Morgunblaðið - 07.09.2005, Page 16

Morgunblaðið - 07.09.2005, Page 16
Mývatnssveit | Vinna er hafin við að rífa niður byggingar þær á lóð Kísiliðjunnar í Mývatns- sveit sem ekki verða nýttar fyrir aðra starfsemi, en þar með hverfa vegsummerki um nærri fjögurra áratuga starfsemi verksmiðjunnar. Endurvinnslufyrirtækið Hringrás hefur tekið að sér að fjarlægja mannvirkin, og á því verki að verða lokið í nóvember. Þær byggingar sem ekki verða rifnar eru einkum skrifstofu- húsnæði og birgðageymsla, og eru enn bundnar vonir við að húsnæðið nýtist annarri starf- semi á staðnum. Morgunblaðið/BFH Kísiliðjan jöfnuð við jörðu Endalok Akureyri | Höfuðborgin | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Nemendagarðar opnaðir | Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra mun í dag taka nýja nemendagarða Hólaskóla formlega í notkun, en um er að ræða níu hús með 43 íbúðum fyrir nemenda- garðana, og standa þau við nýja götu sem fengið hefur nafnið Geitargerði. Íbúðirnar eru misstórar, allt frá einstaklingsíbúðum upp í fimm herbergja íbúðir, enda talsvert um að nemendur komi með fjölskyldur með sér.    Vilja samgöngubætur | Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins Hugins í uppsveitum Árnessýslu skorar á samgönguyfirvöld, þingmenn Suðurkjördæmis og aðra er að málum koma að tryggja aukið fé til sam- göngubóta í ofanverðri Árnessýslu. Fundurinn telur að hraða þurfi uppbygg- ingu Gjábakkavegar og hvetur til þess að ráðist verði strax í byggingu brúar yfir Hvítá til að stytta vegalengd milli Reyk- holts og Flúða. Í fundarsamþykktinni kemur einnig fram að fundurinn fagni framkomnum hugmyndum um uppbygg- ingu Kjalvegar.    metra upp á Jökulháls- inn og endað við Sund- laug Ólafsvíkur. Keppnin var aldursskipt, en auk þess átti að keppa í bæði karla- og kvennaflokki, en skortur á kvenkyns keppendum olli því að aðeins var FjallahjólakeppninJökulhálstryll-irinn fór fram um síðustu helgi, og var tekist á við erfiðar að- stæður og hjólað í öllu frá möl upp í snjó. Leið- in lá frá Pakkhúsinu á Ólafsvík um 14 kíló- keppt í karlaflokki í ár. Sigurvegarinn í yngsta aldurshópnum var Hlynur Þorsteinsson og Guðni Gunnarsson sigraði í flokknum 20–39 ára, en þeir eru báðir í Hjólreiðafélagi Reykja- víkur. Trylltu um Jökulhálsinn Davíð Hjálmar Har-aldsson horfðiyfir salinn á Landsmóti hagyrðinga: Bæld um salinn bylgja fer, bíða skáld í stólum og hér er ég sem hrútaber í hrærivél á jólum. Friðrik Steingrímsson beið eftir matnum: Allt þó stefni á verri veg vosbúð þreyjum löngum, kannski að rollan kræsileg komi í öðrum göngum. Friðrik orti til fiðl- unnar sem Rósa Jóhann- esdóttir lék á: Kvenmannsþráin kitlar mig kæti skil ég þína. Ó að hún stryki eins og þig yfir vanga mína. Þórdís Sigurbjörns- dóttir, Dísa í Hrísum, hugsaði til fyrri móta þar sem Ósk Þorkels- dóttir tróð upp og söng- ur entist fram eftir nóttu: Allri stemming aftur fer árla salir tæmast dyrasöngur enginn er og Óskin hætt að klæmast. Ort til fiðlunnar pebl@mbl.is Kelduhverfi | Um þessar mundir er fálki í fóstri á Víkingavatni. Hann fannst nán- ast ófleygur síðastliðinn sunnudag í Hafrafellstungu og var tekinn og fluttur í fjárhúsin á Víkingavatni. Fálkinn er ungi frá því í sumar og hafa veiðarnar ekki gengið vel hjá honum eftir að for- eldrarnir hættu að annast hann. Hann hefur því horast og er nú svo komið að flugvöðvarnir (brjóstvöðvarnir) eru orðnir það rýrir að hann getur nánast ekkert flogið. Stefnt er að því að fita fálkann upp svo hann geti bjargað sér sjálfur og verður honum þá sleppt, að því er segir í frétt á vefnum kelduhverfi- .is. Fálkinn er búinn að fá eina hænu sem hann var um tvo sólarhringa að klára. Einnig hefur hann fengið laxbita sem hann át með ágætislyst. Til þess að hænsnastofninn á Víkingavatni hverfi ekki með öllu þá eru öll fuglahræ og kjötafgangar vel þegin þar á bæ. Það er ekki óhætt að gefa fálkanum fugla sem skotnir hafa verið með haglabyssu vegna blýkúlnanna sem geta farið illa með hann. Ef vel gengur ætti fálkinn að vera kominn í gott form fyrir rjúpnaveiðitím- ann. Var tvo sólar- hringa að klára hænuna Vestfirðir | Lýst var miklum áhyggjum af brottflutningi fólks frá Vestfjörðum á þingi fjórðungssambands Vestfirðinga sem lauk á laugardaginn. Fram kom á þinginu að þróun í aldurssamsetningu Vestfirðinga er einnig verulegt áhyggju- efni, en ungu fólki á aldrinum 21–35 ára hefur fækkað mest á Vestfjörðum. „Viðvarandi samdráttur í hefðbundnum atvinnugreinum hefur leitt til þess að dregið hefur úr þjónustu og störfum á landbyggðinni hefur fækkað. Ekki hafa skapast atvinnutækifæri fyrir ungt fólk og erfitt hefur verið að fá unga Vestfirð- inga til að flytjast heim eftir nám. Efla þarf frumkvöðlastarf meðal ungs fólks og auka þar með nýsköpun á landsbyggð- inni. Fjórðungsþing skorar á iðnaðarráð- herra að skoða leiðir til þess að sporna við fólksflótta ungs fólks frá Vestfjörð- um,“ segir í ályktun sem samþykkt var á þinginu. 21 til 35 ára hef- ur fækkað mest á Vestfjörðum ♦♦♦ Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Höfum verið beðnir að leigja út um 250 fm götuhæð á góðum stað í Skeifunni. Húsið er í góðu ástandi. Góð aðkoma og góðir sýningar- og verslunargluggar. Laust fljótlega. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir og Þorleifur SKEIFAN – PLÁSS TIL LEIGU Fáðu úrslitin send í símann þinn Vefur Útskála opnaður | Nýlega var formlega opnuð heimasíða Menningarset- urs að Útskálum í Garði á Reykjanesi, en þar er m.a. rakin saga prestssetursins Út- skála og hugmyndir um framtíðaruppbygg- ingu. Prestssetrið er eitt það elsta á land- inu, byggt árið 1889, en hefur legið undir skemmdum á undanförnum árum og ára- tugum. Vefslóðin er www.utskalar.is. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Atvinnulíf rústað | Í ályktun aðal- fundar Verkalýðsfélags Vestfirðinga sem haldinn var á dögunum kemur fram að fundarmenn mótmæli þeim vandræðum sem stjórnvöld hafa bakað vestfirsku at- vinnulífi með efnahagsaðgerðum og risa- framkvæmdum á Austurlandi, sem sagðar eru hafa valdið hruni í sjávarútvegi og vinnslu sjávarafla. Er þess krafist að gerðar verði viðeigandi ráðstafanir til að atvinnuvegir Vestfirðinga fái að búa við eðlileg rekstrarskilyrði, enda ríkisstjórn- arflokkunum ekki greidd atkvæði í síðustu kosningum „með það að markmiði að rústa atvinnulíf í heilum landshlutum“, segir þar ennfremur.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.