Morgunblaðið - 07.09.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 39
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, glerlist, spil-
að bridge/vist, fótaaðgerð.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, miðviku-
daginn 7. sept. kl. 13–16. Töðugjöld
með stæl að hætti Grétu. Gestir frá
FEBH. Spilað, teflt, púttað og spjallað.
Akstur annast Auður og Lindi.
Ferðaklúbburinn Flækjufótur |
Ferðakl. Flækjufótur fer helgarferð
24.–25. september. Ekið verður um
Stokkseyri, Eyrarbakka, Þykkvabæ og
Vestur- og Austur-Landeyjar. Gist á
Hótel Dyrhólaey. Uppl. í síma
898 2468.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan er opin í dag kl. 10 til 11.30 og
viðtalstími í Gjábakka kl. 15 til 16. Fé-
lagsvist er spiluð í dag í Gjábakka kl.
13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Söngfélag FEB kóræfing kl. 17. Dags-
ferð 17. september: Haustlitir í Skorra-
dal. Brottför kl. 13. Ekið til Þingvalla
um Uxahryggi og Lundarreykjadal að
Fitjum í Skorradal. Kvöldverður og
dans í Skessubrunni, Svínadal. Uppl.
og skráning í síma 588 2111.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Kynning miðvikud. 7. sept. á vetr-
arstarfseminni frá sept. til des. 2005.
Á kynningunni mun F.E.B.K. kynna fyr-
irhugaða starfsemi og hópastarfið
verður kynnt og starfsemi á vegum
Félagsstarfs aldraðra í Kópavogi. Fólk
er hvatt til að koma og kynnast fé-
lagslífinu í Kópavogi. Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11.
Garðaberg opið kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30,
vinnustofur opnar. Frá hádegi spilasal-
ur opinn, vist, brids, skák. Kl. 14.45
kóræfing hjá Gerðubergskór, stjórn-
andi Kári Friðriksson. Veitingar í há-
degi og kaffitíma í Kaffi Berg. Á morg-
un kl. 12.30 myndlist, umsjón Nanna S.
Baldursdóttir. Uppl. á staðnum og í
síma 575 7720.
Félagsstarfið Langahlíð 3 | Námskeið
í postulínsmálun byrjað aftur eftir
sumarfrí.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Samverustund, línudans kl. 11. Saumar
kl. 13. Glerskurður kl. 13. Pílukast kl.
13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl.9–15 hjá Sigrúnu mósaik, ullarþæf-
ing og íkonagerð. Jóga kl. 9–12. Sam-
verustund kl. 10.30. Haustfagnaður kl.
14.30, kaffi, veitingar og harm-
onikkuspil. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Haustsstarfið er
hafið í Hæðargarði 31. Komið við, stað-
festið skráningu og ræðið við leiðbein-
endur. Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 9
til 16. Fastir liðir eins og venjulega.
Hausti fagnað í Salnum með hátíð-
arbrag föstudaginn 9. sept. kl. 14.
Spennandi námskeið á döfinni. Sími
568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, kl. 10.45 bankaþjónusta
fyrsta miðvikudag í mánuði, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 myndmennt.
Kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug). Kl.
11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 12.15–14
verslunarferð í Bónus, Holtagörðum.
Kl. 13–14 Spurt og spjallað. Kl. 13–16
tréskurður. Kl. 14.30–15.45 kaffiveit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9,
handmennt kl. 9.30, bókband kl. 10,
verslunarferð kl. 12.30.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Súpa og brauð gegn vægu gjaldi. Opið
hús frá 13–16. Föndur, spjall og fræðsla.
TTT – 10–12 ára starf. Hittumst í Sel-
ásskóla á miðvikudögum kl. 16. Söngur,
sögur, leikir og ferðalög fyrir hressa
krakka. STN – 7–9 ára starf. Hittumst í
Selásskóla á miðvikudögum kl. 15.00.
Söngur, sögur, leikir og ferðalög fyrir
hressa krakka.
Áskirkja | Hreyfing og bæn í safn-
aðarheimili II milli kl. 11–12 í dag. Allir
velkomnir. Foreldrum er boðið til sam-
veru með börn sín á safnaðarheimili
kirkjunnar alla fimmtudagsmorgna
milli kl. 10–12. Fjölbreytt dagskrá.
Bessastaðasókn | Miðvikudagur er
dagur kirkjunnar í Haukshúsum. For-
eldramorgnar eru frá kl. 10–12 og opið
hús eldri borgara er frá kl. 13–16.
Digraneskirkja | Barnastarf 6–9 ára
kl. 17.15–18 á neðri hæð. Unglingastarf
kl. 20–22 á neðri hæð kirkjunnar. (sjá
nánar : www. digraneskirkja.is.).
Fella- og Hólakirkja | Opið hús fyrir
fullorðna alla þriðjudaga kl. 13–16.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag í sumar, kl. 10–12.30. Gott
tækifæri fyrir mömmur og börn að
hittast og kynnast. Allir velkomnir.
Alltaf heitt á könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstundir
hefjast að nýju 7. sept. í Grafarvogs-
kirkju og verða á miðvikudögum kl. 12
með altarisgöngu og fyrirbænum.
Léttur hádegisverður á vægu verði að
lokinni stundinni. Allir velkomnir.
Grindavíkurkirkja | Ath. Spilavist eldri
borgara alla fimmtudaga kl. 14–17.
Fyrsta samvera 8. september.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8
árdegis alla miðvikudagsmorgna.
Íhugun, altarisganga. Einfaldur morg-
unverður í safnaðarsal eftir messuna.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam-
kirkjuleg haustguðsþjónusta kl. 14.
Stjórnandi Vörður Leví Traustason.
Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra
og tryggingamálaráðherra, predikar.
Guðsþjónustunni verður útvarpað á
Lindinni fm 102,9. Kaffiveitingar að
samkomu lokinni.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58–60, miðvikudagskvöld 7. sept. kl.
20. „Snú þér að okkur Guð“. Halldóra
Lára Ásgeirsdóttir talar. Fyrirbæn.
Kaffi eftir samkomuna. Allir eru vel-
komnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn. Allar mömmur og ömmur
velkomnar með börnin sín. Gönguhóp-
urinn Sólarmegin leggur af stað frá
kirkjudyrum alla miðvikudagsmorgna
kl. 10.30. Kl. 14.10–15.30 Kirkjuprakk-
arar. Fyrsti fundur. (1.–4. bekkur) Kl.
16.15 T.T.T. fyrsti fundur. (5.–6. bekkur).
Neskirkja | Fyrirbænamessur alla
miðvikudaga kl. 12.15. Hægt er að
koma fyrirbænarefnum til presta eða
starfsfólks kirkjunnar í síma 511 1560.
Prestur í fyrirbænarmessu í dag er sr.
Örn Bárður Jónsson. Allir velkomnir.
Plága í borginni –
og umönnunarstörf
VIÐ fórum, ég og dóttir mín, með
barnabörnin niður að Tjörn til að
gefa fuglunum brauð og þar urðum
við hreint og beint fyrir árás máva.
Þessi Tjarnarferð sem átti að vera
ánægjuleg varð hreint út sagt skelfi-
leg. Tókum við einnig eftir því að
þarna voru engir ungar, hvorki and-
arungar eða gæsaungar. Borg-
arstjóri stakk upp á því að fólk færi
og gæfi fuglunum brauð á menning-
arnótt, ég var þá í bænum og sá að
fólkið sem var að gefa fuglunum
brauð þá lenti í sömu raun og við. Ég
bý í Árbænum og þar er annað eins
af mávum. Finnst mér mávarnir
vera orðnir plága í borginni.
Eins finnst mér að það sé skömm
að því að loka gæsluvöllunum vegna
þess að þær konur sem eru heima-
vinnandi með börnin sín þurfa
stundum að koma börnunum í gæslu
til að létta undir hjá sér. Finnst mér
þetta afturför.
Varðandi leikskóla og fleiri stofn-
anir. Þar eru umönnunarstörfin illa
borguð, þetta eru algjör láglauna-
störf og ekki skrýtið að fólki sæki í
betur launuð störf. Öll umönn-
unarvinna er illa borguð og er
skömm að því að fólk skuli ekki fá
mannsæmandi laun fyrir að vinna
þessi nauðsynlegu störf. Finnst mér
vera níðst á fólki í láglaunastörfum.
Ég vil sjá breytingar á þessu.
Auður Guðmundsdóttir.
Ferðasaga og hamfarir
MÉR þykir leitt til þess að vita að
Arnþrúður Karlsdóttir á Útvarpi
Sögu og Sigurður G. Tómasson á
Talstöðinni stunda eins konar sjó-
ræningjarekstur með stöðvum sín-
um. Ég las á sínum tíma ferðasögu
Kristjáns Jónssonar loftskeyta-
manns, sem sigldi til Bretlands öll
styrjaldarárin. Þetta gerði ég án
endurgjalds en gegn loforði um að fá
hljóðritun sögunnar að lestri lokn-
um. Hvorki Arnþrúður né Sigurður
hafa staðið við þetta loforð. Það er
ekki hrósvert að reka svona starf-
semi sem byggir á því að fá efni sem
eiginlega verður að skoðast tekið í
heimildarleysi þegar ekki er staðið
við gefin loforð.
Svo vill til að það má kenna
Bandaríkjamönnum sjálfum um
hamfarirnar sem geisa nú í Suð-
urríkjunum. Forsetinn hefur neitað
að staðfesta Kyoto-samninginn.
Hann segist ekki vilja segja upp
bandarískum verkamönnum og
heldur áfram að þeyta útblástursrör
verksmiðjanna. Það eru þær sem
valda þessum hamförum sem núna
geisa í Bandaríkjunum. Rík-
isstjórnin gegnir hlutverki svokall-
aðra hryðjuverkamanna í eigin
landi. Ef Bandaríkin fylgja Kyoto-
sáttmálanum og hætta skaðvænlegri
framleiðslu þá eru fellibylirnir sjálf-
dauðir.
Pétur Pétursson,
þulur.
Kettlinga vantar heimili
TVÆR
10 vikna
kisusyst-
ur vantar
gott
framtíð-
arheimili.
Nánari
upplýsingar gefur Ester í síma
695 0208.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. e4 e6 2. d3 d5 3. Rd2 c5 4. g3 Rc6 5.
Bg2 Rf6 6. Rgf3 Be7 7. O-O Dc7 8. He1
b6 9. De2 dxe4 10. dxe4 O-O 11. e5 Rd7
12. c3 a5 13. a4 Ba6 14. c4 Hac8 15. Rb3
Rd4 16. Rbxd4 cxd4 17. b3 Bb4 18. Hd1
Bc3 19. Hb1 Hfd8 20. Bg5 He8 21. Bf4
Dc5 22. Rg5 Hc7 23. Dh5 Rf8 24. Re4
Db4
Staðan kom upp í kvennaflokki á
Norðurlandamótinu í skák sem lauk fyr-
ir skömmu í Vammala í Svíþjóð. Svetl-
ana Agrest (2270) hafði hvítt gegn Oks-
ana Vonk (2125). 25. Rf6+! gxf6 26.
exf6 e5 27. Dh6 Re6 28. Be4 og svartur
gafst upp enda fátt til varnar. Svetlana
Agrest fékk 5½ vinning á mótinu og
lenti í 2.–5. sæti en Lenka Ptácníková,
sem tefldi fyrir hönd Íslands, varð hlut-
skörpust með 6 vinninga.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
ARÍUR eftir Mozart, Verdi og
Puccini verða sungnar á hádeg-
istónleikum í Hafnarborg fimmtu-
daginn 8. september kl. 12. Fram
koma Elín Ósk Óskarsdóttir sópr-
an og Antonía Hevesi píanóleikari.
Að sögn Antoníu verða miklar
tilfinningar í gangi, ásamt krafti
og slatta af háum nótum.
Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar, hefur
frá því í ágúst 2002 staðið fyrir
tónleikum í hádegi einu sinni í
mánuði. Tónleikarnir standa yfir í
um hálfa klukkustund og eru sér-
staklega hugsaðir sem tækifæri fyrir
fólk sem starfar í miðbæ Hafn-
arfjarðar til að njóta góðrar tónlistar
í hádegishléi. Tónleikarnir eru í boði
Hafnarborgar – enginn aðgangseyrir
– og öllum opnir á meðan húsrúm
leyfir.
Af þessu tilefni hefur Hafnarborg
fengið til samstarfs Antoníu He-
vesi píanóleikara og organista við
Hafnarfjarðarkirkju sem er list-
rænn stjórnandi tónleikarað-
arinnar og velur hún þá lista-
menn sem fram koma á
tónleikunum.
Næstu hádegistónleikar verða
6. október næstkomandi en þá
verður Gunnar Guðbjörnsson
tenórsöngvari gestur. 3. nóv-
ember leikur Tatu A. Kantomaa
harmonikkuleikari með Antoníu
og 1. desember er röðin komin að
Gunnari Kvaran sellóleikara.
Eftir áramót koma m.a. fram Kol-
beinn Ketilsson tenórsöngvari, Bryn-
dís Halla Gylfadóttir sellóleikari og
Bragi Bergþórsson tenórsöngvari.
Tónlist | Hádegistónleikar í Hafnarborg á morgun
Slatti af háum nótum
Antonía
Hevesi
Elín Ósk
Óskarsdóttir
www.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Stórglæsileg 92,3 fm íbúð á 8. hæð
í eftirsóttu lyftuhúsi á frábærum
útsýnisstað í Salahverfinu.
Vandaðar innréttingar, svalir úr
stofu með ótakmörkuðu útsýni.
Verð 21,9 millj.
Sölumaður frá Höfða sýnir
eignina í dag milli kl. 17 og 19.
Allir velkomnir.
skráð eign er seld eign
Kristín Pétursdóttir löggiltur fasteignasali
Blásalir 22 – Kóp. – Íb. 802
Opið hús í dag milli kl. 17 og 19
VÍSINDAMENN hvaðanæva úr
Evrópu ætla að hittast næstkom-
andi föstudag í Háskóla Íslands og
ræða hvaða aðferðir og miðla
unnt er að nota milli fólks af
ólíkri menningu. Þessi málfundur
er hluti af stóru samevrópsku
verkefni sem kallast ERIC eða
„European Resources for Int-
ercultural Communication“ og
hópurinn sem nú hittist hefur það
hlutverk að ræða einkum vísinda-
rannsóknir á samskiptum manna.
Fimm aðalfyrirlesarar eru á
málþinginu: Prófessor Friedrich
A. Kittler sem fjallar um þau kerfi
ritunar sem notuð hafa verið í
Evrópu á síðustu öldum, dr. Gott-
skálk Þór Jensson sem fjallar um
samspilið milli talaðs og ritaðs
máls, dr. Gauti Kristmannsson
sem fjallar um þá meiningu sem
hægt er að lesa út úr samskipta-
forminu sem slíku, Ingibjörg Haf-
stað sem fjallar um aukna hæfni
manna til samskipta milli menn-
ingarheima og að lokum dr. Jón
Ólafsson sem fjallar um sam-
skiptahæfni.
Málþingið verður sett í Öskju,
húsi Náttúrufræðahúsi Háskóla Ís-
lands klukkan 9.30, og er öllum
opið og ókeypis.
Samskipti fólks
af ólíkri menningu
SÝNING á verkum Ingimars
Waage myndlistarmanns hefur
verið opnuð á 1. hæð Grófarhúss,
Tryggvagötu 15. Sýningin er
fjórða í röð sýninga á verkum
listamanna sem eiga listaverk í
Artóteki – Listhlöðu í Borg-
arbókasafni.
Landslag hefur alla tíð verið
Ingimari hugleikið og málar hann
landslagsmyndir með olíu á
striga. „Sérhver mynd sem ég
mála er kyrrstæð fjallganga,“
segir hann. „Hugsun um gengin
spor, löngun til fjalla. Þegar ég
geng frá trönunum að fjallinu
hverfur það mér bak við ský. Eft-
ir stendur ímynd fjallsins fyrir
hugskotssjónum.“
Á sýningunni eru 5 olíumálverk
og ljósmyndir á dvd.
Artótek – Listhlaða í Borg-
arbókasafni tók til starfa í ágúst
2004. Í Artótekinu er íslensk
samtímamyndlist til leigu eða
sölu til einstaklinga og fyr-
irtækja. Hægt er að skoða verkin
á staðnum eða á vefsíðunni
www.artotek.is.
Sýningin stendur til 25. sept-
ember. Opið er mánudaga-
fimmtudaga kl. 10–19, föstudaga
kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17.
Kyrrstæðar fjallgöngur