Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.lyfja.is - Lifið heil VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR - ALDREI OF SEINT! Vectavir FÆST ÁN LYFSEÐILS Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. ÍS LE N SK A AU GL †S IN GA ST OF AN /S IA .I S L YF 2 84 55 06 /2 00 5 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi – Laugarási ÍSLENSKT skyr, blandað dönsku plómusírópi, verður meðal matvæla á stórri matarhátíð í Tívolíinu í Kaupmannahöfn um helgina og fram í næstu viku. Kynningin verð- ur á bás dönsku veitingahúsakeðj- unnar Meyers Madhus og er af- rakstur markaðsfyrirtækisins Agrice, sem er í 67% eigu MS/ MBF, áður Mjólkursamsölunnar og Mjólkurbús Flóamanna. Agrice hefur einnig samið við mjólkursamlag á Jótlandi um fram- leiðslu á íslensku skyri undir vöru- merkinu skyr.is og svipaðir samn- ingar eru í höfn við mjólkursamlag í Skotlandi. Þar hefst framleiðsla fyrir næstu áramót og markaðs- setning fer af stað í kjölfarið á Bretlandseyjum. Þá eru áform um sölu á skyrinu og framleiðslurétti þess í fleiri löndum. Skúli Böðvarsson, framkvæmda- stjóri Agrice, hefur síðustu daga verið að undirbúa kynninguna í Tív- olíinu og hjálpað dönskum mat- reiðslu- og ostameisturum að blanda íslenska skyrið saman við danskt plómusíróp. Einnig verður sérstök skyrdressing notuð út á grænlenskt lamba- og uxakjöt á matarkynningunni. Að henni lokinni verður unnið að því að koma íslensk-danska skyrinu í neytendaumbúðir en í sjálfa kynn- inguna voru send út 250 kíló af skyri frá Íslandi. Mikilvæg kynning Skúli segir að til að byrja með verði skyrið flutt til Danmerkur frá Íslandi á meðan verið er að finna réttu bragðefnin. Veitingahús hafi sýnt mikinn áhuga á að hafa ís- lenskt skyr á matseðlum sínum. Kynningin í Kaupmannahöfn næstu daga sé gríðarlega mikilvæg, enda fer jafnan mikill mannfjöldi í gegn- um skemmtigarðinn á þessum árs- tíma. „Við höfum undanfarin fjögur ár verið að tryggja okkur einkaleyfi á skyrinu og ákveðna sérstöðu á markaðnum. Agrice á vörumerkið skyr.is og uppskriftir að skyri um allan heim,“ segir Skúli og bætir við að Agrice hafi tryggt góða dreifingu á skyrinu, sér í lagi á Bretlandseyjum þar sem markaður- inn er gríðarstór, um 60 milljónir manna. Íslenskt skyr á markað í Danmörku og Bretlandi Skyrið kynnt á stórri matarhátíð í Tívolí í Kaupmannahöfn næstu daga Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is NÍTJÁN athugasemdir bárust Skipulagsstofnun vegna tillögu að mati á umhverfisáhrifum álvers Al- coa Fjarðaáls á Reyðarfirði, en frestur til að skila athugasemdum rann út í vikunni. Áður en stofnunin tekur ákvörð- un um tillögu að matsáætlun ber henni að leita umsagnar leyfisveit- enda og eftir atvikum annarra op- inberra aðila. Aðrir geta jafnframt kynnt sér tillögurnar og lagt fram athugasemdir. Skipulagsstofnun hefur nú frest fram til 29. ágúst nk. til að ákveða hvort fallist verður á fyrirliggjandi tillögu. Alcoa Fjarða- ál sendi Skipulagsstofnun drög að matsáætluninni um miðjan júlí sl. Er þar áætluð ársframleiðsla ál- versins allt að 346 þúsund tonnum, en áður var gert ráð fyrir 322 þús- und tonnum. Hólmfríður Sigurðardóttir, sviðs- stjóri umhverfissviðs Skipulags- stofnunar, sagði í samtali við Morg- unblaðið að ákvörðunar Skipu- lagsstofnunar væri að vænta um næstu mánaðamót. „Nú fer Skipu- lagsstofnun yfir þau gögn sem hafa borist í málinu, sem eru ásamt til- lögunni grundvöllur að ákvörðun okkar,“ sagði Hólmfríður. „Í kjölfar ákvörðunartöku, segjum sem svo að við samþykkjum þetta, fer fram- kvæmdaaðili og metur það sem hann þarf að gera samkvæmt þess- ari áætlun. Þetta er n.k. uppskrift að því hvernig á að meta fram- kvæmdina. Svo fáum við mats- skýrslu í hendur.“ 9. júní sl. dæmdi Hæstiréttur fyrri ákvarðanir um að undanskilja verksmiðjuna umhverfismati ólög- mætar. Meðal þeirra sem sendu inn at- hugasemdir og ábendingar nú eru Náttúruverndarsamtök Austur- lands, Náttúruvaktin, Landvernd, Hjörleifur Guttormsson og Guð- mundur Beck, stofnanir og fleiri að- ilar er sinna lögbundnum verkefn- um. Athugasemdir snúa einkum að lagalegri stöðu starfsleyfis fyrir framkvæmdunum á Reyðarfirði, mengunarvörnum og hreinsibúnaði væntanlegs álvers, samfélagsáhrif- um og eignarhaldi á landi. Nítján athugasemdir bárust vegna álvers á Reyðarfirði Ákvörðunar að vænta um mánaðamótin VESTFJARÐASUND Benedikts S. Lafleur sjó- sundmanns hefst sunnudaginn 21. ágúst í Gilsfirði og stefnir hann að því að synda yfir þrjá firði þann dag, sem og næstu daga á eftir, allt þar til hann lýkur sundinu í Bitrufirði 3. september. Synt verður yfir alla Vestfirðina að Ströndum undanskildum en markmiðið með sundinu er að vekja athygli almennings á þeim umhverf- isperlum sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða, sem og kröftugu menningarstarfi Vestfirðinga í heimabyggð. Sjósundinu er einnig ætlað að vekja athygli á íþróttinni sjálfri auk annarrar útiveru s.s. kajak- róðri, náttúrulífsskoðun og fleiru. Benedikt segir leiðina tæplega 40 km langa og yfir 34 firði að fara. „Það ber helst að varast strauma í þessari ferð og ég kem til með að synda á mýktinni og tækninni í stað þess að þeysast áfram,“ segir Benedikt. „Ég vil líka njóta útiver- unnar því að þetta er óður til náttúrunnar.“ Í för með sundkappanum eru aðstoðar- og fylgdarmennirnir Jón K. Guðbergsson, Björn Samúelsson fylgdarmaður og Guðjón Ágúst Krist- insson. Benedikt Lafleur sundkappi ætl- ar að synda yfir alla Vestfirðina Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson                               !            "  #  $   & ' # (    ) * +  +         +    ,   + ' -  +  !         & '    .     ÞEGAR nýr leikskóli í Grafarholti tekur til starfa um miðjan september er útlit fyrir að hægt verði að bjóða öllum reykvískum börnum, átján mánaða og eldri, leikskóladvöl í ein- hverjum leikskóla borgarinnar, sögðu þau Stefán Jón Hafstein, for- maður menntaráðs Reykjavíkur- borgar, og Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavík- urborgar, á blaðamannafundi í gær. Til að þetta markmið náist þarf hins vegar að manna alla leikskóla Reykjavíkur fyrir haustið. Enn vant- ar á annað hundrað starfsmenn, að sögn Stefáns Jóns. Hann segir þenn- an vanda þó árvissan og unnið sé að því þessa dagana að leysa hann. Mestur er vandinn í Grafarvogi. Stefán Jón segir að þenslan á vinnumarkaðinum geti m.a. skýrt mannekluna í leikskólum borgarinn- ar, en auk þess sé alltaf mikil starfs- mannavelta á haustin. „Einnig er mikill skortur á leikskólakennurum í landinu,“ segir hann og bætir því við að á sama tíma sé verið að vísa fólki frá leikskólakennaranámi. Um 6.000 börn eru nú í leikskólum Reykjavíkurborgar, skv. upplýsing- um menntasviðs borgarinnar, en það er fjölgun um 200 frá því í fyrra. Um 2.000 manns vinna á leikskólum borgarinnar. Um fjörutíu prósent þeirra eru leikskólakennarar en sex- tíu prósent ófaglærðir. Öll 18 mán- aða börn eiga að fá leik- skólapláss ♦♦♦ BÚAST má við suðvestanstrekkingi, um 8–10 metrum á sekúndu, á degi menningarnætur í Reykjavík. Að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verða auk þess einhverjar skúraleiðingar yfir daginn og þá einna helst þegar á líður. Jafnframt má búast við mjög svipuðu veðri í dag og í kvöld. Lægð er yfir landinu og verður hún næstu daga og er því spáð að veðrið verði afar svipað á morgun, sunnudag. Hitastigið á höfuðborgarsvæðinu í dag verður á bilinu 8–14 gráður. Öllu hlýrra verður á N-Austurlandi en hiti þar verður 15–20 gráður í dag. Sunnanstrekk- ingur og skúra- leiðingar í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.