Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 55 MINNINGAR Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista Brimaldan brotnar við ströndina, þar sem spor hans liggja, og þótt tröllaukinn veðrahamur og rísandi hafaldan skelli á bergi bláu þá eru átthagarnir ávallt fegurstir. Við systkinin þökkum þér fyrir allt, sem þú gerðir fyrir okkur. Ég efast ekki um að við fótskör almættisins hjá lindinni tæru bíði foreldrar okkar og taki þig í faðm sinn. Far vel til fegri heima, kæri bróð- ir. Kristinn Viðar Pálsson. Hinn 8. september fengum við símtal frá Íslandi, Moddi mágur minn og vinur var látinn. Þetta kom ekki að óvörum, Moddi hafði átt við veikindi að stríða um nokkurt skeið. Við hjónin áttum heima í Dan- mörku í nokkur ár og var Moddi fastur sumargestur hjá okkur. Þenn- an tíma auðnaðist mér að kynnast honum betur, hans bestu hliðar komu fram og hann hlakkaði alltaf til að koma í heimsókn. Við fórum víða um og alltaf fannst honum jafn gaman. Já, minningarnar eru alltaf til staðar og við munum sakna hans. Jóhanna kona mín hefur alltaf litið á hann sem staðgengil föður síns, sem lést þegar hún var á barnsaldri. Már var alltaf til staðar. Hér með kveðjum við góðan vin, frænda og bróður. Henry Mörköre , Jóhanna, börn og fjölskyldur þeirra. Ég sit hérna fjarri heimaslóðum og rifja upp minningar um hann frænda minn, Modda, eins og hann var alltaf kallaður. Langar mig að minnast hans í fáum orðum. Af nógu er af taka og byrjar minningin þegar ég man fyrst eftir mér í Pétursey á Hásteinsveginum. Moddi var góð- mennskan uppmáluð og mátti ekki neitt aumt sjá. Ég var svo lánsamur, ásamt systur minni, að fá að alast upp með þessum öðlingi, þar sem aðrir í heimili voru tveir bræður hans, amma mín og móðir. Bræðurn- ir voru sjómenn og gerðu út bátinn Draupni VE sem var aðgangur mik- illa ævintýra fyrir lítinn Eyjapeyja. Fékk ég að fara með í ófáar sjóferð- irnar með þeim bræðrum og var allt- af jafngaman. Var alltaf vel passað upp á drenginn. Að alast upp með sjómönnum er bæði góður og skemmtilegur skóli. Á sjónum verða allir að taka til hendinni og þeir sem ekki gera það fá að heyra það óþveg- ið. Geta orðaskiptin verið hörð og beinskeytt en sanngjörn. Aldrei voru menn að erfa eitt eða neitt og flest gleymt yfir næsta kaffibolla í lúk- arnum. Hvað sem á gekk þá skipti Moddi aldrei skapi eða hækkaði rödd sína, heldur hélt hann áfram með sitt með eljusemi sinni og hóg- værð. Á sjónum leið honum best, hvort sem það var uppi á dekki í að- gerð, á spilinu eða niðri í vélarrúmi að pússa vélina. Enda var vélarrúm- ið í Draupni vel þekkt fyrir mikla snyrtimennsku og gott aðgengi og lagði Moddi mikinn metnað í að hafa vélarrúmið fínt. Í uppvexti mínum sýndi Moddi mér alltaf mikinn áhuga hvort sem um var að ræða nám eða leik. Var oft fylgt með á leiki þegar mitt lið spilaði og hvatt til dáða og seinna þegar ég hóf nám vantaði ekki stuðning og áhuginn var alltaf til staðar, þó að fjarlægðin á milli okkar ykist. En þegar komið var heim til Eyja í jólafríum og sumarfríum var þráð- urinn tekinn upp og tekinn langur bryggjurúntur og farið kringum Helgafell og síðan setið yfir kaffi- bolla í eldhúsinu í Pétursey. Seinna eftir að ég og Ester höfðum eignast börnin okkar var mikil gleði í bæ þegar komið var í heimsókn. Því Moddi var mjög mikil barnagæla og áttu mín börn yndislegar stundir með honum, eins og ég og systir mín áttum þegar við vorum lítil. Reyndar var það þannig að öll börn drógust að honum og var hann mjög ánægður með það, og einna best þótti honum þegar hann var kallaður Moddi afi. Jafnvel þótt ég hafi flutt til út- landa þá kom Moddi í heimsókn til okkar nokkrum sinnum ásamt systk- inum sínum og voru það alltaf skemmtilegir endurfundir. Síðasta ferð hans til okkar var sl. sumar og þá sá ég að heilsu hans var farið að hraka, en engu að síður áttum við góðan tíma saman. Þessir síðustu mánuðir hafa verið honum erfiðir vegna veikinda en vel var hugsað um hann af nánustu ætt- ingjum, og ekki verður hallað á neinn þótt nefnt verði að móðir mín og systir hafa verið stoð hans og stytta í veikindum hans. Einnig hef- ur hann fengið frábæra umönnun hjá starfsfólki Hraunbúða í Vestmanna- eyjum. Ég þykist viss um að Moddi kveð- ur þennan heim saddur lífdaga og sáttur við sitt og sína. Ég vil bara kveðja frænda minn og þakka honum samfylgdina og bið góðan Guð að geyma góðan dreng. Páll Hallgrímsson. Eitt af því sem trónir hvað hæst þegar litið er yfir farinn veg, eru bernskuminningarnar. Vestmanna- eyjar eiga stóran hlut af þeim, og ekki síst fjölskylda móður minnar. Segja má að svo til allan sjötta ára- tuginn hafi ég verið hjá ömmu á sumrin, fyrst í Héðinshöfða og síðan í Pétursey. Ég er raunar fæddur í Eyjum og bjó þar fyrstu ár ævinnar. Það er svo skrýtið, að það skein sól alla daga í Eyjum á þessum árum. Ég veit ekki hvort það er þannig enn í dag. Amma, bræður mömmu og systur skipa því stóran sess í lífi mínu á þessum uppvaxtarárum mín- um. Strákarnir en svo voru bræðurnir alla tíð kallaðir, stunduðu sjóinn. Fyrst voru þeir á bátum sem aðrir gerðu út. Már var lengi á Kóp Ve 11. Það var gaman að horfa bátinn koma inn um hafnarkjaftinn drekkhlaðinn síld. Biðum við vinirnir á kajanum eftir að landfestar höfðu verið festar. Það var enginn efi í huga lítils drengs þegar hann horfði á frænda sinn stökkva frá borði, að þetta skyldi líka verða hans hlutskipti, að verða sjómaður. Már var með hærri mönnum, grannur og fríður sýnum. Hann var með afbrigðum vænn maður og að sama skapi hógvær. Hann var því frábær fyrirmynd átta ára drengs. Atvinnulífið í Eyjum á þessum ár- um var afar fjörugt, sérstaklega á vetrar- og sumarvertíðum. Vissulega var atvinnan einhæf eins og gengur og gerist í sjávarplássum. En alls ekki leiðinleg. Allir sem vettlingi gátu valdið fengu vinnu. Það átti við um okkur börnin líka. Rútan frá frystihúsinu stoppaði beint fyrir framan Pétursey. Það var alltaf jafn spennandi fyrir ungan svein að stíga upp í rútuna með nestið sitt og hefja vinnudaginn eins og fullorðna fólkið. Með þessari sumarvinnu held ég að ég hafi náð að öðlast innsýn í hvers konar umhverfi hann hafi sjálfur alist upp í. Lífsbaráttan á uppvaxtarárum Más í Eyjum krafð- ist þess hreinlega að börn færu á vinnumarkað mjög ung. Sömu kröfu gerði reyndar einnig atvinnulífið. Þá er ég ekki að tala aðeins um blá- sumarið, heldur allan ársins hring. Snemma á áttunda áratugnum fóru bræðunir að gera út sinn eigin bát, Draupni Ve 550. Voru þeir ýmist á trolli eða á netum. Ég var svo heppinn að fá að vera með þeim eina vetrarvertið á Draupni. Það var vet- urinn 1975–76. Næturnar sem við löbbuðum niður Heiðarveginn á leið um borð í Draupni eru mér afar dýr- mætar minningar um þessa frábæru félaga. Með ótímabæru fráfalli Einars bróður Más eftir erfið veikindi 1989, varð til tóm hjá fjölskyldunni í Pét- ursey, sem aldrei varð fyllt. Sama ár deyr einnig Þuríður amma okkar, sem var eins konar sameiningartákn fjölskyldunnar. Hverfulleiki lífsins lætur engan ósnortinn, en ásættan- legur verður hann að vera. Það er sárt til þess að hugsa, að síðastliðin ár hefur samband mitt við Vestmannaeyjar og ættingja verið af afar skornum skammti. Ég hef fylgst með úr fjarlægð. En þegar andlátsfréttir berast, spyr maður sjálfan sig, hvers vegna þessi fjar- lægð, þegar hennar er ekki þörf? Már verður greyptur mér í minni þau ár sem mér auðnast að lifa hér á jörðu í viðbót. Ég og mín fjölskylda vottum systkinum og aðstandendum innilegustu samúð okkar. Guðmundur Einarsson. Elsku Moddi, þú kvaddir mig hinstu kveðju nokkrum dögum fyrir andlát þitt með orðunum: „Bless, Þura mín, við sjáumst aftur einhvern tímann einhvers staðar.“ Það er erf- itt að koma kveðjuorðum á blað um eins yndislegan mann og þú varst. Ég var svo heppin að fá að alast upp á þínu heimili fyrstu æviár mín ásamt bróður mínum, móður, ömmu og bræðrum þínum Gumma og Ein- ari. Fyrsta minning mín um þig, þá sit ég í fanginu á þér, en í þessu fangi fundu öll börn öryggi og hlýju. Þú stóðst við hlið mér þegar ég tók mín fyrstu skref og leiddir mig út í lífið með þinni einlægu umhyggju. Hlýja þín og góðmennska var þitt aðals- merki. Umhyggja þín í garð okkar systkina var einlæg, enda reyndust þið bræðurnir okkur eins og bestu feður hver á sinn hátt. Þú varst bón- góður og alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Þú hvattir mig áfram til að læra og gerðir við mig samning um að ef ég stæði mig vel, myndir þú bjóða mér til Danmerkur. Þessi ferð varð sú eftirminnilegasta sem við fórum saman. Þarna vorum við öll saman í góðu yfirlæti hjá Jóhönnu systur þinni. Þar varst þú í aðalhlut- verki innan um systkini þín og systk- inabörn sem öll voru þér svo kær. Þegar ég eignaðist sjálf börn, hænd- ust þau að þér. Fátt fannst þeim skemmtilegra en að fara til þín til Vestmannaeyja og vera í Modda- húsi. Það var okkur öllum erfitt að fylgjast með hvernig heilsu þinni hrakaði og þú varst ósáttur við að vera háður aðstoð frá öðrum. Þegar ég lít til baka er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa þig í mínu lífi, þú varst mér svo kær og ég vona að ég hafi getað laun- að þér þó ekki sé nema brot af þeirra góðmennsku og væntumþykju sem þú hefur sýnt mér í gegnum tíðina. Þó ég viti að þú hafir kvatt þetta líf sáttur, er sárt að eiga ekki eftir að hitta þig aftur, faðma þig og fá frá þér hlýja brosið sem sagði meira en þúsund orð. Ég kveð þig Moddi með sömu orðum og þú kvaddir mig: „Við sjáumst aftur einhvern tímann, ein- hvers staðar.“ Guð geymi þig. Þín frænka Þuríður Geirsdóttir. Elsku Moddi, ég man eftir síðasta deginum þegar ég hitti þig. Þá varstu ekkert veikburða. Þú kvaddir heiminn alveg sáttur því þú varst orðinn svo veikur. Núna ertu uppi hjá guði og þar líður þér vel. En það eina sem við vitum þegar við fæðumst er að við deyjum. En ég veit að þú lifir alltaf í minningunni. Um daginn fann ég mynd af þér með mig í fanginu þegar ég var lítil og ég hengdi hana upp á vegg og bið alltaf fyrir þér á kvöldin. Þetta var mesta sorg sem ég hef upplifað þegar mamma kom inn í stofu og sagði okkur að þú hefðir lát- ist. En ég var heppin að fá að kynn- ast þér því þú gerðir líf mitt að mörgu leyti betra. Ég man að alltaf þegar þú komst í heimsókn þá stökk ég upp í fangið á þér og þar leið mér vel. Mér fannst alltaf svo gaman að koma til Vestmanneyja til þín og Gumma. Í húsinu þínu var alltaf svo hlýtt og notalegt. Þegar ég kom í heimsókn brostirðu og tókst mig í fangið. Ég á aldrei eftir að gleyma þér því þið Gummi eruð eins og afar mínir. Mér þótti svo vænt um þig og þyk- ir það ennþá. Við sjáumst aftur. Þín elskandi frænka Sara. Elsku Moddi, ég sakna þín mjög mikið og mun alltaf gera það. Þú varst alltaf eins og afi minn. Þú varst svo veikur og nú líður þér vel og guð mun passa þig. Ég elska þig mjög mikið og á aldrei eftir að gleyma þér. Ég bið bænirnar og tala við þig hvern einasta dag. Þín frænka Anna Snjólaug. Elsku besti afi. Skyndilega ertu far- inn á betri stað. Við hefðum viljað eiga fleiri stundir með þér en þín var beðið annars staðar. Þú munt alltaf lifa í minningu okkar. Við systkinin vorum oft í pössun hjá ykkur ömmu þegar mamma okkar var í skólanum og pabbi á sjó. Þá kenndir þú okkur á spil og spilaðir á munnhörpuna fyrir okkur og söngst fyrir okkur. Við fórum ósjaldan með ykkur ömmu í bústað og að veiða sem okkur þótti rosa- lega skemmtilegt. Einnig munum við vel þegar þið amma komuð með okkur til Spánar fyrir nokkrum ár- um. Þér þótti nú ekkert alltof gott að vera í hitanum og hélst þig í for- sælunni ólíkt ömmu sem er meira fyrir að vera í sólinni. Þegar við komum í heimsókn til ykkar ömmu tókstu vel á móti okkur, og vorum við alltaf velkomin. Í dag þykir okk- ur gaman að rifja upp ýmis minn- ingabrot úr þessum heimsóknum, t.d. stundum þá yngdirðu okkur upp um nokkur ár og þá vissi maður ekki hvort þú værir að grínast eða bara farinn að gleyma. En okkur grunar að stundum hafirðu nú verið að grínast en hina stundina verið orðinn gleyminn. Oft varstu líka stríðinn og birtist það þegar við komum í heimsókn með börnin okk- ar og þá skemmtirðu þér vel. Æ, afi þú varst alltaf svo góður og skemmtilegur og mikill skemmtikraftur í þér. Þú vildir okkur öllum svo vel. Arnóri Sindra ERLENDUR KRISTJÁN VIGFÚSSON ✝ Erlendur Krist-ján Vigfússon fæddist í Hrísnesi í Barðastrandar- hreppi 24. septem- ber 1926. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut að- faranótt 11. ágúst síðastliðins og var útför hans gerð í kyrrþey 22. ágúst síðastliðinn. og Tristani Mána hennar Jóhönnu fannst mjög gaman þegar að þú spilaðir fyrir þá á munnhörp- una og lánaðir þeim hana til að spila á.Við hefðum óskað okkur fleiri stunda með þér en fáum því miður engu um það ráðið. Ekkert verður eins án þín. Okkur langar að kveðja þig með þess- um texta: Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra, við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn, minn faðir, lífsins ljós, lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur, þú ert mín lífsins rós, tak burt minn myrka kvíða, þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn, láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól, láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál, slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku amma, megi guð veita þér styrk á þessum erfiða tíma. Hér kveðjum við þig, elsku afi, með þakklæti og miklum söknuði. Þú munt lifa í minningu okkar. Þín afabörn. Jóhanna, Haukur, Erla og Selma. Góði Jesú, læknir lýða, líkna mér, sem flý til þín; þjáning ber ég þunga og stríða, þreytt er líf og sálin mín. Sjá, mitt tekur þol að þverra, þú mér hjálpa, góði herra; mín svo dvíni meinin vönd, milda þína rétt mér hönd. Sendu mínu særðu hjarta sannan frið í lífi og deyð, lát þitt náðar-ljósið bjarta lýsa mér á hættri leið. Lát þitt ok mér indælt vera, auk mér krafta það að bera, unz ég fæ þitt auglit sjá og þér sjálfum vera hjá. (Brandur Ögmundsson.) Það er komið að kveðjustund eftir rúmlega 30 ára kynni. ÓLAFUR RAGNAR KARLSSON ✝ Ólafur RagnarKarlsson mál- arameistari fæddist í Reykjavík 11. jan- úar 1929. Hann lést á Landakotsspítala í Reykjavík 4. sept- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Kópavogs- kirkju 12. septem- ber. Rifjast þá upp margar góðar sam- verustundir frá því að vera nágrannar og síð- ar vinir. Óli og Hrefna voru mjög samheldin og gott að vera með þeim. Voru margar ferðir í Skólagerði og dalinn, þar sem þau höfðu sumarhús til margra ára og nú síðast í Nú- palind. Viljum við hjónin þakka áralanga vin- áttu og sendum Hrefnu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum samúðarkveðjur. Megi guð styrkja ykkur. Sigríður og Sverrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.