Morgunblaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Talsmenn Ísraelshers sögðu
brottflutninga þeirra landnema á
Gaza, sem neitað hafa að fara af fús-
um og frjálsum vilja, ganga vel; að-
gerðir hersins hafi gengið friðsam-
legar fyrir sig en menn höfðu óttast.
Landnemarnir lýstu þó reiði sinni
óspart: „Nasisti! Neitaðu að hlýða
skipunum!“ hrópaði fólkið að her-
mönnunum. „Gyðingar reka ekki
aðra gyðinga frá heimilum sínum,“
TIL harðra átaka kom þegar ísr-
aelskar öryggissveitir tóku að fjar-
lægja íbúa gyðingabyggða á Gaza,
sem ákveðið hefur verið að skuli lok-
að, með valdi í gær. Nokkur þúsund
landnemar á þessu svæði neita að
fara sjálfviljugir og börðust um á
hæl og hnakka þegar her- og lög-
reglumenn drógu þá út af heimilum
þeirra og settu upp í rútur, sem
flytja eiga fólkið til nýrra heim-
kynna.
Mikil spenna ríkir nú í Mið-Aust-
urlöndum enda eru gyðingar, sem
búið hafa í ísraelskum landnema-
byggðum á Gaza, afar reiðir vegna
þeirrar ákvörðunar stjórnar Ariels
Sharons forsætisráðherra að loka
þeim. M.a. voru þrír Palestínumenn,
verkamenn í Shvut Rakhel, sem er
gyðingabyggð á Vesturbakkanum,
skotnir til bana um miðjan dag í gær
og er morðinginn ísraelskur land-
nemi á þessum slóðum.
Sharon segist miður sín
Mahmoud Abbas, leiðtogi Palest-
ínumanna, hvatti palestínska öfga-
hópa til að sýna stillingu; sagði hann
morðin í Shvut Rakhel tilraun til að
skemma og setja strik í reikninginn
hvað varðar lokun landnemabyggða
gyðinga á svæðum Palestínumanna.
Engu að síður brugðust herskáir
Palestínumenn við með því að varpa
sprengju á bækistöð Ísraelshers
sunnarlega á Gaza.
hrópaði fólkið einnig að ísraelsku
hermönnunum.
Sharon sagðist miður sín yfir
myndunum sem borist hafa af því er
gyðingar voru fluttir nauðugir á
brott frá heimilum sínum á Gaza.
„Það er ekki hægt að horfa á þetta
öðruvísi en með tár í augunum,“
sagði hann. En Sharon hvatti land-
nema til að sýna stillingu. „Ekki ráð-
ast á menn og konur í búningum Ísr-
aelshers. Ekki ásaka þá. Ekki gera
þeim þetta verk þungbærara en
þeim er það nú þegar. Ráðist á mig.
Ég ber ábyrgðina á þessu.“
Þetta er í fyrsta skipti sem Ísrael-
ar hverfa frá svæði sem þeir tóku af
aröbum á þessum slóðum fyrir hart-
nær fjörutíu árum. Ekki er vitað
hvenær lokið verður við að rýma
byggðirnar, það verk er talið geta
staðið fram undir helgi.
Landnemar dregnir í
burtu frá heimilum sínum
Ísraeli drap þrjá
Palestínumenn á
Vesturbakkanum
Reuters
Landnemar á Gaza takast á við ísraelska lögreglumenn í gær er þeir hófu að flytja þá með valdi á brott frá heim-
ilum sínum í Gush Katif í Neve Dekalim. Um átta þúsund gyðingar hafa búið í landnemabyggðunum á Gaza.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Bagdad. AP, AFP. | Þrjár bílsprengjur
sprungu í gær á mesta annatíma við
strætisvagnastöð í Bagdad og við
sjúkrahús skammt frá. Létu að
minnsta kosti 43 menn lífið og meira
en 70 slösuðust. 11 menn féllu í
árásum annars staðar í landinu.
Tvær bílsprengjur sprungu með
10 mínútna millibili í Al-Nahda-
hverfinu í miðborginni og sú þriðja
sprakk við Al-Kindi-sjúkrahúsið í
sama hverfi. Haft var eftir lögreglu-
manni, sem var vitni að sprenging-
unum, að þær hefðu augljóslega
verið samhæfðar til að valda sem
mestu manntjóni. Kvaðst hann kom-
ið strax til hjálpar eftir fyrstu
sprenginguna en þá hefði ekki liðið
langur tími þar til síðari sprengjan
sprakk. Sagði hann, að tveir starfs-
bræður hans hefðu síðan látið lífið í
þriðju sprengingunni.
Um 20 bílar, þar á meðal þrír
strætisvagnar, eyðilögðust í spreng-
ingunum og var skelfilegt um að lit-
ast eftir hryðjuverkin, sundurtætt
lík og brak um allt.
Um 1.850 bandarískir
hermenn fallnir
Hryðjuverkin koma í kjölfar hót-
ana al-Qaeda um að drepa alla þá,
sem vinna að því að setja Írak nýja
stjórnarskrá, en illa gengur að ná
samkomulagi um hana. Drög að
henni verða hins vegar að liggja fyr-
ir næstkomandi mánudag.
Skæruliðar drápu í gær sex
íraska hermenn, sem gættu olíu-
leiðslna í Norður-Írak, og fimm
menn voru drepnir annars staðar.
Þá var skýrt frá því í gær, að fimm
bandarískir hermenn hefðu fallið í
vikunni og er þá mannfallið meðal
þeirra komið í um 1.850 frá upphafi
Íraksinnrásar.
AP
Harmi slegnar, íraskar konur eftir hryðjuverkin í Bagdad í gær en sú til
hægri á myndinni missti son sinn. Á fimmta tug manna týndi lífi í árás-
unum í gær og upp undir áttatíu særðust, sumir mjög alvarlega.
Tugir manna
týndu lífi í bíl-
sprengingum
London. AFP. | Ungur Brasilíumaður,
sem var skotinn til bana í London,
grunaður um að vera hryðjuverka-
maður, var ekki að reyna að forðast
lögregluna og hafði í raun verið
handtekinn er hann var skotinn átta
skotum. Kemur þetta fram í skjölum
um rannsóknina, sem lekið var til
bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV.
Sérstök nefnd, sem rannsakar
dauða Charles de Menezes, 27 ára
gamals, brasilísks rafvirkja, vildi í
gær hvorki játa né neita frétt ITV en
samkvæmt henni var atburðarásin
mjög ólík því, sem fram hefur komið
hjá lögreglunni.
Lögreglan skaut Menezes eftir að
Rannsóknarskjöl, sem lekið hefur verið til fjölmiðla,
benda ekki til að hann hafi hagað sér grunsamlega
hann fór inn í jarðlest 22. júlí eða
daginn eftir að fjórir menn reyndu
að endurtaka hryðjuverkin 7. júlí en
þá létu alls 56 menn lífið.
Frásögn lögreglunnar var á þá
leið, að Menezes hefði hagað sér
grunsamlega. Verið í þykkum jakka,
stokkið yfir grindur á Stockwell-
jarðlestastöðinni og hlaupið inn í
lestina. Framburður vitna og ljós-
myndir, sem ITV hefur komist yfir,
segja hins vegar aðra sögu. Sem
sagt þá, að Menezes hafi verið í
þunnum og léttum jakka og gengið í
rólegheitum inn á stöðina, náð sér í
dagblað og gengið í gegnum hliðið
en ekki stokkið yfir það. Þegar hann
sá lestina koma hafi hann hlaupið
við fót og verið sestur eða að setjast
þegar lögreglan tók hann og skaut
til bana.
Ásakanir um
getuleysi og klúður
Fjölskylda Menezes í Brasilíu hef-
ur krafist þess, að allt verði upplýst
um dauða hans
en lögfræðingur
hennar í Bret-
landi, Harriet
Wistrich, sagði í
gær, að aug-
ljóslega hefði
verið um að ræða
vítavert getuleysi
og klúður auk
þess sem fjar-
skipti milli viðkomandi lögreglu-
manna hefðu verið í molum.
„Fyrir það fyrsta verður lög-
reglan að viðurkenna, að sú saga
hennar, sem skýrt var frá í fréttum,
var alröng. Það var ekkert, sem
gerði Menezes grunsamlegan,“
sagði Wistrich.
John ÓConnor, fyrrverandi for-
ingi í Lundúnalögreglunni, sagði í
gær í viðtali við breska rík-
isútvarpið, BBC, að fréttin í ITV
myndi koma Sir Ian Blair, yfirmanni
lögreglunnar í borginni, í „mikla
klípu“ og líklega yrði lagt að honum
að segja af sér.
Hvorki Scotland Yard né breska
innanríkisráðuneytið vildu nokkuð
segja um málið í gær.
Charles de
Menezes
Vefengja sögu lögreglu um dauða Brasilíumanns
Dhaka. AFP. | Meira en 350 sprengj-
ur sprungu á sama klukkutímanum
víðs vegar um Bangladesh í gær
með þeim afleiðingum að tveir biðu
bana og fimmtíu særðust. Sprengj-
urnar voru kraftlitlar en þær
sprungu í næstum öllum 64 helstu
borgum og bæjum landsins, þ.m.t.
höfuðborginni Dhaka.
Aukinn öryggisviðbúnaður
Fimmtán manns voru handtekin í
tengslum við sprengjutilræðin en
lögregla taldi íslömsk öfgasamtök,
Jamayetal Mujahideen, standa á
bak við þær. Starfsemi þeirra og
annarra harðlínusamtaka, Jagrata
Muslim Janata Bangladesh, var
bönnuð í febrúar vegna meintra
tengsla þeirra við sprengjutilræði í
landinu. Hafa yfirvöld nú gripið til
hertra öryggisráðstafana í kjölfar
atburðanna í gær.
Yfirvöld hvöttu landsmenn til að
sýna stillingu. „Þetta voru litlar,
heimatilbúnar sprengjur og þeim
var ætlað að valda ótta,“ sagði Ab-
dul Kaiyum, yfirlögreglustjóri
Bangladesh.
Reuters
Sprengju-
árásir í
Bangladesh
Róm. AFP. | Yfirvöld á Ítalíu sögðu í
gær að þau myndu framselja Hamdi
Isaac, breskan ríkisborgara af eþíóp-
ískum ættum, til
Bretlands innan
þrjátíu og fimm
daga en Isaac er
grunaður um að-
ild að misheppn-
uðum hryðju-
verkum í London
21. júlí sl.
Isaac er 27 ára
og gengur einnig
undir nafninu
Osman Hussain. Hann yfirgaf Lond-
on 26. júlí og fór þaðan til Rómar,
með viðkomu í París og Mílanó.
Hann var handtekinn í Rómarborg
29. júlí en þar á hann bróður. Lög-
maður Isaacs hefur sagt að hann
muni verjast framsali til Bretlands.
Verður fram-
seldur til
Bretlands
Hamdi Isaac
♦♦♦