Morgunblaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 B.i 10 ÁRA Sýnd kl. 4 og 6
Miðasala opnar kl. 15.00
Sími 564 0000
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
„Svalasta mynd ársins“
Þ.Þ. FBL
„...í heildina frábær mynd...“
T.V. kvikmyndir.is
„...hrein og tær upplifun...
gjörsamlega geðveik mynd!“
K&F XFM
DÖJ kvikmyndir.com
kl.5.20, 8 og 10.40
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i 14 ÁRA
Sýnd kl. 5.20, 8, 10.40 B.i 16 ÁRA
YFIR 30.0
00 GESTIR
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i 10 ÁRA
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Frá leikstjóra Bourne Identity
Blaðið
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
x-fm
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 38.000 gestir
ÞÞ - FBL
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i 14 ára
SÖNN ÁST HEFUR
ALDREI
VERIÐ EINS
SVÖRT!
Frá leikstjóra Bourne Identity
Sýnd kl. 8 B.i 14 ára
Blaðið
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari
heims!
T O M C R U I S E
I N N R Á S I N E R H A F I N
MYND EFTIR
Steven spielberg
YFIR 30.0
00 GESTIR
„Innrásin er girnileg
sumarskemmtun,
poppkornsmynd
af bestu gerð!“
-S.V, MBL
„EKTA STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.H.T, RÁS 2
S ST EF
I I
Sýnd kl. 5.50 og 10.20 B.i 10 ÁRA
VINSÆLASTAMYNDIN Á ÍSLANDI -YFIR 16.000 GESTIR
Bourne Identity
Blaðið
ÞÞ - FBL
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Ó.Ö.H - DV
„Svalasta ársi s“
Þ.Þ. FBL
„...í heildina frábær mynd...“
T.V. kvikmyndir.is
„...hrein og tær upplifun...
gjörsa lega geðveik ynd!“
K&F XFM
DÖJ kvikmyndir.com
Mjaðmahnykkir ómótstæðilegir.
Taktarnir ósviknir. Söngvari með
ótrúlegt raddsvið, af rokksöngvara
að vera. Geggjaður gítarleikari sem
nýtur þess að laða fram flóknar og
næsta óhugsandi gítarlínur og sóló.
Maðurinn dreif gjörsamlega geggj-
aðslega góða hljómsveit sína áfram í
gegnum eitthvert þéttasta pró-
gramm sem ég hef séð, fumlausa
blöndu af gömlu og nýju efni með
Queens. Þetta er algjörlega mögnuð
rokksveit. Því hefur maður fengið að
kynnast á frábærum plötum sveit-
arinnar en ekki áttaði maður sig á
því almennilega fyrr en á tónleik-
unum hversu svakalega mögnuð hún
er. Dulúðin af nýju plötunni Lulla-
bies To Paralyze skilaði sér full-
komlega í upphafslagi tónleikanna
„Someone’s in the Wolf“, „Burn The
Witch“, „Little Sister“og „In My
Head“. Gaman var að heyra lög af
fyrstu plötunni eins og „Regular
John“ og „If Only“, sem og þekktu
lögin; „Lost Art of Keeping a Sec-
ret“ og „Go With The Flow“ sem
Homme flutti af krafti og ferskleika.
Síðast en ekki síst var svo löng og
rafmögnuð útgáfa af besta rokklagi
síðasta áratugar að minnsta kosti,
„No One Knows“, með hrikalega
flottu millispili; tvímælaust einhver
eftirminnilegasti hápunktur tón-
leikaprógramms. Að fá að upplifa
slíkt lag í lifandi flutningi er út af
fyrir sig trygging fyrir nær full-
komnum tónleikum.
Það þurfti eitthvað alveg sérstakt
til að fylgja slíkum flutningi eftir;
eitthvað allt annað og framúrskar-
andi á sinn hátt. Eitthvað eins og
Dave Grohl, einhvern allra fjör-
ugasta, ástríðufyllsta og skemmti-
legasta rokkara sem á íslenskt svið
hefur stigið. Hann sýndi það er Foo
Fighters héldu eftirminnilega tón-
leika í Laugardalshöll fyrir liðlega
ÍSLENSKIR rokkunnendur eru
lukkunnar pamfílar. Fá orðið að
heyra og sjá á tónleikum úrval bestu
rokksveita fyrr og nú, hverja á fætur
annarri; hvort sem um ræðir gamla
refi á borð við Deep Purple, sprelli-
gosana Iron Maiden, þungarokks-
kóngana Metallicu eða hina fram-
úrstefulegu Isis. Á þriðjudag var svo
boðið upp á einhverja mögnuðustu
rokkveislu sem um getur hér á landi,
tónleika með þremur frambærileg-
ustu rokksveitum á sínu sviði, hvorki
meira né minna; bestu rokksveit Ís-
lands, Mínus, áhugaverðustu rokk-
sveit í heimi, Queens of the Stone
Age, og þeirri hressilegustu, Foo
Fighters.
Það var ekki hægt að finna meira
viðeigandi upphitunarband en Mín-
us. Svarti Krummi og félagar voru í
fantagóðu formi, tóku blöndu af
smellum af Halldóri Laxness og nýj-
um lögum, sem lofa heldur betur
góðu um næstu plötu og Krummi
farinn að hljóma æ meira eins og
Jim Morrison.
Ef Elvis er á lífi – ef hvað? – þá er
hann fundinn. Hann er ennþá að
syngja og er farinn að leika á gítar
líka; og það betur en flestir aðrir.
Hann er forsprakki einnar frumleg-
ustu, kröftugustu og margbrotn-
unstu rokksveitar sem fyrirfinnst nú
um mundir. Hann heitir Josh
Homme og er rauðhærður. Josh
Homme er rokkkóngurinn. Ekkert
minna. Tilkomumesti rokktöffari
sem staðið hefur á íslensku sviði.
tveimur árum að honum er einkar
lagið að leika við áhorfendur, vinna
þá á sitt band. Og það gerði hann
enn á ný á þriðjudag. Bauð upp á
viðlíka skemmtun; smekkfullt pró-
gramm af fjörlegum Foo-smellum,
hvern á fætur öðrum, og má hann
eiga það blessaður að hann hefur
dælt út alveg ótrúlega mörgum gríp-
andi og tónleikavænum rokkslög-
urum á aðeins réttum áratug. Þetta
eru lög sem virðast líka höfða ein-
staklega vel til íslenskra rokkunn-
enda, kröftug og með grípandi við-
lögum sem hægt er að hrópa og
tralla með; rétt eins og Grohl hafi
allan tímann sérsniðið þau fyrir
uppáhaldsþjóðina sína. Hann hélt
líka uppteknum hætti, mærði land
og þjóð í bak og fyrir, sagði Ísland
besta viðkomustað sveitarinnar og
auðvitað fagnaði skarinn í Höllinni
hástöfum, með þjóðrembukökkinn í
hálsinum. Eins gott fyrir þig Grohl
minn kæri að við gómum þig ekki
segjandi það sama við Norðmenn.
Þá yrðirðu hreint ekki í góðum mál-
um.
Fyrir þá sem voru á síðustu tón-
leikum var kannski fullstutt um liðið,
og því fékk maður minna út úr því að
heyra eldri smellina aftur, þótt vel
væru fluttir í sjálfum sér. Áhuga-
verðari voru því nýju lögin af „In
Your Honor“, titillagið og „Best of
You“ t.d. sem komu fjandi vel út, há-
dramatísk og útvarpsvæn eins og
flest annað sem Grohl semur og
einnig kom Taylor Hawkins tromm-
ari sterkur inn er hann söng og lék á
gítar kántrískotna lagið sitt „Cold
Day In The Sun“. Og þá rann líka
upp tilfinningaþrungin stund, þegar
gamli Nirvana-trommarinn fór á bak
við settið og lék í fyrsta sinn á
trommur fyrir okkur. Svona eiga
góðar rokksveitir að vera, innihalda
fjölhæfa liðsmenn sem flakkað geta
frá settinu í frontinn eins og ekkert
sé, en sömu sögu er að segja af
Queens þar sem liðsmenn skiptust á
hljóðfærum næstum í hverju lagi og
rokkkóngurinn Homme var jafn-
vígur á bassa, gítara og söng. Eina
sem vantaði upp á var að perluvin-
irnir Grohl og Homme tækju lagið
saman, með annarri hvorri sveitinni,
en eftir því höfðu vafalítið margir
beðið og vonað.
Hljómurinn var sem fyrr vafa-
samur. En hvað hefur það upp á sig
að vera að velta sér endalaust upp úr
því? Þetta virðist bara vera svona í
Egilshöllinni og í raun ekki við neinn
að sakast. Hvorki tónleikahaldara,
sem eiga í engin önnur hús að venda,
né hönnuði hússins sem á jú fyrst og
fremst að vera skemma til íþrótta-
iðkunar. Sannarlega er ekki við
sveitirnar að sakast. Þær gáfu allt
sitt – og meira til. Góð ábending þó
að lokum til þeirra sem sækja tón-
leika í Egilshöllinni í framtíðinni;
eftir þónokkra og næstum vís-
indalega vettvangsathugun hef ég
komist að þeirri niðurstöðu að skásti
hljómurinn er aftarlega fyrir miðju á
A-svæði eða fremst á B-svæði. Alls
ekki of langt til hliðanna eða of fram-
arlega því þar er allt hljóðið í volli;
bassinn yfirgnæfandi og blöndun
kolbrengluð.
En horfum á björtu hliðarnar.
Sem betur fer var Egilshöllin þó
komin áður en sú í Laugardalnum
var send í lýtaaðgerð. Þvílíkt lán.
Annars hefðum við kannski misst af
bestu rokktónleikum síðustu ára.
Íslandslukkan
Morgunblaðið/Árni Torfason
Josh Homme er tilkomumesti rokktöffari sem staðið hefur á íslensku sviði
að mati Skarphéðins Guðmundssonar.
Skarphéðinn Guðmundsson
TÓNLIST
Egilshöllin
Tónleikar í Egilshöll þriðjudaginn 5. júlí.
Fram komu Foo Fighters, Queens of the
Stone Age og íslenska sveitin Mínus,
sem hitaði upp.
Foo Fighters og Queens of the Stone Age
UNNENDUR hágæða rokktónlistar glöddust saman í Egils-
höllinni á þriðjudagskvöldið þegar bandarísku hljómsveitirnar
Foo Fighters og Queens of the Stone Age tróðu upp.
Þetta er í annað sinn sem sú fyrrnefnda leikur hér á landi og
eru liðsmenn sveitarinnar orðnir Íslandsvinir númer eitt vegna
fádæma ánægju með land og þjóð.
Dave Grohl, söngvari sveitarinnar og fyrrverandi trommu-
leikari hljómsveitarinnar Nirvana, tók sig til og spilaði á
trommurnar í einu laganna, og að sögn viðstaddra hefur hann
engu gleymt með kjuðana.
Þúsundir áhorfenda skemmtu sér hið besta við tónlist hinna
rokkuðu gesta auk þess sem upphitunarhljómsveit kvöldsins,
Mínus, lagðist vel í mannskapinn.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Krummi fór fyrir kraftmiklum Mínus-mönnum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Dave Grohl fór mikinn á sviðinu.
Tónlist | Stórtónleikar Foo
Fighters og Queens of the
Stone Age í Egilshöll
Kátt í höllinni