Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Turn Kísiliðjunnar íMývatnssveit varfelldur í vikunni. Starfsemi verksmiðjunnar var hætt í lok síðastliðins árs og misstu fjölmargir íbúar í kjölfarið atvinnu sína. Þegar fyrir lá að verksmiðjunni yrði lokað var þegar farið að leita leiða til að skapa atvinnu í sveitarfélaginu í hennar stað. Margt hefur verið til skoðunar, m.a. kísilduft- verksmiðja og lífmassa- verksmiðja, en ekkert orð- ið úr. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur eyrnamerkt fé, 200 milljónir króna, sem ætl- unin er að verja til atvinnuupp- byggingar í Skútustaðahreppi og undanfarna mánuði hefur rekstur pappabrettaverksmiðju á vegum Grænna lausna verið til skoðunar. „Við skoðuðum þennan kost vel,“ segir Gunnar Örn Gunnars- son, framkvæmdastjóri Nýsköp- unarsjóðs, „og teljum að þarna geti orðið um að ræða áhugavert verkefni.“ Hann segir um mikla nýsköpun að ræða og klárlega fylgi því nokkur áhætta, en jafn- framt ávinningur takist vel til. Sjóðurinn hefur umboð til að ganga til samninga við forsvars- menn Grænna lausna með það fyr- ir augum að fjárfesta í félaginu, leggja fram 200 milljónir í hlutafé. „Við höfum síðan verið að semja við Grænar lausnir og höfum gert það í góðri trú og ágætri sátt, en hlutirnir taka alltaf lengri tíma en menn vilja.“ Hann sagði að mörgu að huga og að hnýta þyrfti marga enda áður en málið væri í höfn. „Það eru ennþá lausir endar, það á eftir að klára ákveðna þætti, fyrr er ekki hægt að segja að málið sé komið á hreint.“ Gunnar Örn taldi að meiri líkur en minni væru á því að verk- smiðjan risi. „Það á að vera hægt að leysa ágreining sem uppi er varðandi verksmiðjuna ef viljinn er fyrir hendi,“ sagði hann, en gat þess jafnframt að ef það gerðist ekki á allra næstu vikum yrðu menn að fara að hugsa sinn gang, huga að einhverju öðru. Áætlanir gera ráð fyrir að um 20 manns starfi í verksmiðjunni þegar hún hefur náð fullum afköstum, en heildarfjárfesting vegna verkefn- isins nemur um 1,8 milljörðum. Ferðaþjónusta hefur ávallt skip- að veglegan sess í atvinnulífi Mý- vetninga, enda er sveitin ein af náttúruperlum landsins og þangað leggur mikill fjöldi fólks leið sína, Íslendingar sem útlendingar. Það var mikil lyftistöng fyrir atvinnu- lífið og ferðaþjónustuna þegar Jarðböðin við Mývatn voru opnuð í fyrrasumar. Nú stefnir í að yfir 50 þúsund manns sæki Jarðböðin á fyrsta heila starfsári þeirra. Aukin starfsemi Félagið hefur hug á að færa verulega út kvíarnar, fyrir liggur viðskiptaáætlun sem kynnt verður í byrjun næsta mánaðar, en hún er um byggingu og rekstur meðferð- armiðstöðvar. Um yrði að ræða samstarfsverkefni með Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga, að sögn Pét- urs Snæbjörnssonar, formanns stjórnar Jarðbaðanna. „Þetta er spennandi verkefni og lofar góðu,“ sagði Pétur. Miðstöðin yrði með 40 rúmum og yrði a.m.k. í fyrstu eink- um lögð áhersla á forvarnir á sviði tóbaksvarna og offitu og einnig gigtarmeðferð. Pétur sagði um- frameftirspurn vera á slíkar með- ferðarmiðstöðvar sem fyrir eru í landinu, „og við teljum okkur geta bætt þarna við.“ Ef vel tækist til sagði Pétur að horft yrði til alþjóðamarkaðar á þessu sviði, enda værum við sífellt að færast nær heiminum, eins og hann tók til orða. Töluvert af sér- hæfðum störfum skapast á svæð- inu í kjölfarið, „og þetta styrkir líka grundvöllinn í vonandi sam- einuðu sveitarfélagi Þingeyinga,“ sagði Pétur. Raunhæft er að hans sögn að stefna að því að starfsemi geti í fyrsta lagi hafist árið 2007. Aðalsteinn Baldursson, formað- ur Verkalýðsfélags Húsavíkur, bindur miklar vonir við væntan- lega brettaverksmiðju. „Mývetn- ingar lifa ekki á ferðþjónustunni einni saman. Þarna er sterkt bændasamfélag og öflug ferða- þjónusta yfir sumartímann en það verður að koma upp öflugum at- vinnurekstri í stað Kísiliðjunnar sem styrkir stoðir sveitafélags- ins.“ Aðalsteinn sagði að atvinnu- ástandið í Mývatnssveit hefði verið nokkuð gott að undanförnu. Þrír einstaklingar voru á atvinnuleys- isskrá um síðustu mánaðamót en nú fer hins vegar að draga saman í ferðaþjónustunni. „Ferðaþjónust- an hefur verið í hámarki, fólk hefur farið til vinnu í öðrum landshlutum og einhverjir hafa flutt burt úr sveitarfélaginu eftir lokun Kísiliðj- unnar. Ég veit til þess að fólk vilji flytja aftur í Mývatnssveit en þar er enga vinnu að fá sem stendur.“ Aðalsteinn bindur jafnframt miklar vonir við frekari uppbygg- ingu í orkugeiranum á svæðinu, í Kröflu, Bjarnarflagi og á Þeista- reykjum. „Ég hef fulla trú á því að Kröfluvirkjun verði stækkuð á næstu árum og virkjun reist á Þeistareykjunum. Það er alltaf mikill umsýsla í kringum slíkan rekstur, sem á eftir að nýtast Mý- vetningum vel.“ Fréttaskýring | Pappabrettaverksmiðja Meiri líkur en minni Ágreining verður að leysa á næstu vikum ella huga að öðrum tækifærum Jarðböðin við Mývatn njóta vinsælda Hugmyndir um meðferð- arstofnun við Jarðböðin  Ferðaþjónusta er Mývetn- ingum mikilvæg og hefur til- koma Jarðbaðanna styrkt mjög og eflt þá atvinnugrein. Stefnt er að því að reisa á vegum félagsins meðferðarstofnun, sem myndi í fyrstu einkum höfða til fólks með gigt og forvarna á sviði tóbaks og offitu. Raunhæft þykir að stefna að því að slík miðstöð verði komin á laggirnar árið 2007 og að síðar verði hægt að bjóða útlendinga velkomna. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur og Kristján Kristjánsson OG Vodafone og Neyðarlínan hf., sem rekur neyðarnúmerið 112, hafa undirritað samning sem gerir 112 mögulegt að staðsetja farsíma viðskiptavina Og Vodafone þegar hringt er í 112. Áður hefur slíkt verið kleift með viðskiptavini Sím- ans. Stefnt er að því að ljúka tæknilegri útfærslu sem allra fyrst og virkja þjónustuna innan tveggja mánaða. Og Vodafone hefur hingað til rekið bakvakt tæknimanna allan sólarhringinn og segir félagið að það hafi meðal annars verið gert til þess að tryggja að unnt sé að veita lögreglu og 112 upplýsingar um staðsetningu símatækja til þess að stytta viðbragðstíma í neyðartilvikum. Með því að tengj- ast kerfi 112 verði hægt að stað- setja farsíma í GSM kerfi Og Vodafone með enn meiri ná- kvæmni og í rauntíma. Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðarlínunnar, og Árni Pétur Jónsson, forstjóri Og Vodafone, undirrituðu samninginn. Og Vodafone og Neyðarlínan ganga frá samningi ELÍN Ebba Ásmundsdóttir, for- stöðuiðjuþjálfi geðsviðs Landspítala – háskólasjúkrahúss, hefur ákveðið að taka sér ársleyfi frá störfum, en inni- falið í því er þriggja mánaða námsleyfi sem Elín mun nýta að hluta til að kynna sér ástand geðheil- brigðismála í Nor- egi. „Ég minnka vinnu mína á spítalanum í skrefum, því starfið þar er nokkuð sem ekki er hægt að skera á samstundis, en ég mun að auki taka mér leyfi frá öllum mínum störfum þegar ég fer út til Noregs. Þar verð ég við Háskólann í Þránd- heimi og fylgist með því sem er að gerast í Noregi, hvað notendur hafa verið að gera í Þrándheimi og hvar Norðmenn eru yfirleitt staddir varð- andi geðheilbrigðismál en ég veit að þeir hafa einkavætt hluta af sinni starfsemi,“ segir Elín Ebba. Hún segist ætla að íhuga mál sín gagnvart Landspítalanum þegar hún snýr aftur til Íslands næsta haust. „Þá ætla ég að sjá hvort Landspítalinn vill nýta krafta mína til að færa hluta starfseminnar, sem snýr að mér, út af spítalanum,“ segir Elín Ebba og bætir við að hún vilji auka umræðuna um heilbrigðismál á Íslandi og jafnvel að endurskoðun á heilbrigðiskerfinu fari fram. Í ársleyfi frá starfi Elín Ebba
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.