Morgunblaðið - 07.09.2005, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
S.V. / Mbl.
langt síðan að vel heppnuð íslensk gamanmynd kom
í bíó og ættu landsmenn að fagna með því að
fjölmenna í kvikmyndahúsin
DV
Dramatísk, rómantísk og stórbrotin eðalmynd með Óskarsverðlaunahafanum,
Charlize Theron og spænsku blómarósinni, Penelope Cruz.
HANN ER RÖNG HESTATEGUND...
EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN!
SÝND MEÐ ENSKU TALI
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
Strákarnir okkar kl. 6 - 8 - 10
Racing Stripes m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10
Head in the Clouds kl. 5.30 - 8 - 10.30 b.i. 16
The Skeleton Key kl. 8 og 10.10 b.i. 16
Herbie Fully Loaded kl. 6
The Island kl. 8 og 10.30 b.i. 16
Batman Begins kl. 5.30 b.i. 12
S.V. / Mbl.
langt síðan að vel heppnuð íslensk gamanmynd kom
í bíó og ættu landsmenn að fagna með því að
fjölmenna í kvikmyndahúsin
DV
Safnplötur með bestu og vin-sælustu lögum hljómsveitarkomu eitt sinn út undir lok
ferils hljómsveitar. Lögin voru öll
vinsæl og hljómsveitin búin að
koma sér vel fyrir á ákveðnum
stalli. Á síðustu árum hafa hins
vegar komið út plötur frá lista-
mönnum sem hafa aðeins verið í
bransanum í nokkur ár, óháð því
hversu marga smelli þeir eiga að
baki.
Síðasta haust sendi Britney
Spears frá sér Greatest Hits: My
Prerogative, yfirlit yfir vinsælda-
feril hennar, sem spannar samt
ekki meira en sex ár. The
Backstreet Boys gáfu út The
Hits: Chapter One árið 2001, að-
eins fjórum árum eftir að hafa
gefið út sína fyrstu plötu.
„Ég veit ekki hvað fólk ætti að
setja á safnplötu eftir aðeins
fimm ár í bransanum. Ég veit
ekki hverjir þessir mestu smellir
ættu að vera,“ sagði reynslurokk-
boltinn John Mellencamp í viðtali
við fréttastofuna AP, sem gerði
úttekt á málinu og ræddi við
marga listamenn vegna þessa.
Hvað sem hægt er að segja umBritney og Backstreet Boys
er að minnsta kosti ljóst að þau
hafa átt fleiri en einn smell. Hið
sama er ekki hægt að segja um
sumar af „greatest hits“ plöt-
unum sem hafa dúkkað upp síð-
ustu ár. Má þar nefna Toy Sold-
iers: The Best of Martika (sem
átti einn smell á níunda áratugn-
um og varð vinsæl á ný því Em-
inem notaði lagabút frá henni) og
The Best of Mandy Moore en hún
hefur átt mun farsælli leikkonu-
en söngferil. Táningsstjarnan Hil-
ary Duff hefur selt milljónir
platna en hún hefur aðeins sent
frá sér tvær breiðskífur. Hvorug
þeirra gat af sér topp tíu-smell.
Þrátt fyrir það kom „best of“
diskur með henni, Most Wanted,
út undir lok ágústmánaðar.
„Tónlist er orðin miklu meira
einnota, hlutirnir gerast hraðar.
Stutt svar við þessu er að þetta
er peningamál. Útgáfufyrirtækin
gefa út svona safnplötur vegna
þess að þær seljast,“ sagði gít-
arleikari Collective Soul, Dean
Roland, en sveit hans sendi frá
sér safn bestu laga árið 2001.
Smellaplötur geta orðið mjög
vinsælar. Safnplata The Eagles
Their Greatest Hits: 1971–1975
er mest selda plata í sögu Banda-
ríkjanna, salan er komin í meira
en 28 milljónir eintaka. Ástæða
vinsælda smellaplatna hjá út-
gáfum er ábyggilega ekki síst sú
að þær er ódýrt að gefa út og
auglýsa.
Fulltrúar plötufyrirtækja segj-
ast þó líka vera að gera þetta
fyrir væntanlega hlustendur.
„Þegar allt kemur til alls vilja
fleiri kaupa smellaplötu en ein-
stakar breiðskífur,“ sagði Kevin
Gore, yfirmaður sölu- og mark-
aðssviðs hjá Rhino Entertain-
ment.
Backstreet Boys voru ekkihrifnir af því í fyrstu að gefa
út safnplötu. „Mér fannst að lista-
menn með smellaplötu væru ann-
aðhvort búnir að vera eða þyrftu
smá hlé,“ sagði Brian Littrell. Fé-
lagi hans úr hljómsveitinni, How-
ie Dorough, segir að platan hafi
laðað að nýja aðdáendur, sem
hafi ekki áður keypt disk með
sveitinni. „Við höfum átt um tólf
smelli ... Af hverju ætti sá sem er
ekki mikill Backstreet aðdáandi
að kaupa þessi lög á fimm mis-
munandi plötum? Það er miklu
auðveldara að geta keypt lögin á
einum diski,“ sagði hann en smel-
laplata strákanna seldist í meira
en milljón eintökum.
Útgáfufyrirtækin nefna aðra
ástæðu fyrir öllum þessum
smellaplötum. Hilluplássið er orð-
ið minna í búðum og sífellt færri
verslanir eru með fleiri en eina
plötu eftir sama listamanninn.
Þetta er ekki síst til komið með
því að stórmarkaðir eru farnir að
sækja inn á plötumarkaðinn. Þar
hentar frekar að vera með eina
plötu með úrvali af því besta, sem
hentar meðalmanneskjunni.
Niðurstaðan er að minnsta
kosti sú að kröfurnar sem gerðar
eru til „best of“ platna er að þær
þurfa langt í frá að innihalda
ekkert nema topp tíu-smelli.
Of mikið af því góða
’Ástæða vinsælda smellaplatna hjá út-
gáfum er ábyggilega
ekki síst sú að þær
er ódýrt að gefa út
og auglýsa.‘
AF LISTUM
Inga Rún Sigurðardóttir
Reuters
Brian Littrell og félagar hans í Backstreet Boys eru á meðal þeirra sem
hafa sent frá sér smellaplötu.
ingarun@mbl.is
!
"
#
! $%
& ' (
) * +,
!
-
)
* . !
! - '
PÁLMI og Adam komu, sáu og sigr-
uðu á fimmta Íslandsmótinu í
KUBB, sem fram fór í Borgarnesi á
laugardaginn. Lið þeirra, Bling
Bling, sigraði KOMATSU í úrslita-
leik af nokkru öryggi og á heimasíðu
KUBB-vefjarins segir að sigur
þeirra hafi verið fyllilega verðskuld-
aður, „þrátt fyrir að KOMATSU
hefði eitt fárra liða staðið í þeim af
einhverju viti“.
Blíðskaparveður og frábær
stemmning var í Borgarnesi og er
það mál manna að þetta hafi verið
best heppnaða Íslandsmót frá upp-
hafi. Fyrir utan keppnina sjálfa voru
veitt margvísleg verðlaun. Skemmti-
legasta liðið var kjörið Hringhorni
en liðsmenn mættu íklæddir vík-
ingafötum með öl í hönd og
skemmtu sjálfum sér og viðstöddum
með orðum og gjörðum.
Bling Bling var valið mest „101“-
liðið, en liðsmenn mættu borg-
aralega klæddir hlaðnir „blingi“ um
háls. Best klædda liðið var valið
LEGO-gubbarnir en meðlimir þess
mættu í gervi asískra meindýraeyða.
Morgunblaðið/Eggert
Jóhanna Þórdórsdóttir, Katrín Júlíusdóttir og Hólmfríður Sveinsdóttir
voru í eina kvennaliðinu, Í rauðum sokkum.
Víkingar fóru m.a. í leik sem kallast fæðing.
Einbeitingin var mikil.
Íþróttir | Fimmta Íslandsmótið í KUBB
Bling Bling kom,
sá og sigraði
Hægt er að nálgast leikreglur og
aðrar upplýsingar um KUBB-spilið
á vefnum folk.is/kubb.