Morgunblaðið - 07.09.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 07.09.2005, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SÍMAFÉ RÁÐSTAFAÐ Gert er ráð fyrir að 18 millj- örðum af söluandvirði Símans verði varið til uppbyggingar há- tæknisjúkrahúss á Landspítalalóð- inni í Reykjavík á árunum 2008 til 2012 og að 15 milljörðum verði varið til framkvæmda í vegamálum á árunum 2007 til 2010, m.a. til Sundabrautar. Þá verði 32,2 millj- örðum, sem greiddir eru í erlendri mynt, varið til þess að greiða niður erlendar skuldir ríkissjóðs á þessu ári. Hætta á umhverfisslysi Embættismenn í New Orleans segja að hætta sé á miklu um- hverfisslysi vegna þess að dæla verði vatni, menguðu olíu og alls kyns eiturefnum, af götunum yfir í Pontchartrain-vatn og ána Miss- issippi. George W. Bush forseti heitir að hafa umsjón með ítarlegri rannsókn á björgunarstarfinu sem margir álíta að hafi tafist úr hófi. Annan gerði mistök Skýrsla óháðrar rannsókna- nefndar, sem birt verður í dag, slær því föstu að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hafi ekki brotið siða- reglur í tengslum við áætlun um sölu á íraskri olíu þar sem spilling kom mjög við sögu. Hins vegar hafi hann gert slæm stjórn- unarmistök. Annmarkar á Baugsmáli Dómendur í Baugsmálinu svo- nefnda telja að slíkir annmarkar kunni að vera á ákæru í málinu að dómur verði ekki kveðinn upp um efni þess. Alls eru taldir upp átján ákæruliðir af fjörutíu sem dómarar telja hugsanlega ófullnægjandi. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %            &         '() * +,,,                   Miðasölusími: 551 1200 Miðasala á netinu: www.leikhusid.is Í dag Fréttaskýring 8 Viðhorf 26 Viðskipti 13 Bréf 28 Erlent 14/15 Brids 29 Minn staður 16 Minningar 30/33 Akureyri 17 Myndasögur 36 Höfuðborgin 18 Dagbók 36/39 Suðurnes 18 Staður og stund 38 Landið 19 Leikhús 40 Daglegt líf 20/21 Bíó 42/45 Menning 22, 40/45 Ljósvakamiðlar 46 Umræðan 23/28 Veður 47 Forystugrein 24 Staksteinar 47 * * * NÝTT og endurskoðað áhættumat fyrir höfuðborgarsvæðið liggur fyrir og verður kynnt meðal allra við- bragðsaðila á næstunni; lögreglu, slökkviliði, björgunarsveitum, sveit- arfélögum og fleirum. Í því áhættu- mati hafa verið sett upp ýmis björg- unartilvik, svo sem vegna eldgosa, flóða, stórbruna og jarðskjálfta. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðs- stjóri er formaður aðgerðastjórnar almannavarnarnefndar höfuðborg- arsvæðisins. Hann segir við Morg- unblaðið að staðan hafi verið metin þannig að litlar líkur séu á að flytja þurfi alla íbúa höfuðborgarsvæðisins burtu í einu. Það sé rétt hjá Jóni Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Landsbjargar, sem fram hafi komið í Morgunblaðinu á mánudag, að engar sérstakar viðbragðsáætlanir séu til um brottflutning allra. Hins vegar hafi alltaf verið til rýmingaráætlun, þ.e. að rýma hús- næði og flytja fólk úr einu hverfi yfir í annað eða í litlum hópum út fyrir svæðið. Jón Viðar átti fund með Jóni Gunn- arssyni og Birni Halldórssyni, deild- arstjóra almannavarnadeildar ríkis- lögreglustjóra, um þessi mál í gær. Læra má af viðbrögðum Bandaríkjamanna Jón Viðar segir engan vafa leika á því að Íslendingar geti margt lært af viðbrögðum Bandaríkjamanna við fellibylnum Katrínu, ekki síst þeim mistökum sem virðist hafa átt sér stað við samhæfingu björgunaraðila. Miklu skipti að samhæfingin sé góð, viðbragðsáætlanir segi ekki allt. „Mikilvægast er að stjórnvöld séu vel tengd og tali saman sín á milli. Skilaboð til fólks innan og utan ham- farasvæða þurfa að vera sterk,“ seg- ir Jón Viðar og telur að hér á landi hafi ágæt reynsla verið af viðbrögð- um við Hringrásarbrunanum þegar rýma þurfti tiltekið svæði. Þar hafi vel tekist til með samhæfingu aðila eins og lögreglu, slökkviliðs, björg- unarsveita og borgaryfirvalda. „Við finnum það í erlendu sam- starfi að menn eru virkilega að draga lærdóma hver af öðrum. Menn vilja læra af mistökum annarra og einnig því sem vel er gert. Þó að rígur geti verið milli landa víkur hann þegar kemur að þessum málaflokki,“ segir Jón Viðar en honum hefur verið boð- ið til London að kynna sér viðbrögð Breta við hryðjuverkunum þar í borg í sumar og margháttaður lærdómur hefur fengist að viðbrögðunum við flóðunum í Asíu. Hætturnar liggja fyrir Björn Halldórsson bendir á að menn hafi ekki verið að vakna við vondan draum vegna náttúruham- faranna í Bandaríkjunum. Hér á landi hafi menn gert sér vel grein fyrir þeim hættum sem fólki stafar af í landi elds og ísa. Í neyðarskipulagi sé t.d. almenn áætlun um flótta, rým- ingu og brottflutning. „Menn þurfa að gera sér grein fyr- ir því að náttúruhamfarir úti í heimi þýða ekki að allt gangi á afturfótun- um hér heima fyrir. Það verður að setja hlutina í samhengi og taka mið af aðstæðum hverju sinni. Við getum dregið lærdóm af aðgerðum annars staðar og gott er að bíða eftir rann- sóknum á svona atburðum til að sjá hvað hægt er að nýta sér annars staðar frá,“ segir Björn. Nýtt og endurskoðað áhættumat fyrir höfuðborgarsvæðið að fara í kynningu Litlar líkur á brottflutn- ingi allra íbúa í einu Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Jón Viðar Matthíasson EINN þekktasti og helsti píanóleikari bandarísku framúrstefnunnar, Margaret Leng Tan, heldur í kvöld tónleika í Listasafni Íslands, þar sem hún mun flytja verk eftir bandaríska tónskáldið John Cage, sem var mikilvirkur í framúrstefnutónlist. Á tónleikunum, sem eru hluti af tónlistarhátíðinni Orðið tónlist, mun Margaret leika á „breytt píanó“ að forskrift Cage, en í því skyni þarf að skorða milli strengjanna skrúfur, strokleður, nagla og ýmiss konar „aðskotahluti“. Margaret eyddi góðri stund í sal Lista- safns Íslands í gærkvöldi við það nákvæmnisverk sem felst í breytingu Cage á píanóinu. Morgunblaðið/Kristinn Píanói breytt MAÐURINN sem lést í vinnuslysi við Vagnhöfða í fyrradag hét Daði Þór Guðlaugsson til heimilis að Mávahlíð 6 í Reykjavík. Hann fæddist 9. febrúar árið 1982 og var ókvæntur og barnlaus. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir hjá lögreglu og Vinnueftirliti ríkisins. Rannsókn beinist m.a. að því að varpa ljósi á atburðarásina og taka skýrslur af vitnum. Lést í vinnuslysi KONAN sem brenndist alvarlega í eldsvoða í Stigahlíð 27. ágúst sl. er enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Líðan hennar er nokkuð stöðug, að sögn vakthafandi læknis, en hún er tengd við öndunarvél og haldið sofandi. Rannsókn á upptökum brunans stendur yfir hjá lögreglunni í Reykjavík. Búið er að útiloka eldsupptök út frá ísskáp í herbergi þar sem eld- urinn kom upp samkvæmt upplýs- ingum lögreglu. Er talið að kviknað hafi í út frá opnum eldi á borð við kerti eða vindlingaglóð. Konan úr Stigahlíð enn á gjörgæslu SAMNINGAFUNDUR í deilu SFR vegna starfsmanna á hjúkrunar- heimilum stóð yfir í allan gærdag og lauk ekki fyrr en undir miðnætti hjá ríkissáttasemjara. Þungt hljóð var í samningamönnum, að sögn Jens Andréssonar, formanns SFR, sem sagði atkvæðagreiðslu um verkfall hefjast síðar í dag. Mestu áhrifin í mötuneytum Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistuheimilanna, segir að ef komi til verkfalls muni það hafa mest áhrif í mötuneytum á heilbrigðis- stofnunum, auk þess sem þjónusta skerðist að einhverju leyti. Sveinn sagði að verkföll hefðu allt- af víðtæk áhrif og væru það síðasta sem fólk vildi. Hins vegar snerti þetta verkfall tiltölulega afmarkaðan hóp starfsmanna. Væntanlega yrðu áhrifin mest vegna starfsmanna í mötuneytum. Í sjálfu sér væri hægt að lifa við það að skrifstofufólkið kæmi ekki í tvo daga og verkfall að- stoðarfólks sjúkraþjálfara gerði það að verkum að fólk myndi ekki fá þjálfun þessa tvo daga. „Stóra og erfiða vandamálið er auðvitað vinnan í eldhúsinu og það verður bara að tækla það þegar þar að kemur,“ sagði Sveinn, sem vonaðist eftir und- anþágu vegna grunnmáltíða. Kjósa á um tvö þriggja daga verk- föll 3.–5. október og 10.–12. október og loks ótímabundið verkfall frá og með 17. október hafi ekki samist fyr- ir þann tíma. Komi til vinnustöðv- unar mun hún ná til ríflega 200 manns á 11 vinnustöðum. Þungt hljóð í samn- ingamönnum SFR Eftir Hjálmar Jónsson hjjo@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.