Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Már GuðlaugurPálsson fæddist í Sandgerði á Fá- skrúðsfirði 26. maí árið 1931. Hann lést á Hraunbúðum, dvalarheimili aldr- aðra í Vestmanna- eyjum, 8. september síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Þuríður Guð- mundsdóttir frá Tjarnarkoti á Stokkseyri og Páll Jóhannes Guð- mundsson frá Sandgerði á Fá- skrúðsfirði. Systkini Más eru Pét- ur Ólafur, f. 3. nóvember 1927; Valdís Viktoría, f. 14. september 1929; Brynja Jónína, f. 26. desem- ber 1935; Kristinn Viðar, f. 4. nóv- ember 1938; Einar Sævar, f. 17. október árið 1941, d. 6. mars 1989; Guðmundur, f. 3. janúar árið 1943; Snjólaug, f. 15. mars 1944; og Jóhanna, f. 5. mars 1946. Einnig eignuðust foreldrar þeirra sveinbarn, sem lést í bernsku. Á unglingsárum sótti Már námskeið á vegum Vélskóla Íslands og með þá menntun stundaði hann sjómennsku meðan heilsa hans leyfði. Árið 1988 voru Má veitt heið- ursverðlaun fyrir störf sín í þágu sjávarútvegsins. Hann var ókvæntur og barn- laus. Útför Más verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Meðan foreldrar okkar bjuggu á Fáskrúðsfirði fæddust þeim fjögur elstu börn sín en árið 1934 fluttust þau til Vestmannaeyja og settust að á Þingeyri við Skólaveg en bjuggu síðan lengst af í Héðinshöfða. Árið 1955 lést faðir okkar og 1963 flutti fjölskyldan í Pétursey og þar bjó móðir okkar meðan hún lifði. Þegar ég minnist Más bróður míns, sveipast um hugann blær hinna liðnu daga, þegar við vorum að alast upp í stórum systkinahópi, sem var eins og öflug keðja og hver hlekkur hélt hinum saman, svo sam- rýnd vorum við. Við vorum studd af góðum foreldrum til verka og unnum okkur áfram með þann arf, sem okk- ur hafði hlotnast. Már var alla tíð hlédrægur og tamdi sér nægjusemi. Hann ræktaði skyldur sínar í kyrrþey og gerði hóf- samar kröfur til lífsins. Hann gat orðið bitur, ef honum fannst eitthvað gert á hlut sinn, en hans ríka réttlæt- iskennd hafði sýnt honum að allt var ekki öðrum að kenna. Þegar hann komst á unglingsár hafði hann þegar gert upp hug sinn hvað varðaði framtíðina, hann ætlaði sér að gerast sjómaður eins og faðir hans og eldri bróðir. Sautján ára gamall er hann skráður aðstoðar- matsveinn á ms Helgafelli, sem hlutafélagið Sæfell gerði út. En þótt hraustur væri bilaði heilsan, og var hann um tíma á Vífilsstöðum. En hinn hrausti líkami hans vann sig upp úr veikindunum og náði sér að fullu. Mér er það minnisstætt eftir að hann kom aftur til Eyja eftir leguna á Vífilsstöðum að Guðmundur afi á Búðarfelli kom heim á hverjum morgni og færði honum flösku af maltöli með hlýlegum óskum um góðan bata. Þegar ég lít um öxl til bernskuáranna bregður fyrir mynd, sem aldrei hefur máðst. Á þeim ár- um var Roy Rogers aðal kvikmynda- hetjan, og á hverjum sunnudagi hóp- uðust unglingar í samkomuhúsið til að líta hana augum og æfa hetjudáð- ir hans að lokinni sýningu. Svo var það einu sinni á sumar- degi, að margir okkar kvikmynda- gesta vorum vestur í hrauni með tré- byssurnar í miklum hasarleik að það kvað við skothvellur og við sáum gömlu konuna á Brimhól hníga til jarðar illa særða. Þar höfðu ungir menn farið ógætilega með alvöru skotvopn og ekki gætt sín. Daginn eftir kom Stebbi Pól heim í Héðinshöfða og hirti af okkur tré- byssurnar, sem okkur þótti sárt að missa. Eflaust hefur það vakað fyrir pólitíinu að börn ættu ekki að vera með slík leikföng í fórum sínum. Aðrir leikir væru heilbrigðari. Svo kom haustið og Már bróðir fór í siglingu á mótorbátnum Suðurey með fisk til útlanda. Mikið vorum við yngri bræður hans eftirvæntingar- fullir á komu hans, því við vissum að eins og í öðrum siglingum, myndi hann gleðja okkur með einhverjum gjöfum. Það var um nótt, sem hann vakti okkur og útdeildi gjöfum. Og hvílík- ar gjafir fannst okkur gylltar knall- ettubyssur með rauðu skafti, alveg eins og hetjan okkar í villta vestrinu handlék af svo mikilli fimi. Auðvitað vakti þetta mikla athygli meðal leik- félaga, sem öfunduðu okkur af þess- ari miklu gersemi. Um tvítugsaldur fór Már í útgerð með Hlöðveri Helgasyni, og gerðu þeir um tíma út vélbátinn Vin, sem var í eigu Árna Finnbogasonar í Hvammi við Kirkjuveg. En síðan reri hann lengi á Voninni með bræðrunum frá Holti. Einn bræðr- anna var Guðmundur, sem hann taldi einhvern útsjónarsamasta skip- stjóra, sem hann hefði kynnst. Síðan tók hver báturinn við af öðr- um. Lengi reri hann með Villa Fis- her, öðlingsmanni frá Grímsey, sem var skipstjóri á Hringver, í eigu Helga Benediktssonar. Þegar Villi flutti sig yfir á Engeyna og síðan á Akureyna fylgdi Már honum í bæði skiptin. En þeir bátar voru í eigu Einars ríka. Og þegar Villi fór í sína eigin útgerð og gerði út vélbátinn Kóp var Már sá fyrsti, sem hann réð til sín. Árið 1971 keyptu hann og tveir bræður hans, Einar og Guðmundur, ásamt mági sínum Henry, vélbát, sem var í eigu Einars ríka, og nefndu hann Draupni VE 551. Árið 1973 seldi Henrý bræðrunum sinn hlut í útgerðinni. Árið 1975 urðu nokkur þáttaskil hjá þeim bræðrum, þegar þeir keyptu sér stærri bát, sem þeir skírðu Draupni VE 550. Og þann bát gerðu þeir út til ársins 1990, að þeir seldu Magnúsi Kristinssyni bátinn. Eftir það fóru þeir í smáútgerð og létu smíða fyrir sig plastbát, sem þeir gerðu út í fáein ár. Og enn héldu þeir sig við nafnið á hring Óðins, sem þeir töldu happasælt þrátt fyrir ýmis óhöpp, sem ekki gera boð á undan sér. Mannkostir Más bera vitni um góðhjartaðan mann, sem aldrei mátti neitt aumt sjá. Hann hafði líka þann eiginleika að vega ekki að þeim, sem minna máttu sín. Slíkt er öllum auði betri, því í skugganum af gleðinni standa margir. Vissulega átti hann sína erfiðu stundir í lífinu og honum mættu vonbrigði, en hann yfirvann það með hjartagæsku sinni. Kannski sátu í honum þær stundir æskuáranna, þegar hann þurfti að nota gleraugu eftir augnuppskurð og sætti aðkasti. Og oft þurfti hann að berjast fyrir heiðri sínum. Á mánabjörtum og mildum sum- arkvöldum var það hans yndi að heimsækja fjölskyldu mína ásamt systkinum okkar í sumarbústað suð- ur í hrauni. Og minningin frá þeim árum svaf lengi í sálu hans, og hann minntist oft á þær stundir þegar við sátum úti í kvöldskininu með kaffi- bollana og ræddum saman hjá snarkandi varðeldinum. Þá skein veröldin í öllum sínum regnbogans litum Við endalok mannlegrar tilveru sjáum við best hvers virði mann- gæskan er. Börn hændust að Má, hann hefði verið vís til að gefa þeim það mikilsverðasta af sjálfum sér ef þess hefði verið óskað. En öll hans tilvera var bundin hinni stórbrotnu náttúru sem umlykur okkur. En þegar skynjun og vitund hurfu inn í hinn djúpa dal gleymskunnar fannst honum fjara undan tilveru sinni og sætti sig ekki við það hlut- skipti. Á Hraunbúðum dvaldi hann síðustu mánuði lífsins, í umsjón hins óþreytandi og elskulega starfsfólks þeirrar stofnunar, sem á miklar þakkir skilið. MÁR GUÐLAUGUR PÁLSSON Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur vinarhug og hlýju við andlát og útför HARALDAR STEINÞÓRSSONAR, Neshaga 10, Reykjavík. Þóra Sigríður Þórðardóttir, Steinþór Haraldsson, Guðríður Hulda Haraldsdóttir, Ólafur Haraldsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Páll Stefánsson, Elín Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVEINBJARGAR GEORGSDÓTTUR, Hæðargarði 35, Reykjavík, fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 19. september kl. 11.00. Ólöf Haraldsdóttir, Stefán Aðalsteinsson, Einar Haraldsson, Guðrún Ásgeirsdóttir, Ólafur Haraldsson, Jóna Jóhannsdóttir, Helgi Már Haraldsson, Ingibjörg Heiðrún Sigfúsdóttir, Magnús Þór Haraldsson, Þórey Magnúsdóttir, Haraldur Þór Stefánsson, Kolbrún Tobiasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Föðurbróðir minn, MAGNÚS GÍSLASON frá Stöðvarfirði, síðast til heimilis á Uppsölum, Fáskrúðsfirði, verður jarðsunginn frá Stöðvarfjarðarkirkju laugardaginn 17. september kl. 14.00. Hans Eiríksson. Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLI BERGHOLT LÚTHERSSON húsvörður, Ásbraut 21, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánu- daginn 19. september kl. 13.00. Svana Svanþórsdóttir, Ragna Óladóttir, Eiríkur G. Guðmundsson, Kristín Th. Óladóttir, Óli Sævar Laxdal, Ásdís Óladóttir, Lúther Ólason, barnabörn og barnabarnabarn. Systir mín og mágkona, GRÓA SÓLBORG JÓNSDÓTTIR frá Stóra-Sandfelli, lést fimmtudaginn 15. september. Jóna Kristbjörg Jónsdóttir, Magnús Stefánsson. Okkar ástkæra móðir, dóttir og systir, MATTHILDUR VICTORÍA HARÐARDÓTTIR, lést af slysförum laugardaginn 10. september. Útförin verður auglýst síðar. Vigfús Daði Vigfússon, Arnar Freyr Vigfússon, María Jóhannsdóttir, Hörður G. Albertsson, Guðný, Auður og Erla Ruth Harðardætur og aðrir elskandi ástvinir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, INGU JÓHÖNNU ÓLAFSDÓTTUR, Kópavogsbraut 86, Kópavogi. Hulda Björg Sigurðardóttir, Haukur Sigurðsson, Anna Margrét Sigurðardóttir, Ólafur Atli Sigurðsson og fjölskyldur. Móðir okkar, MARGRÉT Ó. THORLACIUS, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fimmtudaginn 15. september. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafur Þór, Guðfinna og Margrét Thorlacius. BRYNJÓLFUR BRYNJÓLFSSON Keilusíðu 9a, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu- daginn 4. september. Útför hans hefur farið fram. Kristín Stefanía Kristjánsdóttir og fjölskylda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.