kafli er til-
brigði um sálmalagið og
endurspegla þau efni hvers
vers.“
Lærði á Klais-orgel
Hallgrímskirkju
Kári Þormar var fyrsti
nemandinn sem lauk orgel-
námi hér heima með tón-
leikum á hið glæsilega
Klaisorgel í Hallgríms-
kirkju. Kennari hans var
Hörður Áskelsson, organ-
isti Hallgrímskirkju. Að
loknu námi í orgelleik og
kirkjutónlist í Düsseldorf í
Þýskalandi var Kári organ-
isti Kópavogskirkju, Fríkirkjunnar í
Reykjavík en undanfarin ár hefur
hann verið organisti Áskirkju.
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju
Morgunblaðið/RAX
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað.
Vídeóstund kl. 13 í dagstofunni, allir
velkomnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Boccia kl.
9.30. Leikfimi kl. 11. Hjólahópur kl.
13.30. Púttvöllur kl. 10–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl.
11.15–12.15 matur, kl. 13 gönguferð um
hverfið með Rósu, kl. 14.40 ferð í
Bónus, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–11 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl.
11.15–12.15 matur, kl. 14–14.45 söng-
stund, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Örfá sæti laus í ferð FEBK á
Strandir 15.–17. júlí. Brottför frá Gull-
smára kl. 08.30 og Gjábakka kl.
08.45. Leið m.a: Brú, Hólmavík,
Drangsnes, Klúka, Djúpavík, Gjögur,
Norðurfjörður, Ingólfsfjörður o.fl. Gist
á Laugarbóli og Hólmavík. Ekin
Tröllatunguheiði í Króksfjarðarnes,
Dalir, Bröttubrekka. Skráning Gjá-
bakka s: 554 3400 eða Þráinn
554 0999 / Bogi 560 4255.
Félagsstarf Gerðubergs | Vegna
sumarleyfa starfsfólks er lokað frá
föstudeginum 1. júlí. Opnað aftur
þriðjudaginn 16. ágúst. Vetrardagskrá
hefst 1. september. Upplýsingar á:
www gerduberg.is.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og
dagblöðin. Kl. 9 hárgreiðsla. Kl. 10
pútt og boccia. Kl. 12 hádegismatur.
Kl. 14 félagsvist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Bingó kl. 13.30. Pútt á Vallarvelli kl.
14–16.
Hvassaleiti 56–58 | Böðun virka
daga fyrir hádegi. Hádegisverður. Fé-
lagsvist kl. 13.30, kaffi og gott með-
læti. Fótaaðgerðir 588 2320. Hár-
snyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Betri stofa og
Listasmiðja opin kl. 9–16. Púttvöllur-
inn opinn alla daga. Gönguhópurinn
Sniglarnir kl. 10. Sönghópur kl. 13.30.
Aðstoð við böðun kl. 9–16. Hádegis-
matur. Síðdegiskaffi. Skráning í
haustnámskeið lýkur 1. ágúst. Kíktu
við eða hringdu í síma 568 3132. Allir
alltaf velkomnir.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14 aðstoð v/
böðun. Kl. 9.15–15.30 handavinna. Kl.
9–10 boccia (júní). Kl. 10.15–11.45
spænska (júní). Kl. 11.45–12.45 há-
degisverður. Kl. 13–14 leikfimi (júní–
júlí). Kl. 13–16 glerbræðsla (júní). Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin. Hárgreiðslu– og
fótaaðgerðastofur opnar. Frjáls spila-
menska.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12.
Garðasókn | Kyrrða- og fyrirbæna-
stund er hvert fimmtudagskvöld í
Vídalínskirkju kl. 22. Gott er að ljúka
deginum og undirbúa nóttina í kyrrð
kirkjunnar og bera þar fram áhyggjur
sínar og gleði. Tekið er við bænar-
efnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Eldur-
inn kl. 21 fyrir fólk á öllum aldri. Lof-
gjörð, vitnisburðir og kröftug bæn.
Allir velkomnir. www.gospel.is.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Í KVÖLD leikur djassgítarleikarinn Andrés Þór ásamt „Hummus“-tríói sínu
á Pravda-bar. Tríóið skipa auk Andrésar þeir Scott McLemore á trommur
og Þorgrímur Jónsson sem leikur á kontrabassa en Þorgrímur er einmitt
staddur hér á Íslandi í sumar en hann er búsettur í Den Haag í Hollandi þar
sem hann stundar nám við konunglega listaháskólann. Samkvæmt tilkynn-
ingu frá tónlistarmönnunum munu þeir leika tónlist eftir hljómsveitarstjór-
ann Andrés Þór og tónlistin flokkast að þeirra sögn undir nútímalegan en
lagrænan djass sem byggist á hefðinni og á köflum rætur að rekja í fönk-
eða grúv-tónlist. Hefst leikur klukkan 22 og aðgangur er ókeypis.
Andrés Þór og „Hummus“-tríó á Pravda