Morgunblaðið - 20.08.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 39
UMRÆÐAN
UMRÆÐAN um Kaupfélag Ey-
firðinga að undanförnu hefur skaðað
félagið og hún hefur skaðað eyfirska
byggð. Félaginu er nauðsyn á
trausti og starfsöryggi á þeim mark-
aði sem því er ætlað að
starfa.
Hvaða persónulegu
skoðanir sem menn
hafa á félagslegum
réttindum á borð við
fæðingarorlof er afar
óheppilegt fyrir hvaða
fyrirtæki eða atvinnu-
rekenda sem er að deil-
um stjórnenda ljúki
með því að viðkomandi
stjórn eða stjórn-
arhluti lýsi sig á móti
þessum réttindum að
einhverju leyti. Þau
eru óumdeild frá lagalegu sjón-
armiði og njóta almenns fylgis í sam-
félaginu. Því er engum til fram-
dráttar að viðra sjónarmið eins og
látin voru í veðri vaka nýlega þegar
framkvæmdastjóri KEA sagði starfi
sínu lausu.
Að sjálfsögðu getur menn greint á
um einstök atriði í stjórnun félaga
og stefnumörkun þeirra í heild sinni.
Slíkur ágreiningur getur myndast
innan stjórnar, á milli einstakra
stjórnarmeðlima og á milli stjórnar
og framkvæmdastjórnar. Hér er
ekki ástæða til þess að rekja þau
ágreiningsmál sem fjölmiðlar hafa
greint frá að orðið hafi innan veggja
þess tiltekna félags.
Þau geta í sjálfu sér átt
sér eðlilegar skýringar
en einnig rætur í sam-
skiptasniði og sam-
skiptavanda einstakra
aðila er málinu tengj-
ast. En vegna þess með
hvaða hætti málið kom
fram varð skaðinn
meiri og innan stjórnar
félagsins sitja a.m.k.
einhverjir uppi með
þann vafasama heiður
að vera taldir and-
snúnir þessum lög-
bundnu félagslegu réttindum a.m.k.
þegar mikilvægir framkvæmda-
stjórar eiga hlut að máli. Við það
bætist að sjaldan veldur einn er
tveir deila. Eftir trúnaðarbrest sem
sagður er hafa orðið á milli stjórn-
armanna í félaginu og fyrrverandi
framkvæmdastjóra má íhuga hvort
sömu stjórnarmönnum takist að
starfa með nýjum aðila án þess að
slíkt endurtaki sig í ljósi þess sem
orðið hefur. Því vakna spurningar
um hvort rétt eða nauðsynlegt sé að
kjósa félaginu nýja stjórn á næsta
aðalfundi, jafnvel að boða til aðal-
fundar fyrr en hann er áformaður.
Þá er komið að öðrum vanda sem
blasir nokkuð glöggt við Kaupfélagi
Eyfirðinga. Markmið félagsins er
auk almennrar ávöxtunarstarfsemi
einkum að efla eyfirska byggð með
þátttöku í atvinnulífi er fjölgað geti
arðbærum störfum og þar með íbú-
um á svæðinu. Staðreyndin er hins
vegar sú að þessi markmið hafa ekki
gengið eftir nema að takmörkuðu
leyti. Í því efni er ekki við for-
ráðamenn félagsins að sakast,
hvorki fyrrverandi framkvæmda-
stjóra eða stjórnarmenn heldur
liggja rætur þess mun dýpra í hinu
eyfirska samfélagi. Eins og ég gat
um í grein í Morgunblaðinu. 29. júlí
sl. þá er grafalvarlegt mál fyrir
Eyjafjörð að atvinnulífinu sé svo um
megn að nýta þá fjármuni sem til
eru á svæðinu að kalla verði eftir op-
inberum eftirlitsstörfum og bjóða
þeim kostakjör eins og fráfarandi
framkvæmdastjóri KEA gerði þegar
hann átti í erfiðleikum með að koma
fjármunum félagsins á framfæri.
Útgefandi Vikudags á Akureyri
vék að þessu máli í pistli í blað sínu í
annarri viku ágústmánaðar. Þar
sagði hann réttilega að ekki vanti tvö
eða þrjú störf á Eyjafjarðarsvæðið
heldur einhver hundruð starfa.
Hann vék einnig að því hvort KEA
eigi að fjárfesta í höfn á Dysnesi þar
sem skipulagsfest iðnaðarlóð og
frumhönnun hafnaraðstöðu liggja
fyrir. Þótt útgefandinn verði að telj-
ast nokkuð stórhuga og leggi til að í
mikið verði ráðist, er hugmyndin
allrar athygli verð. Stórskipavöru-
höfn á Dysnesi áföst stóru iðnaðar-
svæði getur brotið hlekki stöðnunar
og boðið margvíslega möguleika. Ef
þetta yrði raunin yrði erfitt að ganga
framhjá Eyjafirði þegar uppbygging
stóriðju er annars vegar. En til að
taka áhættu af þeirri gerð og stærð
sem þarna er um að ræða yrði Kaup-
félag Eyfirðinga bæði að eiga sér
samstarfsaðila á sviði fjárfestinga og
einnig að hafa tryggingu af hálfu
hins opinbera fyrir því að öflugum
atvinnurekstri yrði beint inn á svæð-
ið, hvort sem það yrði í formi álverk-
smiðju eða einhverju öðru formi sem
kallar eftir orku og hafnaraðstöðu.
Ekkert minna af opinberri hálfu
dugar Eyjafirði svo vel verði gert.
Fimm eða tíu opinber eftirlitsstörf,
hvort sem þau eru á vegum Fiski-
stofu eða einhverrar annarrar eft-
irlitsstofnunar, breyta sáralitlu. Þau
gefa nokkra hundraðþúsundkalla í
útsvör til Akureyrarkaupstaðar eða
stærra sameinaðs sveitarfélags sem
líta mun dagsins ljós í framtíðinni og
einhverja viðbótarverslun í Nettó og
Bónus en tæpast annað.
Kaupfélag Eyfirðinga þarf að
losna úr þeim stjórnunarvanda sem
félagið virðist eiga í um þessar
mundir og hefur m.a. komið fram í
aðdraganda starfsloka fráfarandi
framkvæmdastjóra. Félagið á einnig
í fjárfestingarvanda innan skil-
greindra starfssamþykkta um
byggðafestu á Eyjafjarðarsvæðinu.
Félaginu væri nær að leita eftir
stuðningi hins opinbera um að at-
vinnustarfsemi verði beint inn á
starfssvæði þess gegn því að félagið
legði fram fjármuni til uppbygg-
ingar og má í því efni vísa til vaxt-
arsamnings um Eyjafjarðarsvæðið í
stað þess að biðla eftir nokkrum op-
inberum eftirlitsstörfum.
Traust og starfsöryggi
Þórður Ingimarsson fjallar um
Kaupfélag Eyfirðinga ’Félaginu væri nær aðleita eftir stuðningi hins
opinbera um að atvinnu-
starfsemi verði beint inn
á starfssvæði þess gegn
því að félagið legði fram
fjármuni til uppbygg-
ingar…‘
Þórður Ingimarsson
Höfundur er blaðamaður.
STÓRMEISTARINN Hannes
Hlífar Stefánsson (2.579) og al-
þjóðlegi meistarinn Stefán Krist-
jánsson (2.459) höfðu verið jafnir
og efstir í landsliðsflokki Skák-
þings Íslands frá þriðju umferð til
þeirrar sjöundu og fyrir viðureign
þeirra í áttundu umferð höfðu þeir
báðir 5½ vinning en á hæla þeirra
kom alþjóðlegi meistarinn Jón
Viktor Gunnarsson (2.388) með 5
vinninga. Stefán hafði hvítt í skák-
inni gegn Hannesi og blés snemma
til sóknar.
Hvítt: Stefán Kristjánsson
(2.459)
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
(2.579)
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4.
Rxd4 Bc5 5. Be3 Df6 6. Rb5
Óvenjulegur leikur sem byrjun-
arsérfræðingurinn franski Nataf
hefur beitt sem og fyrrverandi
heimsmeistari FIDE, Ruslan Po-
nomarjov.
6. ...Bxe3 7. fxe3 Dh4+ 8. g3
Dd8 9. Dg4 Kf8 10. Df4 d6 11.
R1c3 Re5
Skynsamlegur leikur sem girðir
fyrir að hvíti biskupinn hreiðri um
sig á c4-reitnum.
12. h3 Bd7 13. Rd4 Rg6 14. Df2
Df6
Upp er komin staða sem er í
dýnamísku jafnvægi þar eð hvítur
hefur sóknarmöguleika í ljósi þess
að hann er á undan í liðskipan á
meðan svartur hefur heilbrigðari
peðastöðu og örugga fótfestu fyrir
menn sína á hinum mikilvæga e5-
reit. Með hliðsjón af eðli stöðunnar
vill hvítur ekki fara í þau drottn-
ingaruppskipti sem svartur býður
nú upp á.
(sjá stöðumynd 1)
1stm – Stefán-Hannes
15. Dg2 Dg5 16. 0-0-0 Re5 17.
Rd5 c6 18. Rf4 h5!? 19. Be2 h4 20.
Rf3!? Rxf3 21. Dxf3 Rf6 22. gxh4
Hér var spurning hvort ekki hafi
verið betra að leika 22. Hxd6 þar
eð svartur hefði ekkert nema
vandræði upp úr því að drepa peð-
ið á g3. Eftir textaleikinn nær
svartur að halda d6-peðinu og það
tryggir honum áframhaldandi yf-
irráð yfir svörtu reitunum í stöð-
unni.
22. ... De5 23. Hhg1 He8 24.
Bd3 Hxh4
Svörtum hefur nú tekist að
koma ár sinni ágætlega fyrir borð
og er ekki ólíklegt að hann standi
nú örlítið betur. Næsti leikur hvíts
byggist hinsvegar á grófri yfirsjón.
(sjá stöðumynd 2)
2stm – Stefán-Hannes
25. Hxg7?? Kxg7 26. Dg3+ Bg4!
Nú vinnur svartur óumflýjan-
lega lið þar eð eftir 27. Dxh4 kem-
ur 27. ...Bxd1 og hvítur verður
skiptamuni undir.
27. Hg1 Heh8 28. Be2 Hxh3! og
hvítur gafst upp enda taflið gjör-
tapað eftir 29. Rxh3 Dxg3 30.
Hxg3 Hxh3. Á meðan þessu stóð
kom eftirfarandi staða upp eftir
tuttugasta leik svarts milli Jóns
Viktors, hvítt, og Ingvars Ás-
mundssonar (2.299):
(sjá stöðumynd 3)
3stm – Jón Viktor - Ingvar
21. Hxd5!
Þessi leikur felur í sér umtals-
verða áhættu en sigur var nauð-
synlegur fyrir hvítan ef hann ætl-
aði að berjast fyrir að vinna mótið.
21. ...exd5 22. Kd2 f5 23. Kd3
Hf6 24. He8+ Hf8 25. He5 Hf6 26.
Hxd5 Kf8?
Hér hefði svartur getað leikið
26. ...Hh6 og er þá óvíst að hvítur
standi nokkuð betur.
27. Kd4 a5? 28. a4! bxa4 29. c4
a3 30. bxa3 a4 31. Rd3 Hh6 32. c5
Ke8 33. He5+ Kd8 34. Hxf5 Ke8
35. He5+ Kd8 36. He7 og svartur
gafst upp. Þessi úrslit þýddu að
þegar þrem umferðum er ólokið er
Hannes efstur með 6½ vinning,
næstur kemur Jón Viktor með 6
vinninga og í þriðja sæti er Stefán
með 5½ vinning. Hannes og Jón
Viktor eiga eftir að mætast svo að
enn getur allt gerst í baráttunni
um Íslandsmeistaratitilinn.
Það hefur vakið athygli að lang-
stigalægsti keppandinn, Heimir
Ásgeirsson (2.118) hefur teflt afar
traust og hefur hann 4½ vinning
ásamt Sigurði Daða (2.344) í 4.–5.
sæti. Heimir hefur ávallt komið vel
undirbúinn til leiks og fengið góð-
ar stöður í upphafi tafls. Það
mætti jafnvel segja að hann hafi
getað fengið fleiri vinninga þar eð
hann t.d. samdi um jafntefli þegar
hann hafði betri stöðu gegn Jóni
Viktori.
Í áskorendaflokki leiðir Tómas
Björnsson (2.227) mótið með fimm
vinninga af sex mögulegum en á
eftir honum koma Guðlaug Þor-
steinsdóttir (2.132) og Þorvarður
F. Ólafsson með 4½ vinning. Sjö
skákmenn koma svo á eftir með
fjóra vinninga en alls tryggja fjög-
ur efstu sætin í áskorendaflokki
þátttökurétt í landsliðsflokki að
ári.
Heimsmeistarakeppni tölvufor-
rita lýkur nú um helgina en þegar
sex umferðum er lokið af ellefu
hefur forritið Zappa forystu með
5½ vinning en næst á eftir því
kemur forritið Junior með 5 vinn-
inga. Forritið Shredder vann hrað-
skákkeppni forritanna og varð efst
ásamt forritinu Jonny í keppni for-
ritanna í slembiskák Fischers.
Nánari upplýsingar um heims-
meistarmótið sem og Íslandsmótið
er að finna á vefslóðinni
www.skaksamband.com/ice5/.
RST-Net vann
Borgarskákmótið
Alþjóðlegi meistarinn Arnar
Gunnarsson, sem tefldi fyrir RST-
Net, sigraði á Borgarskákmótinu
sem fram fór í Háskólanum í
Reykjavík 18. ágúst síðastliðinn.
Arnar fékk 6½ vinning í 7 skákum
en Hjörvar Steinn Grétarsson, 12
ára, sem tefldi fyrir Opin Kerfi,
var sá eini sem náði jafntefli gegn
sigurvegaranum. Hjörvar stóð sig
vel á mótinu en hann lenti í 2.–5.
sæti ásamt Lenku Ptácníkovu, sem
tefldi fyrir Íslandspóst, Stefáni
Frey Guðmundssyni, sem tefldi
fyrir Sorpu, og Braga Halldórs-
syni, sem tefldi fyrir Landsbanka
Íslands. Alls tóku 48 skákmenn
þátt í mótinu sem verður að teljast
ágætis þátttaka. Borgarstjórinn í
Reykjavík, Steinunn Valdís Ósk-
arsson, setti mótið og lék fyrsta
leikinn fyrir Lenku gegn Tinnu
Kristínu Finnbogadóttur.
Hannes Hlífar stendur með pálmann í höndunum á Íslandsmótinu.
Helgi Áss Grétarsson
SKÁK
Skáksamband Íslands og HR
SKÁKHÁTÍÐ Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK
daggi@internet.is
Mun Hannes verða Íslands-
meistari í sjöunda sinn?
Morgunblaðið/Þorkell
Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Stöðumynd 3