Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 53 HLJÓMSVEITIN Earth Affair leikur á sérstakri menningarnæt- urdagskrá Landsbankans í Austur- stræti í kvöld klukkan 20. Tónleik- arnir eru þeir þriðju sem hljómsveitin heldur en áður lék sveitin á Iceland Fashion Week árið 2003 og svo á stórtónleikunum í Tromsö sem gengu undir fanga- marki Nelsons Mandela, 4664. Gulli Briem, leiðtogi Earth Aff- air, segir að hugmyndin á bak við hljómsveitina sé í raun framhalds- verkefni plötunnar Chapter One sem kom út í fyrra. „Ég setti þessa hljómsveit saman til að leika lögin af plötunni minni. Þarna eru alls kyns tónlistarmenn og því verður þetta svolítið skrítinn hljóðheimur þegar við komum sam- an og það má finna bæði keltneskan og gregórískan blæ á þessari „ambíent“ tónlist eins og ég hef kallað hana en íslensk þýðing yrði væntanlega „draumkennt al- þjóðapopp“ eða eitthvað álíka.“ Meiri kraftur Gulli segir að sveitin hafi endur- útsett lögin fyrir lifandi flutning og krafturinn sé meiri en á plötunni. „Andstæðurnar eru líka orðnar meiri nú eftir að við fengum til liðs við okkur nítján ára norðurírskan álf að nafni Jarlath Henderson sem spilar á flautur og írskar belgpípur og svo er mikill heiður fyrir okkur að hafa Voces Thules og þeir hafa stutt þetta verkefni af miklum krafti og gefið tónlistinni mikinn lit.“ Hvað taki við í framhaldinu segir Gulli að fyrir liggi að semja fleiri lög fyrir plötu sem væntanlega verður tilbúin á næsta ári. „Við höf- um líka mikinn áhuga á að leika á fleiri góðgerðartónleikum um allan heim því að það er verkefni sem togar óneitanlega í okkur.“ Tónlist | Earth Affair sækir Ísland heim Draumkennt alþjóðapopp Sveitin lék á friðartónleikum í Tromsö fyrir stuttu og hitti margan merkan manninn. Hér er Annie Lennox með Gulla Briem og Sverri Guðjónssyni. Earth Affair í öllu sínu veldi. Hljómsveitin leikur í Landsbankanum í kvöld. SÖNGVARINN Joe Cocker er senn væntanlegur til landsins en hann mun halda tónleika hér á landi 1. september. Í tilkynningu frá Concert, sem stendur að tón- leikunum, segir að Cocker hygg- ist koma til landsins fimm dögum fyrir tónleikana og renna fyrir lax á Íslandi. Þá segir að Cocker sé afburða- silungsveiðimaður og hafi í ára- raðir veitt silung, bæði í Banda- ríkjunum og á Bretlandseyjum. Nú langar hann renna fyrir lax á Íslandi. „Þekktur er áhugi félaga hans Eric Claptons fyrir laxveiði á Ís- landi sem og Kiri Te Kanawa óp- erusöngkonu sem kemur hingað til lands mörgum sinnum á ári. Nú gætu Íslendingar verið að „landa öðrum stórlaxi“ í laxa- áhugamannafélagið og þá vænt- anlega fastagesti næstu árin,“ segir ennfremur í tilkynningu Concert. Fólk | Söngvarar eru líka veiðimenn Joe Cocker ætlar að renna fyrir lax Ætli það bíti á hjá Joe Cocker á Íslandi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.