Morgunblaðið - 20.08.2005, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í ár hefur mér hlotnast sá heið-ur að fá að deila með ykkur,kæru lesendur, hvað það er
sem ég vildi helst fara að sjá, heyra
og njóta á Menningarnótt í Reykja-
vík sem nú stendur fyrir dyrum.
Þetta geri ég eftir að hafa rennt yf-
ir 22 blaðsíður af dagskrá, sem
runnu út úr prentaranum eftir að
hafa fundið dagskrána á
www.reykjavik.is. Í ár verða víst á
þriðja hundrað viðburða í boði, líkt
og í fyrra, þegar meira en 100.000
manns lögðu leið sína niður í
miðbæ.
Og þá er best að trúa ykkur fyrir
einu fyrst: Mér hefur alltaf fundist
Menningarnótt í Reykjavík óspenn-
andi fyrirbæri, verandi sú bölsýnis-
kona sem ég er. Þó að síðustu ár
hafi ég eflaust alltaf lagt leið mína
á endanum í bæinn einhvern tíma
dagsins – í það minnsta horft á flug-
eldasýninguna álengdar – og haft
bara gaman af – hefur spennan ver-
ið lítil fyrirfram. Það er eitthvað
við fjöldann; af fólki, af viðburðum,
af stöðum, sem virkar fráhrind-
andi. Svo hefur mér einfaldlega
ekki fundist svo margt spennandi
að gerast.
Þannig að kannski fer ég baraekki neitt í ár heldur. Ekki
nema ég slysaðist niður í Þjóð-
minjasafn og kæmist í annarlegt
ástand við að bragða á galdradrykk
og galdrasmákökum sem boðið
verður upp á í Þjóðminjasafninu í
tengslum við Galdranótt á Melum.
Sú dagskrá hefst kl. 11, þannig að
ég hef svo sem daginn fyrir mér ef
svo færi að ég kæmi við. Undir
áhrifum smákakanna myndi ég
kannski koma við á mörkuðum úti
um allt, það verða víst flóamarkaðir
við Vitastíg og í Sirkusportinu til
dæmis og lífrænn markaður hjá
Yggdrasli, og fá gefins andabrauð á
stað sem heitir Quizno’s og gefa
öndunum í smástund. Frá Tjörninni
lægi leið mín kannski ósjálfrátt upp
í Alþjóðahús, þar sem ég myndi
læra að gera hljóðfæri. Þau gæti ég
víst spilað á í karnivalgöngu sem
húsið stendur fyrir um kvöldið og
fer frá Hlemmi kl. 20 – en ætli ég
geri það …
Kannski myndi ég á vegferðminni rekast á íslenska hönn-
un í húsgagnaformi í gluggum vítt
og breitt um miðborgina, þar sem
Félag húsgagna- og innanhúss-
arkitekta á 50 ára afmæli á árinu
og það verður víst forsýning á af-
mælissýningu þeirra víða um borg-
ina. Svo langar mig í raun mikið að
vita hvernig er umhorfs inni hjá
Frímúrurum, sem ætla að hafa opið
hús uppi á Skúlagötu til kl. 18.
Margir segja að þeir muni nú bara
sýna manni inn í hátíðarsalinn og
ekkert meir, en hver veit?
Þá myndi ég kannski skella mér í
Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Fara í
gamla búninga í 19. aldar stíl, stilla
mér upp við bakgrunn og láta taka
af mér mynd – það gæti verið gam-
an. Mig langar reyndar líka til að
spreyta mig og sýna hæfileika mína
á ritvellinum með því að endurraða
orðunum í þjóðsöngnum. Ljóð.is
stendur fyrir svo kölluðum kæli-
skápaljóðum á Lækjartorgi eða
Ingólfstorgi og ætlar að birta af-
rakstur endurröðunar orðanna á
heimasíðunni í kjölfarið.
Já, við nánari athugun er kannskiekki svo galið að kíkja á ein-
hverja viðburði á Menningarnótt í
ár eftir allt saman. Í það minnsta
gæti ég séð Sigga efnafræðing sýna
efnafræðigaldra í húsi Íslenskrar
erfðagreiningar. Í leiðinni gæti ég
kíkt á sýningu hjá Húberti Nóa og
hlustað á Röggu Gröndal og fleiri
flytja tónlist. Eða þá gæti ég tekið
mér bátsferð til Viðeyjar til að
skoða loksins Blind Pavillion Ólafs
Elíassonar áður en hann verður
tekinn niður – það verða víst marg-
ar ferðir þennan dag.
Eða kynnt mér hver þessi krútt
eru eiginlega, sem ætla að troða
upp í Nýlistasafninu, og farið yfir
götuna í Kling og Bang þar sem Há-
skóli Íslands og Klink og Bank ætla
að svara spurningunni „Hvaða orka
losnar úr læðingi þegar listir og vís-
indi mætast?“
Þá gæti ég líka fengið að sitja aft-
an á Harley Davidson-mótorhjóli í
fyrsta sinn, borga smávægilegt
gjald og láta ágóðann renna til
langveikra barna. Og kynnst lista-
verkunum á Hótel Holti undir leið-
sögn Aðalsteins Ingólfssonar. Og
gjóa augunum öðru hverju upp í
Hallgrímskirkjuturn – ég hef af því
spurnir að eitthvað spennandi muni
gerast þar. Og svo ótalmargt fleira.
Já, ætli ég taki ekki þátt í Menn-ingarnóttinni eftir allt saman.
Því hvað sem líður öllum mínum
hrolli yfir klisjukenndum hug-
tökum á borð við að allir geti „fund-
ið eitthvað við sitt hæfi“, „fjölbreytt
dagskrá“, fyrir „unga sem aldna“
og fleira í þeim dúr sem ég hef
heyrt og lesið að undanförnu verð-
ur að viðurkennast að Menning-
arnótt í Reykjavík er fjölbreytt og
það geta allir fundið eitthvað við
sitt hæfi, ungir sem aldnir. Jafnvel
bölsýniskonan ég.
Menningarnótt
bölsýniskonu
’Og þá er best að trúaykkur fyrir einu fyrst:
Mér hefur alltaf fundist
Menningarnótt í
Reykjavík óspennandi
fyrirbæri. ‘
AF LISTUM
Inga María Leifsdóttir
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Billi
Frímúrarar hafa opnar dyrnar í húsi sínu við Skúlagötu í dag. Kannski fær maður að sjá meira en þennan sal.
Morgunblaðið/Jim Smart
Harley Davidson-eigendur bjóða fólki upp á rúnt á hjólum sínum í kring
um Tjörnina og láta allan ágóðann renna til langveikra barna.
!"
#
#
$
%&#
(
%&#
(
)
"
$& +
&
#
, &
& #
&
- -
,
$&
.
"
(
&"/
,
0
+
$& "(
,
$ & ( "
,
$1,
,
2
'
,
$
&
/
,
3
#
.
+(&
,
$
&
$/"
+
$-
#
,
2
%
1
,
#
&
&
,
,
4
,
,
+
#
+ 5
$
(
*
$
(
*
% ,
0
*
.
"
(
5
"
(
(
$& %
& (
*
,
,
,
5 , &
#
$ 0
$
*
#
$ %&
( %)* ! '
9
%
+'
22
,5:
;22
,<21
=
+'
+'
-
?&&*
"
/
55
=4 ,
5
&
2)##)#
> 5 ?1- *2
@
AB
>
,
-
A/
%
-
,
B 5 ) 2)
A
2
6
B
55
? CB*
? D)E)
<
,5'
+'
<2 22
<2-
!!
<26
)? 2
/21F 22,$ B2
G
B
2
2216
> 5
:
+'
www.reykjavik.is
Nú fer hver að verða síðastur að skoða Blind Pavillion Ólafs Elíassonar.