Morgunblaðið - 18.08.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 41
DAGBÓK
Ragnar Tómas Árnason er aðalritari þrí-tugasta og sjöunda norræna lögfræði-þingsins sem hefst í Reykjavík í dag.Auk hans komu að undirbúningi ráð-
stefnunnar þær Guðrún Erlendsdóttir, hæstarétt-
ardómari og formaður Íslandsdeildar norrænu
lögfræðingaþinganna, og Erla Jónsdóttir hrl. rit-
ari deildarinnar.
Fyrsta þingið af þessu tagi var haldið í Dan-
mörku árið 1872 en að jafnaði eru þingin haldin á
þriggja ára fresti í einhverju Norðurlandanna:
„Það má segja að fyrstu 100 árin hafi lunginn af
norrænum lögfræðingum sótt þessi þing, en síðan
hefur fjölgað í stéttinni og í dag má halda því fram
að það sé rjóminn af lögfræðingum Norðurlanda
sem sækir þingin,“ segir Ragnar. „Í gegnum tíð-
ina hafa þessir fundir verið afskaplega mik-
ilvægur vettvangur fyrir norræna lögfræðinga til
að skiptast á upplýsingum, reynslu og skoðunum
og iðulega orðið til á þingunum vísir að lagalegu
samstarfi milli landa.“
Ráðstefnan stendur 18. til 20. ágúst og fer fram
í Háskólabíói og Hótel Sögu. Á þinginu verður
fjallað um 24 efni sem skipt hefur verið í níu efn-
isflokka: ábyrgð og bætur, lögfræðilegar aðferðir,
vinnu, fjölskyldu, grundavallarréttindi, opinbera
geirann, réttarfar, refsingu og loks málefni nú-
tímans. Fyrirlesarar eru ríflega 70 talsins og þátt-
takendur um 1.100, flestir frá Norðurlöndunum
en einnig gestir frá. Bandaríkjunum, Þýskalandi,
Frakklandi og Japan en skandinavíska er þó
vinnumál ráðstefnunnar. Meðal gesta á ráðstefn-
unni verða Ólafur Ragnar Grímsson forseti Ís-
lands og ráðherrarnir Björn Bjarnason og Val-
gerður Sverrisdóttir.
„Margt hefur verið að breytast á síðustu árum
og áratugum: samgöngur og fjarskiptatækni og
ekki síst evrópska samvinnan sem farin eru að
móta starf lögfræðinga. Þingin hafa stundað vissa
naflaskoðun og sem dæmi má nefna að á síðasta
þingi, sem haldið var í Helsinki, var gildi norræns
lögfræðisamstarfs rætt. Pallborðsumræður loka-
þingsins í þetta skipti snúast einnig um þetta efni:
hvort við getum skilgreint norræna lögfræði sem
eitthvað sérstakt fyrirbrigði þegar litið er til allr-
ar þeirrar löggjafar sem berst frá Evrópusam-
bandinu inn í okkar réttarkerfi. Niðurstaðan af
þessum umræðum hefur hingað til verið sú að, –
já, við höfum ennþá mjög mikla sérstöðu. Bæði
vegna þess að lagabálkarnir okkar hvíla á gömlum
grunni og við höfum svipað gildismat og sýn á
hlutina. Svo það er kannski ekki hvað síst mik-
ilvægt á þessum tímum að norrænu löndin taki
höndum saman, stilli saman strengi sína og reyni
jafnvel að tala einni röddu á alþjóðavettvangi.“
Lögfræði | Þrítugasta og sjöunda Norræna lögfræðingaþingið haldið í Reykjavík
Fjölbreytt umræða um lagamál
Ragnar Tómas Árna-
son fæddist í Reykjavík
árið 1970. Hann útskrif-
aðist frá MR 1989 og
lauk embættisprófi í lög-
fræði frá Háskóla Ís-
lands 1995 og öðlaðist
héraðsdómslögmanns-
réttindi 1996. Árið
2004 lauk hann meist-
aranámi í lögum (LL.M)
frá Harvard Law School.
Ragnar starfaði hjá A&P
lögmönnum og síðar Logos lögmannaþjónustu
frá 1995 til 2001 og hefur verið meðeigandi að
Logos frá 2001. Ragnar hefur sinnt ýmsum
kennslustörfum og er aðjúnkt við lagadeild HÍ.
Hann er kvæntur Freyju Ingimarsdóttur píanó-
kennara og eiga þau tvö börn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Rétt er rétt –
deilur í Garðasókn
ÉG, sem fundarstjóri fundar sem
stuðningsmenn séra Hans Mark-
úsar Hafsteinssonar boðuðu til 13.
júlí sl., sé ástæðu til að leiðrétta
„Sóknarbarn í Garðabæ“ sem skrif-
ar í Velvakanda föstudaginn 12.
ágúst sl.
Það er ekki rétt að fundarstjóri
hafi byrjað á að tilkynna að einungis
væri ætlast til að stuðningsmenn
sóknarprestsins tjáðu sig á fund-
inum, aðrir ekki. Það rétta er að
fundarstjóri bað fundarmenn að
sýna fundinum jafnmikla virðingu
og stuðningsmenn séra Hans Mark-
úsar hefðu sýnt þegar sóknarnefnd
boðaði til fundar 28. apríl sl. þar sem
stuðningsmenn sóknarprestsins,
héldu sig til hlés þrátt fyrir að ærin
ástæða hefði verið til að svara þeim
ávirðingum sem á sóknarprestinn
voru bornar.
Engum var meinað að tjá sig á
fundinum eins og fullyrt var hjá
bréfritara sem ekki þorir að koma
fram undir nafni. Allir voru boðnir
velkomnir á þennan fund og var
enginn rekinn úr ræðustól. Það geta
þeir tæplega þrjú hundruð manns
borið vitni um sem sóttu þennan
fund.
Það verður að segjast eins og er
að það var himnasending af fá þessa
aðila. Voru þeir útsendarar for-
manns sóknarnefndar á fundinum?
Hlutverk þeirra var sjálfsagt að
reyna að eyðileggja þennan fjöl-
menna fund og verð ég að taka und-
ir það með bréfritara þegar hann
dáist að þeim fyrir að hafa kjark til
að mæta á fundinn. Því málflutn-
ingur þeirra var ómálefnanlegur,
dónalegur, þannig að fund-
armönnum ofbauð. Þarna kom ber-
lega í ljós á hvaða plani þeirra mál-
flutningur hefur verið í þessu máli.
Málflutningur stuðningsmanna
séra Hans Markúsar Hafsteins-
sonar hefur alltaf verið með þeim
hætti að við getum staðið við allt það
sem við höfum sent frá okkur og
þurfum ekki að skammast okkur
fyrir ljót orð sem erfitt verður að
taka til baka og bæta fyrir.
Undirrituð hefur ekki átt í nein-
um persónulegum deilum við neinn í
sókninni heldur hefur reynt að
leggja sitt á vogarskálarnar til að
deila þessi leysist á þann hátt að
skaðinn verði sem minnstur fyrir
sóknina og kristilegt safnaðarstarf
geti farið fram innan sókninnar.
„Syngjum Drottin nýjan söng“ eins
og segir í tilkynningu frá prestunum
í Garðasókn þegar þeir auglýsa
messuna nk. sunnudag.
Virðingarfyllst,
Bjarndís Lárusdóttir.
Stoppistöð við Sæbraut
Í MORGUNBLAÐINU 10. ágúst sl.
segir Jórunn Frímannsdóttir í grein
sinni um strætó að ekki séu lengur í
boði unglingafargjöld. Ég er nýbúin
að kaupa svona unglingamiða, í júlí,
en það hefur kannski verið hætt að
selja þá eftir það.
Svo langar mig að koma að at-
hugasemd um stoppistöð sem er við
gatnamót Sæbrautar og Skútuvogs
við bílaþvottastöðina. Það er í raun-
inni engin leið að komast að þessari
biðstöð ef fara á niður í bæ nema
fara yfir stórhættuleg ljós þar sem
engin gangbrautarljós eru og vaða
yfir lóðir hjá blokkunum. Þarna er
ekkert skýli og fólk stendur óvarið
með gras allt í kring.
Sigrún.
Snotra er týnd
SNORTRA er innikisa sem týndist
frá Logafold í Grafarvogi 13. ágúst
sl. Hún er svört og hvít, með svarta
hálsól og eyrnamerkt. Hún er stygg
og ekki víst að hægt sé að ná henni.
Þeir sem gætu gefið upplýsingar um
Snotru eru beðnir að hafa samband í
síma 820 2033.
Kisa í óskilum í Kópavogi
GULBRÖNDÓTTUR fressköttur,
með hvítt trýni, hvíta bringu, kvið,
fætur og rendur á skotti, ekki full-
vaxta. Ómerktur. Fannst svangur og
þreyttur við Furugrund í Kópavogi
13. ágúst sl. Mjög mannelskur og
skemmtilegur. Uppl. í síma
564 5133, 867 8043 og 691 6038.
70 ÁRA afmæli. 20. ágúst nk. verð-ur sjötugur Halldór Ingi Hall-
grímsson, Njörvasundi 15, Reykjavík.
Demantsbrúðkaup | Í dag, 18. ágúst,
eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin
Sigrún Haraldsdóttir og Hjörtur Har-
aldsson, Kleppsvegi 62, Reykjavík.
Þau voru gefin saman af séra Haraldi
Jónassyni í Kolfreyjustaðarkirkju, Fá-
skrúðsfirði. Þau eru stödd erlendis.
HM ungmenna.
Norður
♠D84
♥K87 V/AV
♦KDG8765
♣--
Vestur Austur
♠G106532 ♠9
♥DG6 ♥953
♦109 ♦Á42
♣G5 ♣ÁD10984
Suður
♠ÁK7
♥Á1042
♦3
♣K6532
Þrjú grönd er vonlítill samningur í
NS, en það er erfitt að stýra sögnum
í annan farveg og komast í geim í
rauðum lit. Frönsku Grenthe-
bræðrunum tókst það ekki í leiknum
við Pólverja á HM ungmenna:
Vestur Norður Austur Suður
Araskiewicz J. Grenthe Buras G. Grenthe
Pass 1 tígull 2 lauf Dobl *
Pass 2 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Dobl suðurs á tveimur laufum er
neikvætt og þegar norður end-
urmeldar tígulinn stekkur suður í
þrjú grönd. Eðlilegt og skiljanlegt, en
ekki að sama skapi gæfulegt, enda fór
spilið snarlega tvo niður eftir laufgos-
ann út.
Pólverjinn á hinu borðinu lét ekki
lengdina í lauflitnum trufla sig:
Vestur Norður Autsur Suður
T. Bessis Kalita Gaviard Kotorowicz
Pass 1 tígull 2 lauf Pass
Pass 2 tíglar Pass 3 lauf *
Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Kotorowicz passaði fyrst, sennilega
í þeirri von að makker myndi endur-
opna með dobli. En þegar norður
sagði tígulinn aftur ákvað Kotorowicz
að krefja í geim með þremur laufum
og segja svo hjarta á fjórlitinn. Norð-
ur hækkaði í fjögur hjörtu og þar við
sat.
Vestur kom út með spaðagosa, sem
sagnhafi tók heima og spilaði tígli.
Austur átti slaginn á tígulás og skipti
yfir í laufás. Það flækti ekki málin
fyrir sagnhafa. Hann trompaði, próf-
aði hátígul, en spilaði svo hjarta
þrisvar. Þegar liturinn féll 3-3 voru
11 slagir í húsi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa-
vinna kl. 9–12, boccia kl. 9.30, leikfimi
kl. 11, smíði/útskurður kl. 13–16.30,
hjólahópur kl. 13.30, púttvöllur kl. 10–
16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Handavinna, böð-
un, hárgreiðsla, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 11.15–12.15 matur.
Ferðaklúbbur eldri borgara | 23.
ágúst er dagsferð í Landmannalaug-
ar. Uppl. í síma 892 3011.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Berjaferð „út í bláinn“
fimmtudaginn 25. ágúst. Brottför frá
Gullsmára kl. 13.15 og Gjábakka kl.
13.30. Ekin Krýsuvíkurleið í Selvog en
þar mun vera gott berjaland. Kaffi-
hlaðborð á „Hafinu bláa“. Ekin leiðin
Alviðra–Nesjavellir. Gefi ekki til berja
verður farið í skemmtilega útsýn-
isferð „út í bláinn“ Skráningarlistar í
félagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13. Dagsferð 30. ágúst:
Krýsuvík, Selvogur, Flóinn. Komið við
í Krýsuvík, Herdísarvík, Strand-
arkirkju og Þorlákshafnarkirkju, söfn-
in og kirkjan á Eyrarbakka skoðuð,
stoppað hjá Þuríðarbúð á Stokkseyri,
farið að Rjómabúinu á Baugsstöðum.
Uppl. og skráning í síma 588 2111.
Félag kennara á eftirlaunum | Ferðin
í Fjörður og Flateyjardal miðvikudag-
inn 24. ágúst kl. 9 frá Umferð-
armiðstöðinni á Akureyri. Skráning
hjá KÍ í 595 1111.
Félagsstarf Gerðubergs | Brids í dag
kl. 13. Dagsferð 30. ágúst: Krýsuvík,
Selvogur, Flóinn. Komið við í Krýsu-
vík, Herdísarvík, Strandarkirkju og
Þorlákshafnarkirkju, söfnin og kirkjan
á Eyrarbakka skoðuð, stoppað hjá
Þuríðarbúð á Stokkseyri, farið að
Rjómabúinu á Baugsstöðum. Uppl. og
skráning í síma 588 2111.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi–spjall–
dagblöðin, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
pútt og boccia, kl. 12 hádegismatur,
kl. 14 félagsvist, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Bingó kl. 13.30. Pútt á Vallarvelli kl.
14–16.
Hvassaleiti 56–58 | Boccia kl. 10–11.
Böðun virka daga fyrir hádegi. Há-
degisverður. Félagsvist kl. 13.30, kaffi
og nýbakað.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Púttvöllur er alltaf opinn.
Morgunkaffi, hádegisverður og síð-
degiskaffi. Gönguhópurinn Sniglarnir
10–11. Sönghópur 13.30. Snæfells-
nesferð í dag. Brottför 9. Enn hægt
að leggja fram hugmyndir og stofna
hóp fyrir haustönnina. Uppl á staðn-
um og í síma 568 3132.
Norðurbrún 1, | Námskeið hefst aftur
í leirvinnslu miðvikudaginn 31. ágúst
kl. 9. Myndlist verður á mánudögum
kl. 9–12 og postulínsmálning kl. 13–
16.30. Á föstudögum verður myndlist
kl. 9–12, innritum í sima 568 6960.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14 aðstoð v/
böðun. Kl. 9.15–15.30 handavinna. Kl
11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 14.30–
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, handavinnustofan opin, hár-
greiðslu- og fótaaðgerðastofan opn-
ar, böðun, frjáls spil.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar– og fyr-
irbænastund kl. 12.
Garðasókn | Kyrrðar–og fyrirbæna-
stund kl. 22. Tekið er við bæn-
arefnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Eld-
urinn, samvera kl. 21. Lofgjörð, vitn-
isburðir og kröftug bænastund. Allir
velkomnir. www.gospel.is.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Milljónaútdráttur
Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
8. flokkur, 17. ágúst 2005
Kr. 1.000.000,-
1217 G
14168 B
15560 F
15634 E
16036 F
23272 F
40085 B
41008 H
44503 H
51004 B