Morgunblaðið - 20.08.2005, Side 11
Eykur öryggi eyjar-
skeggja til mikilla muna
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra vígði nýja flugbraut og
vélageymslu í Grímsey við hátíðlega
athöfn í gær að viðstöddu fjölmenni,
m.a. ráðherrum, þingmönnum,
fulltrúum flugmálastjórnar og Flug-
félags Íslands. Einnig var ljósabún-
aður endurnýjaður en heildarkostn-
aður við framkvæmdir á
Grímseyjarflugvelli er um 142 millj-
ónir króna. Á þessu ári eru einmitt
50 ár frá því lokið var við gerð fyrsta
flugvallarins í eynni en framkvæmd-
ir við hann hófust árið 1953.
Vígslunni í gær seinkaði um viku,
þar sem ekki var þá flugfært til
Grímseyjar vegna þoku. Fram kom í
máli samgönguráðherra að þótt í
mörg horn væri að líta á vettvangi
samgöngumála hefði verið rík
ástæða til þess að gera ráð fyrir því í
samgönguáætlun að byggja upp
flugvöllinn í Grímsey.
„Það er mjög kjarkmikið fólk sem
nýtir náttúruauðlindir héðan frá
Grímsey og þetta ágæta fólk hefur
sýnt það og sannað að það er rík
ástæða til þess af hálfu samfélagsins
að byggja upp þjónustu til þess að
auðvelda búsetu hér og þess vegna
erum við hér í dag.“
Sturla sagði að eyjarskeggjar
drægju mikla björg í bú, sköpuðu
heilmikil verðmæti úr sjávarfangi og
byggðu upp ferðaþjónustu. „Með
sama hætti gerum við ráð fyrir því
að endurnýja ferjuna Sæfara, sem
siglir hingað til Grímseyjar. Og nú er
alveg á næsta leiti að kaupa nýja
ferju, þannig að ég tel að á næstu ár-
um sé vel fyrir samgöngum séð við
Grímsey.“
Brynjólfur Árnason, oddviti
Grímseyjarhrepps og starfsmaður
flugmálastjórnar, sagði að endur-
bæturnar á flugvellinum skiptu máli
fyrir heimamenn. „Þessi breyting
mun auka öryggi flugs til eyjarinnar
til mikilla muna og þá ekki síst varð-
andi sjúkraflug. Nýi ljósabúnaður-
inn gerir kleift að fljúgja hingað í
verri veðrum en áður. Þá geta stærri
vélar lent hér og flutt enn fleiri
ferðamenn. En fyrst og fremst er
það öryggisþátturinn sem skiptir
mestu máli, því okkar sjúkrabíll er
flugvél,“ sagði Brynjólfur.
Ný flugbraut og vélageymsla vígð í Grímsey
Morgunblaðið/Kristján
Sturla Böðvarsson vígði nýja flugbraut og vélageymslu í Grímsey í gær og naut aðstoðar Þorgeirs Pálssonar flug-
málastjóra við verkið. Úti á flugvallarsvæðinu standa flugvél Flugmálastjórnar og Fokker-flugvél Flugfélagsins.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 11
FRÉTTIR
OUTLET DAGAR
FIMMTUDAG TIL SUNNUDAGS
Kringlunni - sími 581 2300
60-80%
AFSLÁTTUR AF ALLRI SUMARVÖRU
RÝMUM FYRIR GLÆSILEGRI HAUST- OG VETRARVÖRU
KVÍÐANÁMSKEIÐ
Ásmundar Gunnlaugssonar
„Ég reyni að opna augu fólks fyrir því, að
eitthvað sem er sársaukafullt og erfitt getur
verið blessun í dulargervi. Það er hægt að
nota það sem á dynur á uppbyggjandi hátt.”
Sjá nánar á www.jogaskolinn.is
Hefst 23. águst - Þriðjud. og fimmtud. kl. 20
S K Ó L I N N
Skeifan 3,
Reykjavík
Skráning í símum 862 5563 og 862 5560
eða á www.jogaskolinn.is
Komið og skoðið „nýju haustvörurnar“
Stórglæsilegar dragtir og yfirhafnir
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
segist hafa gaman af því að fylgj-
ast með Reykjavíkurlistanum
þessa dagana, þar sem hver flokk-
urinn keppist við að vera sammála
Sjálfstæðisflokknum og breyta
ákvörðunum sem borgarfulltrúar
R-listans vörðu fyrir aðeins fáein-
um dögum.
Í frétt Morgunblaðsins í gær
sagði frá því að Stefán Jón Haf-
stein, formaður menntaráðs, hefði
tekið vel í tillögu Alfreðs Þor-
steinssonar þess efnis að fallið
yrði frá fyrirhuguðum hækkunum
leikskólagjalda þar sem annað for-
eldrið er í námi,
en breytingin
átti að koma til
framkvæmda 1.
september.
Guðlaugur Þór
kallar framgöngu
borgarfulltrúa
Reykjavíkurlist-
ans farsa.
„Á fundi
menntaráðs 20.
apríl sl. lögðum við til að þessar
hækkanir yrðu dregnar til baka,
en þeirri tillögu var nú bara
stungið undir stóra stólinn,“ seg-
ir Guðlaugur.
„Keppast við að vera sam-
mála Sjálfstæðisflokknum“
Guðlaugur Þór
Þórðarson
„ÉG FÆ ekki
betur séð en að
við hljótum öll að
styðja hana, þetta
er góð tillaga,“
segir Árni Þór
Sigurðsson, borg-
arfulltrúi R-
listans og flokks-
maður Vinstri-
grænna, um þá
tillögu Alfreðs
Þorsteinssonar borgarfulltrúa að
fallið verði frá hækkunum leikskóla-
gjalda. Árni telur tillöguna ekki vera
tilefni til ágreinings innan flokksins.
„Það geta einhverjir verið ósáttir við
hvernig þetta ber að en ég held að
það þurfi ekki að vera neinn ágrein-
ingur um þetta mál því þetta er
ágætismál,“ segir Árni.
Samflokksmaður Árna, Björk Vil-
helmsdóttir, segir ljóst að tillagan
verði tekin til skoðunar. Hún segir
að vitað hafi verið af óánægju stúd-
enta en breytingarnar hafi verið
settar á vegna þess að mikill fjöldi
foreldra var kominn í annan flokk
leikskólagjaldskrárinnar. „Það er
orðið svo algengt að fólk sé í hluta-
námi með vinnu. Allur sá hópur
flokkaðist í þennan gjaldskrárflokk
og það kallaði á breytingar. Hvort
þær breytingar hafa verið of róttæk-
ar er nokkuð sem við verðum að
skoða.“
Björk segir ljóst að með tillögunni
sé Alfreð að gera sína sérstöðu sýni-
legri innan flokksins. „Alfreð er
keppnismaður og hann vissi hvar
væri best að skora,“ segir hún.
„Tímabær og góð tillaga“
„Mér finnst tillaga Alfreðs feikna-
lega góð og mér finnst hún tímabær
og rétt tímasett,“ segir Þorlákur
Björnsson, fyrrverandi formaður
leikskólaráðs, varðandi tillögu Al-
freðs. Hann segir Alfreð meta að-
stæður rétt og koma með tillögu sem
mikil samstaða sé um.
Varðandi ummæli Stefáns Jóns
Hafsteins, formanns menntaráðs,
sem segist hafa verið að sýna Þor-
láki hollustu með því að láta málið
kyrrt liggja, segir Þorlákur Stefán
Jón þurfa að standa fyrir máli sínu.
„Þá grípur hann til þess ráðs að
segja að þetta sé eitthvað sem leik-
skólaráð ákvað fyrir tíu mánuðum.
Að vísu ákváðum við ekki neitt held-
ur frestuðum málinu fram til 1. sept-
ember og ætluðum að taka það upp
þá. Á þessum tíu mánuðum sýnir
Stefán að hann hefur ekkert tíma-
skyn á það sem er að gerast. Hann
metur ekki tímann rétt,“ segir Þor-
lákur og bendir á að aðstæður hafi
gjörbreyst eftir útspil Steinunnar
Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra
um gjaldfrjálsan leikskóla.
Þorlákur segir jafnframt að á
þessum tíma, sem Stefán Jón hafi
haft málaflokkinn á sínum snærum,
hafi hann átt að vera búinn að skapa
sér sérstöðu, sínar eigin áherslur og
meta tímann og tilfinningu fyrir að-
stæðum af sjálfsdáðum.
„Þetta er ótrúlegur málflutningur
og lítilmótlegur,“ segir Þorlákur.
Keppnismaður sem
veit hvar á að skora
Björk
Vilhelmsdóttir
Stuðningur við tillögu Alfreðs
Þorlákur
Björnsson
Árni Þór
Sigurðsson
NÍUNDU umferð Skákþings Ís-
lands lauk í gær. Spennan helst því
efstu menn unnu sínar skákir og er
heldur farið að draga í sundur með
toppmönnum nú þegar tvær umferð-
ir af ellefu eru eftir.
Mesta spennan var í skák Sigurð-
ar Daða Sigfússonar gegn Ingvari
Ásmundssyni þar sem Sigurður Daði
vann með laglegri fléttu. Stefán
Kristjánsson sigraði Ingvar Þór
sannfærandi en þeir Hannes Hlífar
Stefánsson og Jón Viktor Gunnars-
son þjörmuðu smátt og smátt að
andstæðingum sínum.
Hannes Hlífar er því sem fyrr
efstur með sjö og hálfan vinning. Á
hæla hans kemur Jón Viktor með sjö
vinninga og Stefán Kristjánsson er
með sex og hálfan vinning.
Tíunda umferð verður leikin kl. 14
í dag en á morgun lýkur skákþinginu
þegar ellefta og lokaumferðin verður
leikin.
Efstu menn unnu sínar viðureignir