Morgunblaðið - 07.09.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 23
UMRÆÐAN
Á ÁRINU 1993 var framlag rík-
isins til sjúkrareksturs SÁÁ dregið
saman um 70 milljónir
króna á núvirði. Sú
upphæð nam þá
rekstrarkostnaðinum á
Staðarfelli.
Í stað þess að hætta
starfseminni á Stað-
arfelli voru tekjur
samtakanna af ár-
gjöldum, álfasölu og
söfnunarkössum not-
aðar til að greiða
rekstrargjöldin.
Allar götur síðan
hefur vantað um 70
milljónir á núvirði inn
í rekstrargrunn
sjúkrastarfseminnar á hverju ári.
SÁÁ hefur borgað þennan halla
jafnóðum undanfarin 12 ár.
Mikil hagræðing hefur verið gerð
í sjúkrarekstrinum og framleiðnin
aukin.
Þó hefur aldrei verið hægt að
brúa þetta 70 milljóna króna bil þar
sem stöðugt hefur komið til nýrra
útgjalda sem Heilbrigðisráðuneytið
hefur aðeins bætt að hluta eða alls
ekki.
Með árunum hefur það fyrir-
komulag orðið til að Heilbrigðis-
ráðuneytið telur að hluti tekna SÁÁ
skuli fara til sjúkrareksturs og hag-
ar þá framlögunum til sjúkrarekst-
ursins að einhverju eftir því hversu
vel gengur að selja „Álfinn“ hjá
SÁÁ.
Nýju útgjöldin í sjúkrarekstr-
inum sem orðið hafa til frá árinu
1994, hafa verið margs konar og
verða ekki öll nefnd hér. Útgjöld
vegna hækkunar launa hjá starfs-
mönnum hafa ekki verið að fullu
bætt með framlögum þó að samn-
ingar hafi lengst af
verið í höndum ríkisins
og hækkanirnar að
mestu á ábyrgð þess.
Árið 1997 fór Rann-
sóknarstofa Háskólans
að taka greiðslur fyrir
HIV-, HCV- og klam-
ydíurannsóknir sem
gerðar voru hjá SÁÁ
og sá kostnaður hefur
sífellt aukist. Áður
þurfti SÁÁ ekki að
greiða fyrir slíkt. SÁÁ
byrjaði að reka Göngu-
deild á Akureyri sem
er talsvert kostn-
aðarsöm og hefur aldrei fengið
hækkun á framlögum vegna henn-
ar.
Sveitarfélög hafa dregið saman
og hætt fjárframlögum til göngu-
deildarþjónustu SÁÁ á Akureyri og
í Reykjavík án þess að ríkið hafi
aukið sín framlög á móti.
Skráning og sjúkraskýrslugerð
hefur verið tölvuvædd og hefur það
haft í för með sér um 10 milljóna
króna aukakostnað á ári.
Kostnaður vegna lyfja hefur stór-
aukist en bæði nota sjúklingar sem
koma í meðferð mun meira af lyfj-
um en áður var og ný lyf hafa kom-
ið á markaðinn sem notuð eru í
meðferð með fíknisjúkdómum.
Þjónustusamningur hefur verið í
gildi milli SÁÁ og ríkisins í 4 ár og
á því tímabili hefur margt breyst.
Bæði hefur orðið til ný og dýr
viðhaldsmeðferð fyrir ópíumfíkla og
bráðaþjónusta hefur stóraukist auk
annarra breytinga.
Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir
slíku í þjónustusamningnum, að
komið geti til aukinna útgjalda á
gildistímanum og SÁÁ hafi gert
grein fyrir þessu tvisvar sinnum á
ári þennan tíma, hefur ríkið ekki
séð ástæðu til að koma til móts við
rökstuddar óskir samtakanna.
SÁÁ hefur því tvisvar sinnum
orðið að draga verulega úr þeirri
þjónustu sem veitt er, fyrst á ár-
unum 2001 og 2002 og síðan á árinu
2005. Horfur eru á að um 60 millj-
óna króna halli verði á sjúkra-
rekstri SÁÁ á árinu 2005, þrátt fyr-
ir að dregið hafi verið úr umfangi
starfseminnar á Sjúkrahúsinu Vogi
og þjónustan við hvern og einn
sjúkling minnkuð.
SÁÁ hefur gert Heilbrigðisráðu-
neytinu grein fyrir því mati sínu að
nauðsynlegt sé að auka á bráða-
þjónustu, geðlæknisþjónustu, sál-
fræðiþjónustu, og lyfjameðferð fyrir
unga fólkið á Sjúkrahúsinu Vogi.
SÁÁ hefur ítrekað gert grein fyrir
þörf á auknu fjármagni til rekstrar
sjúkrahússins.
SÁÁ hefur greitt 800
milljónir með
sjúkrarekstrinum sl. 12 ár
Þórarinn Tyrfingsson
fjallar um rekstur SÁÁ ’… hefur ríkið ekki séð ástæðu til að
koma til móts við
rökstuddar óskir
samtakanna. ‘
Þórarinn
Tyrfingsson
Höfundur hefur borið ábyrgð
í heilbrigðisrekstri í 29 ár.
RANNSÓKNIR sýna að allt að
30% barna hérlendis eru með of
háan þyngdarstuðul og sjúkdómar
sem tengjast óheilbrigðum mat-
arvenjum verða sífellt algengari.
Að mati Heilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna
siglum við inn í eitt
stærsta heilsufars-
vandamál á Vest-
urlöndum ef ekkert
verður að gert.
Full ástæða er því
til þess að hafa
áhyggjur af mataræði
íslenskra barna og
þar eru ísfirsk börn
engin undantekning.
Án efa hefur það
áhrif á líðan og hegð-
un barna ef mat-
aræðið er of einhæft,
ef tiltekin næring-
arefni skortir í fæðuna og ef
brestur á því að börnin nærist á
þeim tímum dags þegar mestrar
orku er þörf.
Í vetur tóku bæjaryfirvöld á
Ísafirði eldhúsmál sveitarfélagsins
til gagngerrar endurskoðunar í
því skyni meðal annars að bæta
mataræði barna í sveitarfélaginu.
Vel var vandað til verksins og var
Valgerður Hildibrandsdóttir, nær-
ingarráðgjafi og matarfræðingur
hjá SN-ráðgöf efh., til ráðgjafar
frá upphafi.
Í umræðum höfðu menn velt
fyrir sér þeim valkostum að bjóða
verkið út eða að elda á staðnum.
Niðurstaðan varð sú að menn fóru
bil beggja.
Ákveðið var að útbúa fullkomið
framleiðslueldhús í GÍ sem yrði
svo leigt einkaaðilum er sæju um
rekstur þess samkvæmt þeim
kröfum sem sveitarfélagið gerði.
Unnin voru ítarleg útboðsgögn
bæði fyrir búnað og rekstur fram-
leiðslueldhúss í GÍ með það að
markmiði að þar verði framleidd
matvæli sem uppfylla ströngustu
kröfur um hollustu, fjölbreytileika,
bragðgæði og öryggi. Auk mat-
arsölu í grunnskól-
anum verða mat-
arskammtar fluttir í
íbúðir aldraðra á Hlíf
og leikskólann Bakka-
skjól í Hnífsdal.
Ánægjulegt er frá
því að segja að tilboð
SKG veitinga ehf.
reyndist hagkvæmast
þegar tekið var tillit
til allra þátta.
Fyrirtækið hefur
um nokkurra ára
skeið rekið veit-
ingasölu á Hótel Ísa-
firði og boðið þar
meðal annars upp á veisluþjón-
ustu. Fyrirtækið er hið eina sinn-
ar tegundar utan stór-Reykjavík-
ursvæðisins og Akureyrar sem
hefur réttindi til þess að mennta
sveina í matreiðslu.
Það styðst við viðurkennda ör-
yggisstaðla við framleiðslu og
framreiðslu matar.
Tilboð Jóhanns Ólafssonar ehf. í
búnað og tæki reyndist hagkvæm-
ast.
Iðnaðarmenn hafa unnið við það
í sumar að breyta húsnæði fé-
lagsmiðstöðvarinnar í GÍ í stóreld-
hús og verður mötuneytið opnað í
byrjun næsta mánaðar.
Byrjað verður að selja kaldar
máltíðir þegar frá mánaðarmótum
en í seinni hluta september hefst
reksturinn fyrir alvöru og verða
þá heitar veitingar í boði.
Sú nýjung verður tekin upp að
gert er ráð fyrir því að nemendur
gangi sjálfir frá óhreinum borð-
búnaði beint í uppþvottinum.
Þeir munu einnig skammta sér
matinn sjálfir að undanskildum
aðalréttinum, til dæmis kjöti eða
fisk, sem starfsmaður mun
skammta.
Þessar leiðir eru meðal annars
valdar til að gera nemendurna
sjálfa virka þátttakendur í máltíð-
inni og einnig til að þeir læri að
taka sér réttar skammtastærðir út
frá viðmiðunarskömmtum.
Þótt byggt sé á nýrri hugsun
hérlendis má segja að unnið sé í
samræmi við þá menningu sem
tekist hefur að skapa í Grunnskól-
anum á Ísafirði á undanförnum ár-
um.
Þar bera nemendur sjálfir
ábyrgð á því að umhverfi þeirra
og tæki séu í góðu ástandi.
Örbylgjuofnar og billjardborð,
skápar, húsgögn og aðrir hlutir í
umhverfi nemendanna bera þess
merki að vel er gengið um og
nemendur vilja vinna með skóla-
yfirvöldum.
Líta má svo á að fyrirkomulag
þetta sé áframhald af þeirri hefð.
Nýtt mötuneyti
í Grunnskólanum á Ísafirði
Skúli S. Ólafsson
fjallar um nýtt mötuneyti ’Án efa hefur þaðáhrif á líðan og
hegðun barna ef
mataræðið er of
einhæft, ef tiltekin
næringarefni skortir
í fæðuna.‘
Skúli S.
Ólafsson
Höfundur er prestur.
„ÞÓ skóli sé í eðli sínu íhaldssöm
stofnun, má hann aldrei staðna.
Um hann mega gjarnan leika fersk-
ir vindar og nýir straumar. Stöðug
þróun þarf að eiga sér stað.“
Þessi ágætu orð skólamannsins
Vilbergs heitins Júl-
íussonar sem rituð
voru fyrir um 25 ár-
um gætu allt eins átt
við í dag um hinn
glæsilega Sjálands-
skóla í Garðabæ sem
nú nýlega var tekin í
notkun. Þessi orð Vil-
bergs eiga jafnframt
mjög vel við um þá
stefnu sem ríkir í
skólamálum í Garða-
bæ.
Skólastarf Garða-
bæjar er í fremstu röð
og í anda metn-
aðarfullrar skóla-
stefnu, þar sem lögð
er áhersla á sveigj-
anlegt og ein-
staklingsmiðað nám.
Það var því eðlilegt
framhald í þróun
skólastarfs að við
hönnun og skipulagn-
ingu nýs skóla á Sjá-
landi, yrði haft að
leiðarljósi að skapa
einstaklingsmiðað,
metnaðarfullt og
sveigjanlegt skóla-
umhverfi. Í nýlegri
könnun á vegum Gallups, sem
framkvæmd var fyrir Garðabæ,
kemur fram að foreldrar eru al-
mennt ánægðir með skólastarf í
Garðabæ og það valfrelsi sem for-
eldrum er boðið upp á við val á
skóla fyrir börn sín. Sjálandsskóli
er því góð viðbót við valmöguleika
bæjarbúa.
Framsýn og djörf ákvörðun
Það var framsýn og um leið djörf
ákvörðun bæjarstjórnar Garða-
bæjar að skipa starfshóp sem
skyldi leiða undirbúning að hönnun
Sjálandsskóla. Með skipan und-
irbúningshópsins var lögð rík
áhersla á víðtækt samráð við skóla-
fólk, nemendur, íbúa í skólahverf-
inu, hönnuði og fleiri sem málinu
tengdust. Auk þess skyldi und-
irbúningshópurinn huga að því að
tengja saman samfélagsbreytingar
og almenna þróun í skólastarfi og
fá þannig fram sem fjölbreyttastar
hugmyndir sem nýst gætu starf-
semi skólans um ókomna framtíð.
Undirbúningsvinnan gaf því öll-
um áhugasömum íbúum tækifæri
til að taka þátt í að hanna nýjan
skóla á Sjálandi. Tugir íbúa tóku
þátt í þessu dýrmæta þróunarstarfi
og var áhersla á einstaklingsmiðað
nám, sveigjanleika, tengsl við nátt-
úruna og fjölbreytni niðurstaða
þessa starfs. Orri Árnason arkitekt
og starfsfólk hans vann með starfs-
hópnum að því að hanna bygg-
inguna með áherslur undirbúnings-
hópsins að leiðarljósi.
Ljóst er að vel hefur tekist til við
að samræma hugmyndir vinnu-
hópsins og koma þeim til skila í
hinu glæsilega mannvirki, og um-
hverfi þess.
Skipulag skólans
Heildarhúsnæði skólans er skipt
í tvennt, það eru tvær byggingar
sem munu standa sitt hvorum meg-
in Vífilstaðalækjar og eru tengdar
saman með bókasafni og upplýs-
ingarými.
En nálægðin við lækinn og fjör-
una bjóða uppá kjörið tækifæri til
nýtingar við náttúrufræðikennslu
og annað skólastarf.
Í byggingunni austan megin
lækjar eru kennslusvæðin eða
heimasvæðin þar sem allt að 80
nemendur og 8 starfsmenn geta
haft aðstöðu sína á hverju svæði.
Milli heimasvæðanna eru opin
svæði eða almenningur sem eru til
sameiginlegra afnota fyrir nem-
endur. Hverju heimasvæði má
skipta í þrjá hluta. Næst útveggj-
um, þar sem dagsbirtan er mest er
afmarkað svæði síðan
kemur miðsvæði og
innst er svo bjart um-
ferðarsvæði sem allir
fara um. Inni á hverju
heimasvæði er vinnu-
stofa kennara, kyrrð-
arstofa, salerni, og lítil
eldhúsinnrétting sem
nýst getur fyrir heim-
ilisfræðikennslu eða
sem aðstaða fyrir nem-
endur og kennara til
að hita sér mat og
drykk. Að öðru leyti er
gert ráð fyrir að
heimasvæðið sé stúkað
af með hreyfanlegum
skápum og skilrúmum.
Einnig eru verk- og
raungreinastofur
ásamt starfsaðstöðu
fyrir starfsfólk skólans
í fyrsta áfanga.
Vestan megin lækjar
eða í síðari áfanga
skólans er gert ráð
fyrir að verði íþrótta-
salur, sundlaug, hátíð-
arsalur, mötuneyti,
tónlistarstofa og lítill
tónlistarskóli.
Garðabær fór einnig
óhefðbundna leið þegar kom að
uppbyggingu skólans og samdi við
Eignarhaldsfélagið Fasteign um
byggingu skólans í einkafram-
kvæmd en bæjarfélagið leigir húsið
af félaginu.
Sjálandsskóli verður fullbyggður
8.270 m² en fyrsti áfangi skólans er
4.183 m² á tveimur hæðum auk
kjallara.
Áætlaður byggingarkostnaður
fyrsta áfanga skólans er um 670
milljónir.
Fyrsta skóflustungan að Sjá-
landsskóla var tekin 28. apríl 2004
og eru því aðeins liðnir 16 mánuðir
síðan framkvæmdir hófust við
byggingu skólans.
Með Sjálandsskóla skapast líka
raunhæfur möguleiki á að samnýta
almenn salarkynni skólans sem og
fyrirhuguð íþróttamannvirki í
tengslum við félagsstarf fyrir eldri
borgara, en fyrirhugað Jónshús
fyrir eldri borgara mun rísa á
Sjálandi vestan Vífilstaðalækjar.
Bygging Sjálandsskóla er eitt –
annað og mikilvægara er mótun og
uppbygging skólastarfsins í hinum
glæsilega Sjálandsskóla. Það er síð-
an í höndum dugmikils og metn-
aðarfulls starfsfólks og um leið
nemenda og foreldra að skapa þar
hlýlegt og vistlegt umhverfi og
tryggja að þar leiki ferskir vindar
og nýir straumar um ókomin ár.
Ágætu Garðbæingar, kæra skóla-
fólk, til hamingju með nýjan Sjá-
landsskóla.
Sjálandsskóli –
Nýr skóli
í Garðabæ
Páll Hilmarsson skrifar í tilefni
af vígslu Sjálandsskóla
Páll Hilmarsson
’Ljóst er að velhefur tekist til
við að samræma
hugmyndir
vinnuhópsins og
koma þeim til
skila í hinu
glæsilega mann-
virki, og um-
hverfi þess. ‘
Höfundur er bæjarfulltrúi og
formaður skólanefndar Garðabæjar.
Útsala
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi
sími 554 4433