Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR ÁRBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Selfoss | Nemendur komandi haust- annar í Fjölbrautaskóla Suðurlands verða 906 í dagskóla, þar af 10 grunnskólanemar, 4 þeirra í fjar- námi. Í fyrra voru nemendur skól- ans 896 talsins. Kennsla hefst í skólanum á mánu- dag 22. ágúst. Talsverðar breytingar verða á stjórnun skólans. Þórarinn Ingólfsson hefur verið ráðinn að- stoðarskólameistari til næstu fimm ára en Örlygur Karlsson lætur nú af því starfi eftir að hafa gegnt því í tæplega tvo áratugi. Ný eyktaskip- an, breyttar tímasetningar á kennslulotum í skólanum, verður tekin upp á þessari önn, breytt verð- ur úr 60 í 80 mín. Kennsla hefst nú kl. 08:20 að morgni og lýkur kl. 15:55, nema á föstudögum þegar henni lýkur kl. 14:50. Körfubolti og hestamennska Annað nýmæli í starfsemi skólans á þessari önn er svonefnd Körfu- knattleiksakademía sem tekin er til starfa. Um er að ræða samstarfs- verkefni skólans, fyrirtækisins Side- line Sports og Sveitarfélagsins Ár- borgar. 15–16 afrekspiltar í íþróttinni stunda nám við skólann, fá svigrúm í stundatöflunni til að æfa körfuknattleik í Iðu, íþróttahúsi skólans og einnig að einhverju leyti áður en skólinn byrjar á morgnana, og keppa síðan í Íslandsmótinu í körfuknattleik í þremur aldursflokk- um. Þjálfarar akademíunnar fá vinnuaðstöðu í Iðu og eina íbúð á nemendagörðunum, en flestir pilt- anna búa einnig þar. Verknámið er vaxandi þáttur Þá er framundan námsgagnagerð varðandi nám í hestamennsku sem til stendur að koma á við skólann, en skólinn fékk myndarlegan styrk til þessa verkefnis frá Átaksverkefni í hrossarækt á vegum landbúnaðar- ráðuneytisins. „Varðandi verknámið er þar sér- staklega mikil aðsókn í bygginga- greinar, segir Sigurður Sigursveins- son, skólameistari. Tveir hópar hefja nú nám í svokallaðri Grunndeild bygginga- og mannvirkjagreina, en hún er m.a. undanfari áframhald- andi náms í húsasmíði. Námskrár- breyting fyrir tveimur árum felur í sér að aukinn hluti verkþjálfunar nema á samningi fer nú fram í skól- anum. Við núverandi aðstæður getur aðeins einn hópur komist áfram ár- lega í áframhaldandi verknám í húsasmíði. Þá má nefna að fyrirhuguð er lenging á grunndeild rafiðna á næsta ári, þannig að þar verði um tveggja vetra nám að ræða í stað eins hingað til. Þá má benda á að starfsbraut (sérdeild) er fjölmenn við skólann, og sama er að segja um almenna námsbraut en talið er æskilegt að nám á þessum brautum sé að ein- hverju leyti verklegt. Það er því æ betur að koma í ljós að verknámshúsið Hamar sem skól- inn fékk í arf frá Iðnskólanum á Sel- fossi við stofnun Fjölbrautaskólans 1981 er orðið of lítið,“ sagði Sigurður skólameistari er hann var inntur eft- ir stöðu verknámsins innan skólans. Samtals verða yfir 900 nemendur í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi á þessu hausti Verknámsaðstað- an orðin of lítil Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Kennsla að hefjast Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands segir brýnt að bæta aðstöðu fyrir nemendur sem stunda verknám við skólann. Stokkseyri | „Í fyrra fleytti Menning- arnóttin mér til Danmerkur með sýningu og núna vonast ég til að hún gefi mér kraft til að fara til Bandaríkjanna með „orbin“ mín,“ segir Ella Rósinkrans mynd- og gler- listakona á Stokkseyri sem verður með sýn- ingu á verkum sínum á Laugavegi 56 á 170 fermetra sýningarsvæði klukkan 12–22,00. Eins og í fyrra býðst gestum að bjóða í verkin eftir ákveðnu skipulagi en það skap- ar mikið líf í sýningarsalnum en auk þess verður fjölbreytt dagskrá í bakgarði. Núna býður listakonan gestum einnig minni út- gáfu af orbunum sem eru í minjagripa- stærð. Orbin eru hringlaga veggskúlptúrar úr endurunnu gleri þar sem mildir og kraft- miklir litir leika sér í abstrakt jafnt sem fí- gúratívu myndverki. Þessi glerverk hafa heillað listunnendur og fagurkera víða um heim en þau hafa þá sérstöðu að vera kúpt. Ella rifjar upp að fyrsta verkið sem hún seldi fór til barnshafandi konu en í því hafi verið ákveðin samsvörun. Þá hafi hún gam- an af því að hljómsveitin Foo Fighters keypti af henni verk, kallaði þau „Boobies“ og bauð henni í heimsókn til Los Angeles. „Hringformið er sældarform. Glerið er gegnsætt og heiðarlegt efni sveipað töfra- ljóma. Ferningur heldur svo utan um hring- formið og veitir velsældinni öryggið,“ segir Ella Rósinkrans um himintunglin eða „orb- in“ sín. Hún frumsýndi þessa listsköpun sína á Menningarnótt í fyrra og fór síðan í kjöl- farið með þau á sýningu í íslenska sendi- ráðinu í Kaupmannahöfn þar sem þau vöktu mikla athygli. Ella segir marga hafa óskað eftir að fá lýsingu í verkin og í framhaldi af því hafi Helgi í Lumex hannað lýsingu sem hentaði ágætlega en sjálf segir hún að verk- in njóti sín best í dagsbirtu. Vinnustofa í húsnæði þar sem áður var fiskverkun „Orbin“ eða himintunglin hennar Ellu verða til í listasmiðju hennar á Stokkseyri í lista- og menningarsmiðjunni Hólmaröst þar sem hún er með vinnustofu beint upp af bryggjunni, í húsnæði þar sem áður var fiskverkun en ný hugsun og nýjar hug- myndir hafa gert Stokkseyri að miðstöð list- sköpunar og frumlegrar hugsunar sem dregur að sér ferðafólk. ,,Frá því ég sýndi á Menningarnótt í fyrra er eins og orbin hafi öðlast sjálfstætt líf,“ segir listakonan, „Orbin eru lögst í ferðalög á sporbaug um heiminn, þau eru á hreyf- ingu eins og vera ber,“ segir Ella. Það er mikil eftirspurn eftir „orbunum“ og tilboð um sýningar hafa komið víða að frá Evrópu og Ástralíu og núna í haust mun hún sýna þau í íslenska sendiráðinu í Stokkhólmi og síðan í Færeyjum. Þá er Ella með í und- irbúningi að sýna í Bandaríkjunum og mun í haust skoða gallerí í New York, Miami og Los Angeles. „Það er mjög ánægjulegt að finna þennan mikla áhuga fólks á verk- unum,“ segir Ella. Framandi menningarstraumar Eftir myndlistarnám hér heima fyrir lá leið Ellu til Chile í Suður-Ameríku þar sem hún lagði stund á listnám og hönnun. Þar bjó hún og starfaði um árabil og má skynja áhrif framandi menningarstrauma í verkum hennar. Hún hefur fengist við fjölbreytt list- form í gegnum tíðina og meðal annars unn- ið með margskonar málma, en undanfarin fimm ár hefur hún einbeitt sér að gleri. „Ætli mér sé ekki óhætt að segja að það séu fagnandi verur sem séu gegnumgang- andi í mínum verkum. Við eigum að lifa í ljósinu og leyfa bjartsýninni að dafna. Hún er hinn skapandi þáttur í sálinni. Nýtum tækifærin eru mín skilaboð og við eigum að vera óhrædd við að taka næstu skref í lífinu og listinni, þau þurfa ekki að vera stór en hvert skref þokar manni áfram og það þarf alltaf kjark til að taka hvert skref,“ segir Elínborg sem er með hugmyndir um stórt glerlistaverkstæði í húsakynnum sínum á Stokkseyri og stefnir hún á stóra útrás með verkin út fyrir landsteinana þar sem hún segir nýjar víddir opnast, alveg eins og ger- ist hjá mönnum í viðskiptalífinu. Svo segist hún vera dálítið skotin í því að gera stórt útilistaverk af einhverju tagi en það verði látið bíða um sinn. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Glerlist Ella Rósinkrans glerlistakona með himintunglin, „orbin“ sín, í fanginu í gler- listagalleríinu á Stokkseyri. Ella Rósinkrans skap- ar eftirsótt himintungl Eftir Sigurð Jónsson sigjons@internet.is ALLS ERU um 1.590 nemendur skráðir til náms við Háskólann á Akureyri í haust og hafa þeir aldrei verið fleiri. Síðastliðið haust stunduðu tæplega 1.520 nemendur nám við skólann og er um tæplega 5% fjölgun að ræða milli ára. Í dagskóla eru skráðir rúmlega 800 nemendur og um 550 í fjarnám. Að auki stunda rúm- lega 200 nemendur framhalds- nám en þar er jafnframt mesta fjölgunin frá fyrra ári. Rúmlega 120 umsækjendum var hafnað um skólavist að þessu sinni. Fjöl- mennasta deild skólans er sem fyrr kennaradeild með 553 nem- endur en nemendum fjölgaði mest í félagsvísinda- og lagadeild á milli ára eða um 30%. Framhaldsnám til M.Sc. prófs í auðlindafræði fer af stað í fyrsta sinn í haust. Um er að ræða al- þjóðlegt rannsóknarnám með áherslu á eitt af fimm fræðasvið- um auðlindadeildar: umhverfis- fræði, orkufræði, líftækni, sjávar- útvegsfræði eða fiskeldisfræði. Árlega fær háskólinn til sín marga erlenda skiptinema og í haust er fjöldi þeirra vel á annan tug. Þetta eru nemendur frá sam- starfsháskólum m.a. á Norður- löndunum og í Rússlandi, Þýska- landi, Kína og Bandaríkjunum. Flestir skiptinemanna munu stunda nám við félagsvísinda- og lagadeild. Kennsla nýnema í grunnnámi hefst mánudaginn 22. ágúst næst- komandi með dagskrá sem nefnd er velgengnisvika. Kennsla eldri nemenda hefst fimmtudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá. Háskólinn á Akureyri Nemendur hafa aldrei verið fleiri GUNNLAUGUR Haraldsson vélsleðakappi í Ólafsfirði fékk fiðring í magann þegar hann var að hreinsa frysti- klefa í bænum í gær. Hann losaði ísinn úr klefanum á götuna og bjó til stutta til braut í sól og 20 stiga hita. Því næst fór hann heim eftir vélsleða sínum og þeysti eftir þó frekar stuttri brautinni. Það er ekki á hverjum degi sem vélsleðamenn setja sleða sína í gang á þessum árstíma. Morgunblaðið/Gísli Kristinsson Á vélsleða í 20 stiga hita
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.