Morgunblaðið - 17.09.2005, Page 21

Morgunblaðið - 17.09.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 21 ERLENT Kaupmannahöfn. AFP. | Lög- reglan í Kaupmannahöfn lagði á fimmtudagskvöld hald á málverk eftir hollenska málarann Rem- brandt, sem rænt var frá þjóð- minjasafninu í Stokkhólmi fyrir fimm árum. Verkið er sjálfsmynd af listamanninum frá árinu 1630, það er talið vera rúmlega 2,5 milljarða króna virði. Fjórir menn eru í haldi vegna málsins. Tveir mannanna eru frá Írak, einn frá Gambíu og sá fjórði frá Svíþjóð. Þegar lögreglan í Kaup- mannahöfn braust inn á hótelher- bergi þeirra á fimmtudag voru þeir að sýna væntanlegum kaup- endum verkið. Var ætlunin að færa þá fyrir dómara í gær og ákærða þá fyrir að ætla að versla með þýfi. „Við höfum lengi haft grun um að það hafi átt að selja málverkið í Kaupmannahöfn. Það er nú í okkar höndum,“ sagði Per Lar- sen, yfirmaður lögreglunnar, í gær. Ránið í þjóðminjasafninu í Stokkhólmi þykir með sögulegri ránum í Svíþjóð. Þrír menn með byssur og grímur fyrir andlitinu hlupu inn í safnið árið 2000 og stálu þremur málverkum, tveimur eftir Renoir og einu eftir Rem- brandt. Komust þeir undan á báti. Fyrsta handtakan í málinu var árið 2001 en þá tók sænska lög- reglan 13 menn vegna gruns um aðild að málinu. Átta þeirra voru dæmdir í fangelsi fyrir rán, nokkrir þeirra til meira en sex ára vistar. Fimm mannanna þurftu að greiða safninu andvirði 2,6 millj- arða íslenskra króna í skaðabæt- ur vegna ránsins. Annað verk- anna eftir Renoir fannst óskaddað í apríl árið 2001 og var það afhent safninu á nýjan leik. Endurheimtu verk eftir Rembrandt AP Sjálfsmynd hollenska málarans Rembrandts, myndinni var rænt fyrir fimm árum. skynsemi og ábyrgðar í meðferð op- inbers fjár, öfugt við það, sem þeir segja um demókrata. Þegar Bush tók við af Clinton, tók hann um leið við miklum fjárlagaaf- gangi en nú er fjárlagahallinn meiri en nokkru sinni fyrr. Hernaðurinn í Afganistan og einkum í Írak hefur verið þungur baggi en auk þess er stjórnin sökuð um að sóa gífurlegu fé í gæluverkefni í einstökum ríkjum og þá aðallega í pólitísku skyni. „Stjórnvöld í Washington hafa aldrei eytt og sóað jafnmiklu fé og nú,“ sagði Pat Toomey, fyrrverandi þingmaður repúblikana í Pennsylv- aníu og formaður íhaldssamra sam- taka, Club for Growth. „Við verðum að finna leið til að bæta úr því. Ann- ars sitjum við ekki aðeins uppi með náttúruhamfarir, heldur líka stór- slys í fjármálum ríkisins.“ www.toyota.is Grilluð dagskrá: Tilboð og veitingar. • Öllum seldum bílum þessa helgi fylgir handfrjáls búnaður • Þeir sem reynsluaka um helgina eiga möguleika á að vinna Playstation Portable • Í boði er 90% lán í nýjum bílum og 50% afsláttur af lántökugjaldi hjá Glitni • Sérlegir grillmeistarar Toyota grilla fyrir gesti Opið laugardag frá kl. 12-16 og sunnudag frá kl. 13-16 Komdu, sjáðu, reynsluaktu og njóttu! ábyrgðina á þeim. Menn hefðu ekki verið vel á verði. „Kerfið, á öllum stigum stjórnsýslunnar, var ekki vel samhæft og fyrstu dagana réð það ekki við ástandið. Fjórum árum eftir atburðina hræðilegu 11. september hafa Bandaríkjamenn fullan rétt á því að gera ráð fyrir markvissari við- brögðum á neyðarstundu,“ sagði hann. Flestar verslanir í New Orleans eru enn lokaðar en í sumum var í gær byrjað að undirbúa að opna á ný. Var byrjað að fjarlægja krossvið- arplötur sem negldar höfðu verið fyrir glugga og þrífa gólfin í veit- ingahúsum og verslunum í franska hverfinu sem liggur hærra en aðrir borgarhlutar og slapp að mestu við skemmdir. Víðast hvar er þó ekki búið að koma aftur á rafmagni eða gasi. ÖKUMENN vöruflutningabíla og landbún- aðartækja ollu nokkrum truflunum þegar þeir óku hægt á nokkrum af helstu hrað- brautum Bretlands í gærmorgun í mótmæla- skyni vegna mikilla verðhækkana á elds- neyti. Breska lögreglan í Wales brást fljótt við og skipaði öllum ökumönnum vöruflutn- ingabílanna að auka hraða sinn í 64 kíló- metra á klukkustund á M-4 hraðbrautinni og halda sig á ystu akrein. „Þetta breytir mótmælunum í farsa,“ sagði Alan Greene, talsmaður mótmælenda. Um 70 flutningabílar, 30 rútur, nokkur fjöldi leigubíla og ökumenn á einkabílum óku 145 kílómetra leið frá Llanelli til New- port í Bretlandi. Til greina kom að hætta aðgerðum á hraðbrautum og hefja þess í stað umsátur við olíuhreinsistöðvar í gærkvöldi. Fyrir réttum fimm árum tókst mótmælendum að lama að miklu leyti samfélagið með því að loka umferð til og frá olíuhreinsistöðvum. Mótmælendur krefjast þess að bresk stjórn- völd lækki álögur hins opinbera á eldsneyti en þær nema um helmingi verðsins til neytenda. Lítrinn af bensíni kostar um eitt pund, eða um 114 íslenskar krónur. Esso og fleiri fyrirtæki hafa þegar lækkað bensínverð nokkuð og er talið líklegt að BP fylgi í kjölfarið. Ekki voru allir sammála mótmælunum. Við M-4-hraðbrautina höfðu umhverf- issinnar hengt upp borða með áletrununum „Ódýrt eldsneyti er dýrt fyrir jörðina“ og „Ek- ið á vit loftslagsbreytinga“. Mótmæla eldsneytishækkunum Reuters Bílaröð mótmælenda tafði fyrir umferðinni á M-4 hrað- brautinni í sunnanverðu Wales í gær. Þrjú fyrirtæki lækkuðu í gær bensínverð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.