Morgunblaðið - 20.08.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 20.08.2005, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Vika í Danmörku www.hertz.is 19.350 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.* Opel Corsa eða sambærilegur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 28 90 9 06 /2 00 5 50 50 600 Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta Margrét Rögnvaldsdóttirog Guðrún Harð-ardóttir eru vanirgöngugarpar enda ganga þær daglega á Úlfarsfellið og það eldsnemma. Þær tóku sig til ásamt vinkonum sínum, þeim Guð- nýju Erlingsdóttur og Maríu Sól- bergs, og leituðu að nýjum æv- intýrum og girnilegum gönguferðum suður í Frakklandi. Vinkonurnar tóku börnin sín með og leigðu hús í bænum Flayosc sem er í 125 kílómetra fjarlægð frá Nice í suðurhluta landsins. Flayosc er lítið þorp frá mið- öldum og íbúar þess eru um fjögur þúsund. Eigendur húss- ins eru frænka Margrétar og maður hennar. Höfðu þau útbúið mikla möppu með helstu upplýs- ingum um svæðið og góðum göngu- leiðum fyrir gest- ina. Vöktu allt þorpið á morgnana Þær Margrét og Guðrún brugðu ekki út af vananum í fríinu og byrjuðu daginn yfirleitt á því að ganga í skóginum um- hverfis þorpið. „Það var eiginlega of heitt til þess að ganga um miðjan daginn svo við fórum af stað á morgnana með varðhundana í þorpinu gelt- andi á eftir okkur. Við hljótum að hafa vakið alla í þorpinu þar sem við fórum svo snemma af stað,“ segir Guðrún hlæjandi. Morgunferðirnar komu ekki í veg fyrir margvíslegar skoðunarferðir yfir daginn og ein eftirminnilegasta gangan var þegar hópurinn fór að skoða gamla brú frá tímum Róm- verja og klaustur sem nú er í eyði. „Það var gaman að ganga á þessu svæði og sjá gamla brú frá því fyrir Krist. Hægt var að ganga upp að gömlu klaustri sem stendur á hæð og útsýnið þaðan yfir skógi vaxið landið mjög flott. Það var sérstaklega gaman að labba inn í þetta andrúmsloft, inn í gamla klausturgarðinn innan um ólífutrén, vínviðinn, myntuna og rósm- arínplönturnar. Maður gat hæglega ímyndað sér munkana sem áður sátu undir trjánum til að njóta skuggans,“ segir Margrét. Þorpið í skýjunum Þorpin í kring eru meira og minna eldgömul og eitt þeirra er fjallaþorpið Tourtour, sem er aug- lýst sem eitt fallegasta þorp Frakk- lands og er í 635 metra hæð. Það ber viðurnefnið „Þorpið í skýj- unum“ og er stutt frá Flayosc. „Við gengum eftir gönguleið yfir til Tourtour og enduðum í gömlum eftirlitsturni þar sem fylgst var með mannaferðum í gamla daga,“ segir Margrét. Guðrún bætir við að Tourtour sé orðinn vinsæll staður fyrir listafólk og allt sé morandi af galleríum í þröngum götum þorps- ins. Börnin skemmtu sér líka prýði- lega. „Þau gátu farið á fiðrild- aveiðar, við sáum eðlur, leð- urblökur og búið var að vara okkur við villisvínum sem gætu orðið á vegi okkar, sem var ansi spennandi, þótt við höfum ekki rekist á neitt svín,“ segir Guðrún. Ódýr og ferskur matur á markaðinum Annar miklvægur hluti ferð- arinnar var að njóta góðs matar. Þær Margrét og Guðrún eru sam- mála um að allt hafi verið afslappað í kringum matmálstímana. „Við borðuðum þegar við vorum svöng og það var lítið mál þar sem við vorum svona margar konur saman. Við vorum enga stund að útbúa matinn, borðuðum alltaf úti og svo hjálpuðust allar að við að ganga frá,“ segir Guðrún. Margrét tekur við: „Við fórum á matarmarkaðina sem voru til skipt- is í þorpunum. Þar var hægt að finna allt mögulegt, allt frá spenn- andi ostum, paté, góðum vínum og kryddjurtum upp í glæsilegt úrval grænmetis og ávaxta, allt mjög ódýrt. Við eyddum mjög litlu eftir að komið var á staðinn,“ segir hún. Ekki tókst þeim að taka mikið mat- arkyns með sér heim. „Við komum með eitthvað heim en það var til dæmis ekki hægt að taka með sér það sem við keyptum á mörk- uðunum því það verður að vera í viðurkenndum umbúðum til að það megi flytja það inn til Íslands, og það var svolítið fúlt,“ heldur hún áfram. Frakkar mjög jákvæðir Þrátt fyrir smávægilega tungu- málaörðugleika tókst dömunum vel að bjarga sér á frönskunni. „Það er allt annað að vera í Suður- Frakklandi en í París, fólkið er svo hjálplegt og vingjarnlegt. Þó að við töluðum ekki fullkomna frönsku voru allir mjög jákvæðir,“ segir Margrét. Þetta svæði hefur líka allt sem þær stöllur vonuðust eftir að sam- eina í eitt afslappandi frí. „Það er það sem er svo skemmtilegt við þetta svæði, það er hægt að gera svo margt í allri þessari náttúru. Hægt er að borða góðan mat og gaman er að skoða markaðina. Síð- an eru það allar þessar gönguslóð- ir. Það er hægt að fara þangað í fleiri fleiri ár og ekki klára að ganga allar þessar leiðir,“ segir Margrét að lokum og ekki finnst blaðamanni ólíklegt að þær Guðrún leggi leið sína aftur um Var-héraðið áður en langt um líður.  HVAÐAN ERTU AÐ KOMA? Ferðalag inn í sveitir Suður-Frakklands Þorpið í skýjunum og rósmarínangan Ljósmynd/Guðrún Harðardóttir Gleðistund í garðinum með Guðnýju, Maríu og Margréti. Í baksýn er sundlaugin sem var mikið notuð. Ekki amalegt að geta borðað úti í garði, enda heitt og sólríkt. Tourtour er fallegt þorp í 635 metra hæð og er kallað þorpið í skýjunum. Nálægt brúnni er gamalt klaustur. Í garðinum finnst angan af vínviðnum, rósmarín og myntu. Hópurinn gekk að gamalli rómverskri brú og áði í skugga hennar. Margrét Rögnvaldsdóttir og Guðrún Harðardóttir fóru til Suður-Frakklands með vinkonum sínum þar sem áætlunin var að njóta sólar, góðs matar og víns, og ganga svolítið. Sara M. Kolka hitti stöllurnar og fékk að heyra um suðræn- ar sveitir og skemmtilega matarmarkaði. sara@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.