Morgunblaðið - 18.08.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 11
FRÉTTIR
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. 11-16
Nýjar vörur
frá
Gott verð
SÚPER
VEGNA FLUTNINGS OKKAR ÚR FAXAFENI Í KRINGLUNA
AÐEINS Í KRINGLUNNI
VIÐ ERUM FLUTT ÚR FAXAFENI Í KRINGLUNA
Satín sængurföt
vönduð, mjúk og falleg
ER AÐEINS Í KRINGLUNNI
Verð nú aðeins 1.995.-
áður kr. 3.995.-
Rúmteppi einstaklega vandað,
vattstungið, fallegur frágangur á kanti.
2 púðaver + rúmteppi.
Stærðir 260 x 240 cm
Stærðir 260 x 280 cm
sama verð.
Verð nú aðeins 9.990.-
áður kr. 17.990.-
tk
.i
s
fallegt fyrir heimilið
Myndlist
L e i r l i s t
G l e r l i s t
gallery
GL BAL
GRÍPTU GOTT TÆKIFÆRI ÞESSA VIKU
HEIMASÍÐA www.tk.is
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I
• S Í M I 5 7 7 4 9 4 9
Ú T S A L A
ÚTSÖLULOK
VERÐHRUN
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Opnum í dag
með glæsilegan haustfatnað
Opnum
kl. 9.00
virka daga
Laugavegi 34, sími 551 4301
Sumarúlpur
20% afsláttur - Stórar stærðir
JÓHANNES Sigurðsson, prófessor í
fjármálarétti við Háskólann í Reykja-
vík, telur lánveitingar Íbúðalánasjóðs
til fjármálafyrirtækja ólögmætar. Út-
víkkun starfseminnar rúmist ekki
innan þeirra lagaheimilda sem um
starfsemina gildi og sé ósamrýman-
leg skuldbindingum Íslands við EES-
samninginn. Þetta kemur fram í álits-
gerð sem hann vann að beiðni Sam-
taka atvinnulífsins og Samtaka banka
og verðbréfafyrirtækja. Samantekt
SA á niðurstöðum Jóhannesar fer hér
á eftir:
„Að beiðni Samtaka atvinnulífsins
og Samtaka banka og verðbréfafyr-
irtækja hefur Jóhannes Sigurðsson
hrl., prófessor við Rannsóknarstofn-
un í fjármálarétti við Háskólann í
Reykjavík, tekið saman álitsgerð um
heimildir Íbúðalánasjóðs til lánveit-
inga, fjármögnunar og áhættustýr-
ingar. Markmið álitsgerðarinnar er
að leggja mat á það hvort sú starfsemi
sem Íbúðalánasjóður stundar sem
ríkisstofnun rúmist innan þeirra laga-
heimilda sem um starfsemina fjalla,
eins og spurningar hafa vaknað um.
Samkvæmt lánasamningum Íbúða-
lánasjóðs og fjármálafyrirtækja eru
lánin ætluð til íbúðakaupa viðskipta-
manna fjármálafyrirtækjanna. Lánin
eru að hámarki 25 m.kr. og eru tryggð
með 1. veðrétti í íbúðarhúsnæði. Rök-
semdir Íbúðalánasjóðs fyrir lánveit-
ingunum eru þær að lánveitingarnar
séu liður í hefðbundinni áhættustýr-
ingu sjóðsins sem komin er til vegna
mikilla uppgreiðslna á lánum.
Óheimil lánastarfsemi
Í álitsgerð Jóhannesar er komist að
þeirri niðurstöðu að Íbúðalánasjóði sé
samkvæmt lögum ekki heimilt að
veita lán til fjármálafyrirtækja með
þeim hætti sem sjóðurinn hefur gert,
jafnvel þótt tilgangurinn með þeim
lánum sé að endurlána einstaklingum
eða byggingaraðilum til kaupa eða
bygginga á íbúðarhúsnæði. Sjóðurinn
hafi í raun tekið þátt í fjármálastarf-
semi sem rúmist ekki innan starfs-
heimilda hans. Í kjölfar kerfisbreyt-
inga á fjármögnun og útlánum
Íbúðalánasjóðs árið 2004 hafi sjóður-
inn setið uppi með mikla fjármuni
vegna endurgreiðslna sem hann hafi
ekki haft þörf fyrir til að standa undir
eftirspurn eftir íbúðalánum hjá sjóðn-
um. Íbúðalánasjóður hafi þrátt fyrir
það haldið áfram verðbréfaútgáfu á
árinu, þó svo að sjóðinn hafi ekki vant-
að fjármuni til útlána til að mæta lög-
bundnu hlutverki sínu.
Ekki í nafni áhættustýringar
Í álitsgerð sinni segir Jóhannes
Sigurðsson að lánasamningar Íbúða-
lánasjóðs við fjármálafyrirtæki upp-
fylli ekki skilyrði laga og reglugerða
um eigna- og áhættustýringu. „Sam-
kvæmt reglunum er sjóðnum heimilt
að eiga viðskipti með eigin verðbréf
og önnur verðbréf í því skyni að stýra
áhættu. Lánasamningarnir uppfylla
ekki skilyrði þess að vera verðbréf.
Samkvæmt ákvæðum lánasamning-
anna eru þeir ekki framseljanlegir en
það er eitt skilgreiningaratriði verð-
bréfa. Að auki getur það ekki talist til
hefðbundinna áhættustýringarað-
ferða að Íbúðalánsjóður veiti lán til
íbúðarkaupa fyrir milligöngu fjár-
málafyrirtækja sem fela í sér meiri
áhættu en almenn lán sjóðsins til
íbúðarkaupa.“
Farið í kringum lagaheimildir
Fjárhæðir íbúðalána, sem liggja að
baki lánasamningum Íbúðalánasjóðs
og fjármálafyrirtækja, eru hærri en
heimildir Íbúðalánasjóðs eru til al-
mennra íbúðalána. Hámarkslán al-
mennra lána Íbúðalánasjóðs eru 15,9
milljónir, en mega skv. lánasamning-
unum vera allt að 25 milljónir króna.
„Með lánveitingunum er því farið með
ólögmætum hætti í kringum laga-
heimildir sjóðsins til íbúðalána,“ segir
Jóhannes og bendir jafnframt á að
endurlán ríkisstofnunar til tiltekinna
fjármálafyrirtækja á fjármunum sem
hún hafi aflað í skjóli ríkisábyrgðar á
skuldbindingum sé ólögmætur ríkis-
styrkur sem brjóti í bága við skuld-
bindingar íslenska ríkisins skv. EES-
samningnum. „Engin rök, hvorki fé-
lagsleg né önnur, styðja slíkar
lánveitingar til tiltekinna fjármálafyr-
irtækja á samkeppnismarkaði. Ekki
er unnt að fallast á þá skoðun að líta
beri á uppgreiðslufé íbúðalána með
öðrum hætti en upphaflegar lántökur
sjóðsins. Uppruni fjárins er sá sami
og þess aflað af Íbúðalánasjóði á
grundvelli ríkisábyrgðarinnar. Við-
koma peninganna hjá lántökum
breytir því ekki að þeirra er aflað á
betri kjörum en aðrir aðilar eiga al-
mennt kost á,“ segir Jóhannes og
ítrekar að endurlán Íbúðalánasjóðs til
fjármálafyrirtækja á fé sem aflað er
með ríkisábyrgð feli í sér samkeppn-
islega hindrun fyrir aðrar lánastofn-
anir sem ekki sé unnt að réttlæta með
tilvísun til almennra hagsmuna.“
Ný álitsgerð lagaprófessors um Íbúðalánasjóð
Útvíkkun á starfsemi ÍLS
stangast á við reglur EES
Morgunblaðið/Ingibjörg
Þegar Íbúðalánasjóður tók til starfa fyrir rétt rúmum 5 árum hóf göngu
sína ný tegund lána sem ætluð voru til að auka möguleika fólks í lægri
tekjuhópum samfélagsins á að eignast nýtt húsnæði.
Meira á mbl.is/ítarefni