Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
edda.is
Bókmenntahátíðin:
Velkomin í eftirmiðdagsspjall í Norræna húsinu
í dag kl. 15
Roy Jacobsen
í spjalli við
Einar Kárason
Lars Saabye Christensen
í spjalli við
Einar Má Guðmundsson
Tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 2002
Norskir sagnameistarar
VIÐ lá að ekkert yrði af form-
legum frágangi á kaupum Sterling
á Maersk, danska lággjaldaflug-
félaginu, fyrr í vikunni, þar sem sl.
föstudag kom á
daginn, að af-
komutölurnar
sem Maersk
hafði kynnt eig-
endum Sterling,
voru mun verri,
en þær sem
höfðu verið
kynntar við upp-
haflega samn-
ingagerð í vor
Munurinn á
raunverulegri afkomu Maersk í júlí
og ágúst og þeim spám sem kynnt-
ar voru eigendum Sterling, í vor, er
í kringum 900 milljónir króna.
Afkomuspá A.P. Möller, eigenda
Maersk, hafði gert ráð fyrir að
hagnaður í júlí og ágúst yrði um 20
milljónir danskra króna, liðlega 200
milljónir króna, en niðurstaðan
varð á hinn bóginn sú, að taprekst-
ur þessara tveggja mánaða, var um
70 milljónir danskra króna, liðlega
700 milljónir króna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gera núverandi spár ráð
fyrir því að taprekstur fyrir árið
2005 í heild, verði í kringum 200
milljónir danskra króna, eða rúm-
lega tveir milljarðar íslenskra
króna.
Almar Örn Hilmarsson, forstjóri
Sterling, segir að þetta hafi vissu-
lega verið ákveðið áfall fyrir Sterl-
ing og það hafi komið eigendum og
forsvarsmönnum félagsins í opna
skjöldu, þegar eigendur Maersk
settu samrunaferilinn nánast í al-
gjört uppnám.
Mun verri staða
„Þetta er mun verri staða, en
þeir kynntu okkur í upphafi, það
liggur alveg fyrir. Þegar við gerð-
um athugasemdir við það sl. föstu-
dag, þá stöðvuðu forsvarsmenn
Maersk alla undirbúningsvinnu að
yfirtökunni og settu kaup okkar á
Maersk beinlínis í hættu,“ segir Al-
mar Örn.
Þrátt fyrir að afkoma Maersk á
þessu ári verði mun lakari en spár
félagsins gerðu ráð fyrir, líklega
verður tapreksturinn rúmlega 2
milljarðar króna, mun það ekki
hafa áhrif á kaup Sterling á félag-
inu.
Forsvarsmenn Sterling munu
hafa komist að þeirri niðurstöðu, að
allar breytingar á félaginu í hag-
ræðingarátt verði af þessum sökum
að ganga mun hraðar fyrir sig, en
fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.
Þær áætlanir fyrir Maersk sem
kynntar voru eigendum Sterling í
vor sýndu minniháttar taprekstur
fyrstu fjóra mánuði ársins, en áætl-
anir fyrir maí til desember voru já-
kvæðari, þannig að í heild var gert
ráð fyrir því að rekstur ársins yrði
í járnum.
Miklar eldsneytishækkanir
Síðan áætlunin var kynnt í vor,
hafa orðið miklar hækkanir á flug-
vélaeldsneyti, auk þess sem sala
farmiða Maersk mun hafa dregist
umtalsvert saman, eftir að áform
um sölu á félaginu voru gerð op-
inber í júní í sumar. Samt sem áður
telja eigendur Sterling, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins, að
þær áætlanir sem þeim voru
kynntar, hafi, miðað við stöðuna í
dag, einkennst af óhóflegri bjart-
sýni.
„Þetta breytir samt sem áður
engu með kaup okkar á Maersk.
Þau eru frágengin staðreynd og fé-
lagið er á okkar ábyrgð frá 1. júlí
sl. Nú er bara um að gera fyrir
okkur, sem stöndum í þessum
rekstri, að vinna hratt og vinna vel
og ráðast af krafti í þau hagræð-
ingarverkefni sem við blasa,“ segir
Almar Örn.
Sterling situr uppi með
2ja milljarða tap Maersk
Almar Örn
Hilmarsson
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
TÓLF norskir offitusjúklingar
eru staddir hér á landi til að
gangast undir aðgerð á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi, en
slíkar aðgerðir standa ekki til
boða á norskum sjúkrahúsum.
Skurðlæknarnir Hjörtur
Gíslason og Björn Geir Leifsson
framkvæma aðgerðirnar en hér
á landi er staddur hópur
norskra heilbrigðisstarfsmanna
til að fylgjast með aðgerðunum
og læra af reynslu íslenskra
lækna.
Aðgerðir sem þessar eru
flóknar og að sögn Björns Geirs
eru þær því flóknari eftir því
sem offitan er meiri. Þeir Hjört-
ur og Björn hafa framkvæmt
slíkar aðgerðir um nokkurt
skeið og segir Björn að þeir ráði
nú við flóknustu aðgerðirnar.
Ísland hentar vel
Tæknin er hins vegar
skemmra á veg komin í Noregi
og gat Rune Sandbu, yfirlæknir
í Tönsberg, þess á blaðamanna-
fundi í gær að einfaldari offitu-
aðgerðir væri unnt að fram-
kvæma í Noregi núna.
Norskir læknar vildu hins
vegar sækja sér reynslu hingað
til lands varðandi flóknari að-
gerðirnar. Sandbu sagði það
henta norskum sjúklingum vel
að koma hingað til lands til að
gangast undir slíkar aðgerðir,
enda ekki jafnmikil umskipti að
koma hingað og til dæmis til
Rússlands eða Spánar, en þar
eru slíkar aðgerðir einnig fram-
kvæmdar. Árlega þurfa um 15
þúsund sjúklingar á slíkri að-
gerð að halda í Noregi.
Offita hefur verið skilgreind
sem sjúkdómur af Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni, þannig að
allir þeir sem eru með yfir 30 í
þyngdarstuðul þjáist af offitu.
Þyngdarstuðull er þyngd sjúk-
lings í kílóum deild með hæð í
metrum í öðru veldi. Að sögn
Björns eru norsku sjúklingarnir
sumir hverjir með þyngdar-
stuðul frá 60–80, sem er mjög
hár, og eru slíkir sjúklingar allt
að 240 kíló að þyngd.
Atferlismeðferð mikilvæg
Hjörtur Gíslason skurðlæknir
segir að atferlismeðferð sem
fram fer á undan aðgerðinni
skipti miklu máli. Sú meðferð
fer fram á Reykjarlundi þar sem
farið er yfir mataræði með sjúk-
lingum og reynt að ná í gegn
ákveðinni lífsstílsbreytingu. Sá
þáttur meðferðarinnar tekur oft
langan tíma, að sögn Hjartar, en
er mjög mikilvægur enda séu
aðgerðirnar ekki hugsaðar sem
tæki til skammtímamegrunar,
heldur sé gerð sú krafa til sjúk-
linga að þeir hafi lést áður en
aðgerðin fer fram.
Í offituaðgerðum er rúmmál
magans minnkað verulega, eða
um 95%, og þarmar styttir. Að-
gerðin hefur þær afleiðingar að
matarlyst minnkar og sjúkling-
arnir geta borðað mun minni
skammta í einu en áður.
Yfir 300 aðgerðir á LSH
Fyrstu aðgerðirnar af þessum
toga fóru fram á LSH í lok árs
2000 og hafa nú um 300 aðgerðir
verið framkvæmdar. Árangur af
aðgerðunum hefur verið góður
og að sögn Björns hafa um 90%
sjúklinga misst um 80–90% af
yfirþyngd eftir aðgerðina. Auk
Norðmannanna hafa komið
hingað til lands heilbrigðis-
starfsfólk frá Danmörku og
Bretlandi.
Morgunblaðið/Þorkell
Björn Geir Leifsson, Rune Sandbu, yfirlæknir í Tönsberg, Line Krist-
in Johnson næringarfræðingur og Hjörtur Gíslason.
Tólf norskir offitu-
sjúklingar í
aðgerð hér á landi
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Ekki unnt að framkvæma slíkar
aðgerðir í norskum sjúkrahúsum
Á FUNDI aðaldómnefndar Nýmiðl-
unarverðlauna Sameinuðu þjóð-
anna sem haldinn var í samríkinu
Bahrain, skammt frá Saudi-Arabíu í
vikunni var tilkynnt að leiktækið
DVD-kids frá íslenska fyrirtækinu
3-PLUS hefði komist í úrslit ásamt
fimm öðrum verkefnum í flokki raf-
rænnar afþreyingar.
Valið var úr 1000 tilnefningum
frá 168 löndum og var 3-PLUS eina
fyrirtækið á Norðurlöndum sem
komst í úrslitin. Þau 40 verkefni
sem komust í úrslit verða sýnd á
stórri nýmiðlunarhátíð sem haldin
verður í Túnis í nóvember næstkom-
andi, en samhliða henni verður
haldinn leiðtogafundur Sameinuðu
þjóðanna um nýmiðlun, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu um
málið.
3-PLUS framleiðir og selur leik-
tæki og leiki undir merkjum DVD-
kids. Um er að ræða þráðlaust leik-
tæki sem breytir venjulegum DVD-
spilara í leikjavél fyrir gagnvirka
og þroskandi leiki fyrir börn frá 3
ára aldri. Leikirnir byggjast á
heimsþekktum teiknimynda-
persónum sem leiða barnið í gegn-
um margvíslegar þrautir og þjálfun.
Meðal samstarfsfyrirtækja 3-
PLUS eru Fisher Price, Disney,
Smoby-Berchet, Nordisk Film,
Myndform, IMC, Mac Due og RTL
Enterprises.
Íslensk uppfinning í úrslit
Nýmiðlunarverðlauna SÞ
SÆNSKA kauphöllin hefur kært
Skandia til efnahagsbrotadeildar
lögreglu fyrir innherjaviðskipti í
sambandi við yfirtöku suður-afríska
félagsins Old Mutual á sænska
tryggingarfélaginu.
Að sögn Anders Ackebo, yfir-
manns eftirlits sænsku kauphallar-
innar, felst hið meinta brot í leka á
óopinberum upplýsingum. „Málið
snýst einnig um að ekki er leyfilegt
að veita fáum útvöldum upplýsingar
þar sem allir kaupendur verða að
sitja við sama borð,“ sagði Anders
Ackebo við fréttasofu sænsku sjón-
varpsstöðvarinnar SVT.
Burðarás, sem á 4,5% í Skandia,
hafði framselt atkvæðisrétt sinn í
Skandia vegna yfirtökumálsins til
sænska fjárfestingarfélagsins Cevi-
an Capital en eigandi Cevian hefur
lýst yfir stuðningi við yfirtökuna. Í
gærkvöld vildi talsmaður Burðaráss
ekki tjá sig um málið. „Málið er samt
mjög alvarlegt og við munum fara
yfir stöðuna á næstu dögum,“ sagði
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Burðaráss.
Skandia kært til
efnahagsbrotadeildar