Morgunblaðið - 17.09.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 251. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Örlög í marg-
ræðu verki
Manntafl Stefans Zweig frumsýnt
í Borgarleikhúsinu | Menning
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag
Lesbók | Skrifaðu aldrei líbrettu Það eru engir fuglar í helvíti Börn | Hvaða
galdrastelpa ert þú? Kanntu að teikna hús? Íþróttir | Víkingar í úrvalsdeildina
Hermann leikur 200. leikinn Enski | Nick Hornby heldur með Arsenal
Seyðisfjörður | Í gær voru nýir
snjóflóðavarnargarðar vígðir í
Bjólfinum ofan við Seyðisfjörð.
Eru þeir í um 620 metra hæð yf-
ir sjávarmáli og reistir á svokall-
aðri Brún. Um er að ræða 450
metra langan þvergarð og 200
metra langan leiðigarð, net-
grindur úr 6.000 fermetrum stáls
eru í efstu 10 metrum garðanna
og grjótfylling hlaðin upp undir
grindurnar. Tilgangur varn-
argarðanna er að hægja á eða
stöðva snjóflóð efst úr Bjólfinum,
sem er aurflóðavarnir. Þar er
hætta á aurflóðum þegar gerir
asarigningar og menn hafa verið
að skoða að búa til e.k. drenskurði
ofan byggðarinnar svo að vatns-
söfnunin verði leidd í burtu.
Við höfum gengið frá útsýn-
ispöllum og göngustígum um-
hverfis varnargarðinn þannig að
þetta er líka hugsað þannig að
fólk geti komið og bæði skoðað
varnarmannvirkin og notið útsýn-
isins yfir fjörðinn, sem er ægi-
fagurt uppi á brún Bjólfsins.“
hefur tekið á þriðja ár í fram-
kvæmd og var unnið að sum-
arlagi. Ofanflóðasjóður greiðir
90% kostnaðar við garðinn, en
Seyðisfjarðarkaupstaður 10%.
„Varnarmannvirkin verja Öld-
una og Bakkana þannig að mjög
fá íbúðarhús í bænum verða enn á
mesta hættusvæðinu,“ sagði
Tryggvi.
„Ég reikna ekki með að farið
verði í frekari varnaraðgerðir
þarna megin fjarðar, en hinum
megin erum við í öðru verkefni
þannig að þau fari ekki fram af
Brún og taki með sér meiri snjó úr
stórum og miklum brekkum ofan
við byggð á Seyðisfirði.
Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri
á Seyðisfirði, sagði að heild-
arkostnaður við mannvirkið væri
undir 320 milljónum króna, en
hann var upphaflega áætlaður
hundrað milljón krónum hærri.
Skýring mismunarins eru hag-
stæð útboð í upphafi, en Íslenskir
aðalverktakar önnuðust verkið
ásamt undirverktökum. Verkið
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Snjóflóðavarnargarður í Bjólfi tilbúinn
Berlín. AFP, AP. | Gerhard Schröder, kansl-
ari Þýskalands, reyndi til hins ýtrasta að
vinna kjósendur á sitt band í gær, tveimur
dögum fyrir þingkosningar í landinu. Mjög
tvísýnt er um úrslit þeirra og samkvæmt
nýjustu skoðanakönnunum hefur fjórð-
ungur kjósenda ekki enn gert upp hug
sinn.
Schröder biðlaði ákaft til óákveðnu kjós-
endanna þegar hann kom fram á kosninga-
fundi á Gendarmenmarkt-torgi í Berlín í
gærkvöldi. Hann lagði áherslu á að efna-
hagslegar umbætur hans væru farnar að
bera árangur og sakaði Angelu Merkel,
kanslaraefni kristilegu flokkanna, um að
stefna að skattabreytingum sem myndu
minnka byrðar tekjuhæsta fólksins á
kostnað þeirra sem minna mega sín.
Merkel flutti ávarp í fjölleikahúsi í Berl-
ín í gærkvöldi og sakaði Schröder um svik-
in loforð og misheppnaða efnahagsstefnu.
Fáir spá því að Schröder haldi kanslara-
embættinu en hugsanlegt er að hvorug
meginfylkinganna nái meirihluta á
þinginu.
Ný könnun Forsa-stofnunarinnar bend-
ir til þess að kristilegu flokkarnir tveir fái
41–43% fylgi og Frjálsir demókratar 7–8%.
Samanlagt gætu þeir því fengið 48–51%.
Fylgi Jafnaðarmannaflokksins er um
32–34% og Græningja 6–7%, ef marka má
könnunina. Skekkjumörkin voru 2,5%.
Reuters
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands,
á kosningafundi í Berlín í gærkvöldi.
Biðlað til
óákveðinna
kjósenda
„ÉG tel að þessi ákvörðun um að
Íslendingar sækist eftir setu í Ör-
yggisráðinu sem ákveðin var af rík-
isstjórn og Alþingi fyrir um sjö ár-
um sé núna í miklu uppnámi,“ segir
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra og varaformaður Framsókn-
arflokksins.
Hjálmar Árnason, formaður
þingflokksins, segir að málið hafi
ekki verið afgreitt úr þingflokknum
og hann segist líta svo á að hin
formlega ákvörðun um framboð Ís-
lands hafi enn ekki verið tekin.
Guðni segir að Davíð Oddsson sé
efins eða hafi skipt um skoðun
varðandi framboð Íslands. Þá hafi
Einar Oddur Kristjánsson, vara-
formaður fjárlaganefndar, hafið
fulla baráttu gegn þessari ákvörð-
un. Guðni minnir á að ríkisstjórnin
verði að sækja fjármagn vegna
framboðsins til Alþingis.
„Þess vegna verða stjórnarflokk-
arnir að fara yfir málið og meta
stöðuna. Ef það eru efasemdar-
menn í Sjálfstæðisflokknum þá eru
þeir ekkert síður í Framsóknar-
flokknum. Efasemdir manna og
þar á meðal mínar hafa auðvitað
vaxið hvað þetta mál varðar ekki
síst þegar veröldin harðnaði. Hún
hefur harðnað mikið á síðustu ár-
um. Menn eru auðvitað ekki eins
sannfærðir og áður um að það séu
hagsmunir lítillar friðelskandi
þjóðar að blanda sér í ákvarðana-
töku með svo afgerandi hætti. Svo
hafa auðvitað aðstæður í þessu máli
breyst hvað framboðið varðar;
bæði sækir Tyrkland málið stíft af
sinni hálfu og staðan kannski orðin
sú að fjármagnið er meira sem fer í
þessa baráttu en menn gerðu sér
grein fyrir í upphafi. Nú eru menn
að tala um einn milljarð króna,“
segir Guðni.
„Í rauninni kom þetta dálítið á
óvart því að það hefur ekki verið
tekin formleg ákvörðun um fram-
boðið,“ segir Hjálmar Árnason um
yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar
forsætisráðherra á leiðtogafundi
Sameinuðu þjóðanna um framboð
Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.
„Málið hefur margsinnis verið
rætt í þingflokki framsóknarmanna
og tínd hafa verið til rök bæði með
og á móti. En þetta er mál sem
formlega hefur ekki verið afgreitt
út úr þingflokknum,“ sagði Hjálm-
ar.
Guðni Ágústsson segir efasemdaraddir meðal framsóknarmanna
„Framboð Íslands núna
í miklu uppnámi“
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Ekkert síður | 10
Guðni Ágústsson Hjálmar Árnason
Málið hefur ekki verið afgreitt úr þingflokknum, segir Hjálmar Árnason
Í DAG kemur út ný og
endurort Völuspá fyrir
börn á öllum aldri.
Kristín Ragna Gunn-
arsdóttir hannaði bók-
ina og gerði myndir en
Þórarinn Eldjárn end-
urorti sjálfa Völuspá.
„Sá sem tekur sér
fyrir hendur að gera
svona endursögn hlýt-
ur þá að taka afstöðu.
Sem rithöfundur, en ekki fræðimaður, þá
geri ég það auðvitað á endanum út frá
mínu brjóstviti og eftir því hvað hljómar
best,“ segir Þórarinn. Kristín Ragna fékk
hugmyndina að bókinni fyrir áratug og
hafði síðan samband við Þórarin. Sjálf
lagðist hún í mikla fræðivinnu, fyllti
hverja skissubókina á fætur annarri og
endaði að lokum málandi á gólfinu heima
hjá sér. „Það er svo oft sem maður hefur
lítinn tíma til að vinna verk en ég ákvað að
í þessu tilfelli skyldu ekki gerðar neinar
málamiðlanir,“ segir Kristín. 32 | 35
Litrík Völuspá
fyrir börn
á öllum aldri
Kristín Ragna
Gunnarsdóttir
♦♦♦