Morgunblaðið - 20.08.2005, Side 32
32 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Ár hvert laðar Gunn Bald-ursson knattspyrnumótið íKanada að fjölda kvenna-liða á öllum aldri en mótið
hefur verið haldið í 18 ár eða frá árinu
1988. Mótið er haldið í minningu
ungrar íslenskrar stúlku, Gunnhildar
Sifjar Gylfadóttur sem lést í hörmu-
legu bílslysi árið 1987. Hún bar eft-
irnafn föður síns í Kanada, Gylfa
Baldurssonar, og er þar komin skýr-
ing á nafni mótsins.
Efnileg á öllum sviðum
Gunnhildur var tvítugur náms-
maður, á þriðja ári í læknisfræði í
Acadia háskólanum í Nova Scotia og
hæfileikaríkur tónlist-
armaður. Hún spilaði á
fiðlu í fjölda ára og
var meðal annars
konsertmeistari
Sinfón-
íuhljóm-
sveitar
Acadia-
háskólans.
Hún hlaut
einnig fjölda
viðurkenninga
fyrir náms-
árangur og var
einn af heiðursnem-
endum skólans. Hins
vegar var hún efnilegust og
best þekkt í boltaíþróttinni og skildi
eftir sig stórt skarð í skólanum þar
sem hún lék með kvennaliðinu í fót-
bolta. Gunnhildur byrjaði í fótbolt-
anum á Íslandi í liðum Víkings og
Stjörnunnar en flutti til Kanada
ásamt fjölskyldu sinni þegar hún var
9 ára gömul. Fjölskyldan bjó þar í 10
ár, ef undanskilin eru árin 1982 til
1984 þegar þau bjuggu á Íslandi. Í
Arcadia-háskólanum varð Gunn-
hildur markahæsti leikmaður skóla-
liðsins á árunum 1985–1987, hún
stýrði liði sínu til sigurs í úr-
slitakeppni kanadískra háskólaliða
1987 og var einnig í úrvalsliði Nova
Scotia. Árið sem hún lést hafði hún
verið valin í kanadíska landsliðið og
átti möguleika á að keppa á heims-
meistaramótinu í Taív-
an. sÞjálfari Gunnhildar
var á þessum tíma Laura
Sanders og þótti henni mikið til
Gunnhildar koma. „Hún var senni-
lega fjölhæfasti og snjallasti leik-
maður sem ég hef unnið með í þau tíu
ár sem ég hef þjálfað hér,“ er haft eft-
ir Lauru í Morgunblaðinu árið 1994
svo greinilegt er að Gunnhildur var
hæfileikarík stúlka.
Íbúafjöldinn tvöfaldast í bænum
Gunn Baldursson mótið er sem
fyrr segir haldið árlega og hefur þátt-
taka liða tvöfaldast frá árinu 1998.
Eric Cedenberg, skipuleggjandi
mótsins, segir að áætlunin sé að
halda áfram á sömu braut og jafnvel
bjóða íslenskum, bandarískum og
evrópskum liðum til þátttöku í fram-
tíðinni. Stefnt var upphaflega að hafa
mótið í að minnsta kosti í 7 ár í viðbót
en það gæti hæglega breyst ef þessi
mikli áhugi á einu vinsælasta knatt-
spyrnumóti Kanada helst óbreyttur.
Foreldrar Gunnhildar, Gylfi og
Þuríður J Jónsdóttir, eru í góðu sam-
bandi við mótshaldara og fylgjast
með mótinu héðan af Íslandi ef þau
geta. Þau hafa farið nokkrum sinnum
út og Gylfi segir háskólabæinn Wolf-
ville umturnast í nokkra daga á ári
um mánaðamótin júní–júlí. Þá mætir
fjöldi fótboltakvenna á öllum aldri frá
austurfylkjum Kanada á svæðið,
þjálfarar þeirrar og foreldrar.
„Bærinn sem að öllu jöfnu er 4–
5000 manna bær getur ekki tekið við
öllu þessu fólki. Íbúafjöldinn nær tvö-
faldast og því eru nærliggjandi bæir
og bæjarfélög undirlögð af þátttak-
endum mótsins, þetta er algjör
sprengja,“ segir Gylfi.
Mótið hápunktur tímabilsins
Það má með réttu segja að orðspor
mótsins dreifi sér víða. Á heimasíðu
skólans kemur fram að í upphafi hafi
45 lið keppt á mótinu en árið 2002
voru liðin orðin 192 talsins. Svo vin-
sælt er mótið að reynt var að tak-
marka þátttökuna við úrvalsliðin en
vegna mikilla mótmæla var hætt við
breytinguna og mun mótið vera hald-
ið í óbreyttri mynd á næsta ári. Það
er þó aðeins hægt vegna mikils stuðn-
ings knattspyrnufélagsins „Soccer
Nova Scotia“ og segir framkvæmdar-
stjóri þess, George Athanasiou, að
mótið sé „hápunktur tímabilsins fyrir
hundruð kvennaliða í öllum deildum“
og fagnar hann afturköllun breyting-
arinnar.
Nú er minningu Gunnhildar haldið
lofsamlega á lofti með miklum til-
burðum ár hvert, stúlknalið eru
nefnd í höfuðið á henni og varla er til
sá kvennaliðsspilari í Kanada sem
ekki þekkir Gunn Baldursson mótið.
Gylfi segir tilfinninguna góða að
vita til vinsælda mótsins á hverju ári
„Það er notaleg tilfinning, að minning
Gunnhildar sé í heiðri höfð með þess-
um hætti.“
KNATTSPYRNUMÓT | Nova Scotia í Kanada
Mót haldið í minningu
íslenskrar stúlku
Eftir Söru M. Kolka
sara@mbl.is
Mynd sem tekin var af Gunnhildi Sif Gylfadóttur nokkru
áður en hún lést. Mótið er haldið í minningu hennar.
Ljósmynd/Eric Cedenberg
Mynd frá Gunn Baldursson-mótinu
sem er haldið árlega af Acadia-
háskólanum í Kanada.
Merki Gunn Bald-
ursson-mótsins
MSG eða þriðja krydd-
ið er skaðlaust í mat-
vælum ef það er notað í
hæfilegu magni. „Þetta
er bragðaukandi efni
sem oft er notað með
salti eða öðru kryddi í
matvælum og er skað-
laust,“ segir Grímur
Ólafsson, sérfræðingur
hjá Umhverfisstofnun,
og nefnir sem dæmi að
MSG er að finna í súpu-
teningum, tilbúnum
sojasósum og súpum.
Rétt er að taka fram að
MSG er ekki að finna í
þurrkuðu laufkryddi eins og timian,
oregano og marjoram og er því vill-
andi fyrir neytendur að sumir
kryddframleiðendur setja áletr-
unina: Inniheldur ekki MSG, á þessi
krydd.
Lífseigar sögur
„Efnið hefur mikið verið rann-
sakað en af einhverjum ástæðum
eru alltaf að koma upp sögusagnir
um að það geti haft neikvæð áhrif.
Satt að segja eru þetta ótrúlega líf-
seigar sögur.“
Allt frá því bandaríska mat-
vælalöggjöfin var sett árið 1959, hef-
ur efnið verið leyft í hæfilegu magni
eins og mörg önnur efni en vegna
umræðna um skaðsemi var ákveðið
að rannsaka öryggi MSG og skyldra
efna á ný og hafa rannsóknastofn-
anir fimm sinnum skilað áliti um ör-
yggi efnisins á árunum 1980 til 1995.
Á grundvelli rannsóknanna hefur
ekki þótt ástæða til að vara við
neyslu.
Óþægindi frekar en ofnæmi
„Það er vissulega til hópur fólks,
trúlega ekki stór, sem sýnir aðeins
viðbrögð, sem varla er hægt að kalla
ofnæmisviðbrögð. Miklu frekar
óþægindi,“ segir Grímur. „Þessi
hópur er mjög lítill og að tengja ein-
kennin afgerandi við MSG hefur
ekki verið hægt. Það hefur verið
reynt með blindprófi, þar sem fólki
er gefið að smakka vatnsupplausn
sem var ýmist með glútómati af mis-
munandi styrkleika eða án nokkurs.
Þeir sem töldu sig finna fyrir ein-
hverjum áhrifum voru prófaðir aft-
ur og kom í ljós að upplifunin var
ekki alltaf sú sama. Trúlega eiga
einkennin að einhverju leyti rétt á
sér en þau eru ábyggilega líka hug-
læg að hluta til. Vera má að ýmis
önnur efni í matvælunum, sem fólk
er með ofnæmi fyrir, hafi þessi áhrif.
Til dæmis hnetur eða skelfiskur.“
Óþol og asmi
Samkvæmt skýrslu bandarísku
matvæla- og lyfjastofnunarinnar eru
tveir hópar næmir fyrir áhrifum
kryddsins. Þeir sem geta sýnt óþol
fyrir MSG í umtalsverðu magni og
fólk með slæman asma og getur
asmi versnað tímabundið og þarf
0,5-2,5 g til að framkalla þessi áhrif.
Heildarniðurstaða skýrslunnar var
að MSG væri skaðlaust í venjulegu
magni.
Efnið er flokkað sem aukaefni
samkvæmt íslenskri og evrópskri
matvælalöggjöf og um aukaefni
gildir sérstök löggjöf. Efnin þurfa að
fara í gegnum strangt matsferli þar
sem skoðuð eru hugsanleg skaðleg
áhrif á neytendur svo sem eitur-
áhrif, krabbameinsvaldandi áhrif,
áhrif á erfðaefni, fóstur og fleira. Og
er MSG sennilega eitt mest rannsak-
aða aukaefnið ásamt nýju gervi-
sætuefnum á markaðinum.
Rétt er að benda á að ýmsar teg-
undir matvæla eru með nokkurt
magn af glútínmati í fríu formi, með-
al annars tómatar, gerjaðir ostar,
sojasósur og súpukraftur.
MATUR | Bragðaukandi efni í matvælum
Þriðja kryddið er
talið skaðlaust
Eftir Kristínu Gunnarsdóttur
krgu@mbl.is
Dal.is
Eldshöfða 16, bakhús
Sími: 616 9606
Opið milli 12 - 16
93.0
39 k
r
BEINT FRÁ KÍNA!
GÆÐAVARA FRAMLEIDD FYRIR EVRÓPUMARKAÐ
opið í dag laugard. kl 12 - 16
Stærð
150 X
75 sm
37.5
11 k
r
17.1
31 k
r