Morgunblaðið - 07.09.2005, Page 20
Innan skamms geta þreyttir oguppteknir foreldrar í Dramm-
en í Noregi sótt kvöldmatinn um
leið og þeir sækja börnin sín á
leikskólann, að því er fram kem-
ur í norska Dagbladet.
Foreldrunum mun gefast kost-
ur á að panta kvöldmat í gegnum
tölvupóst eða síma og fá með sér
þegar þeir sækja börnin. Síðan er
bara að skella skammtinum í ör-
bylgjuofninn og ekki þarf að eyða
tíma í að elda. Það er eldhús
sveitarfélagsins sem mun bjóða
upp á þessa nýjung.
Þvotturinn þveginn líka?
Málið hefur vakið athygli og
umræður í Noregi og sitt sýnist
hverjum. Karin Yrvin, kvenna-
fulltrúi Verkamannaflokksins,
telur þetta góða hugmynd og hef-
ur trú á að næst verði örþreyttum
foreldrum boðið upp á að láta þvo
þvottinn fyrir sig. Forsvarsmaður
eldhússins segir að börnin verði
að fá fjölbreyttari kvöldmat en
bara pasta.
Flestir foreldrarnir taka hug-
myndinni einnig fagnandi og
margir vilja einnig láta þvo fyrir
sig. Sumum finnst þó nóg um.
„Þeir sem hafa valið að eignast
börn, verða sjálfir að geta hugsað
um að þvo af þeim og gefa þeim
að borða,“ segir Merethe Even-
sen við Dagbladet.
FORELDRAR
Sækja börnin
og kvöldmatinn
í leikskólann
Morgunblaðið/Jim Smart
Ætli íslenskir foreldrar geti
brátt sótt þvottinn og kvöldmat-
inn í leikskólann um leið og náð
er í börnin?
20 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Ó
hætt er að segja að upp-
gangurinn hjá þeim
hjónum Maureen og
Tony Wheeler hafi verið
lyginni líkastur. Í kjöl-
far ferðalags þeirra frá Evrópu til
Asíu fyrir 32 árum ákváðu þau að
gefa út litla ferðahandbók, aðallega
til að svala forvitni vina og kunningja
um ferðalagið og upplifanir þeirra á
leiðinni. Í dag er útgáfufyrirtækið
þeirra, Lonely Planet, orðið að stór-
veldi. Alls starfa nú fimm hundruð
fastráðnir starfsmenn hjá fyrirtæk-
inu, þar af 380 í höfuðstöðvunum í
Melbourne í Ástralíu og aðrir í tveim-
ur útibúum. Að auki hafa þau hjón á
sínum snærum 260 höfunda í lausa-
mennsku sem sendir eru út af örkinni
í mislöng ferðalög eftir efni og um-
fangi þeirra verkefna sem fyrir
liggja.
Ferðabækur úreldast fljótt
„Venjulega koma margir höfundar
að hverri bók. Við viljum helst ekki að
höfundar séu á ferðinni lengur en í
þrjá mánuði í einu því í þessum
bransa þarf allt að gerast
mjög hratt vegna þess að ferða-
handbækur úreldast mjög fljótt. Þær
þurfa að geyma mikið af upplýs-
ingum og smáatriðum, sem þarf að
uppfæra mjög reglulega. Þess vegna
reynum við að endurútgefa vinsælar
bækur á tveggja ára fresti,“ segja
þau Maureen og Tony þegar við setj-
umst niður á nýja miðborgarhótelinu
1919. Á borðinu fyrir framan okkur
liggur Lonely Planet-bók um Ísland,
sem ætlunin er að nota í fyrstu Ís-
landsferðinni. Hún kom fyrst út árið
1991, en hefur verið endurútgefin
fimm sinnum.
Á vegum Lonely Planet hafa komið
út 640 bókatitlar og rekur fyrirtækið
eitt vinsælasta ferðavefsetur heims,
lonelyplanet.com, þar sem m.a. má fá
svör við fyrirspurnum um hvaðeina
er lýtur að ferðamálum með því að
klikka á „Thorn tree forum“ á að-
alsíðunni.
Hittust á garðbekk í London
Tvítug að aldri hélt Maureen frá
heimaborg sinni, Belfast á Norður-
Írlandi, til Lundúna. Þremur dögum
síðar sat hún á garðbekk í Regents
Park þar sem ungur piltur, Tony
Wheeler að nafni, gaf sig á tal við
hana. Árið 1972 ferðuðust þau þvert
yfir Evrópu og Asíu og síðar alla leið
til Ástralíu. Þangað komu þau staur-
blönk, en leist vel á sig og ákváðu að
setjast að í Melbourne. Fyrstu ferða-
handbókina, „Across Asia on the
Cheap“, skrifuðu þau við eldhús-
borðið sitt og sáu sjálf um að skera
hana og hefta. Bókin markaði upp-
hafið að sannkölluðu viðskipta-
ævintýri án þess þó að þau hafi gert
sér fyllilega grein fyrir því hvað í
vændum væri. Sannfærð um að Lo-
nely Planet myndi aldrei afla þeim
lífsviðurværis ákvað Maureen, þá 25
ára, að skella sér í nám og lauk BA-
gráðu frá La Trobe University í
Melbourne.
Tony Wheeler fæddist á Bret-
landseyjum árið 1946 en ólst upp í
Pakistan, Vestur-Indíum og Banda-
ríkjunum. Eftir nám í verkfræði við
Warwick-háskóla í Bretlandi og
skamma viðdvöl við hönnun bifreiða
sneri Tony aftur í háskóla til að nema
við London Business School. Maur-
een og Tony eiga tvö uppkomin börn,
22 og 24 ára. Þau segja barneignir
síður en svo þurfa að hefta ferða-
möguleika fólks. „Börnin okkar voru
búin að fara út um allt á fyrstu fimm
árum ævinnar og það var ekkert
vandamál,“ segir Maureen, sem í
kjölfar reynslu sinnar af því að
ferðast með börn skrifaði bókina
„Travel with kids“.
Þau Maureen og Tony segjast vera
mikið á ferðinni og hyggjast þau eyða
tíu dögum á Íslandi, sem þau segjast
vera að sækja heim í fyrsta sinn. „Það
er þó of snemmt fyrir þig að spyrja
„How do you like Iceland?“ því við er-
um bara rétt að byrja og vitum ekki
enn hvert förinni verður heitið,“
segja þau og brosa.
Tony og Maureen eru mikið á far-
aldsfæti og segjast kjósa fjölbreyti-
leika í ferðalögum.
Maureen er mikill óperuunnandi
og er t.d. nýlega komin úr óperuferð
frá Brasilíu. Á árinu keyrðu þau á
bílaleigubíl um Eþíópíu, Óman og
Sikiley, fóru í tjaldferðalag um þvera
Ástralíu auk þess sem Tony flaug til
Singapore og ferðaðist landleiðina
með rútum og lestum í gegnum Mal-
asíu, Tæland, Kambódíu og Víetnam
til að taka þátt í ráðstefnu í Kína.
Kínverjar og Indverjar tilbúnir
Þegar þau eru beðin um að spá fyr-
ir um ferðaþróun á komandi árum
segjast þau sannfærð um að bjart sé
framundan í ferðageiranum. „Ferða-
þjónusta er nú stærsta atvinnugrein í
heimi ef allt er talið og mun henni
vaxa fiskur um hrygg á komandi ár-
um. Frakkland hefur undanfarin tíu
ár verið vinsælasti áfangastaðurinn,
en ég spái því að Kína taki yfir innan
fárra ára. Ferðaþráin er mjög sterk í
mannlegu eðli og fólk hættir ekkert
að vera forvitið um aðra staði og ann-
að fólk. Ferðalög eru að sama skapi
alltaf að verða auðveldari og kostn-
aðarminni auk þess sem fólk hefur sí-
fellt meira af peningum á milli hand-
anna. Búast má við því að bæði
Kínverjar og Indverjar fari að
streyma inn á ferðamarkaðinn á
komandi árum. Í báðum þessum
löndum, sem hvort um sig hefur einn
milljarð íbúa, er að verða til fjölmenn
miðstétt, sem nú er orðin tilbúin til
þess að njóta þess sem heimurinn
býður upp á. Þetta fólk nennir ekkert
að bíða lengur. Það er tilbúið núna og
mun gera kröfur, líkt og aðrar þjóðir
sem fyrir löngu eru lagðar af stað,“
segir Tony Wheeler.
FERÐALÖG
Ævintýrið
byrjaði bara
á ferðalagi
Fyrstu ferðahandbókina, „Across Asia on the
Cheap“, skrifuðu þau við eldhúsborðið sitt og sáu
sjálf um að skera hana og hefta. Jóhanna
Ingvarsdóttir hitti hjónin Maureen og Tony
Wheeler sem eru stofnendur og aðaleigendur
Lonely Planet, stærstu ferðabókaútgáfu heims.
Morgunblaðið/Golli
Fyrir 32 árum ákváðu Tony og Maureen Wheeler að gefa út litla ferða-
handbók, aðallega til að svala forvitni vina og kunningja um ferðalagið. Í
dag er útgáfufyrirtækið þeirra, Lonely Planet, orðið að stórveldi.
join@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.lonelyplanet.com
www.icelandicgeographic.is
Hjónin Maureen og Tony Wheeler
munu taka þátt í ferðahátíð í Nor-
ræna húsinu 8.-10. september
B
laðlaukur er ekki jafn-
bragðsterkur og flestur
annar laukur og hentar
því vel í ýmsa rétti þar
sem óskað er eftir
mildu laukbragði svo sem í súpur,
bökur og pottrétti.
Litlir og meðalstórir blaðlaukar
eru oft stökkari og bragðbetri en
þeir stóru og best er að sneiða hjá
lauk, sem farinn er að sölna eða
gulna. Gæta þarf þess að skola vel
burtu óhreinindi, sem kunna að
leynast á milli þéttvafinna laukblað-
anna.
Ungan og ferskan lauk má skera í
þunnar sneiðar og nota hráan eða
létteldaðan í salöt. Blaðlaukur er
einnig notaður eins og grænmeti,
þ.e. soðinn, steiktur, bakaður eða
gratíneraður og borinn fram með
öðrum mat eða jafnvel einn og sér,
t.d. með bræddu smjöri eða ljósri
sósu. Heill laukur þarf um 10–15
mínútna suðu, en strimlum duga
örfáar mínútur. Laukur þessi er
mikið notaður í soð og kryddseyði til
að gefa laukkeim og í ýmsa súpu- og
sósugrunna, en hann er einkum auð-
ugur af C-vítamíni, járni, kalki og
trefjum, segir Nanna Rögnvald-
ardóttir m.a. um blaðlaukinn í bók
sinni Matarást.
Uppskriftin að blaðlauksbökunni
er hins vegar úr matreiðslubókinni
Af bestu lyst.
Blaðlauksbaka
Deig:
100 g hveiti
50 g heilhveiti
4 msk. vatn
2 msk. borðsmjörlíki
½ tsk. salt
Blandið saman hveiti, heilhveiti,
vatni, smjörlíki og salti. Fletjið deig-
ið út og þrýstið því út í smurt tertu-
eða bökuform, u.þ.b. 22 cm í þver-
mál. Bakið í tíu mínútur við 200°C.
Fylling:
200 g blaðlaukur
2 msk. matarolía
1 dl vatn
1 tsk. salt
¼ tsk. pipar
¾ bolli möndlur, afhýddar
Sneiðið blaðlaukinn þunnt
og léttsteikið í olíu á pönnu.
Bætið vatni, salti og pipar út
í og látið sjóða við vægan
hita undir loki í fimm mín-
útur. Saxið möndlurnar og
blandið þeim saman við.
Ostasósa:
100 g mildur ostur
1 dl léttmjólk
2 egg
Rífið ostinn í skál og hrærið mjólk
og egg út í. Dreifið blaðlauksfylling-
unni yfir deigbotninn og hellið osta-
sósunni yfir. Bakið í 30 mínútur við
200°C á næstneðstu rim.
MATUR | Púrran er soðin, steikt, bökuð og gratíneruð
Blaðlauksbaka með möndlum
Morgunblaðið/Jim Smart