Morgunblaðið - 20.08.2005, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 20.08.2005, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VESTURHEIMI SAGNFRÆÐINGARNIR Guy Scott og Donald E. Gislason hafa rækilega bent á aðstæðurnar sem Ís- lendingum var boðið upp á þegar þeir settust að í Kinmount haustið 1874. Þær voru ekki mannsæmandi og hörmungarnar létu ekki á sér standa. Fólk veiktist og börn dóu. Innan árs var hópurinn farinn vestur að Winnipegvatni, til Nýja Íslands, eins og svæðið var síðar nefnt. Allar frásagnir um Kinmount hafa verið þess eðlis að þar sé í raun ekk- ert að sjá og ekkert að hafa. Rétt eins og á Marklandi í Nova Scotia þar sem sumir reyndu fyrir sér áður en þeir héldu aftur vestur á bóginn. Svæðið sem Íslendingum var boð- ið upp á rétt sunnan við Kinmount er vissulega ekki beint fallið til land- búnaðar en Kinmount blómstraði skömmu eftir að Íslendingarnir fóru þaðan fyrir um 130 árum. Kinmount er ekki nema um 160 km norðaustur af Toronto og eftir að járnbrautin tengdi svæðið við nærliggjandi svæði var ástandið allt annað og betra en þegar um 350 Íslendingar settust þar að skömmu fyrir vetrar- byrjun. ,,Hér höfum við allt til alls,“ segir Patrick Healey, eigandi eina gisti- heimilisins í þessu 300 manna þorpi. ,,Og Kinmount hefur auk þess upp á ýmislegt að bjóða sem ekki stendur til boða annars staðar, eins og til dæmis einstakt kvikmyndasafn, það merkilegasta í fylkinu og þó víðar væri leitað,“ bætir hann við. Kinmount er um margt merkileg- ur staður. Þar hófst fyrsta skipulega landnám Íslendinga í Kanada og þaðan fluttu Íslendingar til annarra, blómlegri svæða (að frátöldu Mark- landi). Upphaflega átti íslenski hópurinn að koma til Kinmount um sumarið. Hugmyndin var að fólkið fengi tæki- færi til að aðlagast breyttum aðstæð- um og kynnast landbúnaðarstörfum áður en það byrjaði að rækta eigið land. Skipið kom aldrei og annað skip var sent til Íslands til að ná í þetta fólk. Það var of seint með fyrri áform í huga og í stað þess að fara í landbúnaðinn var litið á Íslend- ingana sem ódýrt vinnuafl vegna lagningu járnbrautar. Þeim var komið fyrir í lélegum og köldum skálum rétt sunnan við Kinmount og þegar vinna lagðist af við járnbraut- ina um veturinn var staðan þarna vonlaus. „Það er ómögulegt að segja hvað hefði gerst ef þeir hefðu komið á til- settum tíma og náð að koma sér al- mennilega fyrir eða ef þeir hefðu beðið aðeins lengur,“ segir Donald Gislason. ,,Nokkrir Íslendingar ílentust í Muskoka héraðinu og af- komendur þeirra búa að stórum hluta í Ontario. Ef Íslendingarnir hefðu ekki upplifað þessar hörmung- ar í Kinmount er alls óvíst að Gimli hafi byggst upp sem íslenskur bær. Fólkið vildi halda hópinn og fjar- lægðin gerði fjöllin blá. Eins var mikill áróður rekinn fyrir flutning- um til miðvesturhluta Norður-Am- eríku og fólk var að leita að betri af- komu, betra lífi.“ Þessi hópur kom til Winnipeg 11. október 1875 og settist að skammt sunnan við Gimli 21. október sama ár. Þangað komu síðan fleiri hópar og þaðan dreifðust Íslendingar til annarra svæða en ekki er víst að sú staða hefði orðið raunin ef skipið hefði komið til Íslands í júlí 1874. Með öðrum orðum má gera því skóna að Nýja Ísland í Manitoba hefði ekki orðið slíkt ef hlutirnir hefðu gengið eins og til stóð í Kin- mount. Donald E. Gislason er manna fróð- astur um sögu Kinmount í Ontario og hefur unnið að því að skrá hana. Morgunblaðið/Steinþór Í kvikmyndasafninu í Kinmount eru jafnan nýjustu myndirnar sýndar. Allar leiðir liggja frá Kinmount Eymd og vosbúð koma upp í huga margra þeg- ar minnst er á Kin- mount í Ontario en í heimsókn sinni á þenn- an merkilega stað hugs- aði Steinþór Guðbjarts- son fyrst og fremst um björtu hliðarnar. Patrick Healey er eigandi eina gistiheimilisins í Kinmount í Ontario í Kanada. steg@mbl.is ÍSLENSKA vatnið Iceland Spring hefur verið fáanlegt á ýmsum stöðum í Norður- Ameríku og nú má fá það í Winnipeg í Kanada. Fyrir skömmu var opnaður sælkerastaðurinn Gluttons sérverslun og veitingastaður á Corydon- götu í einu helsta veitingahúsahverfi borg- arinnar. Á meðal þess sem boðið er upp á er Iceland Spring og að sögn starfs- manna hefur íslenska vatnið notið mikilla vinsælda. Morgunblaðið/Steinþór Marianne Nothstein með vatn- ið góða fyrir utan Gluttons. Íslenskt vatn í Winnipeg FRÉTTIR Hella | Töðugjöld í Rangárþingi fóru fram með breyttu sniði að þessu sinni. Hátíðahöld- in fóru ekki fram á Gaddstaðaflötum eins og áður heldur voru þau flutt á Hellu. Á föstudagskvöldið var dagskrá í Þykkva- bænum, þar sem boðið var upp á kartöflu- súpu, markaðstjöld voru í gangi, sýning á vinnsluvélum kartöflubænda, tónlistaratriði og alla helgina var fjölbreytt sýning á úti- og innilistaverkum. Á laugardag var opnað markaðstjald í Þingskálum á Hellu og síðan fóru fram ýmis dagskráratriði þar og á íþróttavellinum. M.a. fór fram spuna- og prjónakeppnin „Ull í fat“, hagyrðingamót, skvísukeppni, karaoke- keppni, búvélasýning og mörg fleiri atriði. Fallhlífarstökkvarar lentu á Hellu og DC3- flugvélin Páll Sveinsson flaug yfir svæðið af og til. Fólk gat rakið sig eftir ullarbandi með- fram bökkum Ytri-Rangár að Heklu hand- verkshúsi þar sem sýning var á vinnslu hand- verks og bakaðar flatkökur fyrir gesti og gangandi. Íslensk kjötsúpa var í boði í hádeg- inu og grillveisla var um kvöldið. Hátíðinni lauk með brekkusöng undir stjórn Árna Johnsen og flugeldasýningu. Margir landsfrægir skemmtikraftar komu fram, þ.á m. Ómar Ragnarsson, Ragnar Bjarnason, Þorgeir Ástvaldsson og Lúdó og Stefán fluttu öll sín bestu lög. Felix Bergsson var kynnir fyrri hluta dags og Ísólfur Gylfi Pálmason seinni hlutann. Fjör á Töðugjöldum í Rangárþingi Rokkbuxur og rússajeppar Eftir Óla Má Aronsson Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Þessar prjónakonur unnu til verðlauna fyrir að prjóna gangandi, eins konar maraþonprjón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.