Morgunblaðið - 17.09.2005, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
U
ndanfarið hafa birst
margar fróðlegar nið-
urstöður nýrra rann-
sókna á sviði hjarta- og
æðasjúkdóma í
tengslum við Evrópuráðstefnu
hjartalækna sem haldin var í Stokk-
hólmi, eins og að omega-3-fitusýrur
geta haft jafngóð áhrif og kólester-
óllækkandi lyf og þunglyndi getur
verið jafnhættulegt hjartanu og reyk-
ingar.
Vilborg Þ. Sigurðardóttir er ein
þeirra sem fylgjast vel með nýjustu
rannsóknum á þessu sviði en hún hef-
ur nýlega fengið sérfræðiréttindi í
hjartalyflækningum og mun verja
doktorsritgerð sína á sviði forvarna
hjarta- og æðasjúkdóma í lok þessa
mánaðar við Gautaborgarháskóla.
Vilborg hefur stundað vísindarann-
sóknir við Wallenberg-rannsókn-
arstofuna í Gautaborg í ríflega fjögur
ár. Hún starfar því bæði í tengslum
við sjúklinga og vísindarannsóknir og
segir það afar mikilvægt.
„Það að stunda rannsóknir auð-
veldar manni einnig að tileinka sér
niðurstöður nýjustu rannsókna, sjúk-
lingunum til góða,“ segir Vilborg þar
sem hún heldur á doktorsritgerðinni
sinni nýkominni úr prentun.
Kviðfita og æðakölkun
Doktorsverkefni Vilborgar var
rannsókn á 58–61 árs gömlum körl-
um. Ómskoðun var gerð á háls- og
náraæðum, en áður hefur verið sýnt
fram á að æðakölkun í þessum æðum
getur bent til æðakölkunar m.a. í
kransæðum. Rannsóknarhópurinn
sem Vilborg starfar í stendur fram-
arlega í þróun á ómskoðunartækni til
að greina útlit áhættumeiri æðakalk-
ana. Rannsóknin staðfesti m.a. að
kviðfita er einn af stóru áhættuþátt-
unum fyrir sykursýki og æðakölkun
eins og áður var þekkt. Einnig kom í
ljós að þáttur kviðfitu vó mun þyngra
með tilliti til þögullar æðakölkunar
en vel þekktur bólgumiðill, þ.e. pró-
tein sem kallast CRP, sem tengist
hjarta og æðasjúkdómum. Af þessu
að dæma eiga karlar með ístru frek-
ar á hættu að fá t.d. hjartaáfall en
þeir sem hafa fituna dreifða um lík-
amann. Kviðfitan hefur einnig í för
með sér meiri líkur á að æðarnar
safni inn á sig „vonda kólesterólinu“,
þ.e. LDL, sérstaklega litlum, þéttum
blóðfitusameindum sem og oxuðum
LDL-sameindum sem Vilborg og fé-
lagar hennar hafa rannsakað sér-
staklega. Þekkt er að þessar sam-
eindir hafa enn meiri tilhneigingu til
að setjast inn á æðarnar og mynda
óstöðuga æðakölkun sem getur rofn-
að og myndað blóðtappa sem aftur
getur leitt til hjartaáfalls eða heila-
blóðfalls. Æðakölkun, þ.e. fitusöfnun
inni í æðum, er langt ferli sem byrjar
snemma á ævinni og þar hafa erfðir
sitt að segja en einnig áhættuþættir
eins og fituríkt mataræði, reykingar,
sykursýki, háþrýstingur, kviðfita og
of lítil hreyfing, að sögn Vilborgar.
Æðakölkunin sem Vilborg skoðaði
sérstaklega tengdist „vonda kólest-
erólinu“ en þar er ómskoðun ákjós-
anleg rannsóknaraðferð og sárs-
aukalaus. Helstu niðurstöður
Vilborgar og samstarfsmanna gefa
því vonir um að unnt sé að finna
snemma þá einstaklinga sem eru í
hvað mestri áhættu að fá heilablóð-
fall eða hjartaáfall með því að greina
þessa ákveðnu tegund æðakölkunar,
þótt hún sé lítil að umfangi, ásamt
blóðmælingu á áhættumeira formi af
vonda kólesterólinu, svokölluðu ox-
uðu LDL. Vilborg undirstrikar að
reglubundin hreyfing getur í vissum
tilvikum útrýmt háþrýstingi, aldurs-
tengdri sykursýki og lækkað vonda
kólesterólið,“ segir Vilborg. Hún
bætir við að sumir í áhættuhópnum
þurfi þó á lyfjameðferð að halda.
„Áður var sjúklingum með svæsinn
hjartasjúkdóm ráðlagt að halda
kyrru fyrir en rannsóknir síðustu ára
svo og nýjustu rannsóknir sýna að
hreyfing er ekki einungis fyrirbyggj-
andi heldur líka mjög mikilvæg í
meðferð sjúklinga með langvinna
brjóstverki, svo og í endurhæfingu
HEILSA|Hjartasjúkdómar
Ístra er stór
áhættuþáttur
Morgunblaðið/Steingerður
Vilborg Þ. Sigurðardóttir hjartalæknir segir að fitusöfnun inni í æðum byrji snemma á ævinni og þar hafi erfðir
sitt að segja en einnig fituríkt mataræði, reykingar, sykursýki, háþrýstingur, kviðfita og lítil hreyfing,
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
þörf sé á frekari staðfestingu með
stærri rannsóknum.
Hreyfing lífsnauðsynleg
Vilborg bendir á að hjartaáföll og
heilablóðföll komi oft fyrirvaralaust
og að æðasjúkdómurinn hafi verið
þögull um árabil. Áhættuþættina
þurfi því að greina snemma þannig
að fólk nái smám saman að tileinka
sér heilsusamlegri lífsstíl með bættu
mataræði og hreyfingu. „Og þær
ráðleggingar þarf fólk að taka alvar-
lega því rannsóknir hafa sýnt að
SÍÐUSTU helgi héldu vinkonurnar Katrín
Dröfn Guðmundsdóttir og Valý Ágústa Þór-
steinsdóttir bílskúrssölu heima hjá Katrínu á
Leifsgötunni. Þær vildu losa sig við allskonar
dót sem þær hafa sankað að sér í gegnum tíð-
ina: Vínilplötur, bækur, fatnað og fleira. Auk
þess er Katrín að fara til Barcelona nú í haust
og hún vill fækka veraldlegum eigum sínum
vegna millilandaflutninganna. „Þetta gekk
rosalega vel. Hér fyrir utan var mætt fólk
fimm mínútum áður en við opnuðum og beið
eftir því að komast inn. Íbúðin fylltist af fólki
á laugardeginum og ótrúlegur fjöldi fólks
kom hér við, en á sunnudeginum var færra,
en þó stöðugt rennsli af fólki,“ segir Katrín
sem er alsæl með árangurinn. „Við vorum
með rosalega mikið af dóti og þó svo að við
höfum ekki selt allt, þá seldum við alveg
heilan helling. Vinsælastar voru vínilplöt-
urnar og svo líka fötin.“
Frjálsleg verðlagning
Þær Katrín og Valý voru ekki með neitt
verðlagt fyrirfram, heldur gerði fólk bara tilboð og
komist var að sameiginlegri niðurstöðu með verð á
hverjum hlut fyrir sig. „Við ætluðum reyndar að
fara með allt þetta dót okkar í Kolaportið en okkur
fannst skemmtilegra að gera þetta svona og sjáum
ekki eftir því. Þetta var mjög gaman og hér var ein-
stök stemmning. Við fengum mikið hrós fyrir fram-
takið og einhver stakk upp á að við ættum að
leggja þetta fyrir okkur. Við bök-
uðum vöfflur, buðum upp á kaffi og
spiluðum tónlist, til að gera þetta
skemmtilegt. Vöffluilmurinn tók á
móti fólki og það féll heldur betur
vel í kramið. Fólk á öllum aldri
gerði sér ferð hingað og sumir sátu
hér lengi og spjölluðu. Það var
mjög notalegt.“ Þær vinkonurnar
Katrín og Valý fóru með það sem
ekki seldist til Rauða krossins og í
Góða hirðinn. Aðspurð segir Katr-
ín ekki ólíklegt að hún eigi eftir að
boða aftur til bílskúrssölu þegar
hún þarf næst að losa sig við upp-
safnað dót.
Morgunblaðið/Golli
Katrín og Valý á fyrri degi bílskúrssölunnar. Að baki þeim má sjá vínilplöturnar vinsælu.
Föt voru
uppi um alla
veggi og
glugga.
Alls konar dót stóð kaupendum til boða.
Vínilplöturnar höfðu mesta aðdráttaraflið
BÍLSKÚRSSALA
Vegvísirinn var heimatilbúinn og litríkur.