Morgunblaðið - 20.08.2005, Page 22

Morgunblaðið - 20.08.2005, Page 22
Öldungadeild MH Ný stundatafla Innritun lýkur í dag 20. ágúst kl. 10-14 Einnig er unnt að innrita sig á vefnum www.mh.is Egilsstaðir | Á dagskrá Ormsteitis, uppskeruhá- tíðar á Fljótsdalshéraði, var í vikunni ljóðakvöld tileinkað 100 ára ártíð Páls Ólafssonar skálds sem bjó lengstum að Hallfreðarstöðum í Hróarstungu á Héraði. Þau Kristjana Arngrímsdóttir og Þórarinn Hjartarson, sem gert hafa skáldskap Páls góð skil, m.a. með útgáfu disks með sungnum kvæðum eftir skáldið, fluttu dagskrá tileinkaða Páli og rifjuðu þar upp stef úr ævi og ástum skáldsins sem brunnu löngum heitt til konu hans Ragnhildar Björnsdóttur. Páll orti „Þögul nóttin þreytir aldrei þá sem unnast/þá er á svo margt að minnast/mest er sælan þó að finnast.“ Dagskráin fór fram í samkomutjaldi í miðbæ Egilsstaða og var vel sótt af söngglöðu fólki sem yljaði sér við gamalkunn stef Páls, svo sem um lóuna sem komin er að kveða burt snjóinn. Að auki komu Vísnavinir á Egilsstöðum fram og fluttu ljóð Páls og stýrðu fjöldasöng. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Minntust Páls Ólafssonar Ljóðað Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Heyfengur er ágætur og veiði góð í ám og vötnum. Næg atvinna er í boði fyrir vinn- andi hendur og skortur á vinnuafli. Það er því bjart yfir Selfossi og Árborg og mikill uppgangur á öllum sviðum, fólki fer fjölg- andi hér á Selfossi og reyndar í sveitarfé- laginu öllu. Um er að ræða fólk hvaðanæva af landinu og einnig er römm sú taug er rekka dregur föðurtúna til, því talsvert er um að börn bæjarins komi heim að loknu námi. Margir vinna á höfuðborgarsvæðinu og kjósa að búa á Selfossi. Sama er um ná- grannabæina.    Við upphaf þéttbýlis við Ölfusárbrú sáu menn fyrir sér sterkan byggðakjarna sem teygði þjónustuarma sína langt út fyrir mörk byggðarinnar. Þetta hefur sannar- lega ræst og ljóst að máttur byggðarinnar er fólginn í þeirri bjartsýni sem ríkjandi er meðal íbúanna um að búa sér vel í haginn á staðnum. Þessari bjartsýni fylgir öflug samanburðarhugsun sem er drifkraftur á bak við þá hugsun fólksins að skapa sér og sínum góðar aðstæður. Þessi mikla bjart- sýni og eftirfylgni hefur fengið ýmis nöfn en besta orðið er staðarmetnaður.    Senn líður að því að íbúar Selfoss og Ár- borgar fá tækifæri til að máta staðarmetn- að sinn og finna honum stað í stærra sam- hengi en áður hefur verið. Það eru nefnilega sameiningarkosningar í október þar sem kosið verður um sameiningu Ár- borgar, Flóahreppanna, Hveragerðisbæj- ar og Ölfuss. Sannarlega er um stóra og öfluga einingu að ræða. Ekki eru víst allir einhuga um þessa sameiningu eins og gengur. Það er vandi að sameina og ekki síður að tala um sameiningu því hvert þessara sveitarfélaga er menningarheild og innan þeirra eru síðan minni heildir í formi félaga og áhugahópa sem fólki þykir vænt um og nauðsynlegt er að geti gegnt hlutverki áfram en verði ekki fórnað á alt- ari flatrar hugsunar um óskilgreinda hag- ræðingu. En allt hefur sinn tíma, það er lít- il umræða um þetta málefni enn sem komið er en væntanlega lifnar hún með haustinu.    Staðarmetnaðurinn á Selfossi blómstr- aði um síðustu helgi þegar hér fór fram myndarlegt knattspyrnumót yngri flokka og líka landsmót ungliða í björgunarsveit- um. Bærinn iðaði af fólki og öll fram- kvæmd var til mikillar fyrirmyndar. Úr bæjarlífinu SELFOSS EFTIR SIGURÐ JÓNSSON FRÉTTARITARA Blönduós | Hjartaheill á Norður- landi vestra færðu lögreglunni á Blönduósi hjartastuðtæki frá Donnu ehf., til að hafa í lög- reglubílunum. Það var Sigurlaug Þ. Hermannsdóttir, formaður Hjartaheilla á Norðurlandi vestra, sem færði sýslumanninum á Blönduósi, Bjarna Stefánssyni, tækið. Þetta er afar fullkomið tæki sem leiðbeinir sjálft á skýrri íslensku hvernig skuli bera sig að við notkun þess. Bjarni þakkaði fyrir gjöfina og var ekki í vafa um mikilvægi hennar en vonaðist til að lítið þyrfti að nota tækið. Bjarni gat þess í framhjáhlaupi að ef til vill mætti nota tækið á ökumenn sem teknir hefðu verið fyrir of hraðan akstur um leið og þeir litu á hraðatölur á rad- arskjánum í lögreglubílnum. Stjórn Hjartaheilla á Norðurlandi vestra hefur verið afar dugleg að gefa hjartastuðtæki á ýmsa staði í sínu umdæmi og aðspurð hvernig þetta félag áorkaði svo miklu var svarið einfalt. „Hjartaheill á Norðurlandi vestra er ekki þegjandi her.“ Morgunblaðið/Jón sigurðsson Gefur lögreglunni hjartastuðtæki Í gær orti Sigrún Har-aldsdóttir um haust,elli og gisið strý í hnakka. Davíð Hjálmar Haraldsson leggur út af því: Hefur af mér horfið strý, helst samt reisn og þokki. Gröfina ég ætla í á aðalsmannaskokki. Sigrún segir hann verða auðþekkjanlegan: Hitti ég mann er himinsgrund, hárlaus, glæstur skálmar. Þá ég veit á þeirri stund, þar fer Davíð Hjálmar. Davíð Hjálmar svarar: Vertu ekki viss um það, víða grær nú lokkur. Þótt frúrnar hafi fíkjublað falla þau af okkur. Hjálmar Freysteinsson skýtur inn í: Sögu vil ég segja af glóp sem ég þekki. Af sér Davíð hárið hljóp en hornin ekki. Enn af elli pebl@mbl.is Melasveit | Hin árlega kaffisala KFUM og K verður haldin í stúlkna- sumarbúðum félaganna í Ölveri sunnudaginn 21. ágúst nk. milli kl. 14 og 18. Sumarbúðir KFUM og KFUK í Ölveri eru um 25 km frá Akranesi og um 10 km frá Borgarnesi. Staðsetning sumarbúðanna er í kjarrivöxnu um- hverfi undir hlíðum Hafnarfjalls og hafa sumarbúðirnar verið starfræktar þar frá árinu 1952. Hátt í 400 stúlkur á aldrinum 6–15 ára dvöldu í sumarbúðunum í sumar. Sumarið gekk að sögn aðstandenda afar vel að vanda, enda býður stað- setningin upp á ómælda möguleika til útiveru og athafnasemi. Flokkarnir í Ölveri eru frá fjórum dögum og upp í viku og er lögð jöfn áhersla á heilbrigði sálar og líkama á meðan á dvölinni stendur. Farið er í gönguferðir og leiki og íþróttir stund- uð á góðum grasvelli. Í Ölveri er einn- ig heitur pottur sem stúlkurnar baða sig í daglega. Daglega er svo fræðsla um kristna trú og Biblíuna. Mikið er sungið og hver dagur endar með kvöldvöku, þar sem börnin skemmta hvert öðru með alls konar leikjum og leikritum. Allur ágóði af kaffisölunni rennur til uppbyggingar starfseminnar í Öl- veri. Um 400 stúlk- ur í Ölveri LIRFUR ertuyglunnar hafa á undan- förnum árum herjað á alaskalúpínu og étið upp heilu breiðurnar af plöntunni. Ástandið er með verra móti í ár um sunnanvert landið. Þetta kemur fram á vef Landgræðslu ríkisins. Lirfan getur orðið mjög stór (um 6–7 cm löng) og þegar margar slíkar lirfur leggjast á hverja plöntu eru þær upp- étnar á skömmum tíma. Lirfuátið hrað- ar því að lúpínubreiður gisni og gras- gróður nái fótfestu, sem í sjálfu sér er ekki slæmt, en verra er að lirfan leggst jafnframt af miklum þunga á trjágróður sem gróðursettur hefur verið í breiðurn- ar. Lúpínurækt hefur orðið fyrir fleiri áföllum á undanförnum árum. Önnur fiðrildategund, brandygla, hefur strá- fellt ungar lúpínuplöntur og gert rækt- un þeirra á söndunum í nágrenni Þor- lákshafnar nær útilokaða. Og á þessu ári felldi lúpínan blómin af óþekktum ástæðum áður en fræ náði að myndast á stórum svæðum sunnanlands. Að mati Landgræðslunnar dregur þetta stórlega úr möguleikum á söfnun lúpínufræs. Lirfan er sólgin í lúpínu ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.