Morgunblaðið - 20.08.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 9
FRÉTTIR
Eddufelli 2, Bæjarlind 6,
sími 557 1730 sími 554 7030
Útsala í Eddufelli
slár
500-1000-1500
-----------------
Nýjar vörur í Bæjarlind
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18
lau. kl. 10-15
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Nýjar haustvörur
Glæsilegar buxnadragtir
Ný
sending
af
Kringlunni,
sími 588 1680
iðunn
tískuverslun
buxum
Bankastræti 9, sími 511 1135
www.paulshark.is - paulshark.it
Útsala - Útsala - Útsala - Útsala
Komdu inn
og gerðu góð kaup
Verslunin lokar 10. september
Opnum netverslun í nóvember
Gullsmiðja Hansínu Jens
Íslenskt handverk, smíðað af
Hansínu og Jens Guðjónssyni
Laugavegi 42 • sími 551 8448
Menningarnótt
15% afsl.
af silfur
hringum
Barna- og dömustígvél
Stærðir frá 21 – 42
Verð frá 5.300 – 5.900 kr.ÍSLENSK sendinefnd kom fyrir
nefnd Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um
afnám kynþáttamisréttis í Genf dag-
ana 10. og 11. ágúst síðastliðinn.
Fjallað var um 17. og 18. skýrslu Ís-
lands um framkvæmd alþjóðasamn-
ings um afnám alls kynþáttamisréttis.
Mannréttindaskrifstofa Íslands
skilaði viðbótarskýrslu við skýrslu
stjórnvalda til nefndar SÞ og átti fund
með sérfræðingum hennar þar sem
hún lagði áherslu á nauðsyn þess að
stjórnvöld kæmu á heildstæðri stefnu
í málefnum fólks af erlendum upp-
runa. Athygli var vakin á jákvæðri
þróun útlendingalöggjafar en einnig á
helstu annmörkum hennar. Að sögn
Guðrúnar D. Guðmundsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Mannréttindaskrif-
stofu Íslands, er talið jákvætt að sett
hafi verið heildstæð lög um útlend-
inga og að margt í þeim sé fallið til að
bæta stöðu þeirra hér á landi.
„Hins vegar eru annmarkar á lög-
unum og því miður hafa varhugaverð
nýmæli verið kynnt til sögunnar,“
segir Guðrún. „Þar má nefna aldurs-
skilyrði fyrir dvalarleyfi til handa að-
standendum og opna heimild til að
krefjast lífsýna af umsækjendum
dvalarleyfa.“
Óskýr svör stjórnvalda
Mannréttindaskrifstofan mælti
fyrir gagnsæi í meðferð hælisum-
sókna, birtingu úrskurða og lagði
áherslu á mikilvægi þess að umsækj-
endur ættu kost á að áfrýja úrskurð-
um til óháðs yfirvalds. Þá var lýst yfir
áhyggjum af vísbendingum um að
kynþáttafordómar séu að færast í
aukana, fækkun viðurkenndra flótta-
manna á Íslandi, háu brottfalli fram-
haldsskólanema af erlendum uppruna
og því fyrirkomulagi að veita atvinnu-
rekendum en ekki starfsmönnum
sjálfum bráðabirgðaatvinnuleyfi.
Skrifstofan vakti einnig athygli á
þeirri ákvörðun yfirvalda að draga úr
opinberum stuðningi við starfsemina,
sérstaklega í ljósi fyrri skýrslna þar
sem stuðningur við skrifstofuna er
talinn yfirvöldum til tekna á mann-
réttindasviðinu. Nefndarmenn SÞ
lýstu furðu sinni á þessari ákvörðun
yfirvalda, að sögn Guðrúnar.
Jákvætt og
neikvætt í
skýrslu um
afnám kyn-
þáttamisréttis