Morgunblaðið - 20.08.2005, Side 52

Morgunblaðið - 20.08.2005, Side 52
52 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING www.kringlukrain.is sími 568 0878 Geirmundur Valtýsson og hljómsveit í kvöld 9. sýn. sun. 21/8 kl. 14 nokkur sæti laus 10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 sæti laus 11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 sæti laus Kabarett í Íslensku óperunni Næstu sýningar Föstudaginn 19. ágúst - UPPSELT Laugardaginn 20. ágúst kl. 20.00 Föstudaginn 26. ágúst kl. 20.00 Laugardaginn 27. ágúst kl. 20.00 Sunnudaginn 28. ágúst - Örfá sæti laus Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON “Söngur Þórunnar er í einu orði sagt stórfenglegur...” SH, Mbl. KIRKJULISTAHÁTÍÐ 2005 20.–28. ÁGÚST Hallgrímskirkju í Reykjavík Matteusarpassían eftir Johann Sebastian Bach, BWV 244 Flytjendur: Markus Brutscher tenór, guðspjallamaður Andreas Schmidt bassi, Jesús Noémi Kiss sópran Robin Blaze kontratenór Gunnar Guðbjörnsson tenór Jochen Kupfer bassi Benedikt Ingólfsson bassi, Pílatus o.fl. Mótettukór Hallgrímskirkju Drengjakór Reykjavíkur, Hallgrímskirkju Unglingakór Hallgrímskirkju Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag Stjórnandi: Hörður Áskelsson Miðaverð: 4000 kr. 21. ágúst kl.17.00 22. ágúst kl.19.00 fyrir tvo kóra, drengjakór, tvær hljómsveitir og sjö einsöngvara.Eitt af höfuðverkum vestrænnar menningar flutt í fyrsta skipti í barokkstíl hér á landi, með einsöngvurum í fremstu röð. Nánari upplýsingar á www. kirkjan.is/kirkjulistahatid og í síma 510 1000 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Eiríki Þorlákssyni, forstöðumanni Lista- safns Reykjavíkur: „Listasafn Reykjavíkur er rekið af Reykjavíkurborg sem hluti þeirrar þjónustu á menningarsvið- inu, sem borgin vill halda uppi fyrir íbúa hennar og gesti. Rekst- ur safnsins, þar með talið skipulag sýninga, er á ábyrgð forstöðu- manns. Í viðtali við Einar Hákonarson í Morgunblaðinu 19. ágúst er því haldið fram að Listasafn Reykja- víkur hafi hafnað því að sýna verk Einars Hákonarsonar innan safns- ins. Þessi fullyrðing, hvort sem hún er listamannsins eða blaða- mannsins sem tók viðtalið við hann, er ekki sannleikanum sam- kvæm. Í samræmi við reglur borg- arinnar var starfsáætlun Listasafns Reykjavíkur fyr- ir árið 2005 – og þar með talin áætlun um sýn- ingahald – lögð fram í október 2004, og af- greidd með hefðbundnum hætti af valdastofnunum borg- arinnar á næstu vikum þar á eftir. Einar Hákonarson skrifaði bréf til borgarráðs – hins pólitíska framkvæmdaráðs borgarinnar – seint í nóvember á síðasta ári og óskaði eftir að fá að halda sýningu í Listasafni Reykjavíkur. Erindi hans var um síðir kynnt Listasafni Reykjavíkur, og benti undirritaður þá á að samþykkt áætlun um sýn- ingahald lægi fyrir. Hvorki borg- arráð né nokkuð annað boðvald innan Reykjavíkurborgar hefur nokkru sinni sett fram ósk við Listasafn Reykjavíkur um að vikið yrði frá samþykktri sýning- aráætlun til að rýma til fyrir sýn- ingu á verkum Einars Há- konarsonar, enda hafa slík pólitísk afskipti af starfsemi safnsins ekki tíðkast a.m.k. í þann tíma sem undirritaður hefur veitt safninu forstöðu. Einar Hákonarson hefur sem sagt aldrei sótt um eitt né neitt til Listasafns Reykjavíkur, og þar af leiðandi hefur erindi hans aldrei verið hafnað af undirrituðum fyrir hönd safnsins. Því miður hefur Einar Há- konarson haft starfsemi Lista- safns Reykjavíkur á hornum sér meira og minna í hart nær tvo áratugi, eða síðan hann var sjálfur mikill áhrifamaður um rekstur þess, fyrst sem pólitískt skipaður formaður menningarmálanefndar og síðan sem listráðunautur Kjar- valsstaða. Listasafn Reykjavíkur verður að sjálfsögðu að lifa við þær að- finnslur, en þó má benda á íbúar borgarinnar og gestir virðast ekki deila þessari vandlætingu Einars yfir sýningum safnsins, heldur þvert á móti: árið 2004 komu um 160.000 gestir í byggingar Lista- safns Reykjavíkur, fleiri en nokkru sinni fyrr. Að lokum vil ég óska Einari Há- konarsyni til hamingju með sýn- inguna „Í grasrótinni“ og vona að hún fái verðugar móttökur.“ Um tilurð sýningar Eiríkur Þorláksson SÝNING á Jöklaseríu Ólafs Elías- sonar verður opnuð á Eiðum í dag. Jöklaserían er safn 48 litljós- mynda sem Ólafur tók úr lofti í nóv- ember sl. og sýna Jökulsá á Dal frá upptökum til byggðar. Þær birtust í sérblaði með Morgunblaðinu í vor og voru einnig sýndar í 101 Gallerí sem hluti af Listahátíð í Reykjavík. Myndirnar hafa þá sérstöðu að vera teknar í lit, en líta út eins og svart- hvítar, þar sem jörð er snævi þakin. Líklegt er að þetta sé eina mynd- röðin sem til er af Jöklu á þennan máta og verði því söguleg heimild þegar fram líða stundir. Myndirnar verða til sýnis á Eiðum fram eftir hausti. Ólafur Elíasson (f. 1967) hefur á skömmum tíma áunnið sér tryggan sess í hinum alþjóðlega myndlistarheimi. Oft eru verk hans stórar innsetningar þar sem áhorf- andinn upplifir birtu, vind eða gufu án þess að um hlutbundin verk sé að ræða, verkið er þá í raun eðl- isfræðilegt ástand. Einnig hefur hann gert skúlptúra og ljósmyndir og má í ljósmyndaverkum hans iðu- lega sjá útfærslu á einhvers konar rannsókn eða skrásetningu á nátt- úru og landslagi. Þar sem hann á ættir að rekja til Íslands hefur hann mikið notað fyrirbæri í náttúru landsins sem fyrirmynd, skriðjökla, mosa, skófir og ár. Sýningin verður opnuð kl. 16 í íþróttasal Eiðastaðar. Jöklasería Ólafs Elíassonar á Eiðum Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hluti af Jöklaseríu Ólafs Elíassonar á sýningunni á Eiðum. HIÐ nýstofnaða tríó Tónafljóð leikur í Iðnó í dag kl. 15. Tríóið er skipað þeim Sigrúnu Erlu Egilsdóttur, Þórunni Elínu Pét- ursdóttur og Hafdísi Vigfús- dóttur. Á efnisskrá eru þjóðlagaút- setningar eftir Þorkel Sig- urbjörnsson og Snorra Birg- isson auk verka eftir Villa Lobos, Telemann, Debussy og Hildigunni Rúnarsdóttur. Sigrún Erla Egilsdóttir, Hafdís Vigfúsdóttir og Þórunn E. Pétursdóttir. Tónafljóð leika í Iðnó ÞESSIR barnaskór eru yfir 2.000 ára gamlir og fundust í gröf í Palmyra í Sýrlandi, um 250 km norðaustur af höfuðborginni Damaskus. Þeir eru til sýnis á múmíusýningu sem nú stendur yfir í Palmyra-safninu, þar sem gef- ur að líta nokkrar 2.000 ára gamlar múmíur og fleiri fornminjar. Reuters Fornir barnaskór Á MENNINGARNÓTT verð- ur opnuð í Galleríi Fold sýning á vatnslitamyndum og teikn- ingum eftir Halldór Pétursson. Flestar myndanna eru sýndar í fyrsta sinn og stendur sýningin til 4. september. Landsþekktur fyrir teikningar sínar Myndskreytingar Halldórs Péturssonar hafa skipað sér- stakan sess hjá landsmönnum fyrir stíl og skopskyn. Snemma varð Halldór landsþekktur fyr- ir teikningar sínar og var hann frumkvöðull á sviði skopteikn- inga á Íslandi. Oft er talað um að bók Hall- dórs og Njarðar P. Njarðvík, Helgi skoðar heiminn, hafi markað tímamót í íslenskri myndabókaútgáfu. Bæði var bókin litprentuð, en hún var ekki hvað síst merkileg fyrir það íslenska sögusvið sem í bókinni birtist. Halldór Pétursson í Galleríi Fold

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.