Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 47 KIRKJUSTARF Messur og helgihald á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju DAGANA 20.–28. ágúst verður Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju með afar fjölbreyttri dagskrá, en þetta er 10. Kirkjulistahátíðin sem haldin er í kirkjunni. Hátíðin verður sett á hátíðar- samkomu kl. 16 í dag og síðan verður Listavaka unga fólksins fram eftir kvöldi en kl. 10 verður helgistund í umsjá sr. Jóns D. Hró- bjartssonar. Margrét Sigurðar- dóttir, sópran, syngur einsöng. Sunnudaginn 21. ágúst verður hátíðarmessa kl. 11. Sr. Sigurður Pálsson prédikar en með honum þjóna að messunni sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, Magnea Sverrisdóttir, djákni og fleiri messuþjónar. Sönghópurinn Voces Thules syngur og organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. David Sanger konsertorganisti frá Eng- landi, einn af gestum Kirkjulista- hátíðar, leikur eftirspil í messunni. Sögustund verður fyrir börnin. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa. Alla daga Kirkjulistahátíðar verður helgihald, þ.e. hið hefð- bundna helgihald Hallgrímskirkju, í miðri viku, bænamessa kl. 10.30 á þriðjudag og morgunmessa kl. 8 á miðvikudag, þá verða tónlistar- andaktir kl. 12 alla dagana frá mánudegi til laugardags þar sem fjölmargir listamenn og prestar koma við sögu. Lokadagur hátíðarinnar verður sunnudaginn 28. ágúst, en þá verð- ur m.a. hátíðarmessa með biskupi Íslands Karli Sigurbjörnssyni o.fl. Guðsþjónusta á Menningarnótt ÞAÐ verður guðsþjónusta á Ing- ólfstorgi á Menningarnótt kl. 18. Stundin hefst með trommuslætti á jambei-trommur undir stjórn Rayans Wade. Ellen Kristjánsdóttir og KK flytja sálma og Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur pre- dikar og þjónar ásamt prestunum Bolla Pétri Bollasyni, Bjarna Karlssyni og Ragnhildi Ásgeirs- dóttur djákna. Í lok stundarinnar verður fyrirbæn og svo verður öll- um á torginu boðin blessun með olíu. Miðborgarstarf KFUM/KFUK og Þjóðkirkjunnar. Guðni Ágústsson prédikar TÖÐUGJÖLD eru í Strandarkirkju árviss um þetta leyti þegar fagnað er í tali, tónum og í söng uppskeru þeirri er fengist hefur það árið. Óhætt er að fullyrða að sjaldan hefur verið meiri ástæða til þakka- gjörðar en einmitt nú þegar hlýindi og aðrar ytri aðstæður hafa skilað okkur miklum jarðargróða ofaní allan annan gróða. Að þessu sinni stígur Guðni Ágústsson æðstur innlendra manna um málefni þess búnaðar er að landinu snýr í stólinn og er ekki að efa að hann færir athugunarefni dagsins í eftirminnilegt form orða. Strandarkirkja, kirkjan við ysta haf, á sér mikla og merkilega sögu og er mesta áheitakirkja í lúth- erskum sið hérlendis. Í Selvogi, þar sem kirkjan stend- ur, er ýmiss konar ferðamanna- þjónusta og hægt að verða sér úti um kaffisopa og annan velgjörning til töðugjalda. Baldur Kristjánsson. Söfnuður vaknar NÚ rumskar Laugarnessöfnuður af sínum árlega sumardvala og mætir til guðsþjónustu sunnudaginn 21.ágúst kl. 11. Þá verður barna- samvera í boði, en sunnudagaskól- inn hefur göngu sína 4. september. Nú eru 12 spora-hópar þegar komnir til starfa og mömmu- morgnakonur er löngu farnar að hittast, auk gönguhópsins Sólar- megin sem leggur upp frá kirkju- dyrum hvern miðvikudagsmorgun kl. 10.30 og býður hverjum sem vill að slást í hópinn. Kyrrðarstundir hefjast nú að nýju hvert fimmtudagshádegi kl. 12 og þriðjudagskvöldið 30. ágúst mun kvöldsöngurinn hefja takt- fasta göngu sína kl. 20. Aðrir þætt- ir safnaðarstarfsins munu finna sinn stað strax í fyrstu viku sept- ember og er tilhlökkun í öllum sem að starfinu standa að hefjast handa. Er ástæða til að hvetja allt fólk, sem lætur sig líf og hugsjónir Laugarnessafnaðar varða, að koma til messu á morgun kl. 11 og efla samstöðuna. Guðsþjónusta í Sólheimakirkju NK. sunnudag verður guðsþjón- usta í nýju kirkjunni á Sólheimum í Grímsnesi. Að Sólheimum eru allir velkomnir. Þar er margt að sjá og fylgjast með. Þar er líka þess virði að taka þátt í guðsþjónustu með heimafólki og gestum í nýju kirkj- unni. Guðsþjónustan sunnudaginn 21. ágúst hefst kl. 14. Sr. Valgeir Ást- ráðsson sér um guðsþjónustuna. Organisti verður Þóra Marteins- dóttir. Á Sólheimum er kaffihúsið „Græna kannan“ opið, ásamt mörgu því, sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Það er góð sunnudagsferð að fara að Sólheimum, taka þátt í guðsþjónustu og kynnast staðnum í leiðinni. Þar eru allir velkomnir. Keldnakirkja á Rangárvöllum 130 ára SUNNUDAGINN 21. ágúst, verður þess minnst við messu í Keldna- kirkju á Rangárvöllum að í ár eru 130 ár liðin frá því að kirkjan var vígð. Messan á sunnudaginn hefst kl. 14. Sóknarpresturinn, séra Sig- urður Jónsson í Odda prédikar og þjónar fyrir altari og organisti kirkjunnar, Guðjón Halldór Óskarsson leikur undir almennan safnaðarsöng. Meðhjálpari kirkj- unnar er Drífa Hjartardóttir bóndi og alþingismaður á Keldum, og er hún jafnframt sóknarnefndarfor- maður. Að messu lokinni býður sóknar- nefnd Keldnasóknar kirkjugestum til kaffisamsætis í nýju Safnaðar- heimili Oddasóknar að Dynskálum 8 á Hellu. Þar flytur Þórunn Valdi- marsdóttir, sagnfræðingur og skáld, erindi um skáldprestinn sr. Matthías Jochumsson, sem þjónaði Keldnakirkju frá 1881 til 1887. Einnig leikur Lilja Valdimarsdóttir á horn lög við sálma séra Matthías- ar. Allir eru velkomnir sem sam- fagna vilja Keldnasöfnuði á þessum tímamótum. Morgunblaðið/Sverrir FRÉTTIR STJÓRN Samtakanna ’78 lýsir yfir ánægju sinni með þá yfirlýsingu forsætisráðherra, Halldórs Ás- grímssonar, að stefnt skuli að full- um fjölskyldurétti til handa sam- kynhneigðum í frumvarpi því sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram á Alþingi í haust. „Það er dýrmætt tímanna tákn að ríkisstjórn Íslands skuli líta svo á að samkynhneigðum beri í öllu til- liti sami réttur og öðrum þegnum, þar með talinn réttur til ættleið- ingar barna af erlendum uppruna og réttur til tæknifrjóvgana kvenna í staðfestri samvist. Með þessari af- stöðu tekur ríkisstjórnin af festu undir niðurstöður þess hluta nefnd- ar forsætisráðherra um réttarstöðu samkynhneigðra sem árið 2004 tal- aði í rökstuddu máli fyrir fullum fjölskyldurétti til handa lesbíum og hommum Það er íslenskri lýðræðisþróun ómetanlegur styrkur að ríkisstjórn- in skuli standa að baki svo víðtæku frumvarpi til réttarbóta án þess að skorast undan því að veita samkyn- hneigðum fullan rétt til ættleiðinga og tæknifrjóvgunar. Lög um stað- festa samvist árið 1996 voru merki- leg réttarbót sem gjörbreytti gild- ismati samfélagsins til góðs. Með væntanlegu frumvarpi sínu mætir ríkisstjórn Íslands kröfum sem nú njóta stuðnings yfirgnæfandi meiri- hluta þjóðarinnar. Slík ákvörðun lýsir framsýni og stórhug og er það fagnaðarefni að æðstu stjórnvöld starfi svo vel í takt við þjóðarvilja.“ Fagnar orðum forsætis- ráðherra ÁRÉTTAÐ skal vegna fréttar í blaðinu í gær um framlengingu á gæsluvarðhaldi manns sem grunað- ur er um fíkniefnasmygl með Nor- rænu, að hvorki héraðsdómur né hæstiréttur reifaði eða tók afstöðu til ýmissa þeirra röksemda sem settar voru fram í gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar. Þetta á m.a. við um þau rök lögreglunnar að það myndi vekja athygli og andúð almennings ef hinn grunaði endurheimti frelsi sitt á þessari stundu. LEIÐRÉTT Rök lögreglu, ekki dómsins FÉLAGIÐ Siðmennt hefur óskað eftir að birt verði athugasemd vegna fyrirsagnar á frétt sem birtist um fé- lagið í Morgunblaðinu í gær. Í fyr- irsögninni segir „Félagið Siðmennt óskar eftir að verða skráð sem trú- félag“. Þetta telur Siðmennt vera mis- túlkun á innihaldi fréttatilkynningar sem stjórn Siðmenntar sendi Morg- unblaðinu í vikunni. Í fréttinni kemur fram að félagið hefur farið þess á leit „við þingmenn- ina að þeir breyti lögum um skrán- ingu trúfélaga í þá veru að staða ólíkra lífsskoðana verði jöfnuð“. „Siðmennt reyndi skráningu sem trúfélag samkvæmt núgildandi lög- um. Sú leið er fullreynd enda heimila lögin eingöngu skráningu lífsskoð- unarfélaga sem byggjast á trú, þ.e. trúfélög,“ segir í athugasemd frá Siðmennt, en þar kemur fram að fé- lagið telur eðlilegra að fyrirsögn fréttarinnar hefði verið: „Félagið Siðmennt óskar eftir gerð nýrra laga um jafna stöðu á við önnur lífsskoð- unarfélög.“ Athugasemd frá Siðmennt MÓTMÆLENDUR hérlendir sem erlendir standa fyrir götuhátíð í dag, laugardag kl. 13, sem mun hefjast á göngu frá Skólavörðuholt- inu að Andspyrnutjaldinu við Tjörnina. Hver sem er getur tekið þátt í hátíðinni og sýnt andúð sína á mannréttindabrotum þeim sem mótmælendur sem kenndir eru við Kárahnjúka hafa þurft að sæta, segir í fréttatilkynningu. Mótmælendur ganga um götur borgarinnar í búningum, flytja tón- list, einnig verða andspyrnutrúðar og gangandi götulistaverk mótmæl- enda. Gangan mun enda á gjörningi sem kenndur er við fjallkonuna, táknmynd hálendisins. Upplýsing- um verður dreift til kynningar á markmiðum til verndar náttúru Ís- lands. Tónlistarmenn munu spila við tjaldið að göngunni lokinni. Þá verða sýndar andspyrnumyndir af aðgerðum mótmælenda á Austur- landi. Andspyrnu- götuhátíð haldin í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.