Morgunblaðið - 20.08.2005, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 20.08.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 43 MINNINGAR tannfé, það er að segja þegar hann tók sína fyrstu tönn. Sæmundur var áhugasamur hrossaræktarmaður og átti lengi hross í Fljótum. Síðar keypti hann Ytra-Skörðugil á Lang- holti svo og Elivoga. Rak hann þar sauðfjár- og hrossabú allmörg ár. Seinna seldi hann helming Ytra- Skörðugils en rak áfram hrossabú sitt á sínum hluta. Jörðina Móskóga í Fljótum keypti hann og reisti þar myndarlegt frístundahús fyrir sína stóru fjölskyldu sem honum var mjög annt um. Sæmundur var ákaflega vel giftur og hamingjumaður í einkalífi. Kona hans er Ása Sigríður Helgadóttir frá Vestmannaeyjum, mikil myndar- og ágætiskona. Þeim varð sjö barna auð- ið og eru þau alls staðar í fremstu röð. Sæmundur var mikill félagsmála- frömuður. Hann var eindreginn framsóknarmaður og vann flokknum af ósérhlífni og hyggindum alla tíð og var þar í forystusveit. Hann var glæsimenni og í eðli sínu mikill for- ingi eins og hann átti kyn til og menn tóku mark á skoðunum hans. Sæ- mundur sat í bæjarstjórn Sauðár- króks um árabil, forystumaður í hestamannafélaginu Léttfeta og meðal hrossaræktenda. Þá var hann forgöngumaður um stofnun Lions- klúbbs og Félags aldraðra. Ég átti því láni að fagna að eiga Sæmund að vini og nánum samherja um marga áratugi. Ég þakka af heilum hug öll þau ár, fjölmörg hollráð, mikla gestrisni þeirra hjóna og tryggðavináttu. Ásu og afkomendum þeirra sendi ég inni- legar samúðarkveðjur okkar hjóna. Eftir lifir minningin um einstakan ágætismann. Páll Pétursson. Elsku afi, mér finnst svo skrýtið að þú skulir vera farinn, því þó að þú hafir verið veikur síðustu árin gat maður samt alltaf komið til þín og þú varst alltaf svo glaður að sjá okkur barnabörnin þín. Minningarnar sem koma upp í hugann eru óteljandi en það var alltaf voðalega gaman að koma til ykkar ömmu niður á Skagfirðingabrautina. Þar var ýmislegt hægt að bralla, skoða gullið hennar ömmu, næla sér í heimagerðann frostpinna og svo var alltaf rosalegt sport þegar við feng- um að skrifa eitthvað á ritvélina þína og að prófa stimplana þína. En ætli það hafi ekki verið skemmtilegast þegar ég fékk að koma með ykkur Helga Sæmundi í Skörðugil að hugsa um hestana. Að fá að gefa þeim hey og stundum grasköggla, klifra í hey- böggunum og sitja svo inni á kaffi- stofu, borða ömmukleinur og taka einn veiðimann við ykkur – það var eitthvað sem ekkert gat toppað. En nú kveð ég þig í síðasta skiptið í bili og þakka þér fyrir allt. Ása María. Ég man fyrst eftir frænda mínum heima hjá foreldrum mínum í Siglu- firði. Ég var lasinn inni í rúmi og þessi frændi minn, sennilega að koma í mat, kom inn að rúmi til mín í fullum lögregluskrúða og dengdi kylfunni á borðið hjá mér, hvílík upplifun fyrir fimm ára strák, frændi minn er lögga, með kylfu, handjárn og allar græjur. Sem betur fer eru þetta einu kynni mín af þessum græjum lög- reglunnar. Sæmundur var mjög framsýnn og stórhuga framkvæmdamaður, þess ber allt hans nánasta umhverfi merki. Það er stundum sagt að slíkir menn reisi sér minnismerki, Sæ- mundur hafði slíkt örugglega ekki í huga þegar hann, sem framkvæmda- stjóri sjúkrahússins á Sauðárkróki, lagði grunninn að því glæsilega húsi og þeirri mikilvægu starfsemi sem þar fer fram, öllum sem að hafa kom- ið til mikils sóma. Sæmundur var mikill félagsmálamaður og eru þau félögin ófá sem notið hafa útsjónar- semi og starfskrafta hans. Ég ætla að nefna Framsóknarflokkinn sérstak- lega. Framsóknarflokkurinn naut um langt árabil ómældra starfskrafta hans, þar sem hann vann í þágu flokksins og samfélagsins af miklum heilindum. Hann varði gerðir flokks- forystunnar af heilindum í hverju máli og stóð þar fastur fyrir, ef hon- um mislíkað eitthvað í gerðum foryst- unnar, þá bar hann það ekki á torg, heldur sagði það á þeim stöðum, sem það átti við. Ég hef stundum hugsað það, og svona til að vera aðeins á léttu nótunum, sem honum var mjög að skapi, þá held ég að hann hefði verið betri í Framsóknarflokknum eins og hann er í dag. Sæmundur notaði vin- áttu- og trúnaðarsambönd sem mynduðust í flokksstarfinu í þágu samfélagsins á Sauðárkróki og ber hið glæsilega sjúkrahús þess sérstak- lega merki. Ég þakka þessum frænda mínum samfylgdina og traustið alla tíð, við Ásdís sendum Ásu, frændum mínum, frænkum og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur. Björn Jónasson. Kveðja frá Lionsklúbbi Sauðárkróks Dagur er að kveldi kominn, ævi- skeið á enda. Sæmundur Árni Her- mannnsson hefur kvatt og heldur nú til nýrra heimkynna. Við sem eftir stöndum þökkum samfylgdina og ánægjulegar stundir. Sérstakar þakkir færa félagar í Lionsklúbbi Sauðárkróks fyrir frumherjastarfið. Sæmundur var einn aðalhvatamaður að stofnun Lionsklúbbs Sauðárkróks fyrir rösklega fjörutíu árum. Lions- hreyfingin var þá lítt þekkt hér um slóðir og það var talsvert átak fyrir þá þrjátíu brautryðjendur með Sæ- mund Árna í broddi fylkingar að kynna lionshreyfinguna og afla henni stuðnings meðal almennnings, en það var lykilatriði til að ná árangri í því menningar- og líknarstarfi sem lions- hreyfingin grundvallast á. Sæmundur var laginn að fá menn til að vinna með sér, það var hans sterka hlið. Áhuginn var ótvíræður og menn voru fúsir að vinna fyrir hann. Hann var óþreytandi að mæta á fundi og var einsdæmi að hann hafði 100% mætingu á fundi í lions- klúbbnum allan þann tíma sem hann starfaði, allt þar til heilsa hans brast. Sæmundur gegndi öllum trúnaðar- störfum í Lionsklúbbi Sauðárkróks og var heiðraður fyrir mikil og óeig- ingjörn störf fyrir lionshreyfinguna með því að gera hann að Melvin Jon- es-félaga, sem er æðsti heiður sem klúbburinn veitir. Síðustu árin sem Sæmundur lifði dvaldist hann á Heilbrigðisstofnun- inni á Sauðárkróki. Eftir að hann kom þangað hætti hann að geta starf- að með klúbbnum og var þá gerður að heiðursævifélaga. Að leiðarlokum kveðjum við lions- menn þennan góða félaga og vottum eftirlifandi eiginkonu hans, Ásu Helgadóttur, og fjölskyldu hans allri dýpstu samúð og biðjum Guð að blessa minningu hans. F.h. Lionsklúbbs Sauðárkróks Magnús H. Sigurjónsson. að reyna að safna nöglum, hún vildi auðvitað vera eins, en í huga lítils barns er það „að safna einhverju“ kannski ekki eins og hjá okkur. Hún var búin að finna bláan ópalpakka, svo klippti hún neglurnar af sér og setti þær í ópalpakkann. Gréta var mjög ákveðin, dugleg og snyrtileg manneskja. Það þýddi ekk- ert fyrir mann að ætla að breyta ein- hverju ef hún var búin að ákveða annað. Þegar hún var að ljúka grunnskóla bjó hún hjá okkur í eitt og hálft ár. Það var mjög gott að hafa hana hjá sér, hún var mjög dugleg að hjálpa til við heimilið og ófáar stund- irnar sem hún passaði Grétar Þór fyrir okkur. Ég man að á þessum tíma saumaði hún sér frakka með að- stoð frá ömmu í Aðalstræti, þetta var mjög flottur frakki hjá henni og not- aði hún hann mikið. Síðan skildi leið- ir okkar er hún flutti til Danmerkur og eignaðist mann og börn. Það var ekki oft sem við hittumst eftir það, en töluðum þeim mun meira saman í síma. Hún Gréta systir var engill, ef svo má að orði komast. Hún elskaði mann sinn og syni og síðustu átta ár- in, eða eftir að hún greindist með þann illvæga sjúkdóm sem krabba- mein er og varð henni að aldurtila að lokum, tileinkaði hún sonum sínum og manni. Það er varla til sá skemmtigarður í Danmörku sem þau hafa ekki farið í. Gréta Mjöll hafði yndi af því að vera með sonum sínum og gera eitthvað með þeim, hvort sem það var að ferðast, fara með þeim í leikfangabúðina eða setjast með þeim og horfa á góða mynd. Hún og Henning fóru einnig til nokkurra borga í Evrópu, þar á meðal Rómar, sem hún hafði mikið dálæti á. Hún sagði við mig: „Ef þú átt eftir að fara eitthvað utan þá skaltu fara til Róm- ar.“ Árið 2001 heimsóttum við þau. Við áttum mjög góðar stundir saman jafnt í Rosingårdcenter, skemmti- görðum eða heima yfir kaffibolla eða öli og Alexander spilaði tónlist og söng fyrir okkur á meðan. Síðar sama ár komu þau til Ís- lands. Það var mjög skemmtilegur tími og er mér minnisstæðast er við fórum að veiða. Ég held að Gréta Mjöll hafi fengið flesta fiskana, ég man hvað henni þótti gaman að veiða, hún ljómaði alveg af gleði. Hún var miklu spenntari en strákarnir. Í ágúst 2003 komu hún og bræður okkar, Hallur og Oddur, til Íslands. Þetta var í fyrsta skipti síðan 1983 sem við hittumst öll systkinin og var það afmælisgjöf til mömmu þegar hún varð sextug. Ég held að hún hefði ekki getað óskað sér betri af- mælisgjafar. Já þarna vorum við öll komin til að gleðjast með henni á þessum tímamótum. Þegar Gréta kom til Akureyrar og Grétar Þór sótti hana á flugvöllinn sagði hún við hann: „Ég verð að komast í Litlu kaffistofuna og fá mér einn ham- borgara með ananas.“ Það var langt síðan hún fékk svona góðan ham- borgara. Í ágúst í fyrra fórum ég og systir mín Heiðbrá til Odense og áttum við systurnar, ég, Heiðbrá og Gréta Mjöll, mjög góðar stundir saman. Það var auðvitað farið í bæinn og Ro- sengårdcenter, ráfað um og létt á pyngjunni eins og konum einum er lagið. Það er alltaf erfitt að kveðja ást- vini, sérstaklega þegar þeir eru ung- ir og skilja eftir sig ung börn. En því- lík eigingirni í manni að vilja halda í þig vitandi það að þú ert sárkvalin. Þá kemur upp Pollýönnuhugsunin hjá mér, það góða við það að þú kvaddir þennan heim er að núna færðu hvíld og ert laus við allar þján- ingar og kvalir. Elsku systir ég á eftir að sakna þín mikið, sérstaklega þegar fer að nálg- ast 20. desember og það er engin Gréta systir til að hringja í á afmæl- inu hennar og öll hin skiptin sem við töluðumst við í síma um allt milli himins og jarðar, sérstaklega þó börnin okkar og okkur sjálfar, það verða víst ekki fleiri símtöl. Það var svo gott að setjast niður og hringja í þig, við skildum svo vel hvor aðra og gátum talað saman í langan klukku- tíma. Ég þakka þér fyrir allan þann tíma sem ég hef átt með þér, öll símtölin sem við höfum átt og allar góðu minningarnar sem þú hefur gefið mér sem ég varðveiti í hjarta mínu. Elsku Henning, Patrick og Alex- ander, megi ljósið sem í fjarska virð- ist svo dauft glaðna og styrkja ykkur í sorg ykkar og leitinni að gleði á ný. Þín systir Harpa og fjölskylda. Systir mín kær fór frá okkur 15. júlí síðastliðinn. Í mörg ár, já síðan ’67 hefur Gréta Mjöll verið partur af lífi mínu, við höfðum gleði hvort af öðru við ræddum um margt og mikið, við þekktum svör hvors annars að mestu leyti. Við eigum minningar sem hefðu getað fyllt elliár okkar en svo verður ekki. Nú er hún farin til himna en aldrei úr hjarta mínu. Tárin eru leiðin til að lækna undir, syngur Bubbi og sænska hljómsveit- in Timbuktus syngur „Alla vill till himmelen men ingen vill dö“ og ég segi af hverju mátti hún ekki verða amma eða jafnvel langamma? Leitið og þið munið finna sagði maðurinn. En sum svör eru fljúgandi um loftin blá og detta kannski aldrei hingað niður, svo ég geti fundið þau. Hallur Þeyr Reykdal. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR BENEDIKTSSONAR, Dalbæ, Dalvík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Dalbæ fyrir góða og hlýlega umönnun, einnig til lækna og hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Hermann Guðmundsson, Margrét Arnþórsdóttir, Ingvar Guðmundsson, Sigríður Ólafsdóttir, Kolbrún Hilmisdóttir, afa- og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR frá Hlíð, Siglufirði, Kópavogsbraut 1B, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 22. ágúst kl. 15.00. Sólveig Helga Jónasdóttir, Einar Long Siguroddsson, Ásgeir Jónasson, Ásdís Hinriksdóttir, Margrét Einarsdóttir, Guðmundur Ragnarsson, Fanney Long Einarsdóttir, Eggert Gíslason, Jónas Ásgeir Ásgeirsson og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, STEINÞÓRS JENSEN, Norðurbyggð 16, Akureyri. Guðjón B. Steinþórsson, Svava Ásta Jónsdóttir, Þórey Edda Steinþórsdóttir, Jóhannes Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, teng- damóður, ömmu, dóttur, systur og mág- konu, GUÐBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR kennara, Granaskjóli 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki deildar 11E Landspítala, fyrir góða og hlýlega umönnun Guðbjargar. Björn S. Pálsson, Eva Björnsdóttir, Jóhann Bjarki Júlíusson, Íris Björnsdóttir, Helgi Mar Árnason, Björn Ívar Björnsson, Marín Helgadóttir, Ingibjörg J. Jónasdóttir, Þórður Snæbjörnsson, systkini og mágar. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GEIRS JÓHANNS GEIRSSONAR vélstjóra, Hagamel 30. Eybjörg Sigurðardóttir, Nína Geirsdóttir, Þorvaldur Geirsson, Geir Helgi Geirsson, Helga Guðjónsdóttir, Lovísa Geirsdóttir, Valgerður Geirsdóttir, Viktor Arnar Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.